Morgunblaðið - 29.10.1995, Page 21

Morgunblaðið - 29.10.1995, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995 B 21 ATVIN N11A UGL YSINGA R Wm WM ■■■ / V v / v^/ L I v-yl I N vy/ \ # v Offsetprentari Óskum eftir að ráða vanan offsetprentara á fjöllitavél. Upplýsingar hjá Kassagerð Reykjavíkur, sími 553 8383. ■EKKEECEEnDB llllIliEIIl BIIIIIIII Frá Háskóla Islands Lektorsstaða (50%) við námsbraut í sjúkra- þjálfun Háskóla íslands er laus til umsóknar. Lektornum er ætlað að stunda kennslu og rannsóknir í sjúkraþjálfun. Um er að ræða ýmis svið sjúkraþjálfunar. Áætlað er að ráða í stöðuna frá 1. júlí 1996. Umsækjendur um stöðuna skulu láta fylgja umsóknum sínum ítarlega skýrslu um náms- feril sinn og störf, svo og um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rann- sóknir. Með umsóknum skulu send eintök af vísindalegum ritum og ritgerðum umsækj- enda, prentuðum og óprentuðum, Laun skv. kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra. Umsóknarfrestur er til 1. desember 1995 og skal umsóknum skilað til starfsmannasviðs Háskóla íslands, aðalbyggingu við Suður- götu, 101 Reykjavík. Verkfræðingar, viðskiptafræðingar kynningarfulltrúi o.fl. Ert þú viðskiptafræðingur, verkfræðingur eða með aðra haldgóða menntun í atvinnu- leit eða vilt breyta til í starfi, þá lestu þetta. Nokkur fyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu vilja ráða til sín starfsmenn í eftir- farandi stöður: Verkfræðinga. Stórt og öflugt fyrirtæki óskar eftir að ráða verkfræðinga til starfa sem allra fyrst. Við leitum að véla-, rekstrar- og bygg- ingaverkfræðingum. Viðskiptafræðingar. Fjármálastofnanir og þjónustufyrirtæki eru að leita að viðskipta- fræðingum af fjármála- og/eða endurskoðun- arsviði. Við leitum að fólki með og án starfs- reynslu. Kynningarfulltrúi. Öflugt og stórt þjónustu- fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða kynn- ingarfulltrúa. Við leitum að háskólamenntuð- um starfsmanni. Menntun eða starfsreynsla í fjölmiðlum ásamt þekkingu á viðskiptalífi gott veganesi en þó ekki skilyrði. Okkur vant- ar góðan penna sem er tilbúinn til að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf. Sölufólk. Öfluga blaða- og bókaútgáfu vantar duglegt sölufólk í símasölu á kvöldin. Fast tímakaup auk launaprósentukerfis. Vinnutími frá kl. 18-22 fjögur kvöld vikunnar. Nánari upplýsingar veitir Gylfi Dalmann. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar „Verkfræðingur 001“, „Viðskiptafræðingar 002“, „Kynningarfulltrúi 003“ og „Sölufólk 004“ fyrir 3. nóvember nk. HAGKAUP Starfsfólk óskast í hlutastörf í nýja ostabúð í Hagkaup, Kringlu. Ekki yngri en 25 ára. Uppiýsingar veitir verslunarstjóri á staðnum mánudag kl. 13 til 18. Nuddstofa Aðstoðarmanneskja óskast á nuddstofu. Kunnátta á Trimm-form æskileg. Einnlg til leigu aðstaða fyrir fótaaðgerðafræðing. Upplýsingar í síma 565 7540. mtftEEEBII SRIBIIIIII III ■Elltllllll ' IIIIIIIIIIH IIIIIIIIII Prófessorsembætti í geislagreiningu Við læknadeild Háskóla íslands er prófess- orsembættti í geislagreiningu laust til um- sóknar. Prófessorinn veitir jafnframt for- stöðu röntgen- og myndgreiningardeild Landspítalans skv. 38. grein laga um Há- skóla Islands. Gert er ráð fyrri að embættið verði veitt frá 1. janúar 1997. Umsóknum þarf að fylgja greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, stjórnunarreynslu og vísindastörf og einnig eintök af helstu fræðilegum ritsmíðum. Umsækjendur þurfa að gera grein fyrir því hvaða rannsóknarnið- urstöður þeir teljá vera markverðastar og jafnframt hlutdeild sinni í rannsóknum sem lýst er í fjölhöfundagreinum.. Ennfremur er óskað eftir greinargerð um þær rannsóknir sem umsækjendur hyggjast vinna að fyrstu fimm árin verði þeim veitt embættið og þá aðstöðu sem til þarf. Umsóknargögn þurfa að vera á ensku og ritgerðum á öðrum tungumálum, fylgi út- dráttur á ensku. Laun skv. kjarasamningi Félags háskóla- kennara og fjármálaráðherra. Umsóknar- frestur er til 1. janúar 1996 og skal umsókn- um skilað í þríriti til starfsmannasviðs Há- skóla íslands, aðalbyggingu, við SuðurgÖtu, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar m.a. um launakjör og viðmiðunarkröfur læknadeildar um aðstöðu fyrir kennara sem hafa aðstöðu á sjúkra- stofnunum veitir forseti læknadeildar í síma 525 4879. Mála Skoli BOURNEMOUTH Á ENGLANDI BORGARSPÍTALINM HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Staða aðstoðardeildarstjóra á hjartadeild B-6 er laus til umsóknar. Starfsreynsla í hjúkrun sjúklinga með hjarta- sjúkdóma nauðsynleg. Nánari upplýsingar veita Sigríður Lóa Rún- arsdóttir, deildarstjóri í síma 569 6565 og Margrét Björnsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri í síma 569 6354. Umsóknarfrestur er til 15. nóv. 1995. FÉLAGSRÁÐGJAFI Laus er staða félagsráðgjafa (100%) við móttökudeild sem fyrst. Krefjandi og áhuga- vert starf. Umsækjandi þarf að hafa menntun og reynslu í viðtalsmeðferð. Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Hulda Guðmundsdóttir, yfirfélagsráðgjafi, í síma 551 3744. Umsóknirsendist Hannesi Péturs- syni, forstöðulækni geðlækningasviðs. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI Hjúkrunar- fræðingar óskast til starfa á blandaða legudeild. Vakta- vinna. Fjölbreytt og skemmtilegt starf við bráðahjúkrun, fæðinga- og nýburahjúkrun, slysahjúkrun og öldrunarhjúkrun. Skurðhjúkrunar- fræðingur eða hjúkrunarfræðingur með reynslu í skurð- og/eða slysahjúkrun óskast til starfa á skurð- deild FSÍ. Starfið felst í almennri skurðhjúkr- un, störfum við maga- og ristilspeglanir, sótthreinsun, slysahjúkrun og göngudeildar- þjónustu. Gæsluvaktir á móti 2 kollegum. Ljósmóðir óskast til starfa við fæðingarhjálp og umönn- un sængurkvenna og nýbura á FSÍ. Um er að ræða 67% starf á dagvöktum og gæslu- vaktir að auki. Æskilegt er að Ijósmóðirin sinni mæðravernd á heilsugæslustöð í sama húsi í hlutastarfi. Á FSÍ/HSÍ starfa 2 Ijósmæð- ur. Upplýsingar um launakjör, húsnæði og kynn- isferð veitir hjúkrunarforstjóri í síma 456 4500 á dagvinnutíma og í heimasíma 456 4228. FS( er nýtt, vel búið sjúkrahús sem þjónar (norðanverðum) Vestfjörðum. Við veitum skjólstæðingum okkar alla almenna þjónustu á sviði skurð- og lyflækninga, öldrunarlækninga, fæð- ingarhjálpar, slysa- og áfallahjálpar og endurhæfingar. Starf- semin hefur verið í stöðugri sókn á undanförnum árum. Er það fyrst og fremst að þakka metnaðarfullu starfsfólki, frá- bærri vinnuaðstöðu, nýjum og góðum tækjakosti og ánægðum viðskiptevinum. Vilt þú læro ensku og öðlast starfsreynslu í ferðaþjónustu? I samstarfi við ENGLISH 2000, School of English bjóðum við starfsnám (Work Experience) á hótelum í Bournemouth. Fyrir vinnuna er greitt með fríu fæði, húsnæði og vasapeningum. Enskukennslan er 5-25 kennslu- stundir á viku. Dvalartími er 1-7 mánuðir, lágmarksaldurl8 ár og hægt er að hefja dvöl hvenær sem er ársins. AuPAIR VISTASKIPTI & NÁM ÞÓRSGATA 26 • 101 REYKJAVÍK SÍMI 562 2362 ■ FAX 562 9662

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.