Morgunblaðið - 19.11.1995, Side 1
88 SÍÐUR B/C
265. TBL. 83. ÁRG.
SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
* Morgunblaðið/RAX
I Hvalfírði
Fulltrúadeildin samþykkir frumvarp gegn þátttöku í friðargæslu NATO
Hafnar því að senda
hermenn til Bosníu
Mandela vill
olíusölubann
á Nígeríu
NELSON Mandela, forseti Suður-Afr-
íku, sagðist í gær hafa óskað eftir því
við Bill Clinton Bandaríkjaforseta, að
hann beitti sér fyrir því að sett yrði
olíusölubann á Nígeríu vegna aftöku á
níu baráttumönnum fyrir mannréttind-
um. Talsmaður Clintons sagði Banda-
ríkjamenn ekki útiloka alþjóðlegar að-
gerðir gegn Nígeríu en að þeir teldu
hins vegar að einhliða aðgerðir skiluðu
litlum árangri.
Fimmtán Svía
saknað í Nepal
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
EKKI færri en fimmtán sænskir fjall-
göngumenn í Nepal eru týndir eftir spjó-
flóðin þar í síðustu viku. Sænska utan-
ríkisráðuneytið hefur árangnrslaust
reynt að afla upplýsinga um hópinn, sem
var staddur á svæði, sem enn er einangr-
að. Sama á við um fleiri útlendinga, en
nú er besti árstíminn til göngu þarna.
Byssumaður
gefst upp
MAÐUR, sem skotið hafði unga konu
og sært tvo aðra, gafst upp í gær eftir
rúmlega hálfs sólarhrings umsátur í
Drammen í Noregi. Ekki er vitað hvað
manninum gekk til en vitað er að hann
hefur átt við andlega erfiðleika að
stríða.
Nýtt hestakyn
fundið í Tíbet
ÁÐUR óþekkt hestakyn hefur fundist í
norðurhéruðum Tíbet. Það var Frakki,
Michel Peissel að nafni, sem fann hest-
ana er hann lenti í vegvillum á svæðinu.
Hann var í leit að hestum af Öðru kyni
er hann fann hestakyn sem hann hefur
nefnt Riwoche. Segir hann um smáhesta
að ræða sem líkist einna helst ösnum.
Þeir séu hins vegar með lítil eyru og
nasir og grófgerðan feld. Svört rönd sé
á baki þeirra, fótum og faxið sé svart.
Peissel segir hestana minna sig á þær
myndir sem hellisbúar hafi gert af hest-
um í fornöld en samferðamaður hans
hafi hins vegar sagt þá líkasta svínum.
Bon-po-ættbálkurinn á hestana, sem
notaðir eru til reiðar og sem burðarklár-
ar. Telja Peissel og leiðangursmenn að
hestakynið sé frá nýsteinöld og að það
hafi ekki blandast öðrum hestakynjum.
Dayton, Waahington, Sar^jevo. Reuter.
FULLTRÚADEILD Bandlríkjaþings sam-
þykkti á föstudagskvöld bann við því að senda
bandaríska hermenn til Bosníu, þrátt fyrir
fréttir um að samkomulag kunni að vera að
nást í friðarviðræðunum í Dayton. Gagnrýndi
Mike McCurry, blaðafulltrúi Bill Clintons
Bandaríkjaforseta, niðurstöðuna harðlega.
Sagði hann forsetann telja hana „ótímabæra
truflun á friðarferli sem er svo nærri því að
leiða til lausnar á ófriðnum á Balkanskaga“.
Muhamed Sacirbey, utanríkisráðherra Bosníu,
tilkynnti í gærmorgun að hann hefði boðist
til að segja af sér til að rýma fyrir Króata í
ríkisstjórn Bosníu. Hann myndi þó áfram taka
þátt í friðarviðræðunum í Dayton og ekki
láta af embætti fyrr en þeim væri lokið.
„Slæmur friður er betri en stríð,“ sagði hann.
Fulltrúadeildin bandaríska samþykkti
Sacirbey utanríkisráð-
herra Bosníu býðst til
að segja af sér
frumvarp um bann við þátttöku bandarískra
hermanna í aðgerðum í Bosníu með 243 at-
kvæðum gegn 171. Jafnvel þótt öldungadeild-
in staðfesti niðurstöðu fulltrúadeildarinnar er
fullvíst talið að Clinton muni beita neitun-
arvaldi til að fella frumvarpið úr gildi. Clinton
hyggst senda um 20.000 manna herlið til
Bosníu sem hluta af friðargæsluliði Atlants-
hafsbandalagsins í landinu.
Tilkynning Sacirbeys um afsögn í gær kom
mjög á óvart en hann er sá stjórnmálamaður
bosnískur sem þekktastur er á Vesturlöndum.
Hann var sendiherra Bosníu hjá Sameinuðu
þjéðunum áður en hann var skipaður utanrík-
isráðherra.
Afsögn vegna deilna við Silajdzic?
Sacirbey bauðst til þess að láta af emb-
ætti svo að Króati gæti tekið sæti í stjórninni
til að styrkja ríki múslima og Króata í Bos-
níu. Sagði hann að sér virtist hvorki farar-
snið á Alija Izetbegovic, forseta Bosníu, né
Haris Silajdzic, forsætisráðherra, og því hefði
hann ákveðið að víkja.
Silajdzic bauðst til að segja af sér í júlí sl.
vegna ósamkomlags við Sacirbey en sá síðar-
nefndi neitaði því að ákvörðun sín tengdist
fréttum af ósamkomulagi þeirra. í júlí neitaði
Izetbegovic að samþykkja afsögn Silajdzic og
það sama gæti orðið uppi á teningnum nú.
íslenskt fræðasetur
í sjávarplássi
Hernámið í
nýju ljósi
vmsnpniBVDiMuUF QQ
Á SUNNUDEGI
SJÓNVARPSSTJÓRI
Á RÉTTRIHILL U
BEÐIÐ EFTIR
FRIÐI B