Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 49
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Æi, ég datt
bara í það!!!
Frá Hreiðarí Erni Stefánssyni:
FYRIR fjórum árum kynntist ég
ungum dreng í Reykjavík. Hann
var vinafár enda nýfluttur úr
smábæ til Reykjavíkur. í bænum
þar sem hann átti áður heima var
unglingahópurinn mjög samstillt-
ur og gerði marga skemmtilega
hluti saman. Þegar hann svo kom
í skólann þá varð hann strax út-
undan vegna þess að hann var
töluvert á undan öðrum jafnöld-
rum sínum í námi. Til að nálgast
þessa nýju skólafélaga sína ákvað
hann að fara niðrí bæ og vera þar
sem þeir voru um helgar. Það
endaði með því að hann byrjaði
að drekka 14 ára gamall. Foreldr-
ar hans höfðu þá skoðun að allir
unglingar væru svona og því væri
ekkert athugavert við það að
þeirra sonur drykki eins og hinir.
Þegar drengurinn sá að með því
að vera fullur fékk hann athygli
nýju félaganna þá hélt hann áfram
að drekka og eftir stuttan tíma
var hann drukkinn 2-3 kvöld í
viku. Mánuðir liðu og sumarið
kom. Þegar ég hitti hann eftir
Æ\
sumarfrí og
skólinn hófst
aftur var þar
allt annar
drengur en ég
hafði kynnst
fyrst þegar
hann kom til
Reykjavíkur.
Hann var ör
og ofbeldis-
hneigður og vildi helst ekki við
mig tala. Námsárangur hans var
nú enginn. Hann hætti að mæta
í skólann. Einn daginn var hringt
í mig, á hinum enda línunnar var
móðir drengsins. Hún hafði miklar
áhyggjur af drengnum og bað mig
um að heimsækja hann því núna
væri hann í haldi hjá lögreglunni
vegna gruns um þjófnað og sölu
á fíkniefnum. í dag er þessi ungi
maður í haldi og verður það í nokk-
urn tíma í viðbót. Hvort hann fari
út af þessari braut sem hann villt-
ist inná veit ég ekki en það er von
mín og bæn að svo sé. Saga þessa
drengs segir okkur að við eigum
ekki að halda það að það sé í lagi
fyrir unglingana okkar að drekka
vegna þess að aðrir unglingar
drekki.
Æi, ég datt bara í það
Þessi orð hef ég heyrt svo oft
hjá unglingum bæði hér í Eyjum
og í Reykjavík, þegar maður hefur
spurt hvað þau hafi gert um helg-
ina.
Það sem liggur að baki orða er
sú löngun unglinganna að eignast
vini. Það er því miður enginn stað-
ur þar sem unglingarnir geta ver-
ið á öllum fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöldum, þar
sem þau geta hlustað á tónlist,
dansað eftir henni eða bara rætt
saman um eigin vandamál og til-
finningar. Það að unglingar telja
að til þess að eignast vini þurfi
þau að fara út á götumar með
eina eða fleiri flöskur af áfengum
drykk til að falla inn í hópinn, er
kannski okkur sem eldri erum að
kenna. Það að hrynja í það, eins
og ég kalla það, er ekkert spenn-
andi í mínum augum. Best er að
fara út með öll skilningarvitin í
lagi þá fyrst getur maður skemmt
sér.
Við vitum flest hvernig það er
að drekka og hvernig fólki líður
þegar vínið deyfir huga og líkama.
I 23. kafla í Orðskviðunum eru
þessi orð:
Hver æjar? hver veinar? hver á í
deilum? hver kvartar? hver fær sár
að þarflausu? hver rauð augu?
Þeir sem sitja við vín fram á næt-
ur, þeir sem koma saman til að
bergja á krydduðum drykkjum.
Horf þú ekki á vínið, hve rautt
það er, hversu það glóir í bikarnum
og rennur ljúflega niður. Að síð-
ustu bítur það sem höggormur og
spýtir eitri sem naðra. Augu þín
sjá kynlega hluti, og hjarta þitt
mun mæla fláræði. Og þú munt
vera eins og sá, sem liggur úti í
miðju hafi, já, eins og sá er liggur
efst upp á siglutré. „Þeir hafa sleg-
ið mig, ég kenndi ekkert til. Þeir
hafa barið mig, ég varð þess ekki
var. Hvenær mun ég vakna? Ég
vil meira vín!“
Tvær spurningar til þín uppald-
andi góður. Drekkur þitt barn?
Er það í lagi vegna þess að hinir
drekka? Samþykkjum ekki svona
hluti bara vegna þess að náunginn
gerír það. Sýnum fordæmi og
kaupum ekki vín fyrír unglinga
og stuðium með því að bættri
u nglingam enn ingu.
HREIÐAR ÖRN STEFÁNSSON,
æskulýðsfulltrúi Landakirkju.
- kjarni málsins!
Einu
sinni var
bið
Frá Höskuldi Jónssyni:
ÁTVR hefur sætt harðri gagnrýni í
Morgunblaðinu fyrir biðraðir við vín-
búðir síðdegis á föstudögum. Á und-
anförnum árum hefur margt verið
gert til að draga úr örtröð og stytta
biðraðir. Þannig hafa 7 stórar kjör-
búðir á Reykjavíkursvæðinu komið í
stað þriggja verslana þar sem af-
greitt var yfir borð, kössum í verslun-
um hefur fjölgað og afgreiðslutími
lengdur. Þessa hefur þó lítt verið
getið en áfram klifað á slæmri þjón-
ustu.
Þegar ákveðið var að opna 3 búð-
ir ÁTVR á laugardögum þótti rétt,
áður en breytingin kæmi til fram-
kvæmda, að mæla raunverulegt
ástand í verslunum ÁTVR. Verkefni
þetta var falið Verkfræðistofu Stef-
áns Ólafssonar en rekstrarráðgjafar
þeirrar stofu hafa sinnt slíkum tíma-
mælingum. Föstudagurinn 3. nóvem-
ber var valinn þar sem líklegt þótti
að hann yrði söluhæstur daga í þeim
mánuði.
ÁTVR setti sér það markmið á sl.
ári að bið við kassa yrði ekki lengri
en 8 mínútur með fyrirvara um
ástand á síðasta degi fyrir stórhátíð-
ir.
Niðurstaða mælinga var þessi:
Biðtími í mínútum
kl. 17-18
Útsala Medaltal Hámark
Holtagarðar 1,3 3,1
Hafnarfjörður 1,3 4,1
Stuðlaháls 1,1 3,6
Austurstræti 2,0 5,4
Mjódd 2,0 5,5
Eiðistorg 2,1 6,1
Akureyri 1,8 6,4
Kringlan 5,6 13,5
Allar verslanirnar voru vel innan
8 mínútna marksins nema Vínbúðin
í Kringlunni. Frá kl. 17.30 tii kl. 18
varð hámarksbiðtíminn utan marka
þótt meðalbiðtími væri nærri lagi.
Skýring afgreiðslufólks ÁTVR á
þessari töf var að línur sem nota
verður við móttöku debetkorta væru
ofsetnar. Úr þeim vanda var leyst
strax eftir helgina.
HÖSKULDUR JÖNSSON,
Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins.
.........-
RIÖJRÍÖ
30ARA
Fjölskyldutönleikar í Iþröttahúsi HK
laugardaginn 25. növember 1995 kl. 17:00
Með Ríó koma fram:
Skólahljómsveit Kópavogs yngri deild
Kór Kársnesskóla • Karnivala
Hljómsveitin Saga Class • Szymon Kuran fiðluleikari
Reynir Jónasson harmonikuleikari
Björn Thoroddsen gítarleikari /
Forsala aðgöngumiða í Bóka- og ritfangaversluninni VEDU og í Iþróttahúsi HK. Verð kr. 500.-I
G.BEN .£Ua
PRENTSTOFA HF.
AF ÞESSUM TONLEIKUM MÁENGINN KÖPAVOGSBÚI MISSi
Gönguskór ^
Kuldaskór o
Verð frá 2.590
3 litir/stamur sóli
St. 25-34 Comfortex
Verð 3.990
Grænn/blár/rauður
St. 35-46
Verð frá 4.990
Blár/rauður
t>t. 35-46 Uomtortex
Verð frá 5.990
Grænn/brúnn
Opið:
LaugQrd. kl. 10-16,
sunnud. kl. 13-17.
D
Q_
c
SKÓUERSLUN
KÓPAU0GS
HAMRAB0RG 3 • SÍMi SS4 17S4
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorgiuu
•kjarni málsins!