Morgunblaðið - 28.09.1995, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
\*tfELÞUt&)U £KXJ A0þú' ''l
WöfEF/R OF/WUapj/WAtM?/
ffl
Ferdinand
Smáfólk
“Your eyes are
beautíful,” he said.
“Shall I comparethem
io a summer day ? No,
even more."
“Your eyes are like
two supper dishes.”
„Augu þín eru fögur,“
sagði hann.
„Á ég að líkja þeim við
sumardag? Nei, jafnvel enn-
þá meira.“
„Augu þín eru eins og tvær
súpuskálar."
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Margar hliðar
á málum
Frá André Bachmann:
AÐ undanförnu hafa fáeinir sam-
starfsmenn mínir úr röðum vagn-
stjóra SVR farið geyst í fjölmiðlum
og látið í ljós óánægju með Lilju
Ólafsdóttur, forstjóra fyrirtækisins.
Ég tel ómaklega að forstjóranum
vegið og þykir miður að fyrirtækið
sem ég starfa hjá skuli svert með
þessum hætti. Jafnframt ber að hafa
í huga að Lilja hefur verið forstjóri
SVR í skamman tíma eða aðeins í
níu mánuði.
Gefandi starf
Ég hef unnið hjá SVR um langt
árabil og mér þykir vænt um fyrir-
tækið mitt. Það er ánægjulegt og
gefandi starf að vera vagnstjóri Þótt
það sé oft erfitt. Maður er samt fljót-
ur að gleyma erfíðu stundunum í
hálku og snjó því samskiptin við far-
þegana eru í senn bæði gefandi og
ánægjuleg, enda kunna þeir að meta
persónulega þjónustu.
Einmitt vegna þess að ég legg
mikið upp úr jákvæðum samskiptum
Eig’um við ekki
að styðja með-
bræður okkar?
Frá Sigrúnu I. Sigurþórsdóttur:
SÚÐVÍKINGAR hafa orðið fyrir
slíkum hremmingum að þeir hafa
beðið um að fá prest til sín. Þetta
er neyðarkall til þess að komast í
gegnum allar þær hörmungar sem
yfir þá hafa dunið. Það hljóta að
vera einhver ráð til þess að hjálpa
þeim, ef vilji er fyrir hendi, hjá bisk-
upi landsins og öðrum ráðamönn-
um.
SIGRÚNI. SIGURÞÓRSDÓTTIR,
Skaftahlíð 10, Reykjavík.
og gleði í starfínu tel ég að góður
mórall á vinnustaðnum skipti mjög
miklu máli. Það er hægt að láta hlut-
ina líta vel eða illa út eftir því hvern-
ig málin eru sett fram. Það er margt
gott verið að gera hjá SVR og við
starfsmennirnir eigum að gefa því
tækifæri. Það þarf líka að taka á
ýmsum málum sem eru óþægileg og
geta verið óvinsæl á yfirborðinu. Eins
og oft áður eru margar hliðar á
hveiju máli og alltof mikil einföldun
að sjá ekki nema eina þeirra. Mér
sýnist hafa komið glögglega fram
að Sigurður Árnason geti valið það
að vera áfram hjá SVR og því sé
of mikið gert úr máli hans. Allir sem
vilja vita að starfsmenn SVR, sem
hafa sótt um leigubílaleyfi í gegnum
tíðina og fengið, hafa umyrðalaust
sagt starfi sínu lausu hjá SVR.
Verum jákvæð
Það er svo langtum skemmtilegra
að vera til ef menn einbeita sér að
því að líta á björtu hliðarnar í lífinu,
brosa og vera jákvæðir. Hver vill
ekki heldur vera gleðigjafi en að
dreifa óánægju og illu umtali í kring-
um sig? Langar okkur ekki meira til
að vinna á vinnustað þar sem starfs-
mennirnir taka höndum saman um
að byggja upp starfið, heldur en þar
sem kröftunum er beitt til að rífa
niður?
Ég á góða samstarfsmenn hjá
SVR. Það er mitt álit að þar séu
einnig ágætir jrfirmenn. Varðstjór-
arnir eru vel starfi sínu vaxnir og
samskiptin við þá eru góð. Mér finnst
líka að það hafi verið tími til kominn
að fá raunverulegan forstjóra í fyrir-
tækið sem leggur í það að taka á
málum og leysa þau.
Við skulum því gefa henni tæki-
færi til að byggja upp fyrirtækið
með okkar samvinnu.
ANDRÉ BACHMANN,
vagnstjóri hjá SVR.
Fyrirspum til gjald
heimtustjóra
Frá Hafliða Vilhelmssyni:
VEGIR Guðs eru órannsakanlegir.
Leiðir Gjaldheimtunnar í Reykjavík
eru óskiljanlegar. Skýring: Þann 12.
september rétt fyrir kvöldfréttir
RÚV þegar verið var að syngja og
leika Draum fangans eftir hundrað
ára Freymóð, var bjöllunni hringt.
Hring, hring. Þegar ég opnaði dyrn-
ar, stóð fagurt fljóð fyrir utan, al-
ger fangadraumur og rétti mér
skrautlegt umslag sem ég varð að
kvitta fyrir. Stúlkan kvaddi, ögn
undirleit eða skömmustuleg, en ég
stóð eftir með ábyrgðar- og express-
bréf sent mér frá Gjaldheimtunni í
Reykjavík.
Fimmtán dagar
Og hvert var svo tilefni þessarar
kvöldsendingar? Nú, Gjaldheimtan í
Reykjavík var að skora á mig að
inna af hendi lokagreiðslu fasteigna-
gjalda fyrir árið 1995, sem á eindaga
31. ágúst nam krónum 6.174, plús
dráttarvextir að upphæð krónur 77.
Mér gefast fimmtán dagar til þess
að koma þessum aurum niður á
Tryggvagötu, ásamt með álögðum
kostnaði af óþarfa express- og
ábyrgðarbréfí sem nemur kr. 435.
Láist mér að greiða allsmektugri
gjaldheimtunni innan hálfs mánaðar
er mér hótað nauðungarsölu á fast-
eign minni! Heyrt hef ég erkibiskups
boðskap og skal bljúgur hlýða.
Tilberaháttur?
Sem borgari þessa láglaunalands
'vil ég samt að gjaldheimtustjóri
svari: Hver er meiningin með þessum
fíflalátum? Hvaða þörf er á því að
senda mér þessa áskorun í rándýrum
ábyrgðar- og expresspósti þegar eins
vel er hægt að senda mér hana í
almennum pósti? Er það gert í þeirri
höfðinglegu vissu að viðtakandi borgi
eða er þetta einungis nýjasta tegund
opinberrar hótfyndni sem engan
hlægir eða þá bara ósköp venjulegur
tilberaHáttur?
Með kveðju.
HAFLIÐI VILHELMSSON,
Bólstaðarhlíð 13, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að iútandi.