Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
500 milljóna fjárfestingar íslenskra lífeyríssjóða í Bretlandi
Framúrskarandi
ávöxtun sl. 3 mánuði
TÓLF lífeyrissjóðir hafa náð fram-
úrskarandi góðri ávöxtun undanfar-
ið á 500 milljóna króna fjárfestingu
sína hjá bresku íj'árvörslufyrirtæki.
Þannig hefur raunhækkun á
þriggja mánaða tímabili verið 7,9%.
Þetta kom fram í ræðu Gunnars
J. Friðrikssonar, fráfarandi for-
manns Sambands almennra líf-
eyrissjóða, á aðalfundi sambands-
ins í gær. „Rétt er þó að taka fram
að hér er um afar stuttan viðmið-
unartíma að ræða og að ávöxtun
í fortíð þarf alls ekki að þýða jafn-
góða ávöxtun í framtíð. Þá skiptir
auðvitað máli hver þróun íslensku
krónunnar verður gagnvart erlend-
um gjaldmiðlum,“ sagði Gunnar.
Lífeyrissjóðasamböndin sömdu
fyrr á þessu ári við breska fjár-
vörslufyrirtækið Gartmore um að
annast fjárvörslu fyrir sjóðina.
Þetta fyrirtæki sér um eignastýr-
ingu á um 30 .milljörðum dollara,
þ.e. 23 milljörðum dollara fyrir 187
lífeyrissjóði. Gartmore leggur
áherslu á að fjárfesta á mörkuðum
og í hlutabréfum fyrirtækja sem
hafa vaxtarmöguleika svo fremi
sem verðið sé hagstætt. Einkum
er fjárfest í hlutabréfum miðlungs
og stórra fyrirtækja.
Varðandi skuldabréf er reynt að
velja réttu markaðina en forðast
ótraustari aðila og leitast er við
að spá fyrir um þróun gjaldmiðla
og vaxta á einstökum svæðum.
Gartmore lagði til að íslensku
lífeyrissjóðirnir fjárfestu í verð-
bréfasjóðum sem fyrirtækið rekur
en gert er ráð fyrir að heildarfjár-
festing lífeyrissjóðanna verði í upp-
hafi um 10 milljónir dollara. Fyrir-
tækið telur ekki raunhæft að reka
sjálfstætt verðbréfasafn fyrir líf-
eyrissjóðiina fyrr en fjárfesting
þeirra hefur náð 15 milljónum doll-
ara.
Dynalab kaupir 5% hlut í OZ hf. fyrir 32 milljónir króna
Samsvarar 640 milljóna
heildarverðmæti
TÆVANSKA fyrirtækið Dynalab
hefur keypt 5% hlut í íslenska
hugbúnaðarfyrirtækinu OZ hf.
fyrir 32 milljónir króna, en þetta
kaupverð samsvarar því að mark-
aðsverð fyrirtækisins sé um 640
milljónir króna. Að sögn Sigurðar
Ólafssonar, starfsmanns hönnun-
ardeildar OZ, var gengið frá
samningum þessa efnis í Japan í
fyrrakvöld, en forsvarsmenn OZ,
þeir Guðjón Már Guðjónsson,
Skúli Mogensen og Kjartan Em-
ilsson, hafa verið í Japan undan-
farna daga vegna þessara samn-
ingaviðræðna og ýmissa annarra
hluta sem eru á döfinni hjá OZ
þar í landi.
Dynalab er annað stærsta hug-
búnaðarfyrirtækið í Tævan, að
sögn Sigurðar. Samstarfið við fyr-
irtækið, sem verður á sviði hug-
búnaðargerðar og hönnunar á
þrívíddarumhverfum fyrir inter-
netið, hófst síðastliðið vor og eru
kaupin á þessum 5% hlut í OZ
gerð í framhaldi af því. Dynalab
mun sjá um aðlögun og dreifingu
á framleiðsluvörum OZ á Asíu-
markaði. Sigurður segir að OZ
hafi tekið þátt í mjög stórri inter-
netsýningu í Yokohama í Japan
16.-18. nóvember síðastliðinn, í
samstarfí við Dynalab og hafi
kynning OZ vakið mikla athygli.
Sigurður segir að OZ standi nú
í samningaviðræðum við nokkur
japönsk fyrirtæki um hugsanleg
framtíðarverkefni og meðal þeirra
séu Toshiba, Fujitsu, Sony og
NTT. Sony hefur meðal annars
leitað eftir samstarfi við OZ um
hönnun þrívíddarumhverfís fyrir
verslunarkringlu sem fyrirtækið
hyggst reka á alnetinu, en Sigurð-
ur segir það ótímabært að fara
nánar út í þessar samningaviðræð-
ur. Nánar verði hins vegar greint
frá þessum málum að loknum aðal-
fundi OZ sem haldinn verður í
byijun desember.
Kaupverðið sem Dynalab reiddi
af hendi fyrir aðeins 5% hlut vekur
athygli enda samsvarar það því að
markaðsvirði fyrirtækisins sé um
640 milljónir króna. IJppgangur
OZ að undanfömu þykir hafa verið
ævintýri líkastur. Skemmst er að
minnast samnings sem fyrirtækið
gerði nýlega við Microsoft um sölu
á hugbúnaði sem líkir eftir skýja-
fari og vatnsyfírborði. Einnig hefur
fyrirtækinu boðist að vinna verk-
efni fyrir Time-Wamer, sem var
hafnað og beiðni um vinnu við
kvikmyndabrellur hlaut sömu ör-
lög.
*
Ráðstefna um Island og evrópskt
viðskiptaumhverfi
380 milljónir
ístyrkifrá
ESB á árinu
ÍSLENSK fyrirtæki þurfa að bera
sig meira eftir samstarfí og tengsl-
um við evrópsk fyrirtæki ef þau
ætla að nýta sér þá styrki sem í
boði eru innan Evrópusambandsins.
Þetta kom fram í máli Orra Vignis
Hlöðverssonar, starfsmanns Kynn-
ingarmiðstöðvar Evrópurannsókna,
á ráðstefnunni ísland og evrópskt
viðskiptaumhverfi sem Útflutn-
ingsráð hélt á Hótel Loftleiðum í
gær, í tilefni af opnun upplýsinga-
skrifstofu Euro-Info á íslandi.
I máli Orra kom ennfremur fram
að það sem af er IV. rammaáætlun
Evrópusambandsins, sem stendur
yfír frá 1994-1998 hafa 380 millj-
ónir komið í hlut íslenskra aðila.
Stærstur hluti þessara styrkja hef-
ur runnið til opnberra stofnana en
um 70 milljónir króna hafa fallið
íslenskum fyrirtækjum í skaut.
Orri segir ástæðuna vera þá að
opinberar stofnanir hafi haft langa
reynslu af samstarfí við evrópskar
stofnanir á sama sviði á meðan að
íslensk fyrirtæki hafí lítið sinnt
slíkum tengslum.
Orri sagði mikilvægt að íslensk
fyrirtæki gæfu slíku samstarfi betri
gaum enda væri það forsenda þess
að hægt væri að fá styrki úr sjóðum
Evrópusambandsins. Hann lagði
hins vegar áherslu á að vinnan við
að sækja um þessa styrki væri
ekki ýkja mikil enda hefði Sam-
bandið lagt mikla áherslu á að ein-
falda hana fyrir fyrirtækin að und-
anförnu.
Guðmundur Örn Ingólfsson,
framkvæmdastjóri Máka hf. á
Sauðarkróki, gangrýndi stjórnvöld
nokkuð í erindi sínu á ráðstefn-
unni fyrir lítinn stuðning við þró-
unarstarf. Hann sagði að fyrirtæki
sitt hefði fengið lítinn stuðning frá
stjórnvöldum hér á landi þegar
kæmi að styrkjum til þróunarverk-
efna, þrátt fyrir að það stýrði nú
u.þ.b. 100 milljón króna verkéfni
sem styrkt væri að hálfu af Evr-
ópusambandinu. Verkefnið sem
hér um ræðir snýr að þróun lokaðs
fiskeldiskerfis, sem byggist á end-
urnýtingu vatns og nýtingu jarð-
varma. Verkefnið er unnið í sam-
starfi við sænsk, norsk og frönsk
fyrirtæki.
Guðmundur sagði að stjórnvöld
hefðu einblínt alltof mikið á ein-
hver risavaxin verkefni sem ættu
að bjarga öllu, en sjaldnast yrði
neitt úr, í stað þess að styrkja ný-
sköpun hér heima fyrir. Hann sagði
að sem betur fer hefði orðið vart
ákveðinnar hugarfarsbreytingar í
þessum efnum, enda væri það
frumskilyrði fyrir áframhaldandi
styrkveitingum Evrópusambands-
ins hingað til lands að hérlend
stjórnvöld veittu þessum verkefn-
um lið.
Það væri ekki mjög traustvekj-
andi fyrir íslensk fyrirtæki sem
væru að sækja um styrk til Evrópu-
sambandsins að stjórnvöld hér
heima væru vart fáanleg til þess
að leggja fram nokkurt fjármagn.
Kaffiverð heldur
áfram að lækka
London. Reuter.
KAFFISÖLURÍKI hyggjast nota
fund sinn í Bali í næstu viku til
að binda enda á vangaveltur um
að kvótakerfi þeirra sé að hruni
komið, þótt flestir búist við að
verð á kaffi haldi áfram að lækka.
Kaffiverð í London lækkaði um
6% í 2.160 dollara á fimmtudag og
í New York á miðvikudag seldist
pundið á 111,05 sent, lægsta verði
í 17 mánuði.
Verðlækkunin stafaði af vanga-
veltum um dvínandi stuðning
sumra kaffíframleiðenda við áætl-
un sambands kaffiframleiðslu-
landa (ACPC) um að takmarka
útflutning við 60 milljónir 60 kílóa
poka á ári til júní 1996 og spám
um að búast megi við breytingum
á áætluninni.
Brasilía og Kólombía flýttu sér
að bera þessar sögusagnir til baka
og sögðu að breytingar væru ólík-
legar.
Rubens Barbosa, forseti ACPC,
sagði að ekki mætti búast við
kraftaverki á fundinum í Bali.
Indónesar krefjast breytinga á
áætlun ACPC, þar sem markaðs-
hlutdeild þeirra fari minnkandi
vegna aukins útflutnings Víet-
nama, sem eru ekki í ACPC.
Sumir framleiðendur telja að
eina leiðin til að friða Indónesa án
þess að breyta áætlun ACPC sé
að veita Víetnömum aðild.
Granada spáð sigri í
átökum um hótelkeðju
London. Reuter.
BREZKA fyrirtækið Granada,
sem er kunnara fyrir sjónvarps-
rekstur, virðist sigurstranglegt í
átökum um yfírráð yfir Forte
hótel- og veitingahúsakeðjunni,
en verður ef til vill að hækka til-
boð sitt, sem var upphaflega að
verðmæti 3.4 milljarðar dollara,
að _sögn sérfræðinga.
Átökin um yfirráðin eru ein-
hver hin mestu, sem um getur í
Bretlandi á síðari árum, og hóf-
ust þegar Granada bauð fjögur
ný Granada-hlutabréf fyrir hver
15 í Forte auk 23,25 punda út í
hönd. Einnig var boðið upp á að
greiða 321,67 pens í reiðufé.
Hlutabréf í Forte seldust á 351
pens á fímmtudag. Hlutabréf í
Granada lækkuðu um 48 pens á
miðvikudag, en hækkuðu um
fjögur pens í 653 á fimmtudag.
Stjórn Forte ráðleggur
hluthöfum að hafna boðinu
Stjórn Forte ráðlagði hluthöf-
um að hafna boðinu, þar sem það
væri of lágt. Átta forráðamenn,
sem hafa tögl og hagldir í Forte,
ræða boðið í næstu viku að höfðu
samráði við Sir Rocco Forte
stjómarformann og Granada.
Japanskt drykkjarvörufyrir-
tæki, Suntory, hefur borið til
baka þá frétt Guardians að það
hyggist bjóða betur en Granada.
Fjölskyldufyrirtækið Forte á
einhver frægustu hótel Evrópu
auk fjölda veitingastaða í Bret-
landi. Það á 68% í Savoy-hótel-
fyrirtækinu í London og hótel á
við hótel Georgs V í Paris, Hyde
Park-hótelið og Grosvenor House
í London og Ritz- hótelið í
Madríd.
I
í
í
l
t
>
l
I
I
I
I)
»
t
t
»
[
l
I
I
|
I
I
I
1
í
I
[
í