Morgunblaðið - 28.09.1995, Page 52
ATVlT NÝHERJI
i H JÉO| B SKIPHOLTI 37 - SIMI 5flft 80
i^^B ^HB Alltaf skrefi á undan
M0RGUNBLAD1Ð, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
OPIN KERFIHF.
Sími: 567 1000
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Verðá
hjólbörð-
um hækk-
að um 8%
VERÐ á nýjum hjólbörðum
hefur hækkað um allt að 8%
og verð á sóluðum hjólbörðum
um 5% á þessu ári. Hækkun-
inni veldur hærra hráefnisverð
til þessa iðnaðar. Borið hefur
á því að érlendir ferðamenn
hafi keypt hjólbarða hér á
landi og haft með sér heim en
Jón Stefánsson, sölustjóri hjá
Sólningu hf., segir þá mun
ódýrari hér á landi en á öðrum
Norðurlöndum.
Jón segir að hækkunarþörf-
in hefði líklega verið í kringum
14% á sóluðum hjólbörðum.
Mest hefur verð á náttúru-
gúmmíi, sem notað er til fram-
leiðslu á hjólbörðum, hækkað,
eða um 50% heimsmarkaðs-
verðið á síðustu tveimur árum,
en einnig hefur iitar- og
hersluefni hækkað um 14%.
Nýir hjólbarðar hafa hækk-
að hlutfallslega meira í verði.
Innkaupsverð á nýjum hjól-
börðum hjá Sólningu hf. hefur
hækkað á þessu ári að meðal-
tali um 8-12%. Jón segir þessa
hækkun ná yfir allan markað-
inn. Hins vegar hafi hjólbarðar
hækkað mismikið í verði til
neytenda hérlendis. Vetrar-
dekk hjá Sólningu hafa hækk-
að um 3-8%, misjafnt eftir
stærðum og gerðum.
Benedikt E. Guðmundsson siglingamálastjóri
Ljóst að skrá þarf
flotkví sem fljótandi far
AKUREYRARBÆR hefur lagt inn
beiðni hjá Siglingamálastofnun um
skipaskráningu nýrrar flotkvíar
Akureyrarhafnar en innflutningur
á skipum er undanþeginn virðis-
aukaskatti.
’Agreiningur ráðuneytis og
Akureyrarbæjar
Ágreiningur hefur verið uppi
milli forsvarsmanna bæjarins og
fjármálaráðuneytis um hvort greiða
beri virðisaukaskatt af kaupverði
flotkvíarinnar en hann nemur um
40 milljónum króna. Forsvarsmenn
Akureyrarbæjar telja flotkví flokk-
Innflutriingur
skipa er undan-
þeginn virðis-
aukaskatti
ast undir fljótandi far og því beri
ekki að greiða virðisaukaskatt
vegna flotkvíarkaupa hafnarinnar,
en í íjármálaráðuneytinu var ekki
fallist á þá túlkun.
Benedikt E. Guðmundsson sigl-
ingamálastjóri segir að umsóknin
sé enn til meðferðar hjá Siglinga-
málastofnun en hann segir að það
liggi alveg ljóst fyrir að samkvæmt
lögum um skráningu skipa sé
flotkví fljótandi far og verði að skrá
hana sem slíka. Hið sama eigi við
um nýja flotkví í Hafnarfirði. Fyrir-
tækinu sem rekur flotkvína í Hafn-
arfirði var gert að greiða fullan
virðisaukaskatt af henni.
Benedikt segir nauðsynlegt af
ýmsum ástæðum að skrá flotkvína
til að tryggja allt öryggi, m.a. hljóti
tryggingafélög að gera kröfu til
þess svo að ákvæðum laga um eftir-
lit með skipum, gerð þeirra og bún-
aði sé fullnægt.
Skipveijar á Hafrafelli fengn óvæntan gest á siglingu til lands
Morgunblaðið/RAX
Nýjar kartöflur
NÚ ERU menn sem óðast að taka
kartöflur upp úr görðum sínum
og fer hver að verða síðastur, því
að í næturfrostum fellur grasið.
Ljósmyndarinn rakst á þennan
garðeiganda, sem var að taka upp
kartöflur í nágrenni Hveragerðis.
Fálki í heim-
sókn suður
af Hvarfi
ísafirði. Morgunblaðið.
SKIPVERJAR á Hafrafellinu
fengu óvænta heimsókn fyrir
nokkrum dögum, er þeir voru
á heimleið af Flæmingjagrunni
með um 70 tonn af frosinni
rækju, en um 250 sjómílur suð-
ur af Hvarfi gerði fálki sig
heimakominn lun borð. Skip-
veijar tóku fálkann undir sinn
verndarvæng og komu með
hann til ísafjarðar sl. þriðju-
dagsmorgun.
Fálkinn hnitaði hringi yfir
skipinu uns hann tyllti sér loks
niður. Flaug hann nokkrum
sinnum upp aftur, en að lokum
var hann orðinn það þrekaður
og blautur að skipverjarnir
gátu handsamað hann án telj-
andi hættu. Útbjuggu þeir for-
láta skýli fyrir hann úr pappa-
kassa og neti þar sem hann
undi sér hið besta.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
ORN Ingólfsson, skipveiji á Hafrafellinu, með fálkann í höndunum um borð í skipinu.
Forsætisráðherra eftir viðræður við forystumenn ASÍ í gær
Áhyggjur vegna óróleika
eftir úrskurð Kjaradóms
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði eftir
fund með forystu Alþýðusambandsins í gær,
að aðilar ættu það sameiginlegt að hafa áhyggj-
ur vegna þess óróleika sem hefði skapast eftir
úrskurð Kjaradóms um laun æðstu stjórnenda
ríkisins. Forsætisráðherra sagði einnig að for-
^ændur úrskurðar Kjaradóms gætu naumast
- verið leyndarmál. Hann myndi ræða við forystu-
menn Kjaradóms, en hann gæti þó ekki gefið
þeim nein fyrirmæli.
Úrskurðinum breytt eða aðrir fái
sambærilegar breytingar
Engin ákveðin niðurstaða varð af fundinum
en aðilar ætla að hittast á ný í næstu viku þeg-
ar Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra og
Ákveðið að halda
annan fund um málið
í næstu viku
formaður Framsóknarflokksins, er kominn til
landsins.
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, sagðist eftir
fundinn vænta þess að skoðað yrði mjög gaum-
gæfilega hvort niðurstaða Kjaradóms og forsæt-
isnefndar Alþingis ætti að standa óbreytt eins
og orðið er samkvæmt úrskurðum, og þá hvort
hægt væri að gera einhvetjar sambærilegar
breytingar fyrir annað fólk í þjóðfélaginu.
Björn Grétar Sveinsson, formaður Verka-
mannasambands íslands, fór fram á það á fund-
inum að forsætisráðherra veitti aðstoð við að
forsendur Kjaradóms yrðu gerðar opinberar.
„Forsætisráðherra gaf engin loforð um það, en
hann hafnaði því ekki heldur. Það virðast allir,
nema háæruverðugur dómstóll, vera sammála
um að nauðsynlegt sé að skoða þessar forsend-
ur. Málið er ekkert einfalt. Ef menn ákveða til
dæmis að taka þetta til baka, standa forsendurn-
ar eftir og málið er óleyst,“ sagði hann.
Málið var einnig tekið til umræðu á miðstjórn-
arfundi ASÍ í gær þar sem gerð var grein fyrir
fundi forystumanna ASÍ með ráðherrum fyrr
um daginn.
■ Forsendur naumast leyndarmál/4
Matvara á
alnetinu
NETKAUP, nýtt. fyrirtæki í
eigu Hofs sf., eignarhaldsfé-
lags Hagkaups, hyggst bjóða
matvöru til sölu á alnetinu.
Að sögn Sigurðar I. Björns-
sonar hjá Netkaupum, verður
boðið upp á vörur á sama verði
og í verslunum Hagkaups.
Hann segir engan búnað, ann-
an en þann sem notaður er til
að tengjast netinu, nauðsyn-
legan. Viðskiptavinir geti
pantað matvörur sínar í gegn-
um netið og fengið þær sendar
heim innan höfuðborgarsvæð-
isins, án nokkurs kostnaðar,
ef keypt sé fyrir meira en
4.000 krónur í einu.
Sigurður segir það hins
vegar vandkvæðum háð að
sinna landsbyggðinni sem
skyldi sökum þess hversu hár
sendingarkostnaðurinn sé.
■ Býður sama/B3