Morgunblaðið - 15.10.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.10.1995, Blaðsíða 12
12 B SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR^ Komnar til aó vera? Samsýn- ingamar TVÆR stórfelldar breytingar hafa orðið á kvikmyndasýn- ingum á íslandi undanfarin misseri: Forsýningar eru fastur liður á stórum myndum sem smáum og stórmyndir (og í sumum tilfellum minni og ómerkilegi'i myndir) eru nær undantekningarlaust sýndar í tveimur kvikmyndahúsum í Reykjavík og frumsýndar í flestum tilvikum samtímis á Akureyri. Báðar breytingamar eru merki um stóraukna samkeppni bíóanna um áhorfendur en sú síðarnefnda er talsvert söguleg og kemur að utan. Dreifingaraðilarnir úti í heimi, m.a. United International Pictures eða UIP, sem hefur umboð fyrir mörg stóru kvikmyndaverin í Hollywood í Evrópu, hafa lagt æ meiri áherslu á hinn blómlega ís- lenska bíómarkað og einsett sér að fá sem mest útúr honum. FRÁBÆR aðsókn fyrstu helgina; úr Vatnaveröld, sem sýnd er í tveimur bíóum. Hvaða áhrif hefur það á hinn almenna kvik- myndahúsagest? Ekki koma bíómyndirnar neitt fýrr í bíóin. Sú bylting varð þegar með til- komu Sambíó- anna uppúr 1980 þegar sýningar- hald gjör- breyttist hér og bíó- myndir tóku að berast til landsins mun fyrr en áður. Fyrir Akureyringa er breytingin augljóslega til mikils batn- aðar. Þeir fá nú flestar helstu myndirnar á sama tíma og þær eru frumsýndar í Reykjavík. í höfuðstaðnum eru myndirnar hins vegar aðgengilegri; ef þú_ átt heima í Breiðholtinu, Árbæ og Grafarvogi þarftu ekki að fara í vesturbæinn á Vatnaveröld, hún er líka í Bíóhöllinni. Og þegar sæta- framboðið næstum tvöfald- ast með sýningu í tveimur kvikmyndahúsum er ólíklegt að þú komist ekki á hana af því miðarnir eru uppseld- ir. Þegar Júragarðurinn var frumsýnd í tveimur Sambíó- anna og Háskólabíói á sín- um tíma yfirtók hún mark- aðinn svo gersamlega að naumast var um aðrar myndir að ræða í bíóunum. Þar liggur hugmyndafræðin á bak við samsýningarnar og hún er sprottin úr banda- rísku sýningarhefðinni. Fyrsta helgin skiptir öllu máli. Með því að byija í tveimur bíóum með viðeig- andi auglýsingamætti gnæfir myndin yfir aðrar þá helgina og hún er keyrð á hámarksafköstum. Vatna- veröld er gott dæmi um þetta. Um 8.300 manns sáu hana fyrstu sýningarhelg- ina, sem var mesta þriggja daga byijunin á árinu, og heldur í framhaldi af því áfram að ganga vel í tveim- ur kvikmyndahúsum næstu tvær vikurnar að minnsta kosti. Þannig næst mest inná hana á skemmstum tíma. Það er mjög í hag dreifingaraðilunum því oft fá þeir stærstu prósentuna af innkomunni fyrstu sýn- ingardagana eða vikurnar, sem síðan iækkar eftir því sem lengra líður á sýningar- tímann. Varla þarf að taka fram að sama bíómyndin er sýnd í fleiri en einu kvikmynda- húsi um allan heim; í Banda- ríkjunum t.d. er henni dreift í allt upp í 2.500 kvik- myndahús. Sérstaða ís- lenska markaðarins hefur hamlað gegn samstarfi kvikmyndahúsanna. Ára- tugum saman höfðu kvik- myndahúsin umboð fyrir sitt ákveðna vörumerki og sátu ein að sínum myndum. Það kerfi hefur riðlast tals-. vert til í seinni tíð. Krafan um að frumsýna kvikmyndir í a.m.k. tveimur kvikmynda- húsum í Reykjavík kom á endanum frá eriendu dreif- ingaraðilunum og hún hefur breytt sýningarhaldi um- talsvert. Hún hefur t.a.m. haft áhrif á sjálfstæði kvik- myndahúsanna og fengið þau til samstarfs. Upphaf samsýninganna má að líkindum rekja til þess er Sambíóin hófu að frumsýna myndir í tveimur kvikmyndahúsum sínum í Reykjavík uppúr 1988 en Sambíóin búa við þá sér- stöðu að geta sjálf frumsýnt sömu myndina í jafnvel öll- um þremur kvikmyndahús- um sínum. Tveir á toppnum („Lethal Weapon") og Þrír menn og karfa voru einna fyrstu myndirnar sem sýnd- ar voru á þann hátt og þær gengu dæmalaust vel í tveimur bíóum. Með það í huga fóru stóru dreifínga- raðilarnir seinna út í að bóka myndir sínar í tveimur kvikmyndahúsum í borg- inni. Ein afleiðing samsýning- anna er að tíðni frumsýn- inga minnkar. Þegar tvö kvikmyndahús frumsýna sömu myndina er ekki óeðli- legt að ætla að vanti eina frumsýningu og þegar allt upp í fjórar myndir eru sýndar samtímis í tveimur bíóum eins og raunin er með Frelsishetjuna, Vatnaver- öld, Kasper og Umsátrið 2 þegar þetta er skrifað, er ekki pláss fyrir fjórar aðrar, sem hefði mátt sýna ef þess- ar myndir væru aðeins í einu kvikmyndahúsi. Fækkun frumsýninga dregur úr úr- vali og fjölbreytileika mynda. Á móti koma þau rök að frumsýningarnar jafnist upp, því ef tvö bíó sýna mynd i sal 1 í tvær vikur jafngildir það því að eitt bíó sýnir mynd í sal 1 í fjórar vikur. Einnig má minna á að kvikmyndahúsin hafa öll litla sali fyrir frum- sýningar minni, listrænni mynda og hefur Háskólabió vakið sérstaka athygli fyrir slíkar frumsýningar. Fyrst voru aðeins al- stærstu myndirnar settar á samsýningar, myndir sem sýnt þótti að færu yfir 30.000 manns í aðsókn, en nú fá almennari myndir sömu virðingarstöðu, mynd- ir sem 10 til 12.000 manns sjá. Þegar samsýningarnar eru orðnar svo almennar og myndirnar eru vondar, eins og t.d. Kongó, kemur gúrk- utíð og nýliðið sumar ein- kenndist talsvert af slíkri gúrku, sem að einhveiju leyti má skrifa á samsýning- arnar. Það eru ekki alltaf bestu og merkilegustu myndirnar sem fá tvöfalda bókun. Aðsóknin hefur aukist á stórmyndirnar með hinu nýja fyrirkomulagi en minni myndirnar fá ekki notið sín í þessu umhverfí og aðsókn- in á þær hefur minnkað. Fjöldi kvikmyndahúsagesta í Reykjavík er yfírleitt í kringum 1.300.000, hann breytist sáralítið ár frá ári, svo þetta er spurning um hvaða myndir hreppi stærstu bitana. Þannig verður áherslan öll á stórmyndirnar. Það er mjög í takt við þróun- ina í kvikmyndaverunum í Hollywood þar sem stærri myndirnar verða sífellt stærri og minni myndirnar minni. Hvað þýðir þetta fyr- ir okkur? Samsýningamar eru komnar til að vera. MBandaríska leikkonan Jodie Foster hefur leikstýrt nýrri bíómynd sem heitir Heim í fríið eða „Home for the Holidays". Þetta er gamandrama með Holly Hunter, Robert Downey og Anne Banceoft í aðalhlut- verkum. Foster, sem á sitt eigið framleiðslu- fyrirtæki, er einnig framleiðandi. Myndin gerist um bandarísku Þakkagjörðarhátíðina og það fóru 63 kalkúnar í að filma veisluatriðið. MNýr framtíðartryllir breska leikstjórans Terry Gilliams verður frumsýndur innan skamms. Hann heitir Tólf apar og er með Bruce Willis, Madel- eine Stowe, Christop- her Plummer og Brad Pitt í aðalhlutverkum. Fangi á 21. öldinni er sendur aftur í tíma að koma í veg fyrir að vír- us þurrki út mannkynið en bíómyndin er byggð á stuttmynd sem heitir „La Jetée“. MFramhald hefur verið gert á gamanmyndinni „Grumpy Old Men“ eða Grautfúl gamal- menni og heitir hún „Grumpier Old Men“. Jack Lemmon og Walter Matthau fara með aðalhlutverkin sem fyrr. MEinhver skemmtileg- asta mafíumynd síðasta áratugar var Heiður Prizzis eða „Prizzi’s Honor“ með Jack Nic- holson og Anjelicu Huston. Pabbi hennar, John, gerði hana árið 1985 og nú er ný mynd í undirbúningi um sama Prizzi, sem heitir Fjöl- skylda Prizzis eða „Prizzi’s Family“. Mun Anjelica fara með aðal- hlutverkið en sagan í nýju myndinni hefst áður en sagan í fyrri myndinni. eftir Amald Indriðason LOKAKVÖLD aldarinnar; úr framtíðartryllinum Skrýtnir dagar. Vid aldaskiptin NÝ MYND breska ieik- arans Ralph Fiennes er framtíðartryllir frá Holly- wood sem Kathryn Bigelow, eini kvenhasarleikstjórinn í bænum, leikstýrir. Myndin heitir Skrýtnir dagar og ger- ist í Los Angeles á loka- kvöldi aldarinnar, gamlárs- kvöldi 1999. Hún verður segir frá fyrrum löggu sem ásamt öryggisverði nokkrum eltir uppi geðsjúkan morð- ingja. Cameron skrifaði sög- una fyrir níu árum og Fien- nes undirbjó sig fyrir rulluna með því að fylgjast með störfum lögreglumanna í skuggalegri hverfum Los Angeles. frumsýnd vestra í þessum mánuði. James Cameron og Jay Cocks skrifa handritið er Með önnur hlutverk fara Angela Bassett, Juliette Lewis, sem leikur rokksöng- konu, og Tom Sizemore. 20.000 höfðu séð Ógnir í undirdjúpum ALLS höfðu um 20.000 manns séð kafbátatryll- ■*^inn Ógnir í undirdjúpum í Sambíóunum eftir síðustu sýningarhelgi. Þá höfðu um 15.000 manns séð Vatnaveröld í Sambíóum, Háskólabíói og á Akureyri, 9.000 Hundalíf, 6.000 Brýrnar í Madisonsýslu, 24.000 Kasper, sem einnig er í Háskólabíói, 12.000 Ums- átrið 2, 9.500 Englendinginn sem fór upp hæðina og kom niður fjallið, 22.000 Tvo með öllu, 28.000 Batman 3 og 22.000 Á meðan þú svafst. Næstu myndir Sambíóanna eru „Showgirls" eftir Paul Verhoeven, sem sýnd verður í lok þessa mánaðar, „The Net“ með Söndru Bullock, sem einn- ig verður í Stjörnubíói, og vísindatryllirinn_„Speci- es“, sem einnig verður í Laugarásbíói. íslenska myndin Benjamín dúfa verður frumsýnd í Sambíó- unum og Stjörnubíói 2. nóvember. Aðrar myndir væntanlegar í Sambíóin eru „Mad Love“ en á undan henni verður sýnd íslenska stutt- myndin Nautn ,(nr. 1), „Dangerous Minds“ með Michelle Pfeiffer og loks „The Usual Suspects" og „Circle of Friends". SYND á næstunni; aðalleikkonurnar i „Showgirls“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.