Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
fssr«
IMEDÍA
I STGRB0RG1NNI
__i
HÁSKOLABÍÓ
SÍMI 552 2140
Frá William Friedkin (French
,Connection) og Joe Eszterhas
(Basic Instinct) kemur æsilegasti
tfmffffrt. t:
spennutryllir ársins!
Háskólabíó
GoldenEye
Milljónamæringur er myrtur og morðinginn virðist vera
háklassa vændiskona sem gengur undir nafninu Jade.
En hver er hún? David Caruso leikur saksóknara sem
grunarfyrrum ástkonu sína (Linda Fiorentino) sem nú
er gift vini hans (Chazz Palminteri) um að vera Jade.
Ef hún er Jade, hversu hættuleg er hún?
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
UT
Æ i/2 0. ’úál
CloUU’K
vx
fX U 2r áÉSSÍfi
ere
/ U'i
Hcfur hlatiO < I > silega doma gagnrynenda og fjoldamorg verðlaun
viöa um heim, sigraði m.a. á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í fyrra og
var tllnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin í ár.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.05. Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd
Sýnd kl. 4.45 og 7
Síöustu sýningar.
Sýnd kl. 3
Sýnd kl. 3, 6.45 og 9.15.
Skemmtileg samsuða
TÓNLIST
Klassík frá
krepputímum
Gcisladiskur
GUSGUS
Gusgus, geisladiskur hljómsveitar-
innar Gusgus sem skipuð er Daníel
Agúst Haraldssyni, Emilíönu Torr-
ini, Magnúsi Jónssyni, Hafdísi Huld,
Magnúsi Guðmundssyni og Birgi
Þórarinssyni. Tími 71,43 mín. Verð
1.990 kr. Kjól og Anderson gefur
út, Skífan dreifir.
GUSGUS hafa nýverið sent frá sér
geisladiskinn Gusgus. Diskurinn er
sérkennileg samsuða af fönki í ætt
við Funkadelic og tölvutónlist ekki
óiíkri Underworld. Magnús Jónsson á
ijögur lög á disknum. Aðrir lagasmið-
ir eru tvíeykið úr T-World, Magnús
Guðmundsson og Birgir Þórarinsson,
Daníel Ágúst Haraldsson og söngkon-
umar Hafdís Huld og Emilíana Torr-
ini. Útkoman er öll eins og best verð-
ur á kosið, vopnuð tækjum sem orðin
em sígild í tölvutónlist gerir Gusgus
einn af betri diskum sem komið hafa
út á árinu, hljómurinn er mjúkur og
skemmtilegur enda sennilega auð-
veldari viðureignar þegar stór hluti
tónlistarinnar er gerður á tölvur. Mik-
ilvægast er þó að lögin era öll mjög
góð. Ber þar helst að nefna Ghocol-
GUSGUS-flokkurinn.
ate, sem líður reyndar fyrir hálf ank-
annalega rödd, Why?, Ijúfsára ballöðu
þar sem Emilíana fer á kostum, Be-
lieve, Cold breath ’79 og svo Poiyest-
er Day, sennilega besta lag plötunnar
þar sem fönk/ blús gítarar væla á
meistaralegan hátt. Eina lagið sem
ekki gengur nógu vel upp er Message
from Disney en í það vantar einhvem
neista sem verður að vera til staðar
þegar tölvutónlist er annars vegar.
Vert er að minnast á umslagið sem
er í stíl við gömul jass/Motown um-
slög og á mjög vel við plötuna þótt
betur hefði mátt setja upp upplýs-
ingar inni í bæklingnum sem era á
stundum raglingslegar og ónógar.
Spyrja má hvemig Gusgus muni
eldast en hvað sem þvi líður þá hefur
Gusgus-hópurinn sent frá sér stór-
skemmtilega plötu sem greinilega er
ekki gefín út til að selja sem flest
eintök heldur vegna þess að hópnum
þykir gaman að því sem hann er að
gera.
Gísli Árnason
KVIKMYNPIR
Rcgnboginn - Hátíð
K v i k m y n d a s j ó ð s
REIÐHJÓLAÞJÓFURINN
(LADRI DI
BICICLETTE) ★ ★ ★ ★
Leikstjóri Vittorio De Sica. Handrit
Cesare Zavattini., ofl., byggt á sögu
Luigi Martolini. Kvikmyndataka
Carlo Montuori. Tónlist Álessandro
Cicognini. Aðalleikendur Lamberto
Maggiorani, Enzo Staiola, Lianella
Carell, Gino Saltamarenda, Giulio
Chiari, Vittori Antonucci. Ítalía 1948.
VEL er við hæfi hjá Kvik-
myndasjóð að dusta rykið af Reið-
hjólaþjófunum á aldarafmæli
kvikmyndarinnar. Ekki aðeins því
myndin er nánast á lista allra
kvikmyndunnenda yfir 10 bestu
myndir allra tftna, heldur hefur
reynst þrautin þyngri að nálgast
hana í gegnum árin. Meistaraverk
De Sica er í góðum félagsskap á
þessari ágætu hátíð og ekki ætti
að þurfa að hvetja kvikmyndahús-
gesti til að taka þátt í veislunni
í Regnboganum.
Reiðhjólaþjófurinn er ein af
frægustu merkisberum nýraun-
sæisstefnunnar ítölsku sem hófst
með Ossessione, eftir Luchino
Viscpnti árið 1942, en vakti litla
athygli fyrr en eftir lok síðari
heimsstyijaldarinnar.
Sagan er ekki margflókin en
því betur sögð. Reiðhjólaþjófurinn
gerist í kreppunni sem fylgdi í
kjölfar stríðsins á Ítalíu og sögu-
sviðið Rómaborg. Atvinnulaus,
bláfátækur verkamaður og
heimilisfaðir (Lamberto Maggior-
ani) dettur í lukkupottinn og fær
vinnu við að líma upp auglýsinga-
plaköt. Til að fá langþráð starfið
þarf þann að hafa reiðhjól til
umráða. Kona hans (Lianella
Carell) selur rúmfatnaðinn til að
leysa út reiðhjól bónda síns hjá
veðlánaranum. Adam er ekki
lengi í Paradís því hjólinu er stol-
ið og þrátt fyrir mikla leit kemur
það ekki í ljós og afleiðingarnar
dapurlegar
De Sica gefur átakanlegri sög-
unni aukinn styrk og raunsæi með
því að nota venjulegt fólk af göt-
unni í aðalhlutverkin og fátækra-
hverfin í Róm sem bakgrunn. Með
föðurnum í leitinni fylgist ungur
sonur hans (Enzo Staiola), sam-
band þeirra er hlýtt og náið og
myndin í aðra röndina reynslu-
saga drengsins. í þessari eftirleit
fá ymsir á baukinn, hér er deilt
á ráðaleysi kirkjunnar, afskipta-
og áhugaleysi löggæslunnar og
hegðun múgsins. Faðirinn er heið-
arlegur maður sem á sér ekki
uppreisnar von á erfiðleikatimum.
Hápunktur rauna mannsins er
þegar hann í örvæntingu hyggst
sjálfur ræna hjóli sér til bjargar,
en er gómaður. Aðstæðurnar hafa
komið honum í spor þjófsins, nið-
urlægingin algjör. Þetta er eitt
af stærstu augnablikum kvik-
myndanna.
Einsog fyrr sagði valdi De Sica
^ leikmenn í nánast öll hlutverk
með eftirminnilegum árangri.
Handrit Zavattinis og leikstjórnin
hafa svo sannarlega skapað eina
af bestu myndum sögunnar.
Sæbjörn Valdimarsson.
4
]
«
i
i
i
í
fj
i
i
i
i
i
i
I
I
(
I
I
I
I
I