Morgunblaðið - 29.10.1995, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995 B 7
FYRIRTÆKI Jóns og fjölskyldu hans í La Grange í Kentucky, sem
er eitt stærsta harðviðarfyrirtækið í miðhluta Bandaríkjanna. Fjöl-
skyldan er einu Islendingarnir í þessum viðskiptum.
þá er verið að leita að fólki fram
og aftur. Ég skrifaði utanríkisráð-
herra 1993 og skráning er nú kom-
in í gang og heldur áfram. Atli
Steinarsson ætlar að vinna að
henni. í manntölum má sjá að 1990
töldu 40.529 sig fram sem íslend-
inga í Bandaríkjunum. Árið 1986
var talan í Kanada um 40.000 ís-
lendingar. Það er eins og þriðjungur
íslensku þjóðarinnar sé búsettur í
Norður-Ameríku. Flest allir íslend-
ingar hljóta að eiga ættingja í
Ameríku. Islenska þjóðin þarf að
sýna meiri tilfinningu fyrir þessu
og gefa þeim tækifæri til að vinna
fyrir land og þjóð. Þá er ég að tala
um þá sem vilja kalla sig íslend-
inga, þó þeir séu það jafnvel ekki
nema að einum fjórða. Raunar
merkilegt hve margir íslendingar í
annan og þriðja lið vilja telja sig í
þeim hópi.“
„Þjóðræknisfélagið í Reykjavík
gæti orðið að miklu liði ef það fengi
nægan stuðning frá yfirvöldum og
þjóðinni í heild. í Kanada er þjóð-
ræknisfélag íslendinga og við erum
að setja annað í gang í Bandaríkjun-
um. Ég hefí verið að vinna að því
undanfarin ár. Að vísu
eru þar íslendingafélög
hér og þar, en þau eru
svo dreifð og langt á
milli. Ég vil fá þama
þríhyming með öflugu
Þjóðræknisfélagi á Is-
landi, öðru í Kanada og
því þriðja í Bandaríkjunum. Mér er
sagt að hér sé vaknandi ættfræðiá-
hugi, svo að vonandi rætist úr þessu
“, segir Jón og bætir við.
„Það getur enginn afsalað sér
því að hafa samband við sitt þjóðar-
brot erlendis og það gerir engin
þjóð. Til dæmis má nefna írland
og Ísrael. írar hefðu átt mun erfið-
ara í sjálfstæðisbaráttunni ef þeir
hefðu ekki notið traustra sambanda
við ættmenni sín í Bandaríkjunum.
Þeir kunna líka að meta þá hjálp
og gera allt sem hægt er til að
tengja ættarböndin. ísrael vann sín
Ekki hægt að taka
ísland úr íslend-
ingi erlendis.
En það er hægt að
taka islendinga
frá íslandi.
frelsis- og varnarstríð með hjálp frá
ættingjum og sanntrúarmönnum
vestan hafs. Aðrar þjóðir eiga líkar
sögur að segja.
Island má ekki við þvi að láta
hinn stóra heim gleypa börnin sín.
Ættjarðarbönd þarf að styrkja og
virða - hver veit hvenær á líflínu
þarf að halda. Mér fínnst að þegar
þjóðræknisfélögin em orðin þrjú, þá
eigi íslenska þjóðin að styðja þau.
Það verður að vera opinber og form-
legur stuðningur, til þess að ræðis-
menn og aðrir hafi starfsaðstöðu.“
Ekkert hægt án kennitölu
Jón bendir á að Hagstofa íslands
geti auðvitað ekki sinnt öllu, en þjóð-
ræknisfélagið mundi geta elst við
upplýsingar í kirkjubókum. „Islend-
ingar á Norðurlöndum og aðrir
Norðurlandabúar geta gert allt
mögulegt sem þeir kjósa hér heima,
en Islendingar sem búa annars stað-
ar geta ekkért gert, af því að þeir
hafa ekki kennitölu. Ég hefí sent
um 70 beiðnir til Hagstofunnar um
að íslendingur geti fengið kennitölu,
þó ekki væri til annars en að þeir
gætu opnað hér bankarelkning. Og
til að finna sig heima og
velkominn hér. Eins og
við vitum þá erum við
næstum daglega spurð
um kennitöluna, hvar
sem við eigum erindi. Við
hjónin höfum kennitölu,
eigum hér eignir og borg-
um skatta á Islandi. Það em margir
sem mundu vilja slíkt hið sama. En
án kennitölu er ekki hægt að kaupa
hér fasteign, íbúð eða hlutabréf.
Ekkert land hefur efni á að afsala
sér slíku. Við emm svo fá að við
verðum að koma á þessum tengla-
þríhyrningi. Og til þess þarf stuðning
héðan að heiman.“
Það er ekki hægt að taka Island
úr Islendingi sem býr erlendis. En
það er hægt að taka íslendinga frá
Islandi,“ sagði þessi óbilandi Islend-
ingur, Jón Sigurður Guðmundsson,
í lokin.
FRÉTTIR
Alhliða styrktarkerfi fyrir félög og samtök
*
Uthlutun Hvataverðlauna
VISA ísland hefur um nokkurt skeið
starfrækt þjónustukerfi sem nefnt
er Alefli. Þetta er styrktar- og inn-
heimtukerfi fyrir félög og samtök
sem auðveldar þeim fjáröflun frá
velunnurum sínum og föstum styrkt-
araðilum. Um 260 félagasamtök not-
færa sér nú Alefli og er áætlað að
kerfið flytji til þeirra liðlega 155
milljónir á þessu ári frá rúmlega 10
þúsund korthöfum. Veltuaukning í
viðskiptum með Alefli verður fyrir-
sjáanlega um 50% m.v. fyrra ár.
Með styrktarloforðum sem skráð
eru í gagnagrunns- og greiðslumiðl-
unarkerfi VISA íslands heimila kort-
hafar að reglulega sé skuldfært á
kortreikning þeirra styrktarframlag
að ákveðinni fjárhæð, sem renni í
sjóð félags eða samtaka sem þeir
tilgreina. Greiðslufyrirkomulag er
mjög sveigjanlegt, um getur verið
að ræða föst mánaðarleg framlög,
ársfjórðungsgreiðslur eða greiðslur í
ákveðnum mánuðum, hvort sem er
í tiltekinn tíma eða þar til korthafi
kýs að stöðva greiðslur.
Þeim sem styðja félög sín þannig
með reglubundnum hætti veitist sitt
hvað í staðinn í hvatningar- og þakk-
lætisskyni frá VISA. Með útdrætti
úr lukkupotti eru veitt tvenns konar
hvataverðlaun, sem geta verið utan-
landsferðir og/eða ýmsir aðrir góðir
vinningar. Verðlaun þessi eru veitt
fyrir stuðning við íþróttir með Alefli
og fyrir stuðning við menningu,
mannúð og listir með Alefli.
Að þessu sinni voru veitt 12 hvata-
verðlaun fyrir stuðning við íþróttir,
annars vegar tvær ferðir fyrir tvo
til London ásamt aðgöngumiðum að
íþróttaleik og hins vegar 10 vöruút-
tektir í versluninni Útilíf. Aðalvinn-
inga hlutu Eiríkur Ingi Friðgeirsson
úr Framheijum og Áki Jónsson
styrktarfélagi Knattspyrnufélags ÍA.
Fyrir stuðning við menningu,
mannúð og listir voru veitt 7 hvata-
verðlaun, annars vegar tvær ferðir
fyrir tvo til London ásamt að-
göngumiðum á listviðburð og hins
vegar 5 áskriftarkort að vali vinn-
ingshafa á sýningar vetrarins í Þjóð-
leikhúsi eðá Borgarleikhúsi. Aðal-
vinningana hlutu Þráinn Þórhallsson
úr Samtökum um byggingu tónlistar-
húss og Helgi Hallgrímsson úr
Styrktarfélagi Islensku óperunnar.
Sportpottur
Ferð fyrir 2 til London ásamt
hóteli og 2 miðum á íþróttakapp-
leik.
Eiríkur Ingi Friðgeirsson, Fram-
heijar. Áki Jónsson, ÍA, knattsp.d.
Vöruúttekt í Útilífi fyrir kr.
5.000.
Valtýr Helgi Diego, Valur
handkn.d. Arnór Jósefsson, Víkingur
aðalstjórn. Birgir Þór Jósafatsson,
Framheijar. Björn Friðgeir Björns-
son, Víkingur aðalstjórn. Máni Svav-
arsson, Framheijar. Auðbergur Már
Magnússon, Haukar handkn.d. Björn
Ólafsson, FH knattsp.deild. Kristjana
Friðbjörnsdóttir, Ármann sunddeild.
Anna S. Sigurðardóttir, Víkingur
aðalstjórn. Pétur Guðbjartsson, Fylk-
ir knattsp.d.
Menningarpottur
Ferð fyrir 2 til London ásamt
hóteli og 2 miðum á listviðburð.
Málmey hf./Þráinn Þórhallsson,
Tónlistarhús. Helgi Hallgrímsson,
Styrktarf. íslensku óperunnar.
Áskriftarkort fyrir 2 á sýningar
vetrarins í Þjóðleikhúsinu eða
Borgarleikhúsinu.
Hjördís Kristjánsdóttir, Sjálfs-
björg. Þóra Engilbertsdóttir, Tónlist-
arhús. Svanbjörg Jóhannsdóttir,
Styrktarf. krabbameinssj. barna.
Helga Hobbs, Sjálfsbjörg. Högni
Marsellíusson, ísafjarðarkirkja fjár-
öflun.
Gallastretsbuxurnar komnar
í öllum stærðum og vesti.
Vorum einnig að taka upp
fallega samkvæmisjakka.
EDDUFELLI 2,
SÍMI 557 1730.