Morgunblaðið - 29.10.1995, Síða 32

Morgunblaðið - 29.10.1995, Síða 32
MORGUNBLAÐIÐ 32 B SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995 Hjartans þakkir og kœrar kveðjur sendi ég hér með vinum mínum sem glöddu mig á afmœlis- daginn minn hinn 19. október síðastliðinn. Guð blessi ykkur öll og launi! Benjamín H. J. Eiríksson alias Eirik Torin FRÉTTIR Fulltrúaráð Landssambands slökkviliðsmanna Mikill órói á vinnumarkaði Innilegar þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig á 80 ára afmœli mínu 17. október sl., með hlýjum kveðjum og gjöfum. Guð blessi ykkur öll. Karl Kortsson, Hellu, Rangárvöllum. MIKILL órói hefur skapast á vinnu- markaði sem ekki er séð fyrir end- ann á í kjölfar þess að nú blasir við að kjarasamingum verði sagt upp og sett fram krafa um hækkun almennra launa, að því er fram kemur í kjaramálaályktun fulltrúa- ráðs Landssambands slökkviliðs- manna. Fram kemur að verði af uppsögn kjarasamninga á almennum vinnu- markaði verði ekki annað séð en forsendur kjarasamninga opinberra starfsmanna séu brostnar. Hvetur fulltrúaráðið stjórn félagsins til að leita samráðs við önnur aðildarfélög BSRB svo og forystu bandalagsins um mat á forsendum uppsagnar kjarasamninga og hvatt er til sam- stöðu allra félaga komi til uppsagn- ar samninga. Telur fulltrúaráðið að bráðan bug verði að vinna að því mikla kjara- misrétti sem viðgangist í þjóðfélag- inu og birtist meðal annars í himin- háum launum æðstu embættis- manna ríkisins, sem geti numið allt að 700 þúsund krónum á mánuði auk annarra sérkjara er störfunum fylgi. Til samánburðar er bent á að byijunarlaun slökkviliðsmanna séu 54 þúsund krónur á mánuði og meðaltalsgrunnlaun um 80 þúsund krónur á mánuði þrátt fyrir að gerð sé sú krafa til slökkviðliðsmanna að þeir hafi lokið fjögurra ára iðn- námi. Síðan segir: „Aukið kjaramis- rétti er óásættanleg þróun í okkar litla þjóðfélagi og verður að stöðva m.a. með réttlátri og gegnsærri leikreglum, bættum skattalögum og stórhertu skattaeftirliti." MUNDU! Upphituð framrúða er staðalbúnaður I Ford Escort Þýski r - fyrir allal en aðeins einn Ford! Berðu saman* Búnaður: Ford Escort CLX 5 dyra Opel Astra GL 5 dvra VW Golf GL 5 dyn Stærð vélar 1,4 lítra 1,4 lítra 1,4 lítra Hestöfl 75 60 60 Stærð bensíntanks 55 lítrar 52 lítrar 55 lítrar Upphituð framrúða Já Nei Nei Upphitaðir hliðarspeglar Já Nei Já Rafknúnir hliðarspeglar Já Nei Já Litað gler Já Nei Já Samlitir stuðarar Já Nei Já Snúningshraðamælir Já Nei Já Glasahaldari milli framsæta Já Nei Nei Verð á götuna: 1.133.000 1.253.000 1.328.000 VETRARTILBOÐ! Til að kóróna allt þá bjóðum við ný Nokian vetrardekk með hverjum Ford Escort og sumardekkin I skottinu! * Ath. Taflan sýnir búnað sem Ford Escort hefur umfram keppinautanna. Annar búnaður er sambærilegur s.s. samlæsing, útvarp o.fl. OPIÐ Laugardaga frá 12-16 Nýr Ford Escort er betur búinn en keppinautarnir en samt á mun betra verði! Þrír mest seldu bílamir í þessum stærðarflokki í Evrópu eru allir þýskir en þetta eru Ford Escort, Opel Astra og Volkswagen Golf. Vegna hagstæðra samninga getur Brimborg boðið Ford Escort með eftirfarandi búnaði umfram keppinautanna og að auki á verulegra lægra verði. Komdu við í sýningarsal okkar og við bjóðum þér í reynsluakstur. Greiðslukjör eru við allra hæfi og við tökum að sjálfsögðu allar gerðir notaðra bíla uppí nýjan Escort. BRIMBORG FAXAFENI 8 • SÍMI 515 7000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.