Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 45 AFMÆLI ! I ÞÓRÐUR HALLDÓRSSON „MIKIL ósköp og skelfing getur hann Þórður verið lyginn,“ sögðu fínu frúrnar um ; afmælisbam dagsins. „Hann er svo ómerki- legur að hann skrökvar því meira að segja að draugur hafi kveðið vísu!“ Sér er nú hvað! Það er orðið hart í heimi þegar skálda- gáfan er stimpluð sem lygarnar tómar! Hvað kalla þá fínu frúrnar þjóðskáldin? Sjálfur hef ég marga stundina setið við fótskör í Þórðar frá Dagverðará og numið | þar slík býsn af þjóðlegum fræðum, heimspeki og skáldskap að ég hef vart haft við að trúa! Samt hefur aldrei hvarflað að mér að efast um sannleiksgildi eins né neins sem Þórður iætur frá sér fara - að því einu frátöldu að ég leyfi mér að efa stórlega að hann fari rétt með fæð- ingarár sitt. Stundum hefur læðst | að mér sá gmnur að hann hafi fitl- Íað við kirkjubækurnar og elt sig upp um ein 15 - 20 ár, svona til I að skerpa á trú fólks á gagnsemi ölkelduvatns og þjóðlegs feitmetis til heilsu og hreysti. En þeim ber víst saman í fæðingarárinu, honum og þjóðskránni, svo ég hlýt að trúa. Og níræðan skulum við kalla hann í dag, jafnvel þótt sá aldur sé með eindæmum þegar slíkur unglingur sem Þórður á í hlut. Kannski er | skýringin sú að undir Jökli er allt j með eindæmum og þar í sveitum eldast menn hægar en í öðrum hér- ' uðum þessa lands. Og undir Jökli er Þórður á heimavelli, þar er hann kóngur í sínu ríki, þekkir hverja þúfu og laut, hvert barð og bala. Og enginn hefur kynnst Snæfells- nesi sem ekki hefur fetað þar slóð- ir með Þórði frá Dagverðará, séð hvítan makkann ýfast í jökulsvalan- um og heyrt rödd sagnaþularins ( enduróma í tindum og hraunum. í ( félagsskap slíks förunautar breytir . landslagið um svip og Snæfellsnes verður mest ævintýraland á Jörðu hér, umvafið ljóma mannlífs, sagna og ljóða. „Lít ég þig, Jökull, í ljóma frá minningum fomum leiftra í tíbránni sagnir af afrekum horfnum kynslóðir deyja, koma aðrar og fara; klettar og hraundrangar þöglir í húminu i stara. ... segir Þórður í kunnu ljóði. I Kynslóðirnar hefur hann séð koma og fara - og sagnirnar þekkir hann, jafnt fornar sem nýjar. Allt frá Eyrbyggju og Bárðar sögu Snæfells- áss og fram til nýtísku íslendingasagna snæ- fellskra, um geimskip sem ekki lenti og ríka og lífsleiða höfuðborg- arbúa - í leit að ein- hveiju meiru en þeir hafa - sem koma vest- ur undir Jökul til höndla krafta Snæ- fellsássins með því að þegja í einum hópi. Þau brosa að slíku og þvílíku, Þórður og snæfellsku tófurnar, sem í sam- einingu hafa höndlað visku fjall- anna á háskóla Hreggnasa, Búr- fells og Knarrarkletta. Þar er sú menntastofnun í heimi hér sem hvað best innrætir nemendum sín- um jafnlyndi, hamingju og sálarró. Og Þórður hefur lagt ríka rækt við það námið. Um heiðar, fjöll og hraun hafa spor hans legið í gegn- um áratugina,'enda er hann löngu genginn í jarðsamband við náttúru- öflin þar vestra og orðinn hluti þeirra. Þess er von að slíkur maður sé ekki einhamur, enda er Þórður ekki undir lögmál dauðlegra manna seldur. Hann er síðasti galdramað- urinn þar vestra, sjálfur Snæfellsás- inn, hertur í veðrum og vindi Ness- ins, ölduroki og brotsjóum hartnær þrjátíu vertíða, á tímum þegar hver maður var sinnar gæfu smiður og vökulögin rétt miðlungi heilög í vit- und útgerðarmanna. Við slík ævi- kjör var ekki nema tvennt til, að bogna og brotna - eða styrkjast og herðast við hveija raun. Og víst er að Þórður veit ekki hvað uppgjöf er. Styrk er hans hönd, fijór er hans hugur. „Streita" er orð sem ekki fínnst í hans orðabók og „ég skyldi hafa áhyggjur ef væri eitt- hvert gagn að því“, segir hann. Enda er sama hvenær hann er mæltur málum, á nóttu sem degi; aldrei er neitt að hjá Þórði. Hann hefur það manna best norðan Alpa- fjalla. Og ekki hefur hann það við að reiðast, því „reiðin tekur frá manni orku“. Jafnlyndið og kímnin eru löngu orðin eins konar vöru- merki hans og sprellarann Þórð þekkja margir. „Það er svo gaman að láta eins og helv ... fífl og koma fólki til að hlæja,“ segir hann. „Þá gleymir það sorg og sút og fer að þykja lífið bjart og skemmtilegt!" Fræðimanninn Þórð Halldórsson þekkja færri, rithöfundinn og heim- spekinginn - nú eða ljóðskáldið en á því sviði er hann liðtækur vel. Enn færri þekkja líklega hreysti- mennið sem brotist hefur marga ferðina yfir Fróðárheiði í aftakaveð- rum til að ná í lyf fyrir sjúka sveit- unga sína - eða þá valmennið sem gaf umkomulítilli fjölskyldu vertíð- arhlutinn sinn, þegar ekkert var til í kotinu til jólanna. í slíkum og þvílíkum verkum er líkast fólgin hvað sönnust mannlýsing sem unnt er að gefa. í tilefni afmælisins mun Þórður frá Dagverðará gleðjast með góðum í Sjálfstæðishúsinu að Hamraborg 1 í Kópavogi frá klukkan tuttugu í kvöld, 25. nóvember. Þá má ekki gleyma hinu að hann mun svipta tjöldum frá þrettándu málverkasýn- ingu sinni sem að þessu sinni verð- ur í Menningarstofnun Bandaríkj- anna að Laugavegi 26 í Reykjavík. Þar má sjá það nýjasta í list afmæl- isbarnsins næstu tvær vikurnar. Það lýsir listamanninum betur en mörg orð að á dögunum sló hann á þráðinn til mín og kvaðst vera búinn að mála nokkrar nýjar mynd- ir fyrir sýninguna. „Ég er að þreifa mig áfram með alveg nýjar aðferð- ir,“ sagði hann. „Annaðhvort slá þessar myndir í gegn og verða ómetanlegar í listasögunni, eða þær eru algert rusl og fara beint á haug- ana. Það kemur bara í ljós!“ Fátt er eðlilegra en að listmálarinn frá Dagverðará bijóti upp stíl sinn og form við níræðisaldurinn, enda ekki von að þessi andans unglingur sé búinn að ná fullum þroska! Enn er mótunar- og þroskaskeiðið fram- undan og vísast að list Þórðar muni hafa tekið stökkbreytingum á sýn- ingu sem hann fyrirhugar að slá upp á aldarafmælinu eftir áratug. Hljóti hann heill og hamingju í því sem öðru. Ég óska afmælisbami dagsins viðgangs og þroska, í lífi og list, í samtíð og framtíð. Sannlega þekki ég ekki aðra menn sem betur sanna boðskap litlu vísunnar sem hann sjálfur kenndi mér eitt sinn: Elli, þú ert ekki þung anda Guði kæmm göfug sál er alltaf ung undir silfurhærum. Jón B. Guðlaugsson. Þórður Halldórsson er frægur maður. Hann er frægur á íslandi og hann er frægur úti í löndum. Hann er frægur meðal manna og allir refir landsins þekkja hann, selir, fuglar, huldufólk og draugar. Þessi frægi maður er níræður í dag. Níræður öldungur sem stekkur hæð sína ef því er að skipta, þylur utanbókar allan kveðskap sem ortur hefur verið eftir landnám Ingólfs og tekst ennþá að hneyksla siðsama BRIPS llmsjón Arnór G. Ragnarsson Philip Morris - Landstvímenn- ingur BSÍ FÖSTUDAGINN 17. nóvember var spilaður Philip Morris og um leið Landstvímenningur í 4 riðlum í húsnæði BSÍ að Þönglabakka 1. 82 . pör tóku þátt. Spilaðar voru 9 um- ferðir með 3 spilum á milli para. 8 fyrstu umferðirnar giltu til árang- urs í Philip Morris tvímenningnum og bestum árangri náðu Magnús E. Magnússon og Baldur Bjart- marsson. Þeir fengu 1.659 stig, 69,13%, og náðu þeir ekki bara bestum árangri í N-S á landinu heldur voru með bestan heildarár- angur á Iandsvísu. Bestum árangri í A-V í Reykjavík náðu Erlendur Jónsson ogÞórður Björnsson, 1.461 stig, 60,88%. Annars urðu úrslit efstu para í Philip Morris tvímenn- ingnum sem hér segir: A-riðill: NS Aðalsteinn Jörgensen - Ásmundur Pálsson 60,75% Vignir Hauksson - Sveinn R. Þorvaldsson 58,50% Einar Guðmannsson - Helgi Kristjánsson 50,67% AV Erlendur Jónsson - Þórður Bjömsson 60,88% Björg Pétursdóttir - Júlíanna Isebam 60,42% Árni St. Sigurðsson - Sigurður Þorgeirsson 55,63% B-riðill: NS MaríaÁsmundsd. - Steindór Ingimundar. 66,17% Kristinn Karlsson - Halldór Þorvaldsson 57,58% Magnús Eymundsson - Skúli Einarsson 54,54% AV Snorri Karlsson - Karl Sigurhjartarson 56,54% Guðm. Sv. Hermannsson - Helgi Jóhanns Hermannsson 55,79% Kristinn Þórisson - Kristján Sigurðsson 52,79% C-riðill: NS Gylfi Baldursson - Símon Símonarson 65,88% Óskar Guðjónsson - Don Berman 62,00% Ragnar Hermannsson - Guðm. Pétursson 59,83% AV Magnús Aspelund - Steingrímur Jónasson 53,58% Garðar V. Jónsson - Þorgeir Ingólfsson 51,83% Bjöm Ámason - Rúnar Gunnarsson 50,83% D-riðill: NS Magnús E. Magnúss. - Baldur Bjartmarss. 69,13% Sigrún Steinsdóttir - Haukur Harðarson 58,92% Ólöf H. Þorsteinsd. - Þorsteinn Kristjáns. 57,08% AV Brynjar Jónsson - Rósm. Guðmundsson 55,88% Örn Friðgeirsson - Jón Guðmundsson 55,29% Rafn Thorarensen - Hafþór Kristjánsson 54,50% Einnig var reiknað út salarskor með Mitchell fyrirkomulagi. Bestum ár- angri þar náðu: A-riðill: NS Aðalsteinn Jörgensen - Ásmundur Pálsson 268 Vignir Hauksson - Sveinn R. Þorvaldsson 264 AV Bjöm Blöndal - Arngunnur Jónsdóttir 253 Björg Pétursdóttir - Júlianna Isebam 238 B-riðill: NS María Ásmundsd. - Steindór Ingimundarson 289 Magnús Eymundsson - Skúii Einarsson 259 AV SnorriKarlsson-KarlSigurhjartarson 257 Erla Ellertsdóttir - Hálfdán Hermannsson 236 C-riðill: NS Gylfi Baldursson - Símon Símonarson 293 Auðunn R. Guðmundss. - Ásmundur Ömóifs. 236 Ay BjömÁmason-RúnarGunnarsson 260 Magnús Aspelund - Steingrímur Jónasson 256 D-riðili: NS Magnús E. Magnússon - Baldur Bjartmarss. 288 Þóranna Pálsdóttir - Ragna Briem 253 AV Eiríkur Hjaltason — Hjalti Elíasson 248 Brynjar Jónsson - Rósmundur Guðmundss. 242 Bridsfélag Siglufjarðar Siglufjarðarmóti í hraðsveitakeppni lauk 6. nóvember. 9 sveitir tóku þátt í mótinu og varð röð efstu sveita þessi: Sveit Bræðragengisins 1432 Sveit Böðlanna 1410 SveitlngvarsJónssonar 1386 Sveit Kristrúnar Halldórsdóttur 1325 í sveit Bræðragengisins spiluðu borgara. Andlegur kraftlyftinga- maður. Ekki held ég að honum finn- ist aldurinn neitt sérlega hár, því eins og hann hefur sjálfur sagt: Fátt er hraustum manni um megn, magnaður lífsins galdur, ellina klár ég komst í gegn og kominn á besta aldur. Hreystimenni borða ekki majon- esblandað kaupstaðaglundur. Um það getur Þórður vitnað. Eftirlætis- drykkur Þórðar Halldórssonar er ölkelduvatn, sem að hans sögn býr yfír miklum lækningarmætti. Það er gott fyrir allt innvortis, hreinsar líkamann, skerpir minnið, auk þess að vera gott við kvefi og kynkulda. Eftirlætismatur hans er lúða, sem að sjálfsögðu er gáfaðasti fiskurinn í sjónum. Næringarríkasta kjötið er hins vegar, að hans mati, hrúta- kjöt og á hveiju hausti kaupir hann hrút, og auðvitað alspikaðan. Grað- kjötið segir hann ákaflega gott, það geri karlmannskrafturinn. Sem refaskytta hefur Þórður sveipað um sig goðsagnarkenndum dýrðar- ljóma og eru aðferðir hans til að vinna'greni víðfrægar. Vitað er að Þórður fór stundum og vakti upp drauga með óskaplegum særinga- þulum á golfrönsku, og notaði þá síðan til að reka til sín tófurnar. Mörgum er einnig minnisstætt hvernig Þórði tókst að leika á tóf- urnar og gera allar dömur í landinu bálillar um leið. Hann vissi sem var að tófan væri einungis hrædd við lykt af manni og hundi. Þess vegna brá hann eitt sinn á það ráð að stökkva á sig dýrindis Parísarilm- vatni. Með því náði hann að yfir- gnæfa mannaþefmn og gera jafn- framt tófurnar svo forvitnar að þær gleymdu allri varkárni. Það er ekki amalegt að þekkja mann eins og Þórð sem ekki er hræddur við nokk- urn hlut þótt komist hafi í hann krappan. Þórður hefur nefnilega sloppið lifandi úr hvers konar hremmingum, brotist yfir heiðar í aftakaveðri og fallið ofan í hyldjúp gil, slegist við drauga og fyrir mátt duldra krafta hefur hann komist undan þegar skip, sem hann var á, fórust. Eitt sinn ók hann fram af tvítugum hamri í þreifandi myrkri, og ekkert fyrir neðan nema eggjagijót og dauði. En hvað gerð- ist? Bíllinn staðnæmist í miðju falli, hægt og mjúklega, og er síðan lyft upp á brúnina, borinn nokkurn spöl og settur svo varlega niður á veginn! Þessi maður segist aldrei reiðast. „Það eru ekki nema vitleysingar sem reiðast," segir hann. „Lær- dómslausir vitleysingar. Maður á bara að hlæja að öllu saman.“ Þórð- ur Halldórsson, haltu áfram að hlæja og gangi þér allt að sólu! Þín vinkona, Valgerður Benediktsdóttir. Anton og Bogi Sigurbjörnssynir, Dag- ur og Sigurður Gunnarssynir, Valtýr Jónasson og Gottskálk Rögnvaldsson. Nú stendur jrfir Siglufjarðarmót í tvímenningi (barometer) með þátttöku 19 para. Eftir 8 umferðir af 19 er röð efstu para þessi: Jón Tr. Jökulsson—Ólafur Jónsson 60 SigfúsSteingrímsson-SigurðurHafliðason 59 IngvarJónsson-JónSigurbjömsson 57 BirgirBjömsson-ÞorsteinnJóhannesson 41 Sveit Ingvars Jónssonar spilaði við sveit Sverris Haraldssonar í 16 sveita úrslitum Bikarkeppni Norðurlands og vann með 28 stiga mun og er komin í 8 sveita úrslit. Sveitanneðlimir Ing- vars vilja sérstaklega þakka Sverri og hans félögum fyrir frábærar móttökur. Bridsfélag Fljótsdalshéraðs Lokið er Qórum kvöldum af sex í aðaltvímenningnum og er staða efstu para þessi: Siguijón Stefánsson/Þórarinn V. Sigurðsson - Stefán Kristmannsson 957 Hallgrímur Bergsson - Oddur Hannesson 948 GuttormurKristmannss. - Pálmi Kristmannss. 912 Kristján Björnsson/Þorvaldur Hjarðar - JónasJónsson 909 Sveinn Heijólfsson - Þorsteinn Bergsson 897 Meðalskor 840 Hæsta skor síðasta spilakvöld: Siguijón Stefánsson og Stefán Kristmannsson 250 Hallgrímur Bergsson - Oddur Hannesson 245 Sveinn Heijólfsson - Þorsteinn Bergsson 235 Spilað er á mánudagskvöldum í Valaskjálf kl. 20. FRETTIR Sjávarút- vegssýning skólanema SJÓMINJASAFNI íslands, Hafn- arfirði, verður opnuð sýning um íslenskan sjávarútveg í dag, laugardag. Nemendur Æfinga- skóla Kennaraháskóla íslands hafa að öllu leyti unnið sjálfir að sýning- unni. Sýningin stendur um þessa og næstu helgi, en safnið er opið laugardag og sunnudag frá kl. 13-17 og ennfremur eftir sam- komulagi. Á þessu haustmisseri hefur 9. bekkur Æfingaskólans unnið að ýmsum verkefnum tengdum sjávarútvegi. Sérstök áhersla var lögð á að nemendur kynntust mis- munandi störfum og starfsum- hverfi. Farið var í margs konar vettvangsferðir, fyrirtæki og stofn- anir heimsóttar, leitað upplýsinga hjá starfsfólki o.fl. Hafa nemendur unnið í hópum að einstökum verk- efnum undir stjórn Guðbjargar Pálsdóttur kennara. Reynt var að afla þekkingar á sem breiðustum grundvelli. Þannig var rætt við sérfræðinga á Haf- rannsóknarstofnun, á Rannsóknar- stofnun fiskiðnaðarins og í um- hverfisráðuneytinu, auk þess sem Fiskvinnsluskólinn í Hafnarfirði var sóttur heim. Farið var í físk- búðir, sjávarútvegsfyrirtæki, um borð í skip og í hafnarskoðun. Loks skal getið um kynnisferð á Akranes og gerð ferðasögu þar að lútandi. Af einstökum verkefnum má t.d. nefna lífið í sjónum, mengun, fisk- tegundir, veiðarfæri, fiskvinnslu, fiskútflutningi, líf sjómannsins, flutnings- og varðskip. Afrakstur þessarar vinnu birtist nú í formi veggspjalda, texta, ljós- mynda, leiktjalda o.fl., auk mynd- bands sem nemendur hafa unnið. ----» ♦ ♦---- Listiðnaðar- sýning í Kringlunni EINS OG FYRIR undanfarin jól er hópur listamanna með listiðn- aðarsýningu á fyrstu hæð í Kringl- unni. Sýningin stendur til sunnu- dagsins 26. nóvember. Listamenn- irnir. eru á staðnum og sýna verk sýn og vinnubrögð við listmuna- gerðina. Þátttakendur að þessu sinni eru Guðrún S. Svavarsdóttir er sýnir vatnslitamyndir, Helga Guðsteins- dóttir er með blómaskreytingar, Helga S. Ingólfsdóttir sýnir postul- ínskúlptúra, Margo Renner vinnur að glerlistmunum á staðnum og sýnir auk þess silfurskartgripi, Rannveig H. Hermannsdóttir sýnir postulín og Viktoría Pettypiece leirverur. Þá verður einnig sýndir renndir trémunir sem félagar úr Félagi trérennismiða hafa gert. Á sunnudaginn kl. 13-15 verður kynning á jóladagatali Sjónvarps- ins fyrir framan Pennann á ann- arri hæð í Kringlunni. Að undan- förnu hefur Kringlan verið að klæðast jólafötunum. Jólaskreyt- ingar eru komnar upp í göngugöt- um og hjá fyrirtækjum. Margar verslanir og veitingastaðir í Kringl- unni verða opin á sunnudag. ----» ♦ »---- ■ KVIKMYNDASÝNINGAR fyrir börn eru alla sunnudaga klukkan 14 í Norræna húsinu. Næsta sunnudag verðyr sýnd myndin „Lille Virgil og Orla Frösnapper". Myndin er gerð eft- ir sögu Ole Lund Kirkegaard. Myndin er með dönsku tali, tekur 84 mínútur í sýningu. Aðgangur er ókeypis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.