Morgunblaðið - 15.10.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR15. OKTÓBER1995 B 7
tali kölluðu Bretar íslensku víraklippurnar ,jaws“ eða kjálka.
kvæmda fyrr en eftir 13. nóvember
1975 vegna tveggja ára samnings,
sem gerður var við Breta vegna 50
mílna útfærslunnar.
Bishop aðstoðarfiskimálaráð-
herra kvað bæi á borð við Hull,
Grimsby og Flettwood byggja af-
komu sína að verulegu leyti á fisk-
veiðum og væru fiskimiðin við ísland
mjög þýðingarmikil í því sambandi.
Geir benti á að Bretar og ýmsar
aðrar V-Evrópuþjóðir rækju fisk-
veiðar sínar með styrkjum og þætti
inga. Að loknum þremur fundum
fór svo að íslendingar ákváðu
stjórnmálaslit, sem að sögn Níelsar
eru öllu alvarlegri aðgerð en heim-
kvaðning sendiherra. Yfirleitt sé
ekki gripið til slíkra aðgerða milli
siðaðra þjóða nema í algjörum und-
antekningartilvikum.
„Það var því ekkert um það að
ræða að vera áfram í London. Geir
Hallgrímsson hringdi í mig og sagði
að nú yrði ég sendiherra í Bonn,
þar sem ég var næstu þrjú árin.
FÉLAG stjórnmálafréttaritara við Fleet Street færði Níelsi skop-
mynd. John Dickie, t.h., formaður félagsins og við hlið hans teikn-
arinn MAC, báðir unnu á Daily Mail. Undir myndinni stendur:
„Þetta er allt í lagi frú mín góð. Sjáðu til, ég er sendiherra ís-
lands. Hefur þú nokkru sinni hugsað þér að fara að stjórna skipi?“
„VERTU ekkert að reyna við ungfrú ísland. Hún heldur
sig við 200 mílna mörkin."
okkur erfitt að sætta okkur _við að
slíkar fiskveiðar færu fram á ísland-
smiðum. Betra væri að styrkja menn
til að snúa sér að einhvetju öðru.
Hann nefndi sérstaklega að ísland
hefði ekki notið góðs af samningn-
um við Efnahagsbandalagið um
tollalækkanir á sjávarafurðum.
Bretar hefðu fengið að veiða við
ísland skv. samkomulaginu, sem
gert var milli þjóðanna haustið
1973, en við hefðum í raun og veru
ekkert fengið í staðinn og yrðum
svo til eingöngu að byggja á mörk-
uðum í Bandaríkjunum og Sovétríkj-
unum um útflutning sjávarafurða.
Drottningin kvödd
Bretar óskuðu á þessum fundi
eftir frekari viðræðum við Islend-
Frekari orð voru óþörf nema hvað
ég man eftir að hafa svarað honum
með því að segja að ég færi hvergi
fyrr en ég hefði kvatt drottninguna.
Reynt var að flýta þeim fundi eins
og kostur var þótt biðtími eftir
áheyrn drottningar sé ekki óalgeng-
ur tveir til þrír mánuðir. Þegar að
kveðjustundinni kom, tók drottning
á móti okkur hjónunum í einkaíbúð
sinni í Buckinghamhöll, en ekki á
skrifstofunni, eins og venja er, og
kvaddi okkur með virktum."
Vinsamleg samskipti
Stjórnmálasamband milli íslands
og Bretiands komst siðan á að nýju
með samningi, sem gerður var í
Osló 1. júní 1976 og varð Sigurður
Bjarnason þá sendiherra í London.
Níels segist aldrei hafa orðið fýr-
ir persónulegum aðdróttunum vegna
fiskveiðideilna þjóðanna þótt hann
hafi stundum seint um kvöld fengið
upphringingar frá mönnum, sem
auðheyranlega höfðu fengið sér að-
eins of mikið neðan í því og skömm-
uðust heilmikið. „Aftur á móti var
það aðallega konan mín sem fékk
skammirnar eftir að ég var kallaður
heim sumarið 1973, en þá var hún
eftir í London með börnin okkar
þtjú sem þá voru í breskum skólum.
Hún fékk símahótanir meðan ég var
á Islandi og gijóti var kastað í
glugga sendiráðsins. Skemmdar-
vargarnir feiluðu sig þó dálítið þeg-
ar þeir brutu rúðu í byggingunni
við hliðina, héldu að sendiráðið væri
í stærra húsnæði en reyndin var.
Breska leynilögreglan tók það svo
upp hjá sjálfri sér að veita konunni
minni vernd eftir að árás var gerð
á breska sendiráðið í Reykjavík,
m.a. með steina- og eggjakasti. Hún
fór því ekki í leikhús, í kaffi til vin-
kvenna eða út í búð án þess að
hafa óeinkennisklædda lögreglu-
menn í eftirdragi. Þetta ástand var
að vonum dálítið taugastrekkjandi."
Aðspurður um hvað tæki við, nú
þegar sjötugsaldri væri náð, sagði
Níels það vera óvíst. „Ég er lögfræð-
ingur að mennt og hef öll málflutn-
ingsréttindi. Svo má alltaf skrifa
endurminningarnar eða bók um ha-
fréttarmál Islendinga. Hver veit
nema ég dundi mér við það.“
Tekið ©
þijtigdinni
NÝTT
Námskeið fyrir karla
sem vilja taka vel á!
■ Tækjaþjálfun og
þolþjálfun 3-5x í
viku
Fræösla
Fitumæling og
Vinningar í hverri
viku.
3 heppnir fá 3ja
mán kort í lokin.
Láttu skrá þig strax
á þetta frábæra og
árangursríka námskeið.
Byggðu upp vöðvamassa
og losnaðu við fitu
AGUSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 533 3355
Sjöundl h I m 11