Morgunblaðið - 19.11.1995, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
JÓHANN Óli Hilmarsson fuglafræðingur skoðar lífið í fjörunni.
Hann mun leiðbeina í skoðunarferðum um Sandgerðistjamir, sem
iða af lífi, og í fjöru- og bjargferðum.
Morgunblaðið/Rax
KRISTÍN Hafsteinsdóttir skoðar fugla i sýningarskáp í Fræðasafninu,
Islenskt fræðasetur
í sjávarplássi
í Sandgerði er að fæðast umhverfistengt
ferða- og fræðasetur, byggt á íslenskum
veruleika á staðnum og á því ekki sitt líka
í heiminum, að því er forstöðukonan Kristín
Hafsteinsdóttir tjáði Elínu Pálmadóttur.
En safnið tengist sjónum, flörunni, fiskinum,
fuglinum og ferksvatnslífínu í umhverfmu
og er aðgengilegt almenningi og skólum,
um leið og það tengist fræðimönnum og
rannsóknum.
GUÐMUNDUR Víðir Helgason, forstöðumaður botndýrarann-
sóknastofunnar á neðri hæðinni, var ásamt Kristínu Hafsteinsdótt-
ur að setja upp fyrstu sýninguna í Fræðasetrinu.
FRÆÐASETRIÐ í Sandgerði er
mjög metnaðarfullt verkefni. Það
skynjar maður um leið og komið
er á staðinn. Jafnframt teygir það
anga sína í margar áttir. Heima-
höfn er þó ekki í háreistri glæsi-
byggingu, heldur gamalli langri
tveggja hæða fiskhúsalengju, sem
hýsir á neðri hæðinni fiskmarkað-
inn, beitingarskúra og nýju botn-
dýrarannsóknastöðina með rann-
sóknum á lífríki sjávarbotns á ís-
landsmiðum. Það voru því umsvif
og líflegt er blaðamaður leit þar
inn í vikunni þegar verið var af
kappi að ganga frá fræðasafninu
á loftinu fyrir formlega opnun
þess. Karlamir voru að ljúka við
að beita línuna í nokkrum
skúranna, kaupendur streymdu að
til að bjóða í og kaupa glænýjan
fiskinn í Fiskmarkaði Sandgerðis
og í vel búinni rannsóknastöðinni
sátu 11 konur úr Sandgerði við
víðsjár við að flokka sýni. For-
stöðumaður hennar, Guðmundur
Víðir Helgason sjávarlíffræðingur
var að setja upp fyrstu sýninguna
í Fræðasafninu uppi. 0g úti fyrir
eru þessar dýrmætu Sandgerði-
stjarnir og fjaran með sitt auðuga
Iífríki, svo og höfnin. Og fugl er
þarna á sjónum og á tjörnunum
allan ársins hring.
Ekki fer á miili mála að Sand-
gerði er rakinn staður fyrir fræða-
setur um allt sem viðkemur sjó
og sjávarfangi. Þetta er einn elsti
útgerðarstaður á landinu. Bændur
stunduðu útgerð á tímum áraskipa
og með tilkomu vélbáta varð Sand-
gerði landskunn verstöð. Alla
þessa öld hefur þar verið mikil
útgerð og fiskverkun, sem þróast
hefur eftir því sem við á á hveijum
tíma. Þar landa nú 110 bátar og
höfnin kemur næst á eftir Reykja-
vík ef miðað er við landaðan afla.
Allt ber þessa merki og tekið er
vel á móti því ferðafólki sem sýn-
ir áhuga á að fræðast um útgerð
og fiskvinnslu á staðnum. Þarna
eru varðveittar trönur, fískhjallur
og saltfiskur breiddur og frysti-
húsin eru í gangi steinsnar frá
Fræðasetrinu.
Kettlingatjörn heitir bæjartjörn-
in rétt hinu megin götunnar og
handan hennar fallegt gamalt hús,
gamli Sandgerðisbærinn, sem Ly-
onsklúbburinn á og heldur við.
Tjarnirnar beggja vegna vegar iða
af lífí. Við Kristín röltum áfram
að Sandgerðistjörn, sem hún segir
alveg einstaka hvað lífríki varðar.
Mikill gróður og mikil mergð smá-
dýra í tjörnunum eru undirstaða
fuglalífsins á þeim, en orsökin fyr-
ir fjölskrúðugu fuglalífi í fjörunum
er þangflugan, einkennisfluga
staðarins. Hún fylgir þanginu og
um leið og örlítið hlýnar klekst
eitthvað út af henni. Segir Kristín
mér að ætlunin sé að leggja stíg
að tjörninni, svo að gestir geti
rölt þar út.
Fuglaparadís
Feikilegt fuglalíf er á tjörnunum
og á sjónum: Hvergi fleiri fugla
að sjá. Fuglaáhugamenn hafa
árum saman sótt til Sandgerðis.
Þar fer fram hefðbundin fuglataln-
ing á gamlársdag og hafa sést þar
33 fuglategundir. Nú voru á tjöm-
inni mest endur og álftir - og
svartbakurinn. Hann verður að
vera líka, segir Kristín, því það
er hann sem þrífur og heldur öllu
hreinu. Við erum með sjónauka
frá Fræðasetrinu, sem fólk á að
geta fengið leigða á staðnum.
Fræðásetrið mun efna til fugla-
skoðunarferða undir leiðsögn Jó-
hanns Óla Hilmarssonar fugla-
fræðings, Árna Waage og fleiri.
Einnig til siglinga undir Eldey og
Hafnaberg þegar veður leyfir til
að sjá bjargfuglana. En Jóhann
Óli mun setja upp fuglasýningu í
safninu og ljósmyndasýningu á
vetrum. Kristín segir að Fræða-
setrið muni leggja kapp á að vera
viðkomustaður fuglaskoðara, þar
sem upplýsingum frá þeim verði
safnað, svo að þeir geti fylgst með
því hvað sjá má á staðnum á hveij-
um tíma. Og hafa fuglaskoðarar
sýnt málinu mikinn áhuga.
Aður en lengra er haldið og
sest niður til að fræðast um hvað
þarna er verið að byggja upp,
spyijum við Kristínu hvernig hún,
bókmenntafræðingurinn og dag-
skrárgerðarkonan, hafi lent á
þessari hillu. Hún kveðst nú eigin-
lega vera sjókona, eftir ellefu ára
störf hjá Hafrannsóknastofnun.
Hún vann síðast hjá Sjávarútvegs-
stofun HÍ. Þegar hún hætti þar
var byijað að setja upp safnið í
þessu gamla húsi, sem stóð þarna
•til reiðu í SandgerðL Bæjarstjór-
inn, Sigurður Valur Ásbjarnarson,
hafði gripið þessa hugmynd á lofti
og hefur gengið af miklum krafti
og áhuga í að gera hana að veru-
leika. Hann réð Kristínu til Fræða-
safnsins.
Fræðsla fyrir skólana
Hugmyndin er að þarna verði
ferðamanna- og fræðslusetur. Út-
færslan er nokkuð margbrotin og
margir aðilar koma þar inn í með
ýmsu móti, enda er fjölbreytnin
mikil. Sandgerðisbær stendur að
því, en ýmsir aðilar, einstaklingar
og stofnanir hafa komið til aðstoð-
ar, svo sem Náttúrufræðistofnun,
Hafrannsóknastofnun, HÍ o.fl.
Fræðasetrið býður upp á tengsl
við náttúru staðarins og lögð
áhersla á að allir séu velkomnir,
innlendir sem erlendir, sér til
ánægju og fræðslu.
Eitt af markmiðum fræðaset-
ursins er að fullnægja þörf
menntastofnana á Reykjanes- og
Reykjavíkursvæðinu fyrir að-
gengilegan stað til náttúrufræði-
kennslu tengda sjó og tjörnum,
fuglum og fjöru. Nemendum
grunn- og framhaldsskóla er séð
fyrir mismunandi verkefnum í
sambandi við kennslu í umhverfis-
fræðum. Sigurður H. Jesson kenn-
ari hefur útbúið slíkt kennsluefni
fyrir grunnskóla, sem vilja koma
með nemendur til að vinna að
verkefnunum. Og voru kennarar
af svæðinu boðnir til að kynna sér
þetta efni sl. miðvikudag. Þá er
gert ráð fyrir að tekin séu sýni
úr fjörunni, komið með þau inn
og skoðað í víðsjám, sem eru til
reiðu í safninu. Líka hægt að skoða
þar sýni frá botndýrarannsókna-
stöðinni á neðri hæðinni, sem Guð-
mundur Víðir hefur útbúið. Þar
er margt forvitnilegt að sjá, sem
illa sést með berum augum.
Þá er ætlunin að hafa aðstöðu
þarna til að krylja fiska og önnur
sjávardýr undir leiðsögn. Einnig
eru í safninu í glerbúrum skeldýr,
fískar og annað forvitnilegt úr
sjónum, sem hægt er að fá lifandi
úr bátunum. Hljóta margir að
nýta sér þetta, þar sem sáralítil
kennsla hefur verið í grunnskólun-
um á þessu sviði. En einnig er
miðað við þarfir stúdenta við HÍ,
Kennaraháskólann, og ýmissa
endurmenntunarnámskeiða. En
markmið Fræðasetursins er þó
ekki síður að fræða hinn almenna
ferðamann og hvetja hann til nátt-
úruskoðunar. Miðað er við að hann
skoði sýningar og fái margskonar
fræðsluefni inni í Fræðasetrinu,
um leið og hann er jafnframt
hvattur til að fara út í náttúruna
og skoða sjálfur eða undir leið-
sögn.
Sýningar og fyrirlestrasalur
I salnum uppi var verið að útbúa
sýningu. Náttúrufræðistofnun ís-
lands hefur gefið safninu fugla til
uppsetningar í sýningarbás. Þar
hefur ýmsum þeim fuglum sem
auðveldast er að finna í Sandgerði
verið komið fyrir á skemmtilegan
hátt í sýningarbás. Og þarna eru
uppstoppaðir fuglar, teista og lóm-
ur, sem má snerta. í sýningarbásn-