Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 39 sín í blóma lífsins. En með góðra manna hjálp, vinnufélaga, vina og vandamanna komst hún furðufljótt yfir það versta. Lífið heldur áfram, sagði hún hægt og rólega. Gyða starfaði í ræstingum á Ljósheimum, dvalarheimili aldr- aðra hér á Selfossi, svo og í Sand- víkurskóla í fjöldamörg ár. Á Ljós- heimum féll henni afar vel. Að vera innan um gamla fólkið og hún gaf sér góðan tíma til að spjalla við það, fylgjast með heilsu þess og gaf frá sér birtu og yl, enda þótti fólkinu afar vænt um hana. Ég man sérstaklega eftir hve hún talaði oft um háaldraðan vistmann, sem hún kallaði alltaf vininn sinn eða Palla sinn og gáfu þau hvort öðru jólagjafir, svo náin voru þau orðin, en Páll lést fyrir ári. Gyða var mikill vinur og félagi barnanna sinna. Ósjaldan sáust þær mæðgur á gangi, Sólveig og Gyða með Ástu Maríu litlu, dóttur Sólveigar. Já, bæjarlífið verður snauðara er hún hættir að sjást á götum bæjarins. Gyða aðstoðaði Sólveigu mikið við uppeldi Ástu Maríu litlu. Þeim á eftir að bregða mikið við og sakna elskulegrar mömmu og ömmu, svo og Ella mínum. Síðastliðin misseri var Gyða oft slöpp, og ekki eins hress og henni var eiginlegt að vera, en engum datt þó í hug, síst henni sjálfri, að hún gengi með illkynja sjúkdóm sem drægi hana til dauða á fáeinum mánuðum, en Gyða greindist með krabbamein í maí síðastliðnum. Ég dáðist að þeim óhemju kjarki og dugnaði sem hún sýndi í veikind- um sínum. Hún trúði svo sterkt og einlæglega á bata að allir hrifust með. Hún talaði ekki um dauðann heldur hvað hún ætlaði að gera og fá sér þegar hún færi að hressast, og sló á létta strengi þótt hún lægi helsjúk. Þannig var Gyða. Nú er hún farin yfir móðuna miklu. Ég hugga mig við og er þess fullviss að þar hefur verið tek- ið vel á móti henni og að henni líði vel í faðmi horfínna ástvina. Elsku Gyða mín, ég þakka fyrir að hafa verið svo lánsöm að hafa kynnst þér, hafa átt með þér svo margar ánægjulegar stundir. Ég sakna þín mikið. Þakka þér fyrir allt og allt. Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum, það yrði margt, ef telja skyldi það. I lífsins bók það lifir samt í minnum, er letrað skýrt á eitthvert hennar blað. Ég fann í þínu heita stóra hjarta, þá helstu tryggð og vináttunnar ljós, er gerir jafnvel dimma daga bjarta, úr dufti lætur spretta lífsins rós. (Margrét Jónsdóttir) Elsku Hilmar, Sólveig, Elías, Ásta María, Þröstur, Guðbjörg og litla Gyða Kolbrún. Guð veri með ykkur og gefi ykkur styrk á erfíðum stundum. Gróa K. Bjarnadóttir. Við erum alltaf jafn orðlaus þeg- ar við stöndum frammi fyrir því að kveðja kæran vin sem kveður svo snemma; hvenær kallið kemur veit enginn. Við viljum geta hringt, hist og spjallað saman eins og venju- lega. Eitt er víst, þú ferð beint í ljósið því verkin þín bera ekki vitni um annað. Þetta líf er búið að vera strangur og gleðiríkur skóli. Við vorum um tíma í sama bekk í þess- um skóla, þetta líf er skóli fyrir okkur öll. Þegar ég kynntist þér þá unnum við hjá Sláturfélagi Suð- urlands. Þar var hress hópur og þar varst þú hrókur alls fagnaðar eins og venjulega. Þá eins og síðari ár hefur þú verið verkakona, þegið þín lágu laun fyrir mikla vinnu. Oft varstu þreytt. Á þessum launum gerir maður ekki stóra hluti. Þú ert búin að slíta marga kílómetra ef allt er reiknað í fermetrum og uppmælingu. ^rfidrykkfur frá kr. 590 pr. mann Sfmar: 551 1247 551 1440 MINIMINGAR Elsku Gyða mín, fátækleg orð til að minnast góðrar konu sem var öllum gleðigjafí. Við söknum þín öll héðan frá Selfossi, öllum þótti vænt um þig og fjölskyldu þína. Þú trúðir á annað líf og ég veit að þú verður nálægt okkur þó við sjáum þig ekki. Þú leiðir og verndar fjölskyldu þína og vini. Elsku Hilmar, Sólveig, Elías, Þröstur, Guðbjörg, Ásta María og litla Gyða, skarðið er stórt en Guð veri með ykkur alla daga, styrki ykkur og styðji. Ó, faðir gjör mig lítið ljós um lífs míns stutta skeið til hjálpar hveijum hal og drós sem hefur villst af leið. (Matthías Joch.) Signrbjörg Eyjólfsdóttir. Elsku vinkona. Nú ertu farin eft- Ir allar þjáningarnar, hetjan stóra. Alltaf jafndugleg og gafst öllum kjark og von sem komu til þín. Þú elskaðir lífíð og neitaðir að gefast upp. Ég þakka fyrir að hafa verið hjá þér þegar þú kvaddir þennan heim og fórst inn í ljósið sem beið þín; fyrir vináttu þína og tryggð. Nú líður þér vel og ég veit að Hilm- ar, börnin þín, bamabörnin og tengdadóttir þín muna þig eins og þú varst, þitt góða skap og hlýjuna sem streymdi frá þér. Þín elskulega fjölskylda stóð eins og klettur við hlið þér í gegnum þetta allt. Þau misstu aldrei vonina frekar en þú. Að leiðarlokum, Guð varðveiti þig um alla eilífð, Gyða mín. Ég kveð þig kæra vinkona með þessurn fal- legu erindum: Ó, íeyf mér þig að leiða til landsins fyallaheiða með sælusumrin löng, þar angar blómabreiða við blíðan fuglasöng. Þar aðeins yndi fann ég, þar aðeins við mig kann ég, þar batt mig tryggðarband því þar er allt sem ann ég, þar er mitt draumaland. (Jón Trausti.) María Guðmundsdóttir. Það er alveg einkennilegt hve maður verður alltaf vanmáttugur og orðvana þegar einhver manni kær kveður þetta jarðneska líf. Dauðinn kemur manni alltaf í opna skjöldu og eftir stöndum við hnípin og sorgmædd. Svo er um hana Gyðu, hún Gyða sem alltaf var svo hress í anda og miðlaði okkur hinum svo miklu. Gyða var einhver elskulegasta kona sem ég hef kynnst. Þegar komið var heim á Tryggvagötu 14b var maður alltaf umvafinn kærleika og ástúð hennar og alltaf var maður jafnvelkominn. Alltaf átti Gyða létta lund og hlátur og var alltaf svo innilega hreinskilin. Ég kynntist Gyðu fyrst þegar ég var dagmamma á Selfossi og var með Elías son hennar í pössun. Þá skynjaði ég strax að þarna fór ákaf- lega heilsteypt kona, kona með áræði og kjark. Seinna meir þegar Guðmundur sonur minn og Sólveig dóttir henn- ar eignuðust saman hana Ástu Maríu bundumst við enn traustari böndum sem ekki slitnuðu þótt börnin okkar hafi ekki borið gæfu til að halda áfram að vera saman. Það skyggði ekkert á okkar vin- skap, síður en svo, og ef eitthvað var þá var maður bara meira vel- kominn. Hún litla Ásta María okkar átti líka sinn stóra þátt í því, hún var augasteinninn hennar ömmu sinnar á Tryggvagötunni. Að sjálf- sögðu kom umönnun hennar meira við Gyðu því þær mæðgur, Sólveig og Ásta María, héldu meira og minna til þar heima. Síðasta skiptið sem ég kom til Gyðu var í Sjúkrahúsið á Selfossi, þegar hún, orðin mikið veik, tók á móti okkur Guðmundi með opinn faðminn eins og alltaf áður. Þá eins og alltaf fyrr var hún með glettin tilsvör. Það sást best á því, þennan stutta tíma sem við dvöld- um þama við rúmið hennar, hversu vinsæl hún var, því alltaf var ein- hver að koma í gættina til að kasta kveðju á Gyðu og vita hvemig líð- anin væri hjá henni. Öllum tók Gyða opnum örmum. Þótt hún væri greinilega orðin fársjúk átti hún til gamanyrði sem fyrr. Þá kom það mér virkilega á óvart er hún fór að spyija mig hvort ég hefði fengið kleinupottinn sem ég hafði auglýst eftir og þegar hún vissi að ég hefði ekki fengið neinn þá mátti hún til að láta mig fá pottinn sinn sem hún eignaðist eftir móður sína. Annað kom ekki til mála en að hún gæfi mér hann. Ég gleymdi þá að þakka henni Gyðu fyrir en ég þykist þess fullviss að hún myndi bara hlæja að gleymskunni í mér. Þessi kveðjuorð áttu að vera fleiri. En mér er orða vant og ég er ekki viss um að hún Gyða hefði kært sig um einhveija langloku, en hennar verður alltaf minnst í huga. okkar. Elsku Ásta María, þú hefur misst góða og kærleiksríka ömmu. Sól- veig, Elías, Hilmar og þið öll. Megi algóður guð gefa ykkur styrk og kraft á erfiðri stundu. Ég kveð hana Gyðu, mína kæru vinkonu, með þakklæti og hlýju og þakka fyrir samfylgdina. Blessuð veri minning hennar. Sæunn Sigurlaugsdóttir. + Ástkær dóttir okkar, systir og frænka, JÓHANNA BJÖRGÓLFSDÓTTIR, Heiðarbraut 5c, Keflavík, lést 21. nóvember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 1. desember kl. 13.30. Unnur Jóhannsdóttir, Björgólfur Stefánsson, Oddný Björgólfsdóttir, Björgólfur Stefánsson yngri, Jóhann Björgólfsson, Þórólfur Beck, Vilborg Einarsdóttir, Ólöf Oddný Beck. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGFÚSAR GUÐMUNDSSONAR, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. Jóhann G. Sigfússon, Gunnvör Valdimarsdóttir, Guðmundur Þ. Sigfússon, Jóna Ósk Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. DANHEIÐUR ÞÓRA DANÍELSDÓTTIR + Danheiður Þóra Daníelsdóttir var fædd á Garðbæ í Grindavík 20. jan- úar 1912. Hún lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 17. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Daníel Daníelsson og Þóra Jónsdóttir. Danheiður giftist Maríasi Guðbjarti Guðbjartssyni 4. júlí 1936 en hann lést 23. janúar 1987. Þau bjuggu á Bjarma- landi í Grindavík. Börn þeirra eru Sólveig Guðbjört og Olafur Benóný. Sólveig er f. 3. mars 1940. Eiginmaður hennar er Guð- björn Agnar Guð- mundsson, f. 8. júní 1940, og eiga þau fimm börn og tvö barnabörn. Olafur er fæddur 4. jan- úar 1949. Eig- inkona hans er Anna Marie Kjart- ansdóttir, f. 1. febrúar 1950, og eignuðust þau þrjú börn en eitt er lát- ið. Barnabörn þeirra eru tvö. Útför Danheiðar fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Vertu guð faðir, faðir minn í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Pét.) fyrir allar yndislegu stundimar sem við áttum með þér og afa. Þetta eru dýrmætar minningar sem við munum geyma í hjörtum okkar alla tíð. Elsku amma. Nú þegar við kveðjum þig reikar hugurinn ósjálfrátt til baka og minningarnar hlaðast upp. Við vor- um ekki mjög gamlar þegar við vomm farnar að vilja vera hjá ykk- ur afa öllum stundum; að fara með' ykkur að sinna kindunum og hjálpa til við heyskapinn á sumrin. Alltaf vorum við velkomnar og við fengum meira að segja hrífur í samræmi við stærð svo við gætum rakað líka. Elsku amma, minningamar em svo margar að erfítt er að taka eitt- hvað eitt út, en ofarlega er minning- in um kvöldin hjá ykkur. Við sátum inni í herberginu inn af eldhúsinu og spiluðum manna. Eftir spila- mennskuna fengum við oft ís og ávexti áður en við fómm að sofa. Nú fer að líða að jólum og. þá reikar hugurinn til jólaundirbún- ingsins með ykkur. Við hlökkuðum óskaplega til að fá að skreyta jóla- tréð ykkar og raða englunum á bómull undir því. Þó jólatréð væri lítið fannst okkur það samt falleg- asta tré sem við höfðum séð. Jólin verða tómleg án þín en við vitum að þér líður vel núna hjá afa og Reyni. Elsku amma, við þökkum þér Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, háns dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Guð blessi minningu ykkar. Svava og Heiðbjört. Crfisdrvkkjur anpt-mn Sími 555-4477 + Móðir okkar, JÓHANNA ÞÓREY DANÍELSDÓTTIR, Æsufelli 2, Reykjavfk, andaðist á Sólvangi í Hafríarfirði 23. nóvember. Börnin. + Elskulegur maðurinn minn, JÓNATAN JÓHANNESSON, sjómaður, Laufásvegi 5, lést þann 23. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Þórunn Sigriður Gísladóttir. + Ástkær elginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, LILLY SVAVA SNÆVARR, Granaskjóli 7, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 27. nóvember nk. Athöfnin hefst kl. 13.30. Sverrir Ingólfsson, Unnur Sverrisdóttir, Bergsteinn Georgsson, Laufey Brynja Sverrisdóttir, Svava Guðlaug Sverrisdóttir, Sverrir og Unnur Ásta Bergsteinsbörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.