Morgunblaðið - 18.10.1995, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.10.1995, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1995 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. DYRKEYPT UM- FERÐ ARMENNIN G BANASLYSUM í umferðinni hefur fækkað hægt og síg- andi á undanförnum árum. Á árinu 1991 létust 21 í umferðarslysum, 17 árið 1993 og 12 árið 1994. Á undanförnum mánuði hafa hins vegar átta einstaklingar látið lífið í umferðarslysum á vegum landsins. Fyrstu tíu mánuði þessa árs hefur því umferðin þegar kostað 21 manns- líf. Síðasta dæmið er hörmulegt umferðarslys á Suðurlands- vegi þar sem þrir létu lífið. Mikið hefur verið rætt um stöðu umferðarmála á íslandi á siðustu vikum. í greinarflokki um tryggingamál í Morgun- blaðinu síðustu daga hefur m.a. komið fram að umferðarslys eru mun tíðari hér en í ríkjunum í kringum okkur. Ef miðað er við fjölda slasaðra, sem fá bætur úr lögboðnum trygging- um, og þeim jafnað á skráðar bifreiðar má sjá að á Islandi er einn slasaður á hverjar 50 bifreiðar. í Svíþjóð og Noregi eru 100 bifreiðar á hvern slasaðan og 125 í Frakklandi. Þá hefur það komið fram að ein af hverjum þrjátíu bifreið- um sem tryggðar eru hjá Skandia í Svíþjóð lenda í ábyrgðar- tjóni en ein af hverjum átta hér á landi. Þessar tölur segja sína sögu. Þær, ásamt mörgu öðru, benda til að íslendingar séu kærulausari í umferðinni en nágrannaþjóðir okkar. Þeim, sem hafa mikla reynslu af akstri erlendis, blöskrar oft það aga- og tillitsleysi, sem ein- kennir umferðina á íslandi. Þetta agaleysi er of dýru verði keypt. Þó að tjón á bifreið- um hafi mikinn kostnað i för með sér fyrir tryggingataka fást slík tjón bætt. Varanleg örorka og mannslíf fást hins vegar aldrei bætt. Við höfum ekki efni á því að banaslysum fjölgi á ný. íslenska umferðarmenningin verður ekki bætt með neinum töfralausnum. Það má hins vegar spyrja hvort ekki verði að byrja á upphafinu og kanna hvort herða eigi kröfur varðandi umferðarkennslu. I sumum nágrannaríkjum gilda einnig sérstakar reglur um akstur yngstu ökumann- anna. Fyrst og fremst verðum við þó ávallt að hafa hugfast að þegar við setjumst undir stýri öxlum við mikla ábyrgð, á lífi annarra jafnt sem okkar eigin. VINNUBRÖGÐ VIÐ LAGASETNINGU TVÖ DÆMI hafa komið upp að undanförnu um að mistök hafi orðið við setningu laga á Alþingi, þannig að áhrif lagasetningarinnar hafi orðið önnur en ætlað var. Annars vegar hefur komið fram að makar látinna varaþing- manna, sem sátu aðeins í fáeinar vikur á þingi, öðlast rétt til makalífeyris eftir þá svo milljónum króna skiptir. Þrátt fyrir að komið hafi fram af hálfu forystumanna þingsins að þetta geti ekki hafa verið ætlunin við lagasetninguna, sem átti sér stað 1982, hefur ábendingum um mistökin lítt verið sinnt á undanförnum árum. Hins vegar hefur Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, þing- maður Þjóðvaka, nú lagt fram frumvarp til að brejrta lögum um lífeyristryggingar, sem sett voru árið 1993. Afleiðing lagasetningarinnar hefur orðið sú að lífeyrisþegar, sem fá endurhæfingarlífeyri eftir sjúkdóm eða slys, missa rétt til svokallaðra tengdra bóta, sem nema að lágmarki fimmtán þúsund krónum á mánuði. Heilbrigðisráðherra hefur tekið undir það með þingmanninum að mistök hafi orðið við laga- setninguna og það hafi ekki verið ásetningur Álþingis að svona færi. Hefur heilbrigðisráðherra nú gefið fyrirmæli um, að þessar greiðslur verði færðar í fyrra horf. Alþingi er fengið stórt hlutverk í íslenzkri stjórnsýslu, miðað við það sem víða gerist. Það er meðal annars hlutverk þingsins að fara rækilega yfir frumvörp og tryggja að lög- gjöf sé sem bezt úr garði gerð. Mistök af ofangreindu tagi eru afleitur vitnisburður um það hvernig þingið sinnir þessu hlutverki sínu. Því miður eru þetta ekki einu dæmin. Það stingur hins vegar líka í stúf við það mikilvæga hlut- verk, sem þingið sinnir, hversu illa er búið að því hvað varð- ar sérfræðistuðning við einstaka þingmenn og við þingnefnd- ir, sem gegna því hlutverki að skoða mál ofan í kjölinn. Sér- hæft starfslið Alþingis er hlutfallslega mun fámennara en á flestum þjóðþingum í nágrannalöndunum. Löggjöf er á mörgum sviðum orðin afar sérhæfð og tækni- leg. Það er ekki hægt að ætlast til að þingmenn hafi þá sér- fræðiþekkingu, sem þarf til að greina allar misfellur í laga- frumvörpum. Fámennt starfslið þingsins sinnir starfi sínu af samvizkusemi og dugnaði, en er ofhlaðið störfum. Þing- menn, og sérstaklega þingnefndirnar, þurfa á fleiri vel mennt- uðum og hæfum sérfræðingum að halda til að geta sinnt hlutverki sínu sem bezt. MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1995 27 100 þúsund kr. á ári fyrir pakka á dag#Fjórðungur 16 ára pilta reykir#Unglingar byrja helst að reykja á sumrin#Hvað geta foreldrar gert?#„Fullorðinslegri“ busar með sígarettu • Forvarnastarf dropi í hafið#Ólöglegt fíkniefni fyrir börn# Unnið við að ala upp reyklausa kynslóð VIÐ byijum samtalið á að ræða um forvarnarstarf skólanna sjálfra. Þau nefna, að í skólum á höf- uðborgarsvæðinu sé kennt Lions Quest námsefni, eða tilverukennsla, eins og það kallast. Þar sé komið inn á reykingar, en til þess séu aðeins ætlaðar tvær kennslustundir. Áhuga- samir kennarar nálgist hins vegar oft ítarefni hjá Krabbameinsfélaginu og leggi þá aukna áherslu á þann þátt, á kostnað annarra. Slíkt ítar- efni safnist smám saman upp á bóka- söfnum skólanna. Þá segja þau að í kennslubók í líf- fræði sé fjallað um reykingar og áhrif þeirra á lungun. Þar sé því lögð áhersía á skaðleg áhrif reykinga á líkamann, en ekki sé um beinar for- varnir að ræða. Á vegum skólakerfis- ins sjálfs, þ.e. í því námsefni sem öllum nemendum er ætlað að læra, sé ekki um frekari fræðslu að ræða. „Heilsugæslan á að vinna gegn reykingum og aðstoða fólk við að hætta að reykja," segir Ingileif. „Hins vegar þykir mér skorta tölu- vert upp á að heilsugæslan í skólun- um sinni þessu hlutverki. Þar er oft lögð megin áhersla á sömu mæling- arnar og undanfarna áratugi, þ.e. mælingar á heyrn og sjón. Yngri skólahjúkrunarfræðingar hafa hins vegar svarað kalli tímans og lagt meiri áherslu á tóbaksforvarnir og kynfræðslu. Þá kemur hins vegar stundum upp sú staða, að sums stað- ar vilja kennarar ekki að skólahjúkr- unarfræðingar sinni þessum þætti, þar sem það skarast við þeirra verk- svið.“ Þorvarður segir að með því að kalla fulltrúa Krabbameinsfélagsins til fræðslustarfa innan skólanna sé tryggt að samræming sé í fræðsl- unni, auk þess sem starfsmenn Krabbameinsfélagsins hafi kynnt sér tóbaksvarnir sérstaklega og fylgist með öllum nýjungum á því sviði. Þannig verði meiri festa í fræðsl- unni. Hins vegar hafi Krabbameins- félagið eitt ekki bolmagn til að sinna þessu hlutverki sem skyldi, enda sé rekstur þess háður fijáisum framlög- um, ágóða af happdrætti og styrk frá sveitarfélögum. Fleiri þurfi að leggja hönd á plóginn. Forvamir hjá 11-15 ára Forvarnarstarf Krabbameinsfé- lagsins byijaði af fullum krafti fyrir 20 árum. Þá voru tóbaksauglýsingar enn leyfðar innan dyra hér á landi, til dæmis í verslunum. Talað var um fræðslustarf Krabbameinsfélagsins sem herferð og það vakti mikla át- hygli. „Börnin voru sjálf þátttakend- Eitt hlutverka Krabbameinsfélags Reykjavík- ur er tóbaksvamir í grunnskólum. Ragnhild- ur Sverrisdóttir ræddi við þau Þorvarð Öm- ólfsson, framkvæmdastjóra félagsins, Hrund Sigurbjömsdóttur, fulltrúa framkvæmdastjóra og fræðslufulltrúana Guðna Bjömsson og * Ingileif Olafsdóttur, en á herðum fjórmenning- anna hvílir barátta Krabbameinsfélagsins gegn reykingum. Heilsugæsla skólum ekki nógu virk Morgunblaðið/Ásdís ÞORVARÐUR Örnólfsson, Ingileif Ólafsdóttir, Guðni Björnsson og Hrund Sigurbjörnsdóttir. ur í baráttunni og þá var hún að því leyti auðveldari, að óvinurinn var sýnilegri í þessum auglýsingum," segir Þorvarður. „Þar er ég auðvitað ekki að mæla auglýsingum bót, því þær hafa mjög skaðleg áhrif.“ Nú er forvarnarstarfi Krabba- meinsfélagsins i skólunum þannig háttað, að byijað er hjá 11 ára börn- um og þeim fylgt eftir til 15 ára ald- urs, eða til loka grunnskólans. Að- spurður kveðst Guðni telja, að ekki ' sé ástæða til að byija fyrr. „Ellefu ára börn eru mjög andsnúin tóbaks- reykingum, þeim finnst þær ógeðs- legar og óhugsandi að þau byrji nokkurn tímann að reykja. Þau eru því mjög móttækileg fyrir fræðslu og því er óþarfi að fara neðar í aldri. Hins vegar má herða áróðurinn. Þá fræðslu, sem nú er ætluð 8. bekk, eða 13 ára krökkum, mætti gjarnan færa niður i 7. bekk.“ En hvers vegar byija börn og ungl- ingar að reykja, þrátt fyrir sannfær- ingu á unga aldri um að slíkt ætli þau aldrei að gera og þrátt fyrir þá fræðslu sem þau fá? Ýmsar ástæður eru nefndar fyrir reykingum unglinganna, áhrif frá félögum og öðrum í nánasta um- hverfi. „Unglingum er hættast við að bytja að reykja á sumrin, til dæm- is byija mjög margir þegar stórir hópar unglinga hittast í unglinga- vinnunni," segir Hrund. „Annar hættutími er þegar framhaldsskóiinn byijar. Það virðast margir 16 ára unglingar ímynda sér að þeir verði fullorðinslegri busar ef þeir reykja. Ef unglingur er hins vegar ekki byij- aður að reykja 19 ára, þá eru litlar líkur á að hann verði tóbakinu að bráð. Það eru því aðeins nokkur ár, þar sem vandinn er mestur." Fjórmenningarnir segja að for- vamarstarfið geti aldrei skilað fullum árangri eitt sér og sé nánast eins og dropi í hafið á meðan áreitin sé að finna alls staðar annars staðar. Sem dæmi um slíkt nefna þau að þrátt fyrir að auglýsingar séu bannaðar hér á landi, þá sjái krakkar þær víða, til dæmis i erlendum tímaritum. Mjög margt vinni gegn því viðhorfi að það sé ekki flott að reykja. Bjórinn er einnig nefndur sem áhrifavaldur. Rannsóknir hafa sýnt öflug tengsl á milli áfengisneyslu unglinga og tóbaksneyslu þeirra. Þorvarður segir það hafa komið fram, að drykkja unglinga, sérstaklega drengja, jókst þegar bjór- inn var leyfður. í könnun- um Krabbameinsfélagsins og héraðslækna á reyking- um grunnskólanema sjáist glöggt, að reykingar 14-16 ára hafi einnig aukist. „Unglingi sem hefur ekki reykt og fer að nota áfengi verður þá hættara við að fá sér sígarettu, það slaknar á árvekninni." Foreldrar axla ekki ábyrgðina Það ber á því í máli fjórmenning- anna, að þeim þyki foreldrar stundum varpa af sér ábyrgðinni á reykingum barna sinna. Ekkert reykjandi for- eldri sé sátt við að barn þess byiji að reykja, en sjálft sé það slæmt fordæmi. „Þá er eins og fólk átti sig ekki á að tóbak er ólöglegt fíkniefni fyrir börn undir 16 ára aldri. Það er ólöglegt að selja svo ungum börnum tóbak, en því banni er ekki nægilega framfylgt.“ Hrund bætir við að Krabbameins- félaginu hafi borist ábending frá skóla, en foreldrar barnanna í skól- anum voru óánægðir með að börn þeirra gætu keypt tóbak í hverfinu. „Krabbameinsfélagið er ekki eftirlits- aðili með slíku, heldur heilbrigðiseft- irlitið. Foreldrar geta sjálfir kannað hug verslunarmanna í hverfinu til þessa máls, en ekki varpað af sér allri ábyrgð og bent á Krabbameins- félagið, eða aðra sem vinna að for- vörnum." Ingileif segir að það hljóti að vera mikilvægast i hugum þeirra, sem vilja ala upp tóbakslausa kynslóð, að velta fyrir sér hvað þeir geti sjálfir gert. „Við vitum dæmi um að _____________ unglingar yngri en 16 ára Aukin drykkja fá ekki aðeins keypt tóbak heldur munu þau einnig hafa fengið það skrifað. Slíku ættu foreldrar að vita “ af og það er þeirra að gripa i taum- ana. Og þegar reykingar á skólalóð eru bannaðar og nemendum gert að fara út af lóðinni til að reykja, þá gengur ekki að kennarinn komi inn í skólastofuna og leggi af honum reykjarstybbuna eftir frímínútur á kennarastofunni. Áróður slíks kenn- ara gegn reykingum verður seint trú- verðugur." ýtir undir reykingar Ingileif segir að sívaxandi fjöldi þeirra vinnustaða, sem eru reyklaus- ir, skipti miklu máli. „Þegar ungling- ar starfa hjá slíkum fyrirtækjum, til dæmis i sumarvinnu, þá fá þeir skýr skilaboð um að reykingar liðist ekki. Nú eru reyklausir vinnustaðir rúm- lega eitt þúsund og bætist sífellt við. Áhrifamest er þó að sjálfsögðu ef foreldramir sjálfir hætta að reykja og gefa þannig gott fordæmi." Að sögn fjórmenning- anna eru félagsmiðstöðvar famar að sýna fræðslu um skaðsemi tóbaks meiri áhuga en áður. Sumar félagsmið- stöðvar séu reyklausir vinnustaðir og þannig séu starfsmenn unglingunum fyrirmynd. Hins vegar séu einnig dæmi þess að unglingum á dansleik í félagsmiðstöð hafi verið hleypt út undir bert loft með ákveðnu millibili, svo þeir gætu reykt. Það sé ólíðandi að þeir, sem starfi að æskulýðsmál- um, leggi þannig reykingum ungling- anna lið. Frelsi til að se^ja fíkniefni Frumvarp til nýrra tóbaksvarna- laga náði ekki afgreiðslu á þingi sl. vor. Hmnd segir, að ýmsar breyting- ar hafi verið gerðar á framvarpinu, sem hefur verið sjö ár í smíðum og í raun hafi heilbrigðisnefnd þingsins tekið undir nær allar breytingatillög- ur Verslunarráðs á frumvarpinu. Þannig hafi nefndin til dæmis fallið frá tillögum um að tóbak ætti ekki að vera sýnilegt í verslunum og tób- akssala einskorðuð við matvöraversl- anir, sælgætisverslanir og veitinga- og gististaði. Þá hafí Tóbaksvarnarnefnd gert að tillögu sinni að bannað væri að selja unglingum undir 17 ára aldri tóbak, í stað þess að miða við 16 ár, eins og nú er. Aðrir hafi viljað miða við 18 ár. Framvarpið miði hins veg- ar enn við 16 ára aldurstakmark og þannig sé ekki unnið að því tak- marki, að enginn grannskólanemi geti keypt tóbak. _________ Ingileif segir að nefndin hafi komið aftan að þeim sem starfi að forvörnum. Nefnd með þessu nafni hefði átt að taka á málum “““™“" á annan hátt. Þorvarður telur nefndina hafa far- ið offari við að reyna að sætta sjónar- mið, svo frumvarpið yrði að lögum og jafnvel tekið undir kvartanir Verslunarráðs og tóbaksumboðs- manna um „óeðlilegar hömlur á at- vinnufrelsi". „Tóbak er lífshættulegt fíkniefni og því er undarlegt að heyra talað um nauðsyn frelsis í viðskiptum með tóbak.“ 10 ára ^-Drengir 10 1-1* U 0,5* 74 78 '82 '86 '90 '94 Reykingar 10-16 ár barna og unglinga í Reykjavík 1974-94 50% 40- 30- 20 11 ára Drengir 74 78 '82 '86 '90 '94 74 78 '82 '86 '90 '94 Drengir 74 78 '82 '86 '90 '94 vJU /0 15 ára 40 33,6* ^— Stúlkur dU \h. 19,6* V+ 16,2* Drengir-^%: 1U : U '74 78 '82 '86 '90 '94 74 78 '82 '86 '90 '94 Reykingar unglinga hafa aukist á ný KRABB AMEIN SFÉL AG Reykjavíkur og héraðslæknar hafa kannað reykingar barna og unglinga í öllum skólum borgarinnar á fjögnrra ára fresti frá 1974. í nýjustu könnuninni, sem gerð var í fyrra, kom í ljós mik- il aukning á reykingum 16 ára drengja. 25,6% þeirra reyktu daglega í fyrra, en árið 1990 reyktu 10,7% daglega. Aukning varð einnig hjá 14 og 15 ára drengjum, þó ekki væri hún jafn mikil. Fjórtán ára stúlkur reyktu minna í fyrra en jafnöldrur þeirra fjórum árum fyrr. Dag- 'lega reyktu hins vegar 19,6% 15 ára stúlkna, miðað við 13,2% árið áður, en daglegar reyking- ar 16 ára stúlkna stóðu nánast í stað. Nokkuð algengt virðist vera að unglingar reyki ekki reglu- lega, heldur til dæmis aðeins um helgar. Þegar allar reykingar voru taldar með reyktu 31,1% 16 ára drengja, en 16,3% árið áður. Það vekur athygli I könnun þessari að reykingar yngstu barnanna, þ.e. 10-13 ára, hafa minnkað jafnt og þétt frá því að byrjað var að gera kannanir af þessu tagi. Aldurshópurinn 14-16 ára sækir hins vegar í sig veðrið. Leitað til þeirra sem umgangast unglinga mest Krabbameinsfélagið brást við niðurstöðum könnunarinnar með því að hafa samband við ýmsa, sem starfa með og um- gangast unglinga. Þjálfurum íþrótta- og ung- mennafélaga um land allt var skrifað og þeir hvattir til, að beita áhrifum sínum til að koma í veg fyrir að börn og unglingar byijuðu að reykja. Einnig var þess farið á leit við foreldrafélög að þau beittu sér eftir megni fyrir tóbaks- vörnum. Þá var tekið upp samstarf við Vinnuskóla Reykjavíkur og nokkrir reyklausir vinnuhópar verðlaunaðir. Enn fremur lét félagið gera þijá flokka af stuttum áróðurs- myndum gegn tóbaki til birting- ar sem innskotsefni í sjónvarpi og fékk til þess m.a. framlag af fé sem safnað var í þjóðarátaki gegn krabbameini 1990 og styrk frá Tóbaksvarnarnefnd. f fyrsta flokknum komu fram sjónarmið fjórtán þekktra ís- lendinga sem reykja ekki, mest listamanna og íþróttamanna. í öðrum flokknum eru nokkrar leiknar myndir um mismunandi hliðar reykingamála, sérstak- lega miðaðar við ungt fólk og í þeim þriðja lýsa ungar stúlkur í fyrirsætuskóla skoðunum sín- um á reykingum. Morgunblaðið/Ásdís Einn pakki á dag ►ÞAÐ kostar 97.455 krónur á ári að reykja einn pakka af sígarettum á dag. Unglingur, sem byijar að reykja 14 ára og reykir einn pakka á dag, hefur eytt 292.365 krónum þegar hann kemst á bílprófs- aldurinn, 17 ára. Reyki hann ekki, en ávaxti þess í stað upphæðina, þá stendur hann óiíkt betur að vígi en reykj- andi jafnaldri, vilji hann eign- ast eigin bifreið. Reykinga- maðurinn eyðir rúmum 8 þús- und krónum í sígarettur á mánuði, en sá sem ekki reykir hefur þeim mun rýmri fjárráð til að reka bílinn. Á annarri myndinni eru hljómflutnings- tæki, geisladiskar, leikjatölva, leikir og sjónvarp, fyrir sam- tals 97.455 krónur, í verslun Japis í Kringlunni. Sömu upp- hæð kostar að reykja einn pakka af sígarettum á dag í eitt ár. Hin myndin, sem tek'm er í Sportkringlunni í Kringl- unni, sýnir útivistarvörur fyr- ir 97.455 krónur. ILÖGUM um tóbaksvamir er sérstaklega kveð- ið á um það í 8. grein að tóbak megi ekki selja einstaklingum yngri en 16 ára. Brot gegn ákvæðinu varða sektum, en „fella má refs- ingu niður ef málsbætur eru miklar“, eins og segir í viðurlagakafla laganna. Embætti ríkissaksóknara gefur út leiðbeiningar um sektarupphæðir vegna algengra brota, s.s. brota á umferðarlögum eða lögum um meðferð ávana- og fíkniefna. Hjá embættinu er hins vegar ekki að finna neinar leiðbeiningar um sektarupp- hæð, selji einhver barnj eða unglingi, undir 16 ára aldri, tóbaksvörur. Ástæða þess er sú, að lit- ið er á brot gegn 8. grein sem „sjaldgæft brot“ á sérlögum. Sú skilgreining byggir hins vegar á því, hve sjaldan mál sem þessi koma til kasta yfirvalda, en ijölmargir viðmælendur Morgun- blaðsins eru hins vegar sammála um að brotið Láta for- eldrar sér fáttum finnast? sé algengt. Lagagreininni sé hins vegar ekki framfylgt. Það er í verkahring heilbrigðisfulltrúa að hafa eftirlit með því að bann við sölu tóbaks til barna yngri en 16 ára sé virt. Halldór Runólfsson, for- maður Félags heilbrigðis- og umhverfisfulltrúa, segir að það starf hafi fremur verið í formi fyrir- byggjandi aðgerða. Fyrirbyggjandi aðgerðir „Við höfum dreift miðum og veggspjöldum til kaupmanna, þar sem vakin er athygli á þessu banni. Miðana hafa kaupmenn svö afhent börnum, sem eru til dæmis að kaupa tóbak fyrir foreldr- ana.“ Halldór segir að erfitt sé að sannreyna hvort kaupmenn hafi gerst brotlegir. „Fyrir mörgum árum var gerð tilraun í bæ á landsbyggðinni. Þar voru hins vegar notaðar tálbeitur, unglingar sem ekki voru orðnir 16 ára. Þeir fengu keypt tóbak og þá var gerð athugasemd við kaupmanninn. Þessi aðferð var hins vegar mjög umdeild, enda vafasamt hvort hún stenst lög.“ Halldór segir að helsta ástæða þess, að eftirlit hafi ekki verið sem skyldi, sé að engir peningar séu ætlaðir til þess. „Sú hugmynd kom upp, þeg- ar unnið var við frumvarp að nýjum tóbaksvarna- lögum, að menn þyrftu að kaupa sér leyfi til að selja tóbak og það fé sem þannig fengist yrði notað til eftirlits. Nú er óvíst hvað verður, en vissulega væri mjög jákvætt ef ákveðinn tekju- póstur fengist." Aðspurður kvaðst Halldór álíta að unglingar ættu hvorki greiðari né tak- markaðri aðgang að tóbaki nú en fyrir nokkrum árum. „Ástandið hefur lítið breyst og enn er mjög óalgengt að unglingar séu krafðir nafnskírteinis. Mér finnst líka að foreldrar æjiu að huga að þessu. Nú hljóta þeir að spyija sig hvar börnin fá sígaretturnar, en við höfum ekki fengið eina einustu ábendingu frá þeim. Við mynd- um fagna aukinni samvinnu við foreldra og ræða við þá kaupmenn, sem bent væri á,“ sagði Hall- dór Runólfsson. Sjaldgæft að krafist sé skilríkja Orðsending til foreldra Tóbaksvarnanefnd, Kaupmannasam- tök íslands, Kaupfélögin og Hollustu- vernd ríkisins gáfu út orðsendingu, sem afgreiðslufólki er ætlað að afhenda, til dæmis ef böm eru 'send í verslanir til að kaupa tóbak fyrir foreldra. í orðsend- ingunni er vakin athygli á að hér á landi sé alveg bannað að selja börnum tóbak, séu þau yngri en 16 ára. Slíkt bann sé víða annars staðar í lögum, til dæmis í Noregi og Finnlandi og Al- þjóða heilbrigðismálastofnunin hafi hvatt öll aðild- arríki sín til að lögfesta það. Tilgangurinn með að banna að selja börnum sé einkum: • að girða fyrir að börn kaupi tóbak til eigin nota og draga þannig úr hættu á að þau byiji að reykja. • að létta af börnum þeirri raun að þurfa að að- stoða við tóbakskaup foreldra sinna og annatna sem þau kysu helst að neyttu ekki tóbaks. • að draga úr hættu á að börnin venjist því að kaupa og umgangast þetta skaðlega ávanaefni eins og nauðsynjavaming. í orðsendingunni segir, að í samræmi við þenn- an tilgang sé bannið með öllu undantekningar- laust. Þ6 að barnið flytji skilaboð um að það eigi að kaupa tóbakið fyrir einhvem fullorðinn, þá sé ólöglegt að veita þvi afgreiðslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.