Morgunblaðið - 28.09.1995, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 28.09.1995, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 37 + Gunnar Sigurðs- son fæddist í Hafnarfirði 28. apríl 1920. Hann lést á St. Jósefsspítala í Hafn- arfirði 19. septem- ber síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurður Valdi- marsson, ættaður frá Fossi í Húna- vatnssýslu, og Sig- ríður Böðvarsdóttir frá ■ Hafnarfirði. Systkini Gunnars voru 8. Þau voru: Böðvar, Þorvaldur, Guðríður, Kristín, Valdimar, Sigurrós, Anna og Emil. Af þeim eru enn á lífi þau Sigurrós og Emil. Gunnar giftist Ólafíu Helgadóttur 14. nóv- ember 1942. Ólafía lést 3. októ- ber 1971. Börn þeirra eru fjög- ur, barnabörn ellefu og barna- barnabörn fimm. Börnin eru: 1) Jóel Hreiðar, f. 5. mars 1937, giftur Eygló Fjólu Guðmunds- dóttur og eiga þau þrjú börn, Guðmund Hreiðar, tvíburana Ólafíu og Aslaugu, og þrjú barnabörn, 2) Sigurður Valdi- mars, f. 13. júlí 1946, sem á tvö OKKUR langar til að minnast elskulegs afa okkar, sem við kveðj- um að sinni í dag. Elsku afi, nú hefur þú loksins fengið þá hvíld sem þú þráðir'eftir erfið veikindi á síð- ustu mánuðum. Minningarnar eru margar um þig, elsku afi. Okkur er efst í huga dúkkuvagninn sem við fengum frá þér í jólagjöf þegar við bjuggum hjá þér á Hringbraut. Þegar þú varst að vinna suður á velli og komst með litlu kornflex- pakkana handa okkur sem ekki voru til í bænum og þegar við kom- um í heimsókn til þín á Hringbraut- ina var alltaf gaman að fá að skoða í skápinn í ganginum því þar var börn, þau Gunnar Heimi og Guðrúnu Berglind, og eitt barnabarn, 3) Helgi Rúnar, f. 16. nóvem- ber 1950, giftur Vig- dísi Erlu Grétars- dóttur, og eiga þau þrjú börn, þær Ólaf- íu, Grétu og Fjólu og eitt barnabarn og 4) Sigurður Sverrir, f. 31. ágúst 1955, giftur Sigríði Gísla- dóttur, og eiga þau þijár dætur Sig- rúnu, Svanhvíti og Elísu. Frá unga aldri stundaði Gunnar almenna vinnu í Hafnarfirði. Gunnar starfaði lengi hjá Vélsmiðju Hafnarfjarð- ar og nam hjá þeim pipulögn. Hann starfaði sem pípulagninga- meistari allt til ársins 1961. Frá 1961 til 1991 eða í 30 ár starfaði hann hjá varnarliðinu þar af í 24 ár sem eldvamaeftirlitsmað- ur og siðustu 6 ár hjá birgða- stofnun varnarliðsins. Þá Iét hann af störfum vegna aldurs. Útför hans fer fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. alltaf til nammi handa okkur. Alltaf var afí tilbúinn að gera það sem hann gat fyrir okkur ef við báðum hann um eitthvað og einnig fylgdist hann vel með hvað við höfðum haft fyrir stafni. Afi var mjög ákveðinn og fróður maður og breytti enginn hans skoðunum eftir að hann hafði tekið afstöðu um mál eða menn. Það verður tómlegt á Máva- hrauninu um jól og áramót því ekki munum við eftir jólum og hátíðum nema með þinni nærveru. Einnig hefur verið erfítt fyrir barnabama- börnin þín að skilja af hveiju þú ert farinn til guðs og að þú komir ekki aftur. Elsku afi, hvíl þú í friði. Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort iíf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson) Aslaug og Ólafía. Ekkert varir að eilífu. Þegar ég hugsa til baka, sem lítill strákur, þá voru þeir fullorðnu alltaf til stað- ar. Tíminn líður hratt og ámnum fjölgar, maður eldist og gleymir því að þeir eldri eldast líka, manni finnst svo sjálfsagt að þeir sem maður elskar séu alltaf til staðar. Eitt sinn verða allir menn að deyja og eftir bjartan daginn kemur nótt, stendur skrifað. Minningamar streyma að, og allar hafa þær eitt- hvað gott fram að færa. Hann elsku afí minn hefur nú fengið þá hvíld sem hann þráði undir það síðasta, eftir mikla baráttu við erfíð veik- indi, og dvelur nú í faðmf hennar ömmu. Það em margar góðar minn- ingar sem ég á frá Hringbrautinni og verður skrítið að það sem áður var er ekki lengur nema í góðri minningunni. Hann afí minn sýndi mér mikinn stuðning í því sem ég var að gera hveiju sinni á sinn hátt, því alltaf fylgdist hann vel með, hvort sem um vinnu eða íþróttir var að ræða. Gaman var að ræða við hann um íþróttir og úrslit leikja og oftar en ekki vissi hann betur en íþróttamað- urinn sjálfur. Þetta viðhorf hans og áhugi hans á því sem ég var að gera hvatti mig áfram og á ég hans stuðningi mikið að þakka. Alltaf var þinn skilningur til staðar þegar á móti blés og nærvera þín lyfti manni alltaf upp. Það verða skrítin jól á Mávahrauninu þegar þig vant- ar. Elsku afí minn, með þessum fá- tæklegu orðum langar mig að kveðja þig og þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér með nærveru þinni. Guðmundur Sævar Hreiðarsson. GUNNAR SIG URÐSSON GUÐBJORN MAR HJÁLMARSSON + Guðbjörn Már Hjálmarsson fæddist í Reykjavík 26. september 1982. Hann lést á Barnaspítala Hringsins 10. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogs- kirkju 15. september. Ferð þín er hafin. Fjarlægjast heimatún. Nú fylgir þú vötnum sem falla til nýrra staða og sjónhringar nýir sindra þér fyrir augum. (Hannes Pétursson) Við lát Guðbjörns Más er enn á ný stórt skarð höggvið í nemenda- hóp Safamýrarskóla. Guðbjörn Már var einn af ljós- geislum deildar 1, sem ég kynntist haustið 1989 þegar ég var í loka- hluta sérkennslunáms míns. Ég kveið ákaflega fyrir dvöl minni í skólanum, því satt best að segja vissi ég ósköp lítið um fjölfötl- uð böm, og enn minna um kennslu þeirra. En kvíði minn var svo sann- arlega. ástæðidaus. Móttökur gátu varla gerst betrí. í skóla þessum fékk ég innsýn fkennslu alvarlega fatlaðra barna af bestu gerð. Guðbjörn Már var einhver yndis- legasti nemandi sem ég hef kynnst. Mér fannst ég sjá fallegu sálina hans í brúnu augunum. Hann heill- aði mig algjörlega. Það er stundum svo, að á lífsleiðinni hittum við per- sónur sem orka svo sterkt á okkur, en við vitum ekki hvers vegna. Við fáum ef til vill að vita það síðar. Ég fékk leyfi foreldra og kennara að skrifa um og vinna með hann. Fyrir liðsinni og velvilja þeirra vil ég aftur þakka innilega. Ég mun hins vegar alla tíð standa í þakkarskuld við Guðbjöm minn, því frá 1990 til 1995 vann ég í Safamýrarskóla og öðlaðist þekk- ingu og reynslu í kennslu fatlaðra nemenda. Starf mitt með Guðbirni varð til þess að ég tók þá ákvörðun. Nú er ég flutt á Suðurnesin, heimaslóðir Guðbjörns, og farin að starfa þar með fötluðum og ófötluð- um nemendum. Myndin sem hann sendi mér með kisu sinni mun áfram prýða vinnu- herbergið mitt og fallega stjakann frá honum mun ég halda áfram að nota á hátíðum. Kertið ætla ég að geyma enn. Ég bið kærleikann og ljósið að umvefja þig, elsku Guðbjörn minn, og óska þér velfarnaðar á öðm til- verusviði. Kæra Halldóra, Hjálmar, Smári, Stefán og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Guð styrki ykkar í sorginni. Megi minning um Ijósgeislann Guðbjörn Má lifa. „Vertu aldrei hræddur við að gefa. Þú getur aldrei gefíð of mik- ið, ef þú gefur áf fúsum og fijálsum vilja“ (Leo Buscagiia). Oddný öóra Halldórsdðttir. Með nokkrum orðum langar okk- ur til að kveðja elskulegan vin okk- ar, Guðbjöm Má Hjálmarsson. Guð: björn bjó á vistheimilinu Einibergi síðastliðin þrjú ár og var hann yngstur íbúa á heimilinu. Guðbjöm snart strengi í bijósti okkar allra með brosi sínu og hlátri. Hann var brosmildur og skapgóður og kom hann okkur ávallt auðveldlega til að hlæja. Við kveðjum þig í huga okkar, sorg, söknuður, þrýstum þér fast að okkur, tár, tregi. Allt svo tómt, sleppum. Nú ertu farinn og fijáls, farinn og fijáls. (Ósk Óskarsson) Elsku Dóra, Hjálmar og fjöl- skylda. Guð styrki ykkur. . „Þegar þú ert sorgmæddur skoð- aðu þá aftur hug þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Kahlil Gibran) íbúar og starfsfólk Einibergs. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta- skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word- perfect eru einnig auðveld i úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs- ingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallinubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Höf- undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sin en ekki.stuttnefni undir greinunum. í) J. ÁSTVflLDSSON HF. 1 Skiphotti 33,105 Reykjavík, simi 552 3580 *Rcropr»nt. THVIE RECORDER CO. - Stimpilklukkur fyrír nútið og framtíð FINNUR BJÖRNSSON, KRISTJÁNR. ER- LENDSSON OG SVAN- UR ÞÓR JÓNASSON + Finnur Björnsson fæddist á Patreksfirði 6. ágúst 1973, Kristján Rafn Erlendsson, fæddist 26. júní 1973 á Patreks- firði og Svanur Þór Jónasson var fæddur á Patreksfirði 22. júní 1973. Finnur, Krislján og Svanur fórust í flygslysi 14. september síðastliðinn og fór útför þeirra fram á Patreksfirði 23. septem- ber. ÞAÐ kom brestur í hjarta mitt er ég heyrði að vinur minn Finnur væri dáinn, vinur sem ávallt var hress og kátur þegar maður heyrði í honum. Ég kynntist Finni í Ástral- íu þar sem við vorum skiptinemar. í Ástralíu var hann hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom enda einstaklega opinn og skemmtilegur. Hann var vinur vina sinna og var alltaf til staðar þegar einhver af hópnum var í vandræðum eða vant- aði hjálp enda maður sem geislaði af kærleika og var fljótur að gefa af hjarta sínu ef á þurfti. Með þessu Ijóði vil ég minnast vinar míns Finns Björnssonar sem sárt er saknað. Gættu vináttuiinar! ekkert er fegurra á jörðinni, engin huggun betri í jarðnesku lífi. Vini geturðu það nug þinn allan og veitt honum fyllsta trúnað. (Ambrósíus) Ég vil votta fjölskyldu hans, vin- um og vandamönnum mína dýpstu samúð og megi Guð styrkja ykkur í sorginni. Ingi Þórðarson. „Þó látinn ég sé, harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert ykkar tár snert- ir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En . . . þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, sál mín lyftist upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífíð gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfír lífínu.“ (Ók. höf.) Á einum stað segir: „Þeir deyja ungir sem guðimir elska.“ Á svona stundu er margt sem kemur upp í hugann og viljum við minnast vina okkar sem létust af slysförum þann 14. september síðastliðinn. Engin orð fá lýst því stóra skarði sem höggvið hefur verið í vinahópinn við fráfall Krissa, Finns og Svans, sem alltaf voru svo hressir og kátir. Alltaf leið okkur vel í návist ykkar, þið'voruð hvetjandi og ómetanlegar stoðir ef eitthvað bjátaði á. Við minnumst allra góðu stundanna með ykkur. Oft lágu leiðir okkar í sundur en ávallt saman aftur. Til- hlökkunin var aldrei eins mikil og þegar við vissum að allur hópurinn ætlaði að koma saman. Tilefnin þurftu ekki að vera stór, oft aðeins það eitt að hittast. Á slíkum stundum varð Aula- klúbburinn til, Patrónarnir og margt, margt fleira. Minningamar em margar og þær jafnt sem þið munuð ávallt verða okkur ljóslif- andi. Þið lifíð áfram í hjarta okkar, emð og verðið alltaf fallegir í minn- ingunni. Við munum alltaf verða einar af strákunum. Hönd ykkar snerti sálu okkar. Fótspor ykkar liggja um líf okkar allt! (Úr bókinni Gleym-mér-ei) Aðstandendum og fjölskyldunum vottum við okkar dýpstu samúð. Takk fýrir allt, elsku bestu vinir. Guðriður, Dómhildur, Jenný og Jóna. auglýsingar FELAGSUF I.O.O.F. 5 = 1779288 - Br. I.O.O.F. 11 = 1770928872 : 9.0. □ HL(N 5995092819 IVW 1 Landsst. 5996092819 VII Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 ICI. 20.00: Lofgjörðarvaka í uro- sjé Olgu Sigþórsdóttur. AHir velkomnir. Hallveigarsiig 1 • simi 561 4330 Dagsferð sunnud. 1. okt. Kl. 10.30 Vík í Reykjavík. Forn frægðarsetur, 1. áfangi nýrrar raðgöngu. Gengið verður eftir gömlum leiðum frá sögufrægum býlum undir leiðsögn fróðra manna. Mæting i gönguna á Ing- ólfstorgi. Ekkert þátttökugjald. Otivist. Hvítasunnukirkjan Völvufelli Almenn samkoma kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. FERÐAFÉLAG # ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Þórsmörk, haustlitir, grillveisla 29/9-1/10 Skemmtileg og vinsæl ferð. Fjöl- breyttar gönguferðir. Grillveisla (innifalin i verði) og kvöldvaka á laugardagskvöldínu. Pantið og takið farmiða fyrír fimmtudags- kvöld. Takmarkað pláss. Uppl. á-skrifst., Mörkinní 6. Gerist félagar og eignlst árbök- t* er 3.4>00 kr. (3.700 kr. fyrir ion- bunðna bók). Ferðaiélag islands. & BT m OQj 5 KENNSLA Jógastöðin Heimsljós, Ármúla 15 Kynning á Kripalujóga verður laugardaginn 30. sept. kl. 13. Byrjendanámskeiö 3.-26. októ- ber á þri./fim. kl. 16.30-18.00. Teygjur, öndunaræfingar og slökun. Leiðbeinandi Jenný Guð- mundsdóttir. Uppl. (síma 588 4200 kl. 17-19.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.