Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 9 FRÉTTIR BSRB vill veiðileyfa- gjald í sjávarútvegi BANDALAGSRÁÐSTEFNA BSRB samþykkti í gær ályktun um sjávarútvegsmál þar sem lagt er til að tekið verði upp veiðileyfa- gjald. Að mati BSRB hefur núver- andi fiskveiðistjórnkerfi ekki skil- að tilætluðum árangri. Bæta þurfi umgengni um auðlindina og gera þá kröfu til útgerðarinnar að öllum afla sé landað. „Núverandi fiskveiðistjórnunar- kerfi hefur ekki skilað tilætluðum árangri. Kvótinn hefur safnast á fáar hendur, umgengnin við auð- lindina er slæm, sóun í kerfinu er mikil og kerfið hefur stuðlað að því að útgerðarmenn eru farnir að líta á kvótann sem eign sína. Þar af leiðandi er kerfið lokað og engin endurnýjun á sér stað meðal útgerðaraðila. BSRB telur að sníða eigi gallana af fiskveiðistjórnuninni og breyta kerfinu þannig að ríkið taki gjald fyrir aflaheimildir. Kvótinn gengur nú þegar kaupum og sölum þann- ig að með þessu er ekki verið að íþyngja útgerðinni með auknum álögum. Taka verður tillit til nú- verandi handhafa kvóta og veita þeim aðlögunartíma að nýju og breyttu kerfí. Áhersla verði lögð á verndunarsjónarmið og sjálfbær nýting höfð í fyrirrúmi. Allur afli skal fara um innlenda fiskmark- aði, en með því fæst eðlileg verð- myndun á aflanum auk þess sem eftirlit verður skilvirkara. Stuðla þarf að því að fullvinnsla sjávaraf- urða aukist hér á landi,“ segir í ályktuninni. BSRB vill að íslenskur sjávarút- vegur sé áfram undir stjórn Islend- inga, en telur rétt að löggjöfin um erlenda eignaraðild verði endur- skoðuð þannig að óbein erlend aðild verði viðurkennd í lögum, enda sé slík eignaraðild þegar staðreynd. Dregið úr opinberri verðlagningu á búvörum Bandalagsráðstefnan sam- þykkti einnig ályktun um landbún- aðarmál, en í henni er hvatt til þess að dregið verði úr tengingu á milli byggðastefnu og sauðfjár- og mjólkurframleiðslu. Höggvið verði á framleiðslutengingu styrkja í landbúnaði. Gerð verði langtímaáætlun um stuðning í landbúnaðarframleiðslu þannig að framleiðendur viti hvað framtíðin beri í skauti sínu. BSRB vill einn- ig að endurskoðunarákvæði GATT-samkomulagsins verði nýtt þannig að tollvernd verði lækkuð í áföngum. Þá vill BSRB að lögum verði breytt þannig að öllurn opin- berum afskiptum af verðlagningu búvara, öðrum en kindakjöti og mjólk, verði hætt. í ályktun BSRB um fæðingaror- lof er krafist tveggja vikna fæð- ingarorlofs fyrir feður. Jafnframt er þess krafist að foreldrum ungra barna verði gert kleift að fara .tímabundið í hlutastarf óski þeir þess. Ráðstafnan samþykkti einn- ig að hvetja atvinnurekendur, bæði hjá hinu opinbera og á al- mennum markaði, að greiða ið- gjöld í sameiginlegan fæðingaror- lofssjóð. Sjóðurinn standi undir gi-eiðslum til foreldra í fæðingaror- lofi, en ekki viðkomandi atvinnu- rekandi beint. Hugbúnaðarkerfi Kögunar hf. tilbúið á síðari hluta næsta árs Hönnun og smíði loftvarna- kerfisins flutt til Islands íslenskum starfsmönnum fjölgað við verkefnið HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ Kögun hf. hefur flutt alla starfsemi sína frá Bandaríkjunum til íslands en fyrirtækið hefur undanfarin ár unnið að hönnun og uppbyggingu hugbúnaðarkerfís' fyrir íslenska loftvarnakerfíð, sem Hughes-flug- vélaverksmiðjumar eru að smíða fyrir Atlantshafsbandalagið og sett verður upp hér á landi. Aðalverktakinn Hughes Air- craft og Computer Science Corpor- ation, sem sér um fjarskiptahluta verksins, hafa einnig flutt starf- semi sína vegna smíði loftvarna- kerfisins til Islands og hefur ís- lenskum tæknimenntuðum starfs- mönnum verið fjölgað við þessi verkefni á kostnað útlendinga. 19 af 20 starfsmönnum Kögun- ÞÓRUNN Sveinbjömsdóttir, for- maður Sóknar, var kjörin formaður Sambands almennra lifeyrissjóða (SAL) á aðalfundi sambandsins í gær og tekur hún við af Gunnari J. Friðrikssyni. Þórunn hefur setið í fram- kvæmdastjórn SAL frá árinu 1986 og var fyrsta konan sem tók þar sæti á sínum tíma. Auk hennar voru kjörnir í fram- ar, sem hafa verið í Kaliforníu frá árinu 1990 vegna verkefnisins, eru komnir til Islands en einn starfs- maður varð eftir í Washington þar sem hann leitar nýrra verkefna fyrir Kögun, að sögn Gunnlaugs M. Sigmundssonar, framkvæmda- stjóra fyrirtækisins. Hugbúnaðurinn sem notaður verður í þetta nýja loftvarnakerfí hefur aldrei verið smíðaður áður. Verkið er nú þegar töluvert á eft- ir áætlun en gert er ráð fyrir að Kögun ljúki smíði hugbúnaðarins á síðari hluta næsta árs. Þá verður kerfíð tekið út og ætti að vera til- búið til gangsetningar um áramót- in 1996/97. Kögun hf. hefur einkaleyfí á viðhaldi og þróun hug- búnaðarins hér á landi. kvæmdastjórn- ina þeir Amar Sigurmundssson, varaformaður, Þórarinn V. Þór- arinsson, Hall- grímur Gunnars- son, Kári Amór Kárason og Guð- mundur Hilmárs- son. Samtals voru rúmlega 70 ís- lendingar, að meðtöldum fjölskyld- um starfsmanna Kögunar, í Kali- forníu vegna verkefnisins. „Við höfum lokað skrifstofunni sem við vorum með í Los Angeles en nú erum við að bæta við okkur fólki hér heima. Við ráðum aðallega véltæknimenn og fjölgum starfs- liðinu um tíu alls,“ segir Gunn- laugur. Samtals munu því 32 starfa hjá fyrirtækinu eftir áramót. Koma vel undirbúnir úr Háskóla íslands Upprunalega áætlunin gerði ráð fyrir að smíði hugbúnaðarkerfisins yrði lokið í ágúst 1994 en það er orðið mun stærra og viðameira en ráð var fyrir gert í upphafi og er komið i 650 til 700 þúsund forrita- línur, að sögn Gunnlaugs. íslenskir rafmagnsverkfræðing- ar, tölvunarfræðingar og stærð- fræðingar störfuðu við hönnun hugbúnaðarins og að gerð hermi- líkana fyrir loftvarnakerfið hjá Hughes verksmiðjunum á vegum Kögunar. Gunnlaugur sagði ánægjulegt að fylgjast með hversu vel undirbúnir og sérhæfðir þessir einstaklingar hefðu komið úr Há- skóla íslands. Sagði hann að þeir hefðu staðið sérfræðingum Hugh- es flugvélaverksmiðjanna fyllilega á sporði. MaxMara Glœsilegur vetrarfatnaður Ný sending Opið í dag frá kl.12—15 Mari Hverfisgötu 52-101 Reykjavík - s. 562-2862. Kjörin formaður SAL Næring og heilsa David Calvillo gefur viðskiptavinum góð ráð um vítamín og notkun lækningajurta laugardag og sunnudag Jólagjöfin ar i Hitateppi, hitadínur Verð frá Verð frá kr. 8.900 á meðan birgðir endast Hitapúðar við gigt og vöðvabólgu Verð frá kr. 2.961 Olíufylltir rafmagnsofnar^®k Eitt mesta úrval á landinu Síðumúla 19, sími 568-4911. Nýjar húsgagnasendingar Mikið úrval borðstofuhúsgagna á mjög hagstæðu verði, t.d. Ijós eik - lituð eik - beyki - svart - hvítt - krisuberjaviður o.fl. Mikið úrval af sófasettum og rókókóstólum frá de Angeli. Vönduð vara - hagstætt verð. Ath.: Ný sending af hjólaborðum o.fl. Opið í dag til kl. 16 - Sunnudag frá kl. 14-16. mrarannm HUSGAGNAVERSLUN Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.