Morgunblaðið - 29.10.1995, Síða 10

Morgunblaðið - 29.10.1995, Síða 10
10 B SUNNUDAGUR 29. OKTÓBIíR 1995 MORGUNBLAÐIÐ Stingandi stá á plast EKKI er langt síðan hljóm- sveitin Stingandi strá kom úr mikilli Evrópureisu, meðal annars með upptökur í far- teskinu. Fyrir skemmstu lauk sveitin svo við fyrstu breiðskífuna, sem kemur út í vikunni. Stingandi strá segjast- hafa tekið plötuna upp í þremur löndum, hluta í Berlín, hluta í Marseilles og svo fjögur lög hér heima. Allt var samt hljóðblandað og frágengið hér á landi til að ná heildarsvip. Þeir félagar segja hljóm- sveitina hafa breyst allmikið við ferðina miklu, sem eflaust megi heyra á plöt- Josh Wink kemur FLESTIR muna sjálfsagt eftir laginu A Higher State of Conciousness, sem var spilað í síbylju á X-inu í sumar. Höfundur lagsins er bandaríski tónlistarmaður- inn Josh Wink, sem heldur tónleika hér á landi í Tungl- inu í vikulokin. Josh Wink hefur ekki sent mikið frá sér um dag- ana, en hefur verið þeim mun duglegri að vinna fyrir aðra, framan af með félaga sínum King Britt. Þeir lögðu gjörva hönd á margt undir heitinu Winking Produtions, en samstarfínu lauk þegar King lagðist í ferðalög með Digable Pla: nets og upp frá því hefur Jpsh Whink haslað sér völl sem sólóstjarna; sent frá sér lög og unnið fyrir aðra undir nöfnum eins og Wink, Winx, The Crusher o.fl. Fyrir skemmstu vakti hann mikla athygli í dansheimin- um fyrir lagið Don’t Laugh, sem mikið er látið með, og ljóst að hann er á hraðri leið uppávið í dansheimn- um. Til gamans má svo geta þess að lagið Higher State of Conciousness siglir nú hraðbyri upp breska smá- skífulistann. Josh Wink kemur hingað til lands á vegum Kisa hf., sem stóð að tónleikum The Prodigy í Kaplakrika á sín- um tíma. unni, en þeir hafí líka fundið fyrir sterkri stemmningu í hverri borg fyrir sig. „Ferðin þjappaði okkur vel saman og treysti sveitiná til muna,“ segja þeir, en þeir hyggja á tvær ferðir á næsta ári, stutta ferð snemma árs þeg- ar þeir senda frá sér enska útgáfu plötunnar, en síðan er fyrirhuguð sumartón- leikaferð. Þeir félagar segjast hafa unnið diskinn að öllu leyti sjálfir, stýrt upptökum, hannað umslag og brotið um og gefí hann svo út sjálfír. „Það er best að gera þetta allt einir,“ segja þeir ákveðn- ir, „það er best að treysta á sjálfan sig, en ekki vera að Morgunblaðið/Ásdís Útgáfutónleikar Stingandi stráa verða í Tjarnar- bíói á laugardag. láta eitthvað sem manni er annt um í hendurnar á öðr- um.“ Útgáfutónleikar Sting- andi stráa verða í Tjarnar- bíói á laugardag, en platan kemur út á fimmtudag, og þeir lofa fjörugum tónleik- um, hafa meðal annars feng- ið til liðs við sig „englakór". DÆGURTONLIST Er kreppunni lokib? áfomum slóðum DAVID Bowie er ekki öfundsverður af hlutskipti sínu; síðasta áratug hefur hann setið fastur í sköpunar- kreppu, eða allt frá því metsöluplata hans, Let’s Dance, kom út 1983. Hver platan af annarri hefur komið út, en ekki hlotið náð fyrir aug- um plötugagnrýnenda og -kaupenda, á meðan grúi tónlistarmanna hefur höndlað frægð og frama með því að stæla Bowie. Það var því Bowie-vinum kærkomið þegar hann sendi frá sér plötuna Outside fyrir skemmstu. ÞÓ OUTSIDE hafi ekki selst ýkja vel eru gagnrýnendur almennt sammála um að Bowie hafi tekist að bijóta sér leið út úr tónsmíðakreppunni sem hrjáð hefur hann. Hann fékk sér til aðstoðar gaml- an félaga, Brian Eno, og eftir Árno Matthíasson saman settu þeir saman myrka plötu og torræða á köflum, sem minnir á fræga Berlínarþrennu þeirra á þarsíðasta áratug. Reyndar hafa innvígðir haldið þvi fram að þarsið- ustu plötu Bowies, Black Tie White Noise, eigi að telja með bestu verkum hans, þó hún hafi farið framhjá flestum, og því óti þessar plötur tvær að sanna að hann sé enn í fremstu röð. Súrrealísk glæpasaga Á Outside grípur Bowie til þess ráðs að ramma tón- listina inn með ólíkum per- sónum; platan er eins kon- ar súrrealísk glæpa- saga, en slík vinnu- brögð hafa iðulega hentað honum vel. Ekki er gott að segja hvort Bowie nái að halda stefn- unni sem hann tekur á nýju plötunni, og alls ekki ljóst hvort plötukaupendur taki hann í sátt, eða láti sér vel lynda eftir- hermurnar, sem fara troðnar sióðir. / Djarfur David Bowie. 66 í sveitinni MOSFELLINGARNIR í 66 vöktu athygli fyrir líflega breiðskífu á síðasta ári og fengu yfrið nóg að gera í kjölfarið; hafa flengst um landið og leikið þrisvar í viku og oftar síðasta árið. Nú er önnur vinnulota hafin, því í liðinni viku kom út önnur breiðskífa sveitarinnar, í sveitinni. 66 er skipuð þeim Karli og Birgi fyrrum Gildrulim- um og þeir segja reyndar að velgengnina megi eflaust rekja til þess að hluta að þeir hafí ekki byijað á núlli. „Við bjuggum að því að hafa verið í Gildrunni og búnir að spila nokkuð sem 66, en við áttum alls ekki von á annarri eins eftirspurn eftir hljóm- sveitinni og varð eftir að plat- an kom út,“ segja þeir glað- beittir. Þeir segja nafn plötunnar m.a. þannig til komið að þeir hafí spilað gríðarmikið úti á landi undanfarið, en ekki megi svo gleyma heimasveitinni. „Þetta er sjöunda platan okkar, sem þýðir að við eigum sjötíu lög, og við spilum þau lög meira og minna, við erum ekki að spila einhveija gamla slagara, og fyrir vikið þreyt- umst við ekki á því að spila; við erum alltaf að gefa út eitthvað nýtt.“ Gaman Karl og Birgir. Morgunblaðið/Kristinn Morgunblaðið/Kristinn Tilviljun Eiríkur Rafn Magnússon. Eilab og Eik Á SAFNDISKNUM „Sándk- urli“ II, sem kom út í sumar var meðal nýliða Eiríkur Rafn Magnússon. Eiríkur Rafn átti tvö lög á disknum undir nafninu Eilab og und- irleikarar voru ekki af verri endanum; hljómsveitin Eik. Eiríkur segist hafa lengi verið að semja lög fyrir sjálfan sig og taka upp i heimahljóðveri. Nánast fyrir tilviljun hafi kunningjar hans heyrt upptökurnar, liðsmenn Eikarinnar sem var, og hvatt hann til að bregða sér í hljóðver og taka upp. „Ég ætlaði þó ekki að gefa þetta út, ég ætlaði að nota þess tónlist sem undir- leik fyrir sýningu sem ég var að undirbúa," segir Eiríkur Rafn, en hann er járnsmiður og rekur Smíðagallerí. „Síð- an sá ég hvar verið var að auglýsa eftir lögum á safn- disk og ákvað að láta vaða,“ segir Eiríkur Rafn og bætir við að hann sjái ekki eftir því, enda voru viðtökumar mjög góðar. „Nú er ég á fullu að semja, er kominn með tíu lög og þegar þau em orðin fimmtán eða svo stefni ég á að bregða mér í hljóðver og taka upp sóló- skífu.“ Eiríkur segist ekki gera upp á mjlli járnsmiðinnar og tónlistarinnar; „tónlistin er góð hvild frá járnsmíði og öfugt,“ segir hann, en bætir við að þegar sólóskífan komi út þurfi hann sjálfsagt að taka frá meiri tíma í tónlist- ína.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.