Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forsætisráðherra hleypti Stöð 3 af stokkunum í gærkvöldi DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra gangsetur útsendingu Stððv- ar 3 í gær. Hjá honum stendur framkvæmdastjóri stöðvarinn- ar, Úlfar Steindórsson. Áhorfendum og stöðinni óskað til hamingju DAVÍÐ Oddsson, forsætisráð- herra, hleypti Stöð 3 formlega af stokkunum með aðstoð Úlf- ars Steindórssonar, sjónvarps- stjóra, kl. 19.30 í gærkvöldi. Forsætisráðherra óskaði stöð- inni og áhorfendum til ham- ingju með áfangann og nýja möguleika í sjónvarpsflórunni. Bjarni Árnason, auglýsinga- stjóri, bauð áhorfendur vel- komna að skjánum fyrir hönd starfsfólks og eigenda Stöðvar 3. Hann sagði að markmið Stöðvar 3 væri að veita áhorf- endum sínum vandaða og góða dagskrá á góðu verði. „Við bjóð- um fjölbreytta dagskrárrás en að auki fjórar endurvarpsrásir sem eru: frétta- og fréttaskýr- ingarásin CNN, fræðslu- og heimildarásin Discovery, íþróttarásin Euro-sport og tón- listarrásin MTV,“ sagði hann. Von á nýjuhgum á næstu vikum Hann sagði að tæknibúnaður Stöðvar 3 væri einn sá full- komnasti sem völ væri á í heiminum i dag. „En það sem fer af stað hjá okkur í kvöld er bara byijunin. Margar nýjungar eiga eftir að líta dagsins Ijós á næstu vikum. Og sú sem þið verðið fyrst vör við er afruglarinn okkar en með honum er hægt að afrugla allar fimm útsendingarrásir Stöðvar 3 samtímis. Þetta þýðir að t.d. getur unglingurinn á heimilinu verið að horfa á tónlistarrásina MTV á sama tíma og aðrir fjölskyldumeðlimir njóta dagskrárrásar Stöðvar 3.“ Bjarni kynnti Úlfar Steind- órsson, sjónvarpsstjóra, og Dav- íð Oddsson, forsætisráðherra, og óskaði Davíð stöðinni og áhorfendum til hamingju með áfangann og nýja möguleika í sjónvarpsflórunni. Að þvi loknu hleypti hann fyrsta dagskrár- liðnum að. Grínleikarinn Rowan Atkinson varð fyrstur á skjáinn í fyrsta þætti nýrrar þáttarað- ar. Að honum loknum var sýnt nýlegt einkaviðtal BBC við Dí- önu prinsessu í íslenskri þýð- ingu. Morgunblaðið/Þorkell Ljósabúnaði stolið af lögreglu- bifreiðinni ísafjörður. Morgunblaðið. AÐFARANÓTT föstudags var aðvörunarljósabúnaði stolið af einni af bifreiðum lögreglunnar á ísafirði, þar sem hún stóð fyrir utan bifreiðaverkstæði í bænum og beið varahluta frá umboðsaðila. Síðdegis í gær höfðu þjófam- ir ekki fundist og er málið í rannsókn. Að sögn lögreglunn- ar á ísafirði er verðmæti ljósa- búnaðarins á þriðja hundrað þúsund krónur. Aðfaranótt miðvikudags var brotist inn í veitingahúsið Sjallann á ísafirði og þaðan stolið skipti- mynt dagsins auk 50 króna peninga sem tilheyra spilaköss- um sem em á staðnum. Nóttina á eftir var aftur brotist inn á sama stað og tugþúsundum af 50 króna mynt stolið úr spila- kössunum sjálfum auk þess sem nokkurra flaskna af áfengi er saknað. Málið er í rannsókn og biður lögreglan alla þá sem geta veitt upplýsingar um bæði málin að hafa samband hið fyrsta. Hugmynd utanríkisráðherra um gagnkvæma tryggingu fiskveiðiríkja Tryggingakerfi nái til allra ríkja Norð- urskautsráðsins HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra setti fram þá hugmynd í ræðu á miðstjórnarfundi Framsókn- arflokksins í gærkvöldi, að væntan- leg aðildarríki Norðurskautsráðsins gætu sameinazt um gagnkvæmt tryggingakerfi í fiskveiðum, reglur til að hamla gegn mengun í Norður- höfum og stefnumörkun um sjálf- bæra nýtingu auðlinda. í ræðu á fískiþingi fyrr í vikunni ræddi utanríkisráðherra hugmyndir um gagnkvæmt tryggingakerfi í þorskveiðum, þannig að Islendingar fengju heimild til veiða í norskri eða rússneskri lögsögu þegar þorsk- stofninn í íslenzkri lögsögu væri í lægð, en Norðmenn og Rússar fengju veiðiheimildir í íslenzkri lög- sögu, þegar betur áraði við landið. Norðurskautsráðið öðrum til eftirbreytni „Ég sé þessa hugmynd fyrir mér í mun stærra samhengi," sagði Hall- dór er hann fiutti yfirlitsræðu sína á fundi miðstjórnar Framsóknar- flokksins í gærkvöldi. Hann sagði að fiskveiðiþjóðir í Norðurhöfum, til dæmis þær átta, sem hyggjast standa að stofnun Norðurskauts- ráðsins í mars næstkomandi, gætu orðið öðrum þjóðum til eftirbreytni með því að sameinast um þrennt. Halldór nefndi í fyrsta lagi strang- ari reglur gegn mengun í Norðurhöf- um, í öðru lagi stefnumörkun um grundvallaratriði hvað varðar sjálf- bæra nýtingu auðlinda og í þriðja lagi gagnkvæmt tryggingakerfi í veiðum. Slíkt kerfi sagði Halldór að gæti minnkað álag á fiskistofnum og jafnframt miðað að því að byggð- arlög og þjóðir, sem ættu allt sitt undir nýtingu auðlinda hafsins, yrðu ekki fyrir alvarlegum skakkaföllum vegna eðlilegra sveiflna í stærð mik- ilvægra fískistofna. Sameiginleg ábyrgð heils heimshluta „Ef slíkt samkomulag tækist væri það fyrsta stóra skrefið í þá átt að heill heimshluti taki sameiginlega ábyrgð á umhverfí sínu og auðlind- um,“ sagði utanríkisráðherra. Gert er ráð fyrir að ísland, Noreg- ur, Svíþjóð, Finnland, Danmörk, Bandaríkin, Kanada og Rússland verði stofnríki Norðurskautsráðsins, sem á að stofna í Inuvik í Kanada í marz á næsta ári. Fjármálaráðherra um flutning grunnskóla Tekjuskattshlutfall lækki og- útsvar hækki „ÉG HEF lagt áherslu á að flutning- ur tekjustofna frá ríki til sveitarfé- laga vegna grunnskólans taki mið af áætluðum kostnaði ríkisins þegar verkefnaflutningurinn á sér stað. Að þessu leytinu til ætlar ríkið að sjálf- sögðu ekki að hagnast af tilflutn- ingnum heldur einungis að vera jafn sett og áður,“ sagði Friðrik Sophus- son fjármálaráðherra í ræðu sem hann flutti á ráðstefnu um íjármál sveitarfélaga í fyrrakvöld. „Til að mæta þessum kostnaði er lagt til að tekjuskattshlutfallið lækki um tiltckna prósentu og að útsvars- hlutfall hækki um samsvarandi pró- sentu að meðaltali. Talið er að hver prósenta í staðgreiðslu gefí tæplega 2,6 milljarða króna. Af hagkvæmn- isástæðum er lagt til að báðar þessar breytingar taki gildi hinn 1. janúar 1997. Hins vegar verði sveitarfélög- um bættur kostnaður vegna flutn- ings verkefna frá 1. ágúst til ársloka 1996, þannig að ríkið greiði þeim hluta af fjárveitingum í fjárlögum 1996 vegna kostnaðar við grunn- skólaverkefni sem flytjast frá ríki til sveitarfélaga," sagði Friðrik. Fram kom í máli fjármálaráðherra að hann teldi að sveitarfélög stæðu ríkinu ekkert að baki hvað varðaði getu þeirra til þess að standa undir rekstri grunnskólans og halda úti öflugu grunnskólastarfi. Félagsdómur úrskurðar í máli VSÍ gegn verkalýðsfélaginu Baldri á ísafirði Frávísunarkröfu ASÍ hafnað . Morgunblaðið/Ásdís RAGNAR Árnason, lögmaður VSÍ, skoðar úrskurð Félagsdóms. Björn Bergsson, lögmaður ASÍ, fylgist með. FÉLAGSDÓMUR hafnaði í gær frávísunarkröfu lögfræðings ASÍ í máli VSI gegn verkalýðsfélaginu Baldri á Isafirði. Lögfræðingur ASI tók sér frest til að íhuga hvort málinu yrði áfrýjað til Hæstaréttar. Ljóst er að málinu verður ekki lok- ið áður en Iaunanefnd ASI og VSÍ lýkur störfum um næstu mánaða- mót. Félagsdómur féllst í einu og öllu á lagarök lögfræðings VSÍ í mál- inu. Dómurinn telur að ákvæði kjarasamnings um sáttanefnd girði ekki fyrir að VSI geti borið ágrein- ing aðila undir Félagsdóm, en ákvæði um sáttanefnd hefur verið í samningi félagsins í 45 ár án þess að nefndin hafi komið saman. Þá hafnar Félagsdómur því að VSÍ hafí borið að stefna öðrum verka- lýðsfélögum á Vestfjörðum, sem sömdu um leið og Baldur, líkt og lögfræðingur ASÍ hélt fram. Fé- lagsdómur telur ekki útilokað að VSÍ hafi lögvarða hagsmuni af því að skorið sé úr ágreiningi um upp- sögn Baldurs á kjarasamningi fé- lagsins. Niðurstaða dómsins er því að hafna, beri frávísunarkröfu ASI. Vika í ákvörðun um áfrýjun Bjöm Bergsson, lögmaður ASÍ, sagðist þurfa að skoða vandlega rökstuðning Félagsdóms fyrir því að hafna frávísunarkröfu áður en hann gæti tekið ákvörðun um hvort málinu yrði áfrýjað til Hæstaréttar. Ákvörðunar væri ekki að vænta * fyrr en um miðja næstu viku. Frest- ur til að áfrýja er ein vika. Ákvörð- un um áfrýjun þarf því ekki að liggja fyrir fyrr en eftir að launa- nefndin hefur lokið störfum. Björn sagði að ef launanefndin myndi segja upp samningum væri tæplega ástæða til að halda máli Baldurs áfram fyrir Félagsdómi þar sem þá væri komin niðurstaða um það atriði sem deilt væri um. Það væri þó alfarið í höndum lögmanns VSÍ að taka ákvörðun um það. Ragnar Árnason, lögmaður VSÍ, sagði að VSÍ hefði haldið því fram að það hefði tæplega verið ástæða til að leggja fram frávísunarkröfu í þessu máli. Niðurstaða dómsins staðfesti það mat. Hann sagðist vera þeirrar skoðunar að krafan hefði verið lögð fram í þeim til- gangi að te§a málið þannig að nið- urstaða í því fengist ekki fyrir mánaðamót. Sjálfstæðismenn um Ásmundarsal Listamenn gangi inn í tilboðið FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokks í menningarmálanefnd Reykjavíkur hafa lagt fram tillögu um að borgin endurskoði áform sín varðandi kaup á Freyjugötu 41, Ásmundarsal, og bjóði listamönnunum Sigríði Jó- hannsdóttur og Leifi Breiðfjörð, sem gerðu tilboð í húsið, að ganga inn í kaup borgarinnar. Afgreiðslu tillög- unnar var frestað á síðasta fundi menningarmálanefndar. Flutningsmenn tillögunnar benda á að húsið hafi mikið byggingasögu- legt gldi. Það hafí verið tengt mynd- list í 62 ár. „Því hefur verið haldið fram að húsið sé slíkur kjörgripur að leitun sé að öðru eins í gervallri Evrópu,“ segir í greinargerð þeirra. Sigríður og Leifur hafí hugsað sér að búa í húsinu með vinnuaðstöðu sína á sama hátt og upphaflega var stofnað til. „Slík tilhögun tryggir áfram menningarsögulega tilvist Freyjugötu 41, Asmundarsals," segir ennfremur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.