Morgunblaðið - 29.10.1995, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995 B 23
ATVIN N U A UGL YSINGAR
linVAL-DTSYN
4 ný störf
við móttöku eriendra ferðamanna
Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn býður þér að
sækja um eitthvert þeirra fjögurra starfa í
innanlandsdeild sem þarf að ráða í á næst-
unni vegna aukinna umsvifa fyrirtækisins.
Hjá fyrirtækinu starfar einvalalið samhentra
starfsmanna sem hefur skapað fyrirtækinu
sess sem leiðandi fyrirtæki í ferðaþjónustu
vegna sérþekkingar sinnar, reynslu og metn-
aðar. Hjá innanlandsdeild starfa í dag 11
manns.
Þjónustusvið innanlandsdeildar er:
★ Ráðstefnuþjónusta.
★ Skipulagðar hópferðir.
★ Sérferðir.
★ Hvataferðir.
★ Einstaklingsþjónusta.
★ Skemmtiferðaskip.
Fyrirtækið æskir þess að þú hafir háskóla-
menntun eða aðra haldgóða menntun, mjög
góða tungumálakunnáttu (tala/skrifa), tölvu-
kunnáttu og getu til að starfa sjálfstætt og
skipulega. Þú þarft að eiga auðvelt með
mannleg samskipti og vera tilbúinn að vinna
krefjandi og fjölbreytt starf. Álag er oft tals-
vert í starfinu og því geta fylgt ferðalög.
Störfin henta jafnt konum sem körlum.
Upplýsingar um ofangreind störf verða ein-
ungis veittar hjá Katrínu S. Óladóttur, Ráðn-
ingarþjónustu Hagvangs hf.
Umsóknum, ásamt mynd, skal skilað til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. og er
umsóknarfrestur til 10. nóvember nk.
LANDSPITALINN
.../' þágu mannúðar og vísinda...
Geðdeild Landspítalans
SERFRÆÐINGUR/DEILDARLÆKNIR
Sérfræðing í geðlækningum eða deildarlækni
vantar í fíkni- og fjölkvillaskor geðdeildar
Landspítalans til afleysingar í eitt ár frá 1.
janúar 1996.
Umsóknír, með upplýsingum um menntun,
fyrri störf, reynslu og rannsóknir, sendist
forstöðulækni geðdeildar Landspítalans fyrir
30. nóvember 1995.
Frekari upplýsingar veita Oddur Bjarnason,
læknir, og Jóhannes Bergsveinsson, yfir-
læknir, ásamtTómasi Helgasyni, prófessor.
Endurhæfingar- og hæfingardeild
Landspítalans í Kópavogi
ÞROSKAÞJALFI
Þroskaþjálfi óskast í stöðu deildarstjóra á
endurhæfingar- og hæfingardeild Landspít-
alans í Kópavogi.
Einnig óskar deildin eftir áhugasömu fólki til
starfa á ýmsar einingar.
Upplýsingar veita Sigríður Harðardóttir og
Hulda Harðardóttir í síma 560 2700.
Röntgenlæknir
Sérfræðingur í geislagreiningu óskast að
röntgendeild Krabbameinsfélags íslands,
Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir deildar-
innar, Baldur F. Sigfússon, sími 562 1515.
Hafnarstjóri
Staða hafnarstjóra í Þorlákshöfn er laus til
umsóknar.
Upplýsingar. um starfið gefur sveitastjóri í
síma 483 3800 og formaður-hafnarstjórnar
í síma 483 3789 eða 852 0778.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Ölfushrepps
merkt: „Hafnarstjóri" fyrir 20. nóvember.
Hafnarstjórn. .
Flutningastjórn
- skipulagning aksturs
Traust fyrirtæki með fjölþætta starfsemi
óskar að ráða yfirmann flutningadeildar.
Starfið:
• Umsjón og skipulagning vörudreifingar.
• Þjónustustjórnun.
• Samhæfing flutninga við aðra starfsemi
fyrirtækisins.
• Dagleg verkstjórn bílstjóra.
Hæfniskröfur
• Öguð vinnubrögð og frumkvæði.
• Þekking og reynsla á skipulagningu
aksturs.
• Stjórnunarreynsla, sölumannshæfileikar
og samstarfshæfni.
• Geta unnið erilsaman vinnudag.
Eingöngu aðilar með stjórnunarreynslu koma
til greina. í boði er áhugavert og krefjandi
starf fyrir dugmikinn einstakling.
Nánari upplýsingar veita Auður Bjarnadóttir
og Torfi Markússon frá kl. 9-12. Vinsamleg-
ast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs
merktar: „Flutningastjórn“ fyrir 4. nóvember
nk.
RÁÐGARÐURhf
SIJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
FURUGERÐl 5 108 REYKJAVÍK *E‘ 533 1800
Sölustjóri/sölumaður
Framsækið og traust þjónustufyrirtæki óskar
að ráða sölustjóra/sölumann sem hefur náð
góðum árangri í störfum.
Starfið
• Sala og öflun viðskiptasambanda á fyrir-
tækjamarkaði.
• Val á markhópum m.t.t. framlegðar.
• Markaðsgreining og gerð söluáætlana.
Hæfniskröfur
• Reynsla af sölumennsku og samninga-
gerð á fyrirtækjamarkaði.
• Frumkvæði, markviss og fagleg vinnubrögð.
• Lipurð í samskiptum, þjónustulund og
samstarfshæfni.
• Haldgóð tölvuþekking.
Viðskiptafræðimenntun eða sambærileg
menntun/reynsla æskileg.
Umsóknir og fyrirspurnir verður farið með
sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veita Auður Bjarnadóttir
og Torfi Markússon frá kl. 9-12.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: „Samningagerð - þjón-
usta“ fyrir 4. nóvember nk.
RÁÐGARÐURhf
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
FURUGERÐI5 108 REYKJAVÍK “S 533 1800
Framreiðslumenn
Rótgróið metnaðarfullt veitingahús í Reykja-
vík óskar að ráða framreiðslumann til starfa.
Hér er um framtíðarstarf að ræða.
Þeir sem áhuga kynnu að hafa á ofangreindu
starfi leggi inn nafn ásamt persónulegum
upplýsingum á afgreiðslu Mbl. merktum:
„F - 15541“ fyrir 10. nóvember nk.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál
og þeim öllum svarað.
A
Félagsmálastofnun Kópavogs
Fjölskyldudeild
Laus er til umsóknar 75% staða í móttöku-
einingu fjölskyldudeildar.
Verksvið er einkum móttaka og greining
nýrra mála, vinnsla fjárhagsaðstoðarmála og
þátttaka í starfi er varðar málefni fatlaðra.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi reynslu
af starfi í ofangreindum málaflokkum og
hafi menntun á sviði félags-, sálfræði- eða
uppeldismála.
Frekari upplýsingar gefur Gunnar Klængur
Gunnarsson, deildarfulltrúi, í síma 554 5700.
Umsóknarfrestur er til 19. nóvember nk.
Umsóknum með vottorðum um nám og fyrri
störf, skal skilað á þar til gerðum eyðublöð-
um sem liggja frammi á skrifstofu Félags-
málastofnunar Kópavogs, Fannborg 4.
Starfsmannastjóri.
Ferðanefnd Vestur-Norðurlanda
Færeyjar - ísland - Grænland
Skrifstofustjóri
Ferðanefnd Vestur-Norðurlanda (VNTB) set-
ur þann 1. janúar 1996 á laggirnar skrifstofu
í Þórshöfn í Færeyjum, sem til að byrja
með, mun verða starfrækt í þrjú ár.
Af þeim sökum verður ráðinn skrifstofustjóri
til að sjá um daglegan rekstur, gjarnan með
reynslu af ferðamannaiðnaði og tengsl í einu
eða fleirum af ríkjunum þremur: Grænlandi,
íslandi og Færeyjum.
Að auki verður lögð mest áhersla á að
viðkomandi:
- Hafi skjalfesta reynslu af sjálfstæðri
verkefnavinnu.
- Sé annt um að ná árangri.
- Sé fær um að eiga samstarf við ólíka
menningarhópa og stjórnsýslukerfi.
- Sé fær um að nota ensku og dönsku sem
daglegt vinnumál.
Kaup og kjör samkvæmt nánara samkomu-
lagi. Starfið felur í sér nokkur ferðalög um
svæðið og í tengslum við sýningar og annað
þess háttar.
Nánari upplýsingar um stöðuna og starfið
veitirformaður VNTB, Kim Folmann Jorgens-
en, framkvæmdastjóri, Greenland Tourism
a/s, sími 00 299 228 88.
Skriflegar umsóknir ber að senda í síðasta
lagi 15. nóvember 1995 til:
Vestnorden Tourist Board,
c/o Færoernes Turistrád,
Göngin,
pósthólf 118, 100 Þórshöfn,
Færeyjum.
Feröanefnd Vestur-Norðurlanda vinnur að ákveðnum þróunarverkefnum
á sviði ferðamannaiðnaðar í samvinnu við ferðanefndir aðildarríkjanna og
helstu samgöngufyrirtæki. Verkefnin eru fjármögnuð að hluta með þátt-
tökugjaldi en einnig með styrkjum frá ríkjunum þremur og Norðurlanda-
ráði. Samstaða ríkir um að efla beri starfsemina á næstu árum þar sem
ferðamannaþjónusta hefur mikið efnahagslegt gildi í ríkjunum þremur.
Stærsta einstaka verkefni Ferðanefndar Vestur-Norðurlanda er hin órlega
sýning Vestnorden Travel Mart en 450 aöilar tóku þátt i henni að þessu
sinni í Þórshöfn í Færeyjum sl. september.