Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MESSUR MINNINGAR ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14 með þátt- töku Arnfirðingafélagsins í Reykja- vík. Sr. Jakob A. Hjálmarsson préd- ikar. Kaffi eftir messu. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjön- usta kl. 11. Foreldrar hvattir til þátt- töku með börnunum. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ingólfur Guðmundsson messar. Ræðuefni: „Vakið, hús- bóndinn kemur". Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Skírn. Prestur sr. Hjalti Guðmundsson. Organleikari Marteinn H. Friðriks- son. Dómkórinn syngur. Barnastarf í safnaðarheimilinu á sama tíma og í Vesturbæjarskóla kl. 13. Guðs- þjónusta kl. 14. Prestur sr. María Ágústsdóttir. Kór Menntaskólans í Reykjavík syngur. Stjórnandi og organleikari Marteinn H. Friðriks- son. Ungmenni flytja bænir. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón- usta sunnudag kl. 10. Sr. GylfiJóns- son. Einsöngur Guðmundur Gísla- son. Organisti Kjartan Ólafsson. GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Messa kl. 14. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Organisti Árni Arinbjarnarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðsluer- indi kl. 10. Af hverju lét Guð slysið verða? Um Guð og þjáninguna. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Barnasam- koma og messa kl. 11. Organisti Hörður Askelsson. Sr. Ragnar Fjal- ar Lárusson. Ensk messa kl. 14. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Kaffiveit- ingar á eftir. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. HÁTEIGSKIRKJA: Kl. 11. Barna- guðsþjónusta. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Messa kl. 14. Org- anisti Pavel Manasek. Sr. Tómas Sveinsson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Messa kl. 11. Sr. Sigurður Sigurðarson prédikar og þjónar ásamt sóknarpresti, sr. Flóka Kristinssyni. Organisti Jón Stefánsson, Kór Langholtskirkju (hópur III) syngur. Barnastarf á sama tíma. Kaffisopi eftir messu. LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Væntanleg fermingar- börn aðstoða. Barnastarf á sama tíma. Félagar úr Kór Laugarnes- kirkju syngja. Organisti Gunnar Gunnarsson. Kvöidguðsþjónusta kl. 20.30. Lífleg tónlist, einfalt form. Kór Laugarneskirkju syngur. Leikið á píanó, gítar, bassa og trommur. Ólafur Jóhannsson. NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Húsið opnað kl. 10. Föndur o.fl. Munið kirkjubílinn. Guðsþjónusta ki. 14. Sr. Halldór Reynisson SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Organisti Vera Gulasciova. Barnastarf á sama tíma í umsjá Elínborgar Sturludóttur ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organleikari Sigrún Steingríms- dóttir. Guðsþjónusta kl. 20 á vegum Æskulýðsfélags Árbæjarkirkju með rokk- og poppívafi. Prestarnir. BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta á sama tíma. Samkoma Ungs fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík Flautuskólinn í dag, laugardag, Kl. 11:00 í Safnaðarheimilinu. Síðasta sunnudag kirkjuársins guðsþjónusta kl 14:00. Þriðjudag kl. 16:00. Kátír krakkar i Safnaðarheimilinu. Starf fyrir 8-12 ára. íé Guðspjall dagsins: Dýrð Krists. (Matt. 17.) DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Altarisganga. Organisti Smári Óla- son. Sunnudagaskóli á sama tíma. Gunnar Sigurjónsson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. Prestur sr. Guð- mundur Karl Ágústsson. Organisti Lenka Mátéová. Barnaguðsþjón- usta á sama tíma í umsjá Ragnars Schram. Prestarnir. GRAFARVOGSKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11 í kirkjunni og 12.30 í Rimaskóla. Guðsþjónusta kl. 14. Ferming: fermdur verður Svavar Örn Eysteinsson, Vesturfold 36. Organisti Ágúst Ármann. Guðs- þjónusta á hjúkrunarheimilinu Eir kl. 16. Prestarnir. HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Alt- arisganga. Organisti Oddný J. Þor- steinsdóttir. Vænst er þátttöku fermingarbarna. Barnaguðsþjón- usta kl. 13. Bryndís Malla Elídóttir. KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Altarisganga. Organisti Örn Falkner. Ægir Fr. Sig- urgeirsson. SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Farið í heimsókn í Bústaða- kirkju. Bíll frá Seljakirkju kl. 10.50. Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Barnakórinn og kirkjukórinn syngja. Guðsþjón- ustunni verður utvarpað. Guðsþjón- usta kl. 14. Sr. Irma Sjöfn Óskars- dóttir prédikar. Altarisganga. Org- anisti Kjartan Sigurjónsson. Sóknarprestur. FRÍKIRKJAN, Rvík: Flautuskólinn í safnaðarheimilinu í dag kl. 11. Guðsþjónusta sunnudag kl. 14. Organisti Pavel Smid. Cecil Har- aldsson. KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há- messa kl. 10.30. Messa kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugardaga messa kl. 14. Aðra rúmhelga daga messur kl. 8 og kl. 18. KFUM og KFUK, v/Holtaveg: Sam- koma á morgun kl. 17. Ræðumaður Ragnar Gunnarsson. Barnasamver- ur á sama tíma. Léttar veitingar seldar að lokinni samkomu. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa kl. 11 á sunnudögum. JÓSEPSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga er messa kl. 18. HVfTASUNNUKIRKJAN Ffladelfia: Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðu- maður Hafliði Kristinsson. Allir hjartanlega velkomnir. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Messa kl. 14. Barnastarf á sama tíma. Kaffi og maul eftir messu. HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálpræð- issamkoma sunnudag kl. 20. Reid- un og Káre Morken stjórna og tala. MOSFELLSPRESTAKALL: Guðs- þjónusta í Lágafellskirkju kl. 14. Barnastarf í safnaðarheimilinu kl. 11. Bíll frá Mosfellsleið fer venjuleg- an hring. Jón Þorsteinsson. BRAUTARHOLTSKIRKJA, Kjalar- nesi: Barnaguðsþjónusta í kirkjunni sunnudag kl. 11. Sigurður Grétar Sigurðsson kemur í heimsókn með gítarinn. Brúðuleikhús. Öll börn vel- komin og einnig foreldrar þeirra. Gunnar Kristjánsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu- dagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Ólaf- ur W. Finnsson. Safnaðarheimilið Strandberg opið eftir guðsþjón- ustu. Gunnþór Ingason. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Lárus Halldórsson messar. Sigurð- ur Helgi Guðmundsson. FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna- samkoma kl. 11. Einar Eyjólfsson. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Þýsk messa kl. 10. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga messa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Messa sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl. 8. Allir velkomnir. INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 13. Baldur Rafn Sigurðsson. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Fjöl- skylduguðsþjónusta sunnudag kl. 11. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Steinars Guðmundssonar. Fólk er hvatt til að mæta og taka þátt í sunnudagshelginni í kirkjunni. Sunnudagaskóli kl. 11. Baldur Rafn Sigurðsson. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga- skóli kl. 11. Nýja og gamla hjartað. Munið skólabílinn. Guðsþjónusta á Hlévangi kl. 10.15. Messa kl. 14. Prestur Ólafur Oddur Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti Einar Örn Einarsson. Prestarnir. KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík: Messa kl. 14. HVALSNESKIRKJA: Messa sunnu- dag kl. 14. Arngrímur Jónsson. HVERAGERÐISKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Fundur með fermingarbörnum og foreldrum kl. 16. Sóknarprestur. SELFOSSKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Messa sunnudag kl. 14. Sóknarprestur. EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Svein- björn Einarsson prédikar. Altaris- ganga. Úlfar Guðmundsson. STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA, Hvols- velli: Kirkjuskóli laugardag kl. 11. Sigurður Jónsson. ODDAKIRKJA, Rangárvöllum: Sunnudagaskóli í grunnskólanum á Hellu sunnudag kl. 11. Messa í Oddakirkju kl. 14. Skálholtskórinn, ásamt Hilmari Erni Agnarssyni org- anista í Skálholti, kemur í heimsókn og tekur þátt í messunni með heimafólki. Kirkjukaffi í safnaðar- heimilinu að loknu embætti. Sigurð- ur Jónsson. VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta og surinudagaskóli kl. 11. Kirkjukór Vídalínskirkju syngur. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Bragi Frið- riksson. GARÐASÓKN: Biblíulestur í dag, laugardag kl. 13 í Kirkjuhvoli. KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli í dag, laugardag í Stóru-Vogaskóla kl. 11. Bjarni Þór Bjarnason. LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum: Sunnudagaskóli kl. 11. Almenn guðsþjónusta kl. 14. Altarisganga. Barnasamvera meðan á prédikun stendur. Messukaffi. AKRANESKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta í dag laugardag kl. 11. Stjórn- andi Sigurður Grétar Sigurðsson. Messa sunnudag kl. 14. Messa á Dvalarheimilinu Höfða kl. 12.45. Eðvarð Ingólfsson, guðfræðingur, prédikar við báðar guðsþjónusturn- ar. Björn Jónsson. BORGARPRESTAKALL: Barna- guðsþjónusta kl. 11.15. Messa kl. 14. Guðsþjónusta á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi kl. 15.30. Þorbjörn Hlynur Árnason. ÞÞ &co »>. M>RGRIMSSON &CO ÁRMÚLA 29 • I08 REYKJAVlK Sl'MAR 553 8640/568 6IOO,fax 588 8755. Klæðningin sem þolir íslenska veðráttu , Leitið tilboða AVALLT TIL A LAGER GYÐA GUNNARSDÓTTIR + Gyða Gunnars- dóttír var fædd í Borgarnesi 26. jan- úar 1944. Hún lést á Landspítalanum 18. nóvember síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Sigur- ást Sigurðardóttir, f. 25.10. 1915, d. 16.12. 1994, og Gunnar Jónsson, f. 25.3. 1909, d. 16.4. 1976. Hálfbróðir hennar er Júlíus Heiðar. Gyða giftist Hilm- ari L. Sveinssyni 18. mars 1972. Bjuggu þau á Tryggvagötu 14b á Selfossi. Börn þeirra eru Sól- veig Arndís, f. 21.1. 1973, og Elías, f. 26.10.1980. Aður átti Gyða jtvö börn með Ólafi Ög- mundssyni: 1) Þröstur, f. 16.1. 1962, sem kvæntur er Guðbjörgu Drengsdóttur og eiga þau eina dótt- ur, Gyðu Kolbrúnu, f. 24. 10. 1994. 2) Ásta María, f. 5.8. 1963, d. 18.3. 1990. Sólveig á dótturina Ástu Maríu Guð- mundsdóttur, f. 23. mars 1992. Útför Gyðu fer fram frá Sel- fosskirkju laugardaginn 25. nóvember og hefst athöfnin klukkan 13.30. „ÞVÍ AÐ hvað er það að deyja annað en standa nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið? Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og leitað ófjötr- aður á fund guðs síns.“ (Kahlil Gibr- an) Við kveðjum í dag með trega í hjrata elskulega mágkonu og vin- konu Gyðu, nokkuð sem okkur hefði ekki órað fyrir í vor er hún var með okkur í fermingarveislu glöð og hress. En skjótt skipast veður í lofti, í maí fékk hún hinar þungbæru frétt- ir að hún væri haldin illvígum sjúk- dómi og þrátt fyrir mikla bjartsýni og kjark varð hún að lúta í lægra haldi. Hugurinn reikar aftur til þess tíma þegar við sáum Gyðu fyrst. Það var á fögrum sumardegi er hún kom til okkar í heimsókn með Hilm- ari verðandi eiginmanni sínum. Það sem er minnisstæðast frá þessum degi er það hve fljót hún var að laða litla, feimna tveggja ára telpu að sér og fá hana upp í faðminn. En þannig var Gyða, hún hafði gaman af börnum og tók þeim allt- af opnum örmum. Á kveðjustund viljum við sérstak- lega þakka hve hún var alltaf hlý og góð dætrum okkar tveim. Hún talaði oft um það að hún ætlaði að koma í fermingarveislu Einars barnabarns okkar að vori. En þegar Einar litli frétti að hún væri dáin sagði hann aðeins: „En hún verður með okkur samt.“ Gyða og Hilmar bjuggu allan sinn búskap á Tryggvagötunni á Sel- fossi, en Gyðu fannst sérstaklega gott að eiga heima á Selfossi og vildi hvergi annars staðar vera, enda átti hún þar góða vini og granna eins og annarstaðar þar sem leið hennar lá. Gyða varð fyrir þeirri sáru sorg að missa dóttur sína Ástu Maríu mjög skyndilega árið 1990 aðeins 27 ára að aldri. En það var kominn nýr'gleðigjafi í íjölskylduna, önnur Ásta María, dóttir Sólveigar, sem nú er þriggja ára gömul og skilur ekki alveg hvað orðið er af ömmu sem alltaf var henni svo góð. Kvöld- ið sem Gyða dó sagði hún við okk- ur: „Amma er dáin.“ En daginn eft- ir er aftur var haldið niður á spítala til að sækja dánarvottorð spurði hún: „Er amma núna ekki dáin?“ Síðustu misseri hafa verið fjöl- skyldunni erfið. Við höfum öll fylgst með baráttu Gyðu milli vonar og ótta. Öll dáðumst við að henni fyrir þann andlega styrk er hún sýndi og alltaf gaf hún af bjartsýni sinni og uppörvaði þá er að sjúkrabeði hennar komu, en þeir voru margir því Gyða var vinamörg, enda kona sem hafði góða nærveru og laðaði fólk að sér. Hún var ákveðin og þorði að segja nei þegar það átti við, en átti stórt hjarta og börnin hennar bera vitni góðu uppeldi, en þau hafa sýnt æðruleysi og stillingu á þessum erfiðu dögum. Einnig hefur hugur okkar dvalið hjá Hilmari eiginmanninum sem var við sjúkrabeð hennar nótt sem dag síðustu vikurnar. En Gyða dó sátt. Hún sagði við Hilmar: „Við skulum fyrirgefa þeim sem við höfum ekki verið sátt við.“ Og svo kvaddi hún og við trúum að ástvinir hennar sem farnir eru hafí beðið hennar við landamærin með opinn faðminn. Elín dóttir okkar er dvelur á ítal- íu og getur ekki fylgt henni hinsta spölinn biður fyrir sérstakar kveðjur og þakkir fyrir öll hlýju faðmlögin og alla dagana er hún gætti hennar lítillar telpu. Elsku Hilmar, Þröstur, Sólveig, Elli og þið öll, megi minningin um góða konu og móður lýsa ykkur fram á veginn. Gunnlaug og Sigurður. Mig langar að minnast elskulegr- ar vinkonu minnar sem lést 18. þessa mánaðar, langt um aldur fram, aðeins 51 árs að aldri. Við Gyða kunntumst fyrir um það bil 18 árum þegar við unnum saman í Sláturfélagi Suðurlands í Þórshús- inu sem þá hét. Þar voru fullunnar vambir og garnir. Við Gyða unnum í vömbunum. Þarna var mikið að gera á haustin og margt fólk í vinnu og oft mikið fjör. Gyða var afskap- Iega fljót að kynnast fólki, var opin og einlæg, hress og glöð, það var eisn og allir löðuðust að henni. Við urum fljótt góðar vinkonur. Ég get séð Gyðu fyrir mér þar sem hún sat innan um hóp af hvítklæddum konum, þar sem hún er að segja einhverja skemmtilega sögu eða bara eitthvert smáatvik sem hafði hent hana og henni fannst spaugi- legt. Með glettnislegt blik í augun- um, síðan kom prakkaralegt bros og dillandi smitandi hlátur sem endaði oft með því að tárin streymdu niður kinnarnar. Já, hún hreif alla með sér þar til allur hópur- inn var farinn að gráta úr hlátri, enda vildu allir vera sem næst henni til að missa ekki af neinu. Gyða gat líka svarað vel fyrir sig ef henni fannst á sig hallað eða sér misboð- ið og sagði þá óhrædd meiningu sína, enda sat hún sjaldan uppi með innibyrgða reiði. Það er best að gusa út úr sér, var hún vön að segja. Þarna unnum við saman í þrjú ár en ég hætti en Gyða hélt áfram í mörg ár. Við héldum kuningsskap áfram og áttum okkar yngstu börn með fimm mánaða millibili og síðar áttum við barnabörn á líkum aldri. Já, oft lenti ég inni hjá Gyðu þegar ég fór út að ganga og var þá stund- um lengur en til stóð því margt höfðum við að spjalla. Gyða var raunsæ og ráðagóð og sá alltaf björtu hliðarnar á lífinu. Hún hafði þann eiginleika að geta sætt sig við það sem ekki fæst breytt. Þessi eiginleiki kom best í ljós er hún missti Ástu Maríu dóttur sína að- eins 26 ára gamla. Ásta María varð bráðkvödd í mars árið 1990. Þá kom erfiður tími hjá Gyðu minni, eins og hjá öllum þeim er missa börnin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.