Morgunblaðið - 15.10.1995, Side 15

Morgunblaðið - 15.10.1995, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1995 B 15 FRÉTTIR Hverfa- fundir borgar- stjóra BORGARSTJÓRI, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, heldur hverfafund í Langholtsskóla með íbúum Laugar- nes-, Lækja-, Teiga-, Langholts-, Sunda- og Vogahverfis ásamt Skeifunni mánudaginn 16. október. Næstu hverfafundir verða 23. október, í Réttarholtsskóla, með íbúum Háaleitis-, Smáíbúða-, Holta-, Norðurmýrar- og Hlíða- hverfis og með íbúum vestan Snorrabrautar mánudaginn 6. nóv- ember. Síðasti hverfafundurinn að þessu sinni verður haldinn með íbúum Breiðholts í Gerðubergi mánudag- inn 13. nóvember. ----» ♦ ♦-- Fundur um atvinnuleysið ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG Reykja- víkur boðar til opins fundar á Korn- hlöðuloftinu í Bankastræti mánu- daginn 16. október klukkan 20.30. Fundarefnið er atvinnuleysið - nýjar hugmyndir um verkefna- tengdan lífeyri í stað bóta. Frum- mælandi er Jón Erlendsson yfir- verkfræðingur, forstöðumaður upp- lýsingaþjónustu Háskóla Íslands. Þá mun Pétur Blöndal alþingismað- ur taka þátt í umræðum að fram- sögu lokinni, en fundarsstjóri er Gunnar Ingi Gunnarsson. ----♦ ♦ ♦-- Rabbfundir Kvenfélags Hafnarfjarð- arkirkju KVENFÉLAG Hafnarfjarðarkirkju verður með vinnu- og rabbfundi vikulega í vetur. Ingveldur Einarsdóttir hefur tek- ið að sér að vera leiðbeinandi á þessum samverustundum sem verða á þriðjudagskvöldum í kennslustofu Safnaðarheimilisins, Strandbergi, kl. 20-22 fram að jólafundi sem verða mun í Skútunni sunnudaginn 18. desember. Fyrsti fundurinn verður þriðju- daginn 17. október kl. 20. Leikfiirjsíatnaður IM/MtaU SPORTHÚS REYKJAVÍKUR Laugavegi 44, s. 562 2477 ÞÚ GETUR TREYST FAGOR FAGOR^ ÞVOTTAVÉLAR UPPÞVOTTAVÉLAR OG ELDUNARTÆKI Á EINSTÖKU VERÐI RÖNNING BORGARTÚNI 24 SÍMI 568 58ó8 FAGOR S-23N Kælir: 212 I - Frystir: 16 I HxBxD: 122x55x57 cm Innbyggt frystihólf ^38-800 FAGOR D-32R Kælir: 282 I - Frystir: 78 I HxBxD: 171x60x57 cm 54.800 FAGOR C31R - 2 pressur Kælir: 2701- Frystir: 110 I HxBxD: 170x60x57 cm Tvöfalt kælikerfi 67.800 Frá því að hin vel heppnaða söluherferð ESSO undir slagorðinu Settu tígur á tankinn - Put a Tiger in your Tank - var kynnt hefur tígurinn verið einkennismerki fyrirtækja ESSO um allan heim. Svo hefur einnig verið hjá Olíufélaginu hf. undanfarið ár og var það undirstrikað með útgáfu Safnkortsins. Nú er jafn- framt hægt að kaupa litla ESSO-tígra á flestum bensínstöðvum ESSO. Hingað til hefur þessi tígur verið kallaður ESSO-tígurinn en nú finnst okkur mál til komið að finna honum gott og skemmtilegt nafn og það ætlum við að biðja ykkur að hjálpa okkur við. Höfundur besta nafnsins fær glæsileg verðlaun og berist fleiri en ein tillaga með sama nafni verður dregið um hver hlýtur verðlaunin. Aðrir höfundar sama nafns fá skemmtileg auka- verðlaun. Skilafrestur er til 1. nóvember og eru verðlaunin eftirfarandi: 1. Skíðaútbúnaður frá Útilífi að verðmæti 25.000 kr. 2.-6. Skautar frá Útilífi að verðmæti 5.000 kr. 7.-10. Gull á móti sól, geisladiskur Snigla- bandsins að verð- mæti 1.790 kr. 11.-50. Litli ESSO-tígurinn Spennandi verðlaunasamkeppni Þátttökuseðlar eru t Safnkortsfréttum sem liggja frammi á bensínstöðvum ESS0. Olíufélaglð hf Blab allra landsmanna! - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.