Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
SAMANTEKT FÉLAGSVÍSINDASTOFNUNAR Á SÖLU BÓKA FYRIR JÓLIN 1995 1.-21. NÓVEMBER 1995. UNNIÐ FYRIR
MORGUNBLAÐIÐ, RÍKISÚTVARPIÐ, FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA OG FÉLAG BÓKA- OG RITFANGAVERSLANA.
Bóksölulisti
1PAULA
Isabel Allende. Útg.: Mál og menning
2MARÍA, KONAN BAK VIÐ GOÐSÖGNINA
Ingólfur Margeirsson. Útg.: Vaka-Helgafell hf.
3EKKERT AÐ ÞAKKA!
Guðrún Helgadóttir. Útg.: Vaka-Helgafell hf.
4HRAUNFÓLKIÐ
Bjöm Th. Björnsson. Útg.: Mál og menning
5BARNASÁLFRÆÐI
Álfheiður Steinþórsdóttir og
Guðfinna Eydal. Útg.: Mál og menning
6
7
8
9
10
AFREK BERTS
A. Jacobsson ogS. Olsson. Útg.: Skjaldborg
SKUGGAR VÖGGUVÍSUNNAR
Súsanna Svavarsdóttir. Útg.: Forlagið
VILHJÁLMUR STEFÁNSSON LANDKÖNNUÐUR
William R. Hunt. Útg.: Hans Kristján Ámason
TÝRA OG DÝRIN í SVEITINNI
Pestaliozzi. Útg.: Vaka-Helgafell hf.
KONUNGUR UÓNANNA
Gina Ingoglia.Walt Disney. Útg.: Vaka-Helgafell hf.
Einstakir flokkar:
1 HRAUNFÓLKIÐ
Björn Th. Björnsson.
Útg.: Mál og menning
2 SKUGGAR VÖGGUVÍSUNNAR
Súsanna Svavarsdóttir.
Útg.: Forlagið
3 HJARTASTAÐUR
Steinunn Sigurðardóttir.
Útg.: Mál og menning
4 RAUÐA SERÍAN
(4 bækur) Útg.: Ásútgáfan
5_6 Á VALDI ÓTTANS
Bodil Forsberg.
Útg.: Hörpuútgáfan
jC.fi HVÍLDARLAUS FERÐ
INN í DRAUMINN
Matthías Johannessen.
Útg. Hörpuútgáfan
7 Á HÆTTUSLÓÐUM
Jack Higgins. Útg.: Hörpuútgáfan
g HVAR ER LAND DRAUMA
Rögnvaldur Finnbogason.
Útg.: Forlagið
9-10 VERÖLD SOFFÍU
Jostein Gaarder.
Útg. Mál og menning
9-10 kvöld í uósturninum
Gyrðir Elíasson.
Útg.: Mál og menning
Almennt efni
1
2
PAULA
Isabel Allende. Útg.: Mál og menning
MARÍA, KONAN BAK
VIÐ GOÐSÖGNINA
Ingólfur Margeirsson. Útg.: Vaka-
Helgafell
BARNASÁLFRÆÐI
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna
Eydal. Útg.: Mál og menning
VILHJÁLMUR STEFÁNSSON
LANDKÖNNUÐUR
William R. Hunt. Útg.: Hans Kristján
Ámason
EINKALÍF PLANTNA
David Attenborough. Útg.: Skjaldborg
0 RAGNAR í SKAFTAFELLI
Helga K. Einarsdóttir.
Útg.: Hörpuútgáfan
7
8
9
ÍSLENSKT GRJÓT
Hjálmar R. Bárðarson. Útg.: höfundur
KARLAR ERU FRÁ MARS,
KONUR ERU FRÁ VENUS
Dr. John Gary. Útg.: Bókaútgáfan Vöxtur
HEIMSBYGGÐIN.
MANNKYNSSAGA
Sveen, Aastad o.fl. Útg.: Mál og menning
■|Q BÆTIEFNABÓKIN
Sigurður Ólafsson og Harald
Jóhannesson. Útg.: Mál og menning
Börn og unglingar
1
2
3
4
5
6
7
8-9
8-9
10
EKKERT AÐ ÞAKKA!
Guðrún Helgadóttir.
Útg.: Vaka-Helgafell hf.
AFREK BERTS
A. Jacobsson og S. Olsson.
Útg.: Skjaldborg
TÝRA OG DÝRIN í SVEITINNI
Pestaliozzi. Útg.: Vaka-Helgafell hf.
KONUNGUR UÓNANNA
Gina Ingoglia. Walt Disney.
Útg.: Vaka-Helgafell hf.
HUNDALÍF
Walt Disney. Útg.: Vaka-Helgafell hf.
SIMBI ÆFIR SIG!
Walt Disney. Útg.: Vaka-Helgafell hf.
POCAHONTAS
ÆVINTÝRABÆKUR
Walt Disney.
Útg.: Vaka-Helgafell hf.
ARI OG ÁSA LEIKA SÉR
Endurs.: Stefán Júlíusson.
Útg.: Björk
SKORDÝRAÞJÓNUSTA
MÁLFRÍÐAR
Sigrún Eldjárn. Útg.: Forlagið
KEFLAVÍKURDAGAR-
KEFLAVÍKURNÆTUR
Lárus Már Bjömsson.
Útg.: Mál og menning
Magnús L. Sveinsson
Launa-
nefnd ein
getur sagt
upp samn-
ingum
MAGNÚS L. Sveinsson, formaður
Verslunarmannafélags Reykjavíkur,
telur engan vafa leika á að það sé
alfarið í valdi launanefndar ÁSÍ og
vinnuveitenda að segja upp samning-
um. Einstök félög geti ekki sagt
þeim upp þar eð þau hafi með undir-
ritun samninga lagt það mat í vald
launanefndar. „Það er ekki hægt að
misskilja það,“ sagði Magnús.
Magnús sagði að ef eining yrði
innan launanefndar um að forsendur
samninga hefðu staðist myndu þeir
gilda út næsta ár. Ef ágreiningur
yrði innan launanefndar um samn-
ingsforsendur kæmi það líklega í
hlut Félagsdóms að kveða upp úr
um gildi samninga. „Ef t.d. fulltrúar
ASÍ í launanefnd telja að segja beri
samningum upp, en vinnuveitendur
telja ekki forsendur vera fyrir upp-
sögn, geta þeir stefnt málinu fyrir
Félagsdóm, þ.e.a.s. ef þeir vilja ekki
una ákvörðun fulltrúa ASÍ.“
VR vill leiðréttingu
Trúnaðarmannaráð VR kom sam-
an til fundar í fyrrakvöld. Fundurinn
samþykkti ályktun þar sem sett er
fram krafa um „að aftur verði snúið
til þeirrar stefnu, sem mörkuð var
með febrúarsamningunum, til að
tryggja að þeir sem lægstu launin
hafa, beri meira úr býtum en þeir
sem hærri laun hafa. Sú krafa er
því gerð, að samið verði um hækkun
til félaga innan ASÍ, til að tryggja
að það markmið náist."
Fundurinn bendir á að hagdeild
ASÍ hafí komist að þeirri niðurstöðu
að laun félagsmanna í ASÍ þurfí að
hækka um 3.142 krónur til að þeir
fái sömu hækkanir og opinberir
starfsmenn hafi fengið. í þessari tölu
sé þó ekki tekið tillit til launáhækk-
ana kennara eða launahækkana al-
þingismanna. Magús L. sagði nauð-
synlegt að þessi munur yrði leiðrétt-
ur. Mjög sterk og almenn reiði væri
á meðal launþega, sem sömdu fyrst
með það að leiðarljósi að þeir væru
að tryggja stöðugleika og að þeir
væru að stuðla að jafnlaunastefnu.
Vinnuveitendur yrðu að koma til
móts við þessa reiði til að afstýra
meiriháttar átökum á vinnumarkaði.
Alþýðusamband íslands og VSÍ hafa náð samkomulagi um endurskoðun á lífeyrissjóðakerfinu
Skylduaðild verður áfram
að einstökum sjóðum
LAUNÞEGUM verður áfram skylt
að greiða iðgjald í lífeyrissjóði við-
komandi starfsstéttar eða starfs-
hóps, samkvæmt nýju samkomulagi
ASÍ og VSÍ sem nú liggur fyrir um
Iífeyrismál. Þar er ítrekað að ið-
gjaldagreiðslur og lífeyrisréttindi
verði áfram hluti umsaminna kjara
og viðfangsefni kjarasamninga.
Þá hafa ASÍ og VSÍ jafnframt
komið sér saman um nýjar og stór-
hertar reglur um rekstur og upp-
byggingu lífeyrissjóðanna. Eru nú
tekin af öll tvímæli um að eignir
þurfí að duga fyrir skuldbindingum
til þess að lífeyrissjóði sé heimilt
að taka við iðgjöldum.
Þetta kom fram á aðalfundi Sam-
bands almennra lífeyrissjóða í gær
þar sem Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, og Kári
Amór Kárason, framkvæmdastjóri
Lífeyrissjóðs Norðurlands, kynntu
samkomulagið. Er stefnt að því að
það verði tekið til afgreiðslu hjá
samtökum vinnumarkaðarins í
næstu viku.
Bankaeftirlit getur
gripið inn í reksturinn
Hinar nýju reglur fela í sér þá
grundvallarbreytingu að ákveðin
lágmörk eru sett varðandi lífeyris-
réttindi. Lífeyrissjóðir sem starfa á
grundvelli hins nýja samkomulags
skulu tryggja hverjum sjóðfélaga
rétt til ellilífeyris, endurhæfíngar-
og örorkulífeyris, makalífeyris og
barnalífeyris gegn greiðslu samn-
ingsbundins iðgjalds. Nánar er
kveðið á um útreikninga á einstök-
um réttindum í reglunum.
Þá verður allt eftirlit stórhert
með rekstri sjóðanna og upplýs-
ingagjöf til sjóðfélaga aukin tíl
muna. Þannig verður stjórn lífeyris-
sjóðs skylt að láta fara fram trygg-
ingarfræðilega úttekt á fjárhag
sjóðsins árlega og skal niðurstaða
úttektarinnar vera hluti af reikn-
ingsskilum lífeyrissjóðsins um hver
áramót. Skal úttektin miða við sam-
ræmdan reiknigrunn lífeyrissjóða.
Ef úttekt leiðir í ljós að lífeyrissjóð-
ur uppfyllir ekki ákvæði samnings-
ins og ekki eru horfur á breytingu
til batnaðar á næstu þremur árum
telst sjóðurinn ekki gjaldhæfur.
Við slíkar aðstæður skal stjórn
Lífeyrissjóðir
verða að geta
staðið undir
ákveðnum
lágmarksrétt-
indum, en skulu
sameinast öðrum
sjóðum ella
viðkomandi sjóðs leggja fram tillög-
ur um breytingu á reglugerð ef
svigrúm er til að færa réttindi að
eignum og tekjum. Ef sjóðurinn
uppfyllir hins vegar ekki gjald-
hæfískröfur miðað við lágmarks-
réttindi ber stjórninni að leita sam-
komulags við annan lífeyrissjóð eða
sjóði um sameiningu. Ef stjóm
sjóðsins eða ársfundur sinnir ekki
skyldum sínum skal bankaeftirlitið
hlutast til um að gripið sé til viðhlít-
andi ráðstafana til að tryggja hags-
muni sjóðfélaga. Skal það að undan-
genginni áskorun til sjóðsstjómar
um úrbætur yfirtaka rekstur sjóðs-
ins og skipa honum skilanefnd.
Iðgjöld til lífeyrissjóða skulu
áfram nema 10% af öllum launa-
tekjum -*starfsmanna, 16-70 ára,
hveiju nafni sem þau nefnast. Skýr
ákvæði um innheimtu liggja fyrir
og skal senda sjóðfélögum yfírlit
a.m.k. tvisvar á ári yfír greidd ið-
gjöld þeirra vegna. Þá skal stjóm
lífeyrissjóðs boða til ársfundar
sjóðsins fyrir júnílok ár hvert sem
hefur æðsta vald í málefnum lífeyr-
issjóðsins. Allir sjóðfélagar, jafnt
greiðandi sem lífeyrisþegar eiga
rétt til fundarsetu með málfrelsi og
tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð fer
hins vegar með atkvæði á fund-
inum. Lífeyrissjóðir skulu ennfrem-
ur birta í dagblöðum helstu niður-
stöður úr rekstri sínum einu sinni
á ári.
Strangar reglur um stjórnar-
setu í fyrirtækjum
ítarlegar reglur hafa verið samd-
ar um störf og skyldur stjórnenda
lífeyrissjóðanna. Gert er ráð fyrir
að stjórnarformaður og fram-
kvæmdastjóri lífeyrissjóðs skuli
ekki sitja í stjórnum atvinnufyrir-
tækja í umboði hans, Þetta gildir
þó ekki um fyrirtæki sem stofnuð
em til'að sinna sérstökum þáttum
í starfsemi sjóðsins né heldur
áhættufjármagnsfyrirtækjum sem
sjóður á hlut í.
Stjórn lífeyrissjóðs er skylt að
ávaxta féð með hliðsjón af þeim
kjömm sem best eru boðin á hverj-
um tíma, að teknu tilliti til áhættu
og með hliðsjón af langtímaskuld-
bindingum sjóðsins. Heimilt verður
að fjárfesta í ýmsum traustum
skuldabréfum en hlutabréfaeign
getur að hámarki orðið 50% af eig-
in fé sjóðsins og skulu a.m.k. 85%
fjármuna sem bundnir eru í hlutafé
vera í félögum á Verðbréfaþingi
Islands. Þá er einnig heimilt að fjár-
festa í erlendum verðbréfum enda
séu þau skráð á opinberum verð-
bréfaþingum.