Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Atlanta flýgur í Kólom- bíu FLUGFÉLGIÐ Atlanta hf. hefur nýlega gert samning við Avianca La Aerolinea de Colombia, sem er ríkisflugfé- lag Kólombíu. Um er að ræða daglegt flug milli Bogota, höfuðborgar Kólombíu, og New York. Samningurinn er frá 1. desember til 14. janúar 1996 og mun Atlanta nota eina Boeing 747-breiðþotu í verkefnið. Um 60 starfsmenn. munu starfa við verkefnið. Sex breiðþotur í pílagrímaflugi Atlanta hefur verið boðin til kaups Tri-Star þota sem er í eigu American. Express Bank og hefur félagið gert gagntilboð en að sögn Magn- úsar Friðjónssonar, íjármála- stjóra Atlanta, hefur ekki verið gengið frá neinum samningum í því sambandi. Pílagrímaflug á vegum Atl- anta hefst í mars og verður félagið með sex 747-breiðþot- ur í því verkefni. Stækkunarsamnmgarnir um álverið í Straumsvík Orkuverð eftir afslátt- artíma hærra en nú FINNUR Ingólfsson iðnaðarráð- herra sagði í umræðum á Alþingi á fímmtudag, að orkuverð það, sem um var samið viðvíkjandi stækkun álversins í Straumsvík, væri hærra en búast hefði mátt við þegar geng- ið var til samninga og miklum mun hærra þegar afsláttartímabili sleppir en samið var um þegar hækkun var knúin fram með samningum árið 1984. Finnur sagði að þó hefði verið talið réttlætanlegt að „selja tíma- bundið á lágu verði til að draga að fjárfesta" og virtist ríkja samstaða í öllum flokkum um þá leið. Svavar Gestsson, þingmaður Al- þýðubandalags í Reykjavík, situr í stjórnarnefnd Landsvirkjunar og sagði hann í fyrstu umræðu um að veita stækkunarsamningnum laga- gildi að væri þeirri reikningsaðferð beitt, sem taka á gildi þegar afslátt- artímabil á raforku til Alusuisse- Lonza-samsteypunnar árið 2004, á orkuverð í dag yrði það 21 mills á kílówattstund í stað 17,5 nú. Mikilvægasti samningur frá 1966 Iðnaðarráðherra sagði að hér væri á ferðinni mikilvægasti við- skiptasamningur, sem gerður hefði Frakkar hætti til- raunasprengingnm ÍSLENSK stjómvöld lýsa megnustu óánægju með ákvörðun franskra stjórnvalda um að halda áfram til- raunasprengingum með sprengingu fjórðu kjamasprengjunnar sl. þriðju- dag. Skorað er á frönsk stjórnvöld að taka tillit til almenningsálitsins um allan heim og hætta við áform sín um þær tvær til þrjár tilrauna- sprengingar, sem fyrirhugaðar eru á næsta misseri, segir í fréttatilkynn- ingu frá utanríkisráðuneytinu. 4ra herb. íbúð m/bílskúr - Tilboð Álfatún - Kópavogi - 4ra herbergja glæsileg íbúð á góð- um útsýnisstað í 6 íbúða húsi til sölu. Laus nú' þegar. Húsið er vandað og nýmálað, sameign, umhverfið og lóðin eru sérstaklega snyrtileg og vel um gengin. íbúðin verður seld tilbúin til að flytja inn í hana, nýmál- uð með slípuðu og nýlökkuðu parketi. Tilboðsverð kr. 9,5 millj. Áhvílandi hagstæð langtímalán kr. 4,5 millj. Upplýsingar alla helgina og virka daga milli kl. 18-22 í síma 565 8602 (Þorsteinn). ssinsHsnm LARUS Þ VALDIMARSSON, framkvamdasdori KRISTJAN KRISTJANSSON, ioggiliur fasieignasau Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Rétt við FRAM-heimilið í suðurenda við Safamýri glæsileg 5 herb. íb. um 120 fm á 1. heeð. Eins og ný. Ágæt sameign. Góður bílskúr 48 fm. Einn vinsælasti stað- urinn í borginni. Ódýr íbúð við Grensásveg 3ja herb. tæpir 80 fm. Nýtt eldhús. Svalir. Útsýni. Góð sameign. Laus nú þegar. Ódýr íbúð í Kleppsholti 3ja herb. kjíb. tæpir 70 fm. Lítið níðurgr. Sérhiti. 40 ára húsnæðislán kr. 2,6 millj. Vinnupláss um 10 fm fylgir. Tilboð óskast. Á söluskrá óskast m.a: Einbýlishús eða raðh. í Smáíbúðahverfi. Má þarfnast endurbóta. Skipti mögul. á úrvalsíb. 2ja herb. íb., helst við Grensásveg eða nágrenni. Einbýlishús í Hafnarfirði, raðh. kemur til greina. Má þarfnast endurbóta. Góðar eignir, íbúðir eða sérhæðir, í vesturborginni og nágrenni. • • • Opiðídag kl. 10-14. Fjöldi eigna á skrá. Margskonar eignaskipti. ALMENNA FASTEIGNASALAN HUBIVE6118 S. 552 1158-552 1371 Rafmagn frá Landsvirkjun lækki um 3% á ári eftir aldamót verið frá því að samið var um að reisa álver í Straumsvík árið 1966. Stjómarandstæðingar voru flestir hlynntir álsamningnum í umræð- unum í gær, en ýmis atriði hans voru gagnrýnd og þá sérstaklega umhverfisþættir og orkuverð. Kristín Halldórsdóttir, þingmaður Kvennalista í Reykjavík, sagði að það væri „með ólíkindum" hve mikið hefði verið haft fyrir þessum áfanga í atvinnulífi landsins og margt gerð- Lt í atvinnulífínu án þess að þætti tilefni til „flugeldasýningar" á borð við þá, sem fylgdi undirritun álsamn- ingsins. Hún benti á að störfum við álverið fjölgaði um 90 við stækkun, ’ en fréttir af tveimur rækjuskipum, sem nýlega var sagt að myndu skapa 70 mönnum vinnu, eða auknum umsvifum Flugleiða, sem myndu búa til 90 störf, hefðu ekki farið hátt. Svavar Gestsson lýsti yfir stuðn- ingi við frumvarpið, en kvaðst ekki geta „skrifað upp á að þar [væru] þau kaflaskil, sem iðnaðarráðherra og ríkisstjórnin tala um“. Hann sagði villandi að tala um mikilvægustu samninga frá 1966 og varaði við því að vekja væntingar, sem leiddu til þess að menn fjárfestu, keyptu íbúð- ir og flyttu búferlum til að eiga „að- ild að veislunni. Slíkt er hrein blekk- ingarstarfsemi“. „Dapurlegar" forsendur Jóhanna Sigurðardóttir, þingmað- ur Þjóðvaka í Reykjavík, fagnaði samningnum, en sagði „dapurlegt" á hvaða forsendum hann væri gerð- ur. ísland væri orðið lágaunasvæði og það væri notað til að freista út- lendinga, m.a. í markaðssetningu iðnaðarráðuneytis og Landsvirkjun- ar. Þá væri skattaumhverfi fyrir- tækja slíkt að ísland teldist skatta- paradís miðað við önnur lönd og í þriðja lagi væri „orkuverð snautlega lágt og nánast á útsölu, að minnsta kosti fyrstu árin“. Hjörleifur Guttormsson, þingmað- ur Alþýðubandalags á Austfjörðum, gagnrýndi umhverfisþátt samnings- ins. Hann sagði að umhverfisráð- herra hefði gefið út starfsleyfi til að framleiða 200 þúsund tonn á ári, þótt aðeins hafi verið samið um 162 þúsUnd tonn og bætti við að slíkt væri óþarfi „þegar þannig er staðið að verki að ekki er einu sinni farið eftir alþjóðlegum stöðlum um mengunarvarnir". Ekki væri krafist „béstu fáanlegrar tækni“ heldur „ÍSAL-tækni“. „Rýmingarsala“ óhjákvæmileg Nokkur umræða spannst um orkuverð, en raforka verður seld ál- verinu með afslætti til sjö ára, frá 1997 til 2004. Steingrímur J. Sigfús- son, þingmaður Alþýðubandalags á Norðurlandi eystra, sagði að haldin hefði verið „rýmingarsala á orku, sem var óseljanleg í kerfinu“, en þegar slík staða kæmi upp væri betra að fá eitthvað fyrir vöruna, en ekki neitt. Lögð var fram fyrirspurn til iðn- aðarráðherra um það hvaða áhrif stækkun álversins myndi hafa á orkuverð í landinu og svaraði Finnur því að samkvæmt áætlun Lands- virkjunar myndi meðalverð haldast óbreytt fram til ársins 2000. Eftir það yrði þriggja hundraðshluta verð- lækkun á ári og gæti almenningur notið góðs af því. Tvísýnt stjórnar- kjör hjá SVFR AÐALFUNDUR Stangaveiðifé- lags Reykjavíkur verður haldinn á Hótel Loftleiðum á morgun og segir Friðrik Þ. Stefánsson for- maður félagsins að menn séu þokkalega ánægðir með afkom- una og reksturinn. Spennandi stjórnarkjör er væntanlegt, því þijár stöður meðstjórnenda losna og eru frambjóðendur fimm tals- ins. „Þetta hefur að mörgu leyti verið gott ár hjá SVFR og flest eða allt það sem við höfum bryddað upp á fengið frábærar viðtökur. Bama- og unglingadagarnir í Ell- iðavatni og Elliðaánum, fríleyfi í Elliðavatni út á aðild að SVFR og fleira mætti nefna. Þar sem við stóðum fyrir hagsmunabæt- andi aðgerðum kom alls staðar svörun. Gljúfurá gátum við lækk- að um 20% og hún seldist að kalla Morgunblaðið/Árni Sæberg ÓLAFUR Hauksson veiddi einn stærsta silung sem á land kom hér á landi á nýlega yfirstaðinni vertíð. Þetta var 17 punda sjó- birtingur sem Ölafur veiddi í Eldvatni í Meðallandi í september. upp, fæði í Norðurá lækkaði í júní og ágúst og á þeim tímum var biðlisti eftir leyfum. í fyrra var aftur á móti mikið óselt á þeim tímabilum. Veiðileyfi í Alviðru lækkuðu einnig verulega og það skilaði sér í mun betri sölu. Það leynir sér því ekki hveijar þarfir íslenskra stangaveiðimanna eru og verðum við að haga starfsem- inni í samræmi við það,“ sagði Friðrik. Sæti Bjarna Júlíussonar, Stef- áns A. Magnússonar og Guðlaugs Bergmanns í stjórn losna nú og stefnir í spennandi kosningu. Guð- laugur er fluttur á Snæfellsnes og hefur tilkynnt að hann gefí ekki kost á sér áfram. Stefán og Bjami hafa hins vegar báðir ákveðið að gefa kost á sér til endurkjörs, sem og Bjarni Ómar Ragnarsson, Gunnar Pétursson og Magnús E. Kristjánsson. Þeir Stefán Ágúst og Bjarni Júlíusson hafa setið í stjóm SVFR síðustu ár og á þeim tíma hefur félaginu orðið verulega ágengt í að ná niður verði veiðileyfa auk þess sem unnið hefur verið að fieiri hagsmunamálum veiði- manna. Bjarni Ó. Ragnarsson hefur haldið utan um skemmti- nefnd SVFR síðustu tvö árin og bikamefndina síðasta árið. Gunn- ar og Magnús hafa hins vegar ekki áður setið í nefndum eða ráðum SVFR. Bandalagsráðstefna BSRB Krefst sömu hækkana og ASÍ BANDALAGSRÁÐSTEFNA BSRB krefst þess að allar hækkanir sem samið verði um á almennum markaði gangi einnig til aðildarfélaga BSRB. Fjármálaráðherra hafi haldið því fram að hann hafí fylgt þeirri launa- stefnu sem mótuð var með febrúarsamningunum. „Því stendur sú krafa upp á þessa aðila nú að þeir séu sjálf- um sér samkvæmir og gangi til samninga við aðildarfé- lög BSRB um launahækkanir eins og VSÍ hefur gefið til kynna að vilji sé til að semja um.“ í ályktun ráðstefnunnar um fjárlagafrumvarpið er áformum um að skerða kjör öryrkja, aldraðra, atvinnu- iausra og almenns launafólks harðlega mótmælt. Þess er krafist að fallið verði frá áformum um að afnema vísitölutengingar i fjárlagafrumvarpinu milli launa- breytinga og tryggingabóta til’öryrkja og atvinnu- lausra. „Bandalagsráðstefnan hvetur öll samtök launa- fólks í landinu til að slá skjaldborg um þá hópa sem standa höllum fæti og veist er að í fjárlagafrumvarpi ríkisstjómarinnar og hnekkja þeim áformum sem þar eru uppi.“ Ráðstefnan mótmælti einnig boðaðri gjaldtöku fyrir læknisverk á sjúkrahúsum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.