Morgunblaðið - 18.10.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1995 25
AÐSENDAR GREINAR
Ofvirk böm og
þjónusta við þau
ATHYGLISBRESTUR með of-
virkni er tiltölulega algeng truflun
og er talið að 3-5% barna fæðist
með hana. Truflunin lýsir sér í
ofvirkni, þ.e. hreyfióróleika, hvat-
vísi og athyglisbresti.
Að sjálfsögðu eru ein-
kenni misalvarleg, og
mismunandi hve
þungt þau leggjast á
barnið og fjölskyldu
þess. í sumum tilfell-
um veldur ofvirknin
miklum erfiðleikum
og hefur í för með sér
alvarleg vandamál
fyrir barnið og fjöl-
skyldu þess. Rann-
sóknir sýna að ofvirk
börn eiga á hættu að
hjá þeim þróist alvar-
leg hegðunarvanda-
mál, en einnig má oft
sjá hjá þeim kvíða og
Sólveig
Asgrímsdóttir
depurð. Ekki er hægt að „lækna“
ofvirkni, en oft er hægt að koma
í veg fýrir alvarlegri einkenni.
Miklu skiptir að hægt sé að greina
vandann snemma, og hefja viðeig-
Barna- og unglingageð-
deildina vantar húsnæði
til að hýsa foreldra of-
virkra barna utan af
landi, segir Sólveig
Asgrímsdóttir, meðan
á greiningu og meðferð
barnanna stendur
andi meðferð til að fyrirbyggja að
alvarlegra vandamál þróist með
barninu.
Greining og meðferð
Þjónusta við ofvirk böm á
bama- og unglingageðdeild felst
í greiningu á vanda barnsins og
meðferð, sem aðallega byggist á
stuðningi við foreldra, fræðslu og
þjálfun, oft ásamt lyfjagjöf og í
einstaka tilfellum innlögn á deild.
Sú greining sem nú er gerð á
barna- og unglingageðdeild er
byggð á upplýsingum frá foreldr-
um og kennurum barnsins, ásamt
ítarlegu viðtali við foreldra og sál-
fræðilegri prófun á barninu sjálfu.
Þessi greining er gerð á einum
degi. Þennan dag koma foreldrar
og bam á deildina að morgni, og
eru í viðtölum og prófunum til
hádegis. Eftir hádegi fer fagfólk
yfir gögnin og metur stöðu barns-
ins. Síðar um daginn er aftur við-
tal við foreldra og þeim kynntar
niðurstöður, og mælt með þeirri
meðferð eða úrræðum sem henta
viðkomandi barni.
Starfsfólk deildarinnar hefur
byggt upp og þróað fræðsluefni
fyrir foreldra og aðra uppalendur.
Um er að ræða fræðslu um „at-
hyglisbrest með ofvirkni“, þar sem
farið er yfir ýmsa þætti er varðar
bamið, framtíð þess, viðbrögð for-
eldra, kennslu, íjölskylduna og
fleira. Einnig hefur verið sett á
laggimar námskeið fyrir foreldra
þar sem þeim em kenndar aðferð-
ir við að stjórna börn-
unum á markvissan
hátt.
Best er að ofvirka
barnið geti verið á
heimili sínum og
gengið í skólann sinn
og jafnframt fengið
meðferð á göngudeild.
Þannig verður minnst
röskun fyrir barnið
auk þess sem göngu-
deildarmeðferð er
hagkvæmari kostur en
innlögn. Meðferðin
byggist á því að kenna
foreldrum að haga
uppeldi bamsins á
þann veg að ofvirkni-
einkennin trafli barnið sem minnst
í leik og starfi og einnig þá sem
era samvistum við það. Einnig að
hjálpa barninu til að eiga góð sam-
skipti við aðra og nýta betur getu
sína og hæfileika. Lyfjagjöf er
veitt ef læknir metur þörf á henni.
Lyf gagnst vel, en reynslan sýnir
að lyfjameðferð gagnast best þeg-
ar hægt er að beita öðrum aðferð-
um jafnframt og þá aðallega
stuðningi við foreldra og kennara,
fræðslu, þjálfun og ráðgjöf.
Oft er þörf á því að vinna með
tengsl barna og foreldra, og kenna
foreldrum ný ráð til að gefa fyrir-
mæli og fylgja þeim eftir. Hjálpa
foreldrum til að setja börnum sín-
um mörk, og hjálpa barni og for-
eldram út úr þeim vítahring sem
samskiptin eru oft komin í. Þetta
verður ekki gert nema unnið sé
með barni og foreldram við sem
eðlilegastar aðstæður. Ráð sem
gefin eru í viðtali foreldra. og
starfsfólks nýtast oft ekki nægjan-
lega. Foreldrar þurfa oft að fá
stuðning á þeim vettvangi þar sem
samskiptin era, til að hjálpin komi
að gagni.
Það má segja að þátttaka for-
eldra sé forsenda meðferðarinnar.
Foreldrar eru í raun mikilvægustu
meðferðaraðilar ofvirka barnsins.
Reynslan hefur sýnt að ofvirk börn
nýta sér illa hefðbundna meðferð
s.s. viðtalsmeðferð. Ofvirk börn
þurfa meðferð sem veitt er í dag-
legpj lífi við daglega leiki og störf,
á heimili og í skóla.
Þjónusta við ofvirk börn
utan höfuðborgarsvæðis
Ofvirkni fer ekki eftir búsetu,
en börn úti á landi og fjölskyldur
þeirra hafa mun lakari aðstæður
til að nýta sér þá þjónustu sem
verið er að þróa á bama- og ungl-
ingageðdeild Landsspítalans. Til
að reyna að koma til móts við
þarfír þessara barna hafa þau oft
verið lögð inn á innlagnardeildir,
jafnframt því að lyfjameðferð hef-
ur verið reynd. Reynslan hefur
sýnt að oft dregur úr ofvirknihegð-
un barnsins meðan það er á deild-
inni og lyfin gefið góða raun. En
Útsala — Útsala
Stanslaust í vesturkjallaranum.
• Það bætast við ný efni í hverjum mánuði.
• (ólaefni frá kr. 296 pr. m og fataefni frá kr. 150 pr. m.
VIRKA
Mörkin 3 við Suðurlcindsbraut.
‘■y ;-r Sími 568-7477
Opið mán.-föst.
kl. 10- 18.
og laugard.
kl. 10-14.
oft fer fljótt í sama farið þegar
heim er komið, ekki síst vegna
þess að foreldrar hafa ekki átt
þess kost að nýta sér þá fræðslu
sem í boði er eða annan stuðning
sem starfsfólk deildarinnar hefur
veitt foreldrum.
Deildin hefur enga möguleika á
að hafa foreldra með bami sínu á
deildinni nema dagpart og oft alls
ekki. Margir foreldrar eiga þess
engan kost að dvelja hjá ættingj-
um meðan á meðferð barnsins
stendur.
Ef deildin hefði yfir að ráða
húsnæði þar sem fólk utan af landi
gæti búið meðan á greiningu og
meðferð stæði, væri hægt að bæta
veralega þá þjónustu sem deildin
veitir. Slíkt húsnæði gæti auk þess
gagnast öðram en íjölskyldum of-
virkra bama. Foreldrar einhverfra
bama hafa oft þurft á slíkri að-
stöðu að halda svo og foreldrar
annarra bama sem sótt hafa þjón-
ustu bama- og unglingageðdeildar.
Höfundur er sálfræðingur barrm-
og unglingHgeðdeildar Landspítala.
KRINGLUNNI
KÍAÍkriM
É LAUGAVEGI 67
Dökkbláar
gallabuxur
kr. 3.490
Beinar, þröngar
glansbuxur
kr. 3.990
Alullar
rúilukragapeysur
kr. 4.490
Herrakuldaskór
Litir: Brúnt og svart
Verð áður 4.990.
Verð nú 3.790
TILBOÐS-PAKKAR
Á HEIMILISTÆKJUM
Æí*
CE 60
E60^tP
HT 490
TILBOÐ 1
TILBOÐ 2
Efri ofn HT490. Undir og yfirhiti, grill og mótordrifinn grillteinn. Stærð 54 Itr.
Helluborð með stjórnborði til hliðar. 4 hellur, þar af ein hraðhella.
Vifta CE60. Þriggja hraða með Ijósi. Sog 310 m3/klst.
Kr. 35.900,-
Sama og í tilboði nr. 1, nema undirborðsofn með stjórnborði fyrir helluborð.
Kr. 37.900,-
C 601
VTCM
Þrívíddarblástur
TILBOÐ 3
TILBOÐ 4
Efri ofn HT610. Fjölvirkur, 7 möguleikar, sjálfhreinsibúnaður, grillteinn,
þrívíddarblástur, forritanleg klukka. Keramik helluborð. 4 hraðhellur, gaum-
Ijós, stjórnborð til hliðar. Vifta C601.3ja hraða, Ijós, málmsía, sog 450 m3/klst.
Kr. 72.640,-
Sama og tilboð 3, nema neðri ofn með stjórnborði fyrir helluborð.
Kr. 71.970,-
HEIMILISTÆKI
(GROUP TEKA AG)
HEIMILISTÆKI
(GROUP TEKA AG)
SIÐUMULA 34 (Fellsmúlamegin) • SÍMI 588 7332 OPIÐ: MÁNUD. - FÖSTUD. 9-18 • LAUGARDAG 10-16