Morgunblaðið - 28.09.1995, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
fltrjpmMíiMí
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
STJÓRNARFORMAÐUR: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SMUGUSÆTTIR?
GAMALGRÓNAR frænd- og vináþjóðir, Norðmenn
og íslendingar, hafa eldað grátt silfur allar götur
síðan við hófum veiðar í Smugunni árið 1993. Afli
okkar þar, sem að stærstum hluta er þorskur tekinn
í flotvörpu uppi í sjó, vegur þungt í sjávarútvegi okk-
ar og þjóðarbúskap á tímum strapgra veiðitakmarkana
á heimamiðum. í fyrra Vorum við þriðja mesta þorsk-
veiðiþjóðin í Barentshafi.
Með ströngum veiðitakmörkunum hefur þorskstofn-
inn í Barentshafi náð fyrri sessi sem stærsti þorskstofn-
inn í Norður-Atlantshafi. Nýliðun hefur verið góð síðan
1989 og flestir árgangar náð meðalstærð. Á hinn bóg-
inn hefur veiðisókn vaxið mjög mikið. Líkur standa
til þess að aukin sókn muni ekki skila sér í meiri af-
rakstri til lengri tíma litið. Því hefur og verið haldið
fram að kólnun í Barentshafi og minna fæðuframboð
geti dregið úr vexti stofnsins.
Norðmenn hafa gengið fram af mikilli hörku í okk-
ar garð í Smugudeilunni. Engu að síður er réttsýnum
mönnum þar og hér ljóst, að deiluna verður að leysa
við samningaborð. Annað er þessum frænd- og forn-
vinaþjóðum ekki sæmandi. Það eru því góðar fréttir
að utanríkisráðherrar þjóðanna hafi í fyrradag rætt
hugmyndir, sem taldar eru geta leitt til lausnar á deil-
unni.
„Við Björn Tore Godal vorum sammála um“, segir
Halldór Asgrímsson, utanríkisráðherra, í viðtali við
Morgunblaðið í gær, „að leita allra ráða til að ná niður-
stöðu, en í lokin hlýtur þetta að snúast um magn, sem
við getum veitt á þessu svæði. Við ræddum réttindi
íslands og hugsanlega möguleika á kvótaskiptingu
milli þjóðanna. Það er flókið mál og embættismenn
þurfa að útfæra þær hugmyndir . .
íslendingar og Norðmenn eiga að setja metnað sinn
í að leysa þessa deilu nú. Annað sæmir hvorugri þjóð-
inni.
AUKIN VON UM
BOSNÍU-SAMKOMULAG
SAMKOMULAG það sem náðist um framtíðar stjórn-
skipun Bosníu í samningaviðræðum í New York á
þriðjudag hefði þótt óhugsandi fyrir einungis örfáum
mánuðum.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti segir felast í sam-
komulagi utanríkisráðherra Bosníu, Króatíu og Serbíu
að Bosnía verði áfram eitt ríki er njóti alþjóðlegrar
viðurkenningar. Deiluaðilar hafi fallist á að efna til
frjálsra og lýðræðislegra kosninga undir alþjóðlegu
eftirliti og kveðið sé á um, að ríkisstjórnin beri ábyrgð
á utanríkismálum Bosníu.
Þrátt fyrir þetta samkomulag halda átökin í Bosníu'
áfram. Enn hefur ekki náðst samstaða um vopnahlé
milli stjórnarhersins og Bosníu-Serba og yfirlýsingar
leiðtoga Bosníu-Serba benda tii að áhugi þeirra á
vopnahléi kunni að vera takmarkaður.
Og þótt samkomulag hafi náðst um stjórnskipan
Bosníu í framtíðinni á enn eftir að leysa flóknasta
deilumálið, það er hvernig skipta eigi landinu upp
milli hinna stríðandi fylkinga.
Þá krefjast múslimar að þeir leiðtogar Bosníu-
Serba, sem ákærðir hafa verið fyrir stríðsglæpi, verði
handteknir og sóttir til saka.
Þrátt fyrir það eru fyrstu niðurstöður viðræðnanna
í New York mikilvægt skref í átt að varanlegri lausn
deilunnar og gefa von um að hægt verði að binda enda
á átökin.
Svo virðist sem loftárásir Atlantshafsbandalagsins
á undanförnum vikum hafi skilað þeim árangri sem
til var ætlast. Ef til þeirrá hefði ekki komið er ólíklegt
að Serbar hefðu verið reiðubúnir að taka þátt í viðræð-
um á borð við þær sem nú eiga sér stað.
Ekki er allt sem sýnist í hugmyndum um að bjóða íbúðakaupendum 1
SKRIÐUR hefur nú komist á
þau áform félagsmálaráð-
herra að auka sveigjanleika
í húsbréfakerfinu. Sérstök
nefnd ráðherra hefur lagt til að gefn-
ir verði út tveir nýir flokkar húsbréfa
til 15 og 40 ára til viðbótar við 25
ára bréfin. í þessu sambandi er horft
til þess að lán til 40 ára geti hentað
ungu fólki sem vill fremur hafa lága
greiðslubyrði en háa eignamyndun.
Aftur á móti geti það verið ákjósan-
legt fyrir aðra, t.d. eldra fólk með
góðar tekjur, að taka lán til skemmri
tíma en 25 ára.
I annan stað var nefndinni ætlað
að setja fram tillögur um hvernig
unnt væri að lengja lánstíma eldri
lána hjá þeim sem lent hafa í vanskil-
um, en þær hafa enn ekki litið dags-
ins ljós. Loks eru uppi hugmyndir í
félagsmálaráðuneytinu um breyting-
ar á húsbréfalánum til endurbóta á
íbúðarhúsnæði. í því sambandi er
rætt um að lækka lágmarksfjárhæð
slíkra lána úr 1 milljón króna í 500
þúsund krónur og bjóða upp á 15
ára lán.
Miklar efasemdir um
lengingu eldri lána
Nokkuð var flallað um þessi mál
hér í Morgunblaðinu í vor t.d. í frétta-
skýringu í maímánuði. Á þeim tíma
voru viðmælendur blaðsins almennt
þeirrar skoðunar að ekkert væri því
til fyrirstöðu í sjálfu sér að auka
sveigjanleika hvað varðar lánstíma
nýrra lána, þannig að lántakendur
hefðu nokkurt valfrelsi um það á hve
löngum tíma þeir greiði niður hús-
næðislán sín. Miklar efasemdir komu
aftur á móti fram frá ýmsum aðilum
um að skynsamiegt væri að gefa lán-
takendum í greiðsluerfiðleikum kost
á að lengja eldri lán úr 25 árum í
40 ár. Var á það bent á að slík að-
gerð gæti haft ýmsar óæskilegar og
jafnvel ófyrirséðar hliðarverkanir
meðal annars á fjártnagnsmarkaði.
Væntanlega verður þráðurinn í þeirri
umræðu tekinn upp á ný þegar tillög-
ur nefndarinnar um möguleika á
skuldbreytingu í húsbréfakerfinu
liggja fyrir.
Það er hins vegar ekki eftir neinu
að bíða að skoða nánar fyrirliggjandi
tillögur um útgáfu nýrra húsbréfa
til 15 og 40 ára, enda vakna ýmsar
spurningar. Hver verður greiðslu-
byrðin af húsbréfalánum til 15, 25
og 40 ára? Hvaða áhrif hefur slík
breyting á fasteignamarkaðinn og
hvaða afföllum gætu seljendur 40
ára húsbréfa þurft að sæta í saman-
burði við 25 ára bréf?
Greiðslubyrði lækkar um 17,5%
Félagsmálaráðherra hefur lýst því
yfir að greiðslubyrði af 40 ára hús-
bréfaláni verði um 19% léttari en af
25 ára láni. Þetta er lægri tala en
heyrðist í kosningarbaráttunni sl. vor
þar sem talað var um að greiðslu-
byrðin myndi lækka um 25%. Tölur
Seðlabankans og Kaupþings um
lækkun greiðslubyrðarinnar eru hins
vegar ennþá lægri. Eins og sést á
töflunni hér til hliðar nemur greiðslu-
byrði af einnar milljóna króna hús-
bréfaláni um 71.700 krónum á ári
miðað við 25 ára Iánstíma en 59.100
miðað við 40 ára lánstíma og 97.000
miðað við 15 ár. Er þar um að ræða
17,5% lækkun á greiðslubyrðinni.
Af 3 milljóna króna láni til 40 ára
þarf því að greiða 177 þúsund krón-
ur á ári samanborið við 215 þúsund
af 25 ára láni og 291 þúsund af 15
ára láni.
Þessar tölur segja þó ekki alla
söguna því margt bendir til að afföll
við sölu 40 ára húsbréfa verði meiri
en við sölu á 25 ára bréfum. Niður-
stöður í útboði .á 20 ára spariskírtein-
um í gær þykja renna stoðum undir
þessa skoðun þar sem ávöxtun þeirra
í útboðinu var svipuð og kaupávöxt-
unarkrafa Seðlabankans í 10 ára
spariskírteini. Miðað við núgildandi
ávöxtunarkröfu húsbréfa, 5,95%,
þurfa seljendur bréfa til 25 ára nú
að sæta 11,6% affföllum. Sama
ávöxtunarkrafa felur í sér að 40 ára
húsbréf yrðu seld með 15% afföllum.
Skiptir ekki sköpum
Aukinn sveiganleiki í húsbréfa-
kerfinu mun hins vegar ekki valda
Minni
greiðslu-
byrði en
aukin afföll
Árleg greiðslubyrði af 40 ára húsbréfalánum
verður um 17,5% lægri en af 25 ára lánum
en líkur eru á að eigendur 40 ára bréfa muni
þurfa að sæta töluvert meiri afföllum við sölu
þeirra. Kristinn Briem kannaði nokkrar hlið-
ar á tillögum nefndar félagsmálaráðherra sem
fjallað hefur um útgáfu húsbréfa með 15, 25
og 40 ára lánstíma.
Greiðslubyrði af húsbréfalánum
Tíma- Verð- lengd Nafnverð bólga Vextir Greiðsla á ári Greiðsla á mánuði
Greiðslubyrði 1 milli. kr. láni
15 ár 1.000.000 0% 5,10% 96.995 8.083
25 ár 1.000.000 0% 5,10% 71.665 5.972
40 ár 1.000.000 0% 5,10% 59.078 4.923
Greiðslubyrði af meðalláni sem er um 3 millj. kr. *)
15 ár 3.000.000 0% 5,10% 290.985 24.248
25 ár 3.000.000 0% 5,10% 214.995 17.916
40 ár 3.000.000 0% 5,10% 177.234 14.770
Greiðslubyrði af láni með 3% stöðugri verðbólgu.
15 ár 1.000.000 3% 5,10% 1. ár 99.904 15. ár 151.114 8.325 12.593
25 ár 1.000.000 3% 5,10% 1. ár 73.815 25. ár 150.051 6.151 12.504
40 ár 1.000.000 3% 5,10% 1.ár 60.851 40. ár 192.716 5.071 16.060
*) Skv. tölum frá Húsnæðissofnun er meðalfasteignaveðbréf í viðskiptum vegna notaðra íbúða á árinu 1994 kr. 2,996,080. Við athugun kemur í Ijós að meðallán vegna viðskipta með notaðar íbúðir hafa verið um 3 milljónir króna allt frá árinu 1989.
Greiðslubyrði á mánuði eftir lánstíma með stöðugri verðbólgu
neinum straum-
hvörfum á fast-
eignamarkaði, að
mati Jóns Guðmunds-
sonar, formanns Félags
fasteignasala. Hann segir
að breytilegur lánstími húsbréfalána,
sem félagsmálaráðherra hefur kynnt
hugmyndir um, geti
leitt til þess að verð
á fasteignum verði í
ríkari mæli en nú er
fært niður til stað-
greiðsluverðs.
Jón sagði að í sjálfu sér litist
honum ágætlega á þessar hugmynd-