Morgunblaðið - 28.09.1995, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 39
FRETTIR
ÚR lestrartíma í Tjarnarskóla.
Hraðlestur í Tjarnarskóla
Samtök fámennra skóla
Stóraukið fjármagn þarf
til grunnskólahalds
ÍS hf. í nýtt
húsnæði
SKRIFSTOFUR íslenskra sjávaraf-
urða hf. verða lokaðar á morgnn,
föstudag, vegna flutnings fyrirtæk-
isins í hinar nýju og glæsilegu höf-
uðstöðvar í Sigtúni 42. Mánudaginn
2. október mun fyrirtækið verða
opnað í hinu nýja skrifstofuhús-
næði, og eru þá rúmlega fimm mán-
uðir liðnir síðan Sæmundur Guð-
mundsson, aðstoðarforstjóri, tók
fyrstu skóflustunguna að nýbygg-
ingunni.
Arkitektar að byggingunni, sem
er um 2.500 fermetrar að stærð á
tveimur hæðum, eru Arkitektar sf.
Verkfræðiþjónusta hefur verið í
höndum Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen en verktakafyrirtækið
Ármannsfell hf. hefur séð um bygg-
ingaframkvæmdir sem hafa gengið
að öllu leyti samkvæmt áætlun.
í frétt frá íslénskum sjávarafurð-
um hf. segir að í hinum nýju höfuð-
stöðvum IS sé aðstaða hin glæsileg-
asta þar sem starfsumhverfi og
þægindi séu eins og best verði á
kosið. Samkvæmt útboði mun loka-
frágangur byggingarinnar verða í
desember.
------♦ ♦ ♦------
Hvatt til Biblíu-
lestrar
NÁMSKEIÐ Samtaka móðurmáls-
kennara sem haldið var dagana
14.-18. ágúst si. undir yfirskriftinni
Biblían og bókmenntirnar sendi frá
sér eftirfarandi ályktun:
„Þar sem Biblían hefur öldum
saman verið einn af hornsteinum
íslenskrar bókmenningar er þekking
á texta hennar mjög oft forsenda
fyrir skilningi á öðrum textum.
Skyldunámi skólanna er m.a. ætl-
að að miðla menningararfi þjóð-
arinnar til ungu kynslóðarinnar og
því er hvatt mjög til þess að þessum
mikilvæga þætti sé sinnt á þeim
vettvangi.
Á fundi stjórnar Hins íslenska
Biblíufélags 20. sept. sl. var þessi
álkyktun rædd og eftirfarandi álykt-
un samþykkt: '
„Stjórn Hins íslenska Biblíufélags
fagnar ályktun Samtaka móð-
urmálskennára um níiikilvægi þess
að íslensk ungmenni kynnist textum
Biblíunnar þegar í skyldunámi og
tekur heilshugar undir hana. Jafn-
framt heitir Hið íslenska Biblíufélag
liðsinni við kennara og skólastjórn-
endur bæði á grunn- og framhalds-
skólastigi varðandi þetta verkefni.
Félagið fagnar einnig nýju námsefni
í kristnum fræðum handa grunnskól-
um sem Námsgagnastofnun er að
gefa út, þar sem kynningu á texta
Biblíunnar er vel til skila haldið."
------♦ ♦ ♦------
Minningarer-
indi um Louis
Pasteur
VÍSINDAFÉLAG íslendinga minn-
ist þess að 100 ár eru liðin frá þvi
að Louis Pasteur lést, 28. septem-
ber 1895. Guðmundur Eggertsson
prófessor heldur erindi í Norræna
húsinu fimmtudaginn 28. septem-
ber, kl. 20.30, sem nefnist Kviknun
lífs.
Á 19. öld deildu menn enn um
það hvort lífverur, sérstaklega ör-
verur, gætu kviknað sjálfkrafa við
hagstæð skilyrði eða væru ævinlega
af lífverum komnar. Á árunum
1859-1861 blandaði Louis Pasteur
sér í þessar deilur og gerði snjallar
tilraunir sem hann taldi að hefðu
útkljáð málið. Skoðanir héldu þó
áfram að vera skiptar fram undir
1880. í fyrirlestrinum verður sagt
frá tilraunum Pasteurs og deilunum
um sjálfkrafa kviknun lífs. Einnig
verður greint frá nútímahugmynd-
um um uppruna lífs á jörðinni.
Öllum er heimill aðgangur og
verður kaffistofa Norræna hússins
opin að minningarerindinu loknu.
NÚ í haust hefur verið ákveðið að
bjóða öllum nemendum Tjarnarskóla
upp á hraðlestrarnámskeið. Byijað
var í 10. bekk.
í fréttatilkynningu frá Tjarnar-
skóla segir: „Alls 19 nemendur af
26 skráðu sig á' námskeiðið og eru
þeir aukalega þijár klukkustundir á
viku í lestrartímum. Áhugi, metnaður
og einbeiting ríkir í sérhveijum
kennslutíma og árangurinn hreint
frábær.
Við kennsluna eru notaðar nýlegar
kennslubækur, Lestu betur, eftir
SJÚKRAHÚS á landsbyggðinni
halda ráðstefnu um framtíð héraðs-
sjúkrahúsa laugardaginn 30. sept-
ember. Fundurinn verður haldinn á
Hótel Húsavík og stendur frá kl.
9.30 til 16.
Fundurinn er opinn almenningi
en sérstaklega eru boðaðir fulltrúar
sjúkrahúsa, ráðherra og ráðuneytis-
fólk, landlæknir og starfsmenn
landlæknisembættis, sveitarstjórn-
armenn, þingmenn og fréttamenn.
í fréttatilkynningu segir að til-
efni þessa fundar sé að sjúkrahús-
um á landsbyggðinni finnist óeðli-
lega staðið að skýrslugerðum um
þessi mál þar sem lítið eða ekkert
samráð sé haft við það fólk sem
vinnur við viðkomandi stofnanir.
„Yfirlýst markmið er að spara
og dreifa valdi en okkur sýnist að
í mörgum tiifellum stefni lausnirnar
í þveröfuga átt. Þessi mál þarf að
ræða mikið betur og það ætlum við
okkur að gera á þessum fundi. Þetta
er mjög pólitískt mál og spurt verð-
ur ýmissa grundvallarspurninga
eins og hvort eitthvað sparist við
að leggja niður bráðaþjónustu á
landsbyggðinni? Höfum við efni á
■ VERÐLA UNASAMKEPPNI
ungs fólks á vegum íslensks mjólk-
uriðnaðar um bestu mjólkuraug-
lýsinguna 1995 Mjólkin í sinni
bestu mynd stendur enn yfir. I
hveijum rhánuði hefur verið dreginn
út leikstjóri mánaðarins úr hópi
þeirra sem sent hafa inn tillögu að
mjólkurauglýsingu og kom það að
þessu sinni í hlut Rósu Signýjar
Fjölni Ásbjömsson og Guðna Kol-
beinsson. Þrátt fyrir að bækur þessar
séu samdar með framhaldsskólanem-
endur í huga reynast þær vel á ungl-
ingastigi og hafa þær að mati nem-
enda og kennara í Tjarnarskóla sann-
að gildi sitt.
Þegar nemendur 10. bekkjar hafa
lokið hraðlestramámskeiðinu fá
nemendur 9. bekkjar að spreyta sig
og nú þegar er ljóst að allir nemend-
ur 8. bekkjar verða þátttakendur á
hraðlestrarnámskeiðinu Lestu bet-
að byggja þetta land? Ef við höfum
ekki efni á núverandi heilbrigðis-
þjónustu, hvaða þjónustu á þá að
skera niður? o.s.frv.", segir í frétta-
tilkynningu.
Dagskráin hefst kl. 9 með af-
hendingu fundargagna og kl. 9.30
verður fundur settur. Kl. 9.40 hefj-
ast ræður fundarmanna og eru
frummælendur á ráðstefnunni:
Kristján Erlendsson, fulltrúi lækna-
ráðs Landsspítala og kennslustjóri
í HÍ, Torfi Magnússon, formaður
læknaráðs Borgarspítala, Ólafur
R. Ingimarsson, yfirlæknir Sjúkra-
húss Skagfirðinga, Þorsteinn Jó-
hannsson, yfirlæknir á Sjúkrahús-
inu á ísafirði, Jón Sigurbjömsson,
framkvæmdastjóri Sjúkrahússins á
Siglufirði, Haukur. Gunnarsson,
kennari í Borgarhólsskóla á Húsa-
vík og Ólafur Ólafsson, landlæknir.
Lögð er áhersla á að almenning-
ur mæti og láti í sér heyra hvað
varðar væntingar til heilbrigðis-
þjónustu í landinu. Forsvarsmaður
ráðstefnunnar er Friðfinnur Her-
mannson, framkvæmdastjóri
sjúkrahússin- og heilsugæslustöðv-
arinnar á Húsavík.
Gísladóttur, 12 ára, að vera út-
nefnd leikstjóri ágústmánaðar. Hún
hlýtur að gjöf sérstakan leikstjóra-
stól. Verðlaunasamkeppninni fer nú
senn að ljúka en þeir sem ætla að
senda inn tillögur verða að gera það
fyrir 1. október nk. Verðlaun verða
veitt í öllum aldursfiokkum; mynd-
bandstökuvélar frá Sharp.
SAMTÖK fámennra skóla héldu 7.
ársþing sitt 15.-16. sept. sl. á Flúðum
í Hrunamannahreppi. Þingið sóttu um
90 manns, kennarar, skólastjórar,
sveitarstjórnarmenn og foreldrar úr
öllum fræðsiuumdæmum Iandsins.
í fréttatilkynningu segir að í áiykt-
unum þingsins komi fram að það séu
einkum eftirfarandi atriði sem þarf
að huga vel að: Gera þarf ráð fyrir
stórauknu fjármagni til grunnskóla-
halds og tryggja sveitarfélögunum
tekjustofna í samræmi við það. Yfir-
lýst markmið með flutningi grunn-
skólans til sveitarfélaga er að bæta
og efla starf íslenskra grunnskóla.
Nauðsynlegt er að faglegt og fjár-
hagslegt sjálfstæði skólanna verði
tryggt og skólastjórar fái vald til að
ráða starfsmenn skólanna og ráð-
stafa þeim fjármunum sem skólunum
er úthlutað í fjáhagsáætlunum.
Þannig nýtast fjármunimir best í
þágu skólastarfsins. Ganga þarf frá
kjarasamningi milli kennara og sveit-
arfélaganna fyrir 1. ágúst 1996.
Á þinginu var ályktað um ýmis
önnur mál s.s. um þá alvarlegu stöðu
sem er kominn upp í íslenskum
grunnskólum nú þegar karlmönnum
TÖLVUSKOLI Stjórnunarfélags Is-
lands og Nýheija hefur flutt úr hús-
næði Nýheija, Skaftahlíð 24, að
Ánanaustum 15, þar sem Stjórnun-
arfélag íslands (SFÍ) og Viðskipta-
skóii Stjórnunarfélagsins og Nýheija
(VSN) eru til húsa.
Byijað er að kenna á Windows
95 fyrir almenna notendur. Einnig
verður haldið fjögurra daga nám-
skeið fyrir umsjónar- og þjónustu-
aðila þessa nýja stýrikerfis. Þetta
námskeið er undirbúningur fyrir hið
opinbera skírteinispróf „Supporting
Windows 95“. Skólin mun áfram
halda ÓpusAllt bókhaldsnámskeiðin
■ AÐGERÐARANNSÓKNAFÉ-
LAG íslands heldur fund í dag,
fimmtudaginn 28. september 1995
þar sem Jón Sch. Thorsteinsson
mun kynna fjögur dæmi um notkun
bestunar hjá Sól hf. Fundarstaður
er Sói hf., Þverholti 19, og hefst
fundurinn kl. 16.30. Á fundinum
verður einnig stutt umræða um vetr-
arstarfið. Stjóm ARFÍ leggur til að
þema vetrarins verði Heilbrigðismál
- meira fyrir minna.
■ MYNDBANDSTÆKJALEIK-
URINN „Ert þú lukkunar pamf-
íll?“ var um síðustu helgi í Borgar-
kringlunni. Vinningshafi varð
Sverrir Þórðarson, Suðurgötu 13,
Reykjavík, og hlaut hann í vinning
Samsung myndbandstæki með fjar-
stýringu o.fl. frá Bónusradió.
■ KRÖFL US TARFSMENN frá
árunum 1975 og þeim næstu á eftir
ætla að hittast á Kringlukránni
föstudaginn 29. september nk. kl.
20.30. Á þessum árum störfuðu
þama m.a. menn á vegum Miðfells,
Vélsmiðjunnar Héðins, Stálsmiðj-
unnar, Rafafls, Hamars, Orku-
stofnunar og Verkfræðistofnunar
Sigurðar Thoroddsen.
■ FURÐ ULEIKHÚSIÐ sýnir í
dag, fimmtudaginn 28. september,
kl. 17 leiksýninguna um Hlina
fækkar stöðugt í kennarastétt. Þing-
ið hvetur til þess að tekið verði á
þessum vanda. Einnig hvetur þingið
til þess að hugað verði að því hvort
þjónustustofnanir grannskólans úti í
fræðsluumdæmunum geti ekki einn-
ig séð um faglega ráðgjöf og stoð-
þjónustu við leikskóla og tónlist-
arskóla. Ennfremur var ályktað um
stjómunarkvóta fámennra skóla og-
um gott samstarf milli skólamanna
og sveitarstjómarmanna.
Á þinginu komu Öivin Monsen,
skólastjóri Askrovaskólans í Vestur-
Noregi, og Solvegi Monsen, kennari
við sama skóia, og sögðu þau frá
mjög athyglisverðu þróunarstarfí
þar. Þar er rekinn skóli fyrir böm
frá 0 til 13 ára aldurs. Leikskólinn
og grannskólinn vora sameinaðir og
era nú reknir sem ein stofnun. Við
flutning grunnskólans til sveitarfé-
laganna opnast þessi möguleiki hér
á landi og getur verið góð og hag-
kvæm leið í fámennum sveitarfélög-
um, segir í frétt frá samtökunum.
Ný stjórn var kosin á þinginu og
var Hafsteinn Karlsson, skólastjóri í
Villingaholtsskóla í Flóa, endurkjör-
inn formaður.
í samstarfí við íslenska forritunar-
þróun hf. Er nú í fyrsta sinn í boði
framhaldsnámskeið í ÓpusAllt fjár-
hagsbókhaldi.
Helgarnámskeið era nú fáanleg
fyrir þá sem vilja fá granninn í
Windows, Word og Excel á stuttum
tíma. Einnig verða haldin námskeið
á laugardögum fyrir böm og ungl-
inga.
Skólinn mun áfram halda öll helstu
námskeið á IBM AS/400 tölvuna fyr-
ir umsjónaraðila, kerfísfræðinga og
forritara. Einnig verður haldið nám-
skeiðið AS/400 Inside 11.-13. okt.
með fyrirlesaranum Kaare Plesner.
kóngsson í Ævintýra-Kringlunni.
Leikritið er unnið upp úr mörgum
útgáfum af sama þjóðsöguævintýr-
inu. í Furðuleikhúsinu era Eggert
Kaaber, Gunnar Gunnsteinsson,
Margrét Pétursdóttir og Ólöf
Sverrisdóttir. Lokalagið í Hlina
kóngssyni samdi Ingólfur Steins-
son. Ævintýra-Kringlan er lista-
smiðja fyrir börn á aldrinum 2-8 ára
þar sem krakkarnir fá að spreyta sig
á leiklist, söng, dansi og myndlist
og á hveijum fímmtudegi kl. 17 eru
bamaleiksýningar. Ævintýra-
Kringlan er á 3. hæð í Kringlunni
og er opin kl. 14-18.30 virka daga
og kl. 10-16 laugardaga.
■ EÐVARÐ Ingólfsson stud. the-
ol. heldur laugardaginn 30. sept-
ember kl. 14 lokapredikun sína í
Háskólakapellu. Athöfnin er öllum
opin.
■ ÁHUGAHÓPUR um lijólreiðar
á höfuðborgarsvæðinu stendur fyr-
ir hjólreiðaferð með strönd Skeija-
fjarðar í kvöid, fimmtudaginn 28.
september. Farið verður frá Hafnar-
húsinu kl. 20 og hjólað með strönd-
inni út á Nes og inn með Skeija-
fírði. Til baka með Öskjuhlíðinni og
um Vatnsmýrina. Hægt verður að
slást í för á Eiðistorgi kl. 20. Ferðin
tekur um 1 klst. Allir velkomnir.
ur.
Rætt um framtíð héraðs-
sjúkrahúsa á Húsavík
RÓSA Signý Gísladóttir, leikstjóri ágústmánaðar,
með Ieiksljórastólinn.
TÖLVUSKÓLINN er nú fluttur að Ánanaustum 15.
Tölvuskóli flytur