Morgunblaðið - 28.09.1995, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 41
BRÉF TIL BLAÐSIMS
Börn mega leika sér
— bara ekki fyrir
utan hjá mér
Frá Bryndísi Kristjánsdóttur:
ÉG HEF stundum velt því fyrir
mér hvort það geti verið að til sé
fólk sem hreinlega þolir ekki börn.
Astæðan fyrir þessum hugrenn-
ingum er framkoma sumra fullorð-
inna í garð barna að leik. Ég hef
t.d. kynnst því að börn í sambýlis-
húsi hafa ekki mátt búa til snjó-
karl eða snjóhús í garðinum við
heimili sitt, hvað þá að leika sér
þar á sumrin. Ég hef hlustað á
fullorðna manneskju uppnefna
barn sem henni þótti of hávaða-
samt og margt fleira mætti tína
til en sérstaklega virðist mörgum
vera í nöp við stálpuð börn eða
unglinga. Víst fylgir leik þeirra
talsverður hávaði, oft á tíðum, en
sjaldnast standa leikir barnanna
það lengi yfír að óþolandi sé. Á
sama tíma og fólk er að kvarta
yfír leik barna í námunda við heim-
ili sitt þá er í gangi mikil umræða
um að eitthvað róttækt verði að
gera til að koma í veg fyrir ung-
lingadrykkju og að börn og ungl-
ingar séu að hópast saman í miðbæ
Reykjavíkur.
Skemmtilegt tómstundagaman
Það er vitað að ef börn og ung-
lingar eiga sér tómstundagaman,
sem á hug þeirra allan, þá hafa
þau ekki tíma né áhuga á að hanga
yfir spilakössum í sjoppum, niðri
í miðbæ eða á öðrum óæskilegum
stöðum. Þarna vega íþróttir þungt.
Eitt af því sem mjög margir krakk-
ar hafa gaman = af er körfubolti.
Tímunum saman geta þeir unað
sér við þennan leik og vegna vin-
sælda hans hefur Reykjavíkurborg
verið að koma upp körfum sem
víðast í borginni. En þá ber svo
við að íbúar í nálægum húsum
vilja ekki hafa börn að leik fyrir
utan hjá sér. Þeir bera fyrir sig
að krökkunum fylgi of mikill há-
vaði, að þau séu að leik langt fram
eftir kvöldi og að hávaðinn í bolt-
anum sé óþolandi.
Borgaryfirvöld leitast við að
koma til móts við óskir og ábend-
ingar borgarbúa - og það má ekki
gleyma því að börn og unglingar
eru borgarbúar. En tilhneigingin
hefur verið í þá átt að hlusta frek-
ar á kvartanir hinna fullorðnu og
þær hafa vegið þyngra en leikþörf
barnanna — og körfurnar verið
fjarlægðar. Þegar körfum er val-
inn staður er það gert að vandlega
yfirveguðu ráði. Hafður er í huga
fjöldi og aldursdreifíng barna í
hverfinu, leikaðstaða hverfisins í
heild, fjarlægð frá nálægum hús-
um og fleira sem taka þarf tillit
til. Núörðið er farið að hafa körfur
inni í hverfunum lægri, svo þær
henti eingöngu þeim yngri. Hærri
körfur eru gjarnan hafðar á skóla-
lóðum og þar með fjær íbúðarhús-
um. Þannig er reynt að koma í
veg fyrir að eldri krakkar séu að
leika sér í námunda við íbúðarhús
seint á kvöldin - en allt virðist
koma fyrir ekki.
Hvar lékst þú þér sem barn?
í starfí mínu í umhverfísmála-
ráði Reykjavíkur verð ég áþreifan-
lega vör við þetta vandamál — sem
á ekki að þurfa að vera vandamál
— því kvartanir vegna körfubolt-
anna berast inn á borð ráðsins.
Mig langar að beina þeim tilmæl-
um til þeirra sem telja krakka í
körfubolta valda sér ónæði að
staldra aðeins við og kanna hug
sinn vandlega áður kvörtun er
borin fram; er þessi hávaði svo
mikill að það verði að skemma
athafnasvæði barnanna í hverfinu?
•Má ráða bót á þessu með því að
lækka körfuna, færa aðeins fjær
eða auka gróður á svæðinu? Er
þessi smávægilegi hávaði ekki
þolandi til að börn og unglingar
hverfísins eigi sér samastað þar
sem þau una sér og fara þá ekki
á aðra og óæskilega staði? Hvar
og hvernig leika ykkar börn sér -
og hvar og hvernig lékuð þið ykk-
ur sjálf?
Að lokum skal þess getið að það
eru ekki eingöngu krakkar í körfu-
bolta sem sumt fólk virðist eiga
erfitt með að þola; það eru þónokk-
ur dæmi um það að fólk vill ekki
heldur hafa lítil börn að leik á leik-
velli fyrir utan hjá sér. Og er þá
nokkur furða að ég spyiji hvort
til sé fólk sem þolir ekki börn?
BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR,
formaður umhverfismálaráðs
Reykjavíkur.
SEMENTSBUNDIN
HÁGÆÐA FLOTEFNI
FLOTSPARTL - DUKASPARTL - FLOTGOLF
IÐNAÐARFLOT • HLEÐSLUSPARTL
Sterk, ódýr og
hraðþornandi flotefni.
Til viðgerða, ílagna og
yfirlagna á ný eða gömul
gólf. Frá 0-30 mm á þykkt.
fslcnsk framleiðsla
síðan 1972
■■ '
■Isteinprýði
Stangarhyl 7, sími 567 2777
Skiptiborö 515 4000
Hólf og gólf, afgreiösla 515 4030
Almenn afgreiösla 555 4411
Verslun, Hringbraut 120, Reykjavík:
Almenn afgreiösla 562 9400
Almenn afgreiösla 568 9400
Grænt númer 800 4000
BYKO
w
Frystikisturnar frá
Elcold eru löngu
landskunnar fyrir
öryggi og sparneytni.
Núna bjóðum við
þessar dönsku
umhverfisvænu
f/ystikistur á verði
sem allir ráða við.
1. okfóber
Klukkan
1. október 1995 - þriggja stafa þjónustunúmer Pósts og sima
tekin í notkun til samræmis við önnur lönd Evrópu. 04 breytist í 155
POSTUR OG SIMI