Morgunblaðið - 29.10.1995, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.10.1995, Blaðsíða 22
22 B SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNUAUGÍ YSINGAR Aðstoð á tannlækningastofu Aðstoð óskast á tannlækningastofu í miðbæ Reykjavíkur. Um er að ræða hlutastarf (60-75%), á reyklausum vinnustað. Umsóknir sem greina frá menntun og fyrri störfum sendist afgreiðslu Mbl. merkt: „T - 17791“ fyrir 2. nóvember nk. Laus störf Sölumaður: Traust fyrirtæki óskar eftir sölumanni til sölustarfa á vörum tengdum iðnaði og útgerð. Ritari: Lögfræðiskrifstofa óskar eftir vönum ritara til starfa eftir hádegi. Áhersla er lögð á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og stundvísi. Innra eftirlit: Fyrirtæki í nágrenni Reykja- víkur óskar eftir traustum stafsmanni til innra eftirlits. Kraftur, frumkvæði, góð menntun og tölvukunnátta eru algjört skilyrði. Sölumaður: Traust og rótgróið fyrirtæki óskar eftir sölumanni til að selja vörur til lyfjaverslana. Æskileg menntun; hjúkrunar- fræðingur eða lyfjatæknir. Ráðning ertil árs- loka 1996. Ritari: Vanur ritari óskast fyrir traust fyrirtæki í Mosfellsbæ. Um heilsdagsstarf er að ræða. Upplýsingar: Umsóknablöð og frekari upp- lýsingar fást hjá Ráðningarþjónustunni. m RÁÐNINGARÞJONUSTAN Jón Baldvinsson, Háaleitisbraut 58-60 Sími 588 3309, fax 588 3659 Suður-Ameríka Sölustjóri Intertec auglýsir eftir sölustjóra. Intertec er íslenskt sölufyrirtæki í höfuðborg Chile, Sant- iago, sem selur íslenska vöru og þjónustu á sviði sjávarútvegs til Chile og annarra landa í Suður-Ameríku. Fyrirtækið býður einnig framleiðendum sjávarafurða upp á aðgang að alþjóðlegu markaðsneti. Intertec er með umboð fyrir mörg íslensk fyrirtæki á þessu sviði og er dótturfyrirtæki Hampiðjunnar, lcecon, Meka og Sæplasts. Sölustjórinn er forstöðumaður fyrirtækisins, en þar starfar jafnframt einn ritari. Starfssvið sölustjóra: 1. Umsjón með öllum sölu- og markaðsmálum. 2. Umsjón með öðrum málum þ.e. bókhald, rekstrarmál o.fl. 3. Samskipti við viðskiptavini og fyrirtækin á íslandi. 4. Áætlanagerð og skýrslugerð. Hæfniskröfur: 1. Góð spænskukunnátta æskileg. 2. Mjög góð þekking og reynsla í íslenskum sjávarútvegi. 3. Góður, drífandi sölumaður. 4. Hæfni til þess að starfa sjálfstætt og skipulega. Nánari upplýsingar veitir Gylfi Dalmann. Með umsóknir og fyrirspurnir verður farið sem trúnaðarmál. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar „Sölustjóri 439“ fyrir 10. nóvember nk. Starfsfólk - bókaverslun Bókaverslun óskar eftir að ráða starfsfólk í eftirtalin störf: 1) Afgreiðslustarf - íslensk bókadeild. 2) Afgreiðslustarf - erlend bókadeild. 3) Lagerstarf - bækur og tímarit. Umsóknir með upplýsingum um aldur, mennt- un og fyrri störf sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 4. nóvember merktar: „Bókaverslun - 1“ Við keppum að því að sérhver starfs- maður takist á við krefjandi verkefni Eitt af markmiðum okkar er að hafa ætíð á að skipa hæfu og áhugasömu starfsfólki þar sem áhersla er lögð á markviss vinnubrögð, skýra ákvarðanatöku og frumkvæði í störf- um. Ef þú hefur áhuga á að starfa í slíku umhverfi gæti starf hjá Skeljungi hf. verið eitthvað fyrir þig. Viðskiptafræðingur Bókhaldsdeild Við viljum komast í samband við viðskiptafræð- inga (helst af endurskoðunarsviði) eða einstakl- inga með sambærilega menntun með reynslu og þekkingu á bókhaldi og tölvuvinnslu. Góðir framtíðarmöguleikar fyrir sjálfstæðan, dugmik- inn og áhugasaman einstakling. Ráðningarþjónusta Guðna Jónssonar, Há- teigsvegi 7, tekur á móti umsóknum fyrir okkur og veitir nánari upplýsingar um starf- ið. Umsóknarfrestur er til 2. nóvember nk. Guðnt Tónsson RÁDGIÖF & RÁÐNINGARÞIÓNUSTA HÁTEIGSVEGI7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22 Deildarstjóri Verkfræðingur Öflugt fyrirtæki í matvælaiðnaði í nágrenni Reykjavíkur óskar eftir að ráða deildar- stjóra í framleiðsludeild. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf. Meginviðfangsefni eru innkaupa- og vöru- stjórnun, umsjón kostnaðareftirlits og ábata- kerfa auk þátttöku í verkefnum á sviði vöru- þróunar og gæðastjórnunar. Hæfniskröfur: Við leitum að manni með forystuhæfileika, frumkvæði og dug til að takast á við krefj- andi verkefni. Menntun á sviði rekstrarverk- fræði æskileg. Nánari upplýsingar veitir Gylfi Dalmann. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar „Deildarstjóri 457“ fyrir 10. nóvember nk. ICELANDIC GOURMET sérhæfir sig í framleiðslu hágæða gjafavara. Við- skiptavinirnir eru allajafnan einstaklingar og fyrirtæki sem leita að gjafa- vöru sem gefur gæða ímynd. VÖruvalið samanstendur af laxagjafaöskjum og kavíar-gjafaöskju. ICELANDIC GOURMET hefur þegar skapað sér gott orðspor erlendis. ICELANDIC GOURMET er nánast -eingöngu selt fyrir jól á íslandi og þá sem gjafir fyrirtækja ýmist sem starfsmannagjafir eða til samstarfsaðila innanlands sem erlendis. ICELANDIC GOURMET sér um sendingar hvert sem er í heiminum. 2 „free lance“ sölumenn fá nú tækifæri til að sinna þessari sölu næstu 6 vikurnar. Tekjumöguleikarnir eru í samræmi við per- sónulega hæfni. Kynningaefnið er mjög vandað sem og söluvaran. Sendu inn umsóknum um starfið STRAX og við svörum þér STRAX. Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. merktar: „HQ gjafavara". Tæknival Tœknival hf. er 12 ára gamalt framsœkið tölvu- fyrirtœki með 110 starfsmenn og veltan á síðasta ári var yfir milljarð ísl. króna. Fyrirtœkið býður viðskiptaviuum sínum heildarlausnir í iðnaði, sjávarátvegi og verslunarrekstri. Vegna enn aukinna umsvifa óskar Tœknival hf. eftir að ráða starfsmann í eftirfarandi starf. SOLUFULLTRUI STARFIÐ felst í móttöku viðskiptavina í verslun fyrirtækisins, ráðgjöf við val á tölvum og tölvubúnaði, frágangi sölu auk annars. Viðkomandi á kost á stöðuhækkun að lokinni þjálfun í verslun. HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur séu með stúdentspróf og haldbæra reynslu og þekkingu á notkun PC-tölva. Áhersla er lögð á snyrtimennsku og þægilega ffamkomu auk dugnaðar og eljusemi í starfi. Kostur er ef reynsla af sambærilegri sölumennsku er fyrir hendi. í BOÐI ER áhugavert starf hjá öflugu og framsæknu fyrirtæki með góðan liðsanda. Vinsamlega athugið að fyrirspurnum varðandi ofangreint starf verður eingöngu svarað hjá STRÁ Starfsráðningum hf. Umsóknum skal skilað eigi síðar en 6. nóvember n.k. Ráðning verður sem fyrst. Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á skrifstofunni sem opin er frá kl.10-16, en viðtalstímar eru frá kI.10-13. ST RA Starfsráðningar ehf Mörkinni 3 ■ 108 Reykjavik Sími: 588 3031 ■ fox: 588 3044 Cuðný Harðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.