Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Ársskýrsla Akureyrar- bæjar fyrir síðasta ár Útgáfan hefur ýst til hliðar FYRIR næsta fund bæjarráðs á að liggja fyrir tillaga um hvort útgáfu á skýrslu Akureyrarbæjar fyrir árið 1994 verður sleppt eða hvort hún verði gefin út í mun minna formi en vani er. Þetta kom fram í svari bæjarstjóra, Jakobs Björnssonar við fyrirspum Sigurð- ar J. Sigurðssonar, Sjálfstæðis- flokki, um hvað liði útgáfu skýrsl- unnar sem enn hefur ekki litið dagsins ljós. Jakob sagði margar ástæður fyrir því að skýrslan hefði ekki komið út, m.a. „ídúður innanhúss“ eins og hann orðaði það. I önnum dagsins hefði útgáfan ýst til hlið- ar. Hann væri samt þeirrar skoð- unar að gefa ætti út vandaða árs- skýrslu með aðgengilegum upplýs- ingum um rekstur bæjarins. Viðamikilli endurbyggingu á orgeli Akureyrarkirkju lokið Endurvígsla við hátíðarmessu Morgunblaðið/Kristján CARL August Bruhn orgelsmiður og Björn Steinar Sólbergs- son organisti við orgel Akureyrarkirkju sem verður endurvígt við hátíðarmessu í kirkjunni á morgun. ORGEL Akureyrarkirkju verð- ur endurvígt við hátíðarmessu í kirkjunni á morgun, sunnu- daginn 26. nóvember, kl. 14. Viðamikil endurbygging orgelsins hefur staðið yfir frá þvi í sumar, en orgelið var ; byggt árið 1961 af Steinmeyer & Co og endurbyggt af dönsku orgelsmiðjunni P. Bruhn & Son Orgelbyggeri í sumar. Orgelið hefur 49 raddir (3.290 pípur) sem skiptast á 3 hljómborð og pedala. Aætlað er að viðgerðin sé fjárfesting sem endist í 150 til 200 ár með reglulegu við- haldi. Herra Pétur Sigurgeirsson biskup annast vígslu orgelsins, en sr. Birgir Snæbjörnsson, sr. Svavar A. Jónsson héraðsprest- ur og Valgerður Valgarðsdótt- ir djákni þjóna fyrir altari. Formaður sóknarnefndar Akureyrarkirkju, Guðríður Ei- ríksdóttir, flytur ávarp. Orgelið í fyrirrúmi Tónlistarflutningur við messuna verður mjög fjöl- breyttur þar sem orgelið verð- ur í fyrirrúmi. Frumfluttur verður hluti nýs verks eftir Hafliða Hallgrímsson sem hann nefnir „4 hugleiðingar um umbreytingu Krists á Qa.ll- inu“. Auk þess tveir nýir sálma- forleikir eftir Hróðmar I. Sig- urbjörnsson og Jón Hlöðver Áskelsson. Kór Akureyrar- kirkju flytur m.a. tvo þætti úr „Messe solennelle" eftir Louis Vierne og sálmalagið „Gegnum Jesú helgast hjarta“ eftir Jak- ob Tryggvason fyrrverandi organista kirkjunnar. Einnig syngúr Barna- og unglingakór Akureyrarkirkju undir stjórn Hólmfríðar Benediktsdóttur. Sérstakir vígslutónleikar verða um kvöldið, kl. 20.30, þar sem Björn Steinar Sólbergsson organisti leikur á hið nývígða orgel. Með efnisskránni verður leitast við að kynna sem flesta möguleika hljóðfærisins og jafnframt nýju raddirnar sem bættust við. Flutt verða verk eftir Bach, César Franck, Pál ísólfsson og Louis Vierne auk þess sem hið nýja verk Hafliða Hallgrímssonar verður flutt í heild sinni. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum heimill en tekið verður við frjálsum fram- lögum í orgelsjóðinn í lok tón- leikanna. Gijótgarðurinn í Ólafsfirði skemmdist í óveðrinu í síðasta mánuði Messur Heimamenn hafa áhyggjur af skipum í höfninni GRJÓTGARÐURINN í Ólafsfirði skemmdist töluvert í óveðrinu í síð- asta mánuði og á meðan hann hefur ekki verið lagfærður, hafa heima- menn áhyggjur af skipaflota sínum í höfninni í vondum veðrum. Ólafur Sæmundsson, hafnarvörður, segir að svokallaður Norðurgarður hafi farið ilia og nú flæði yfír hann og inn í höfnina og gijót og óþverri skolist beint upp á bryggju. Jafnvel gijót sem eru einhver hundruð kílóa að þyngd. Trébryggja sem skipin liggja við og er innan við Norðurgarðinn brotn- EIGNASALA Akureyrarbæjar var til umræðu á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag, en viðræður eru að hefj- ast um sölu á 80% hlut bæjarins í Krossanesi, hlutabréf bæjarins í Skinnaiðnaði eru í sölu á almennum markaði þessa dagana og þá sam- þykkti bæjarstjórn að selja hlut sinn í fóðurverksmiðjunni Laxá. Sigurður J. Sigurðsson, Sjálfstæð- isflokki, nefndi í framhaldi af því VERSLUNIN Nettó, ein af verslun- um Kaupfélags Eyfirðinga dregur til sín æ fleiri viðskiptavini en þar hefur orðið veruleg aukning á meðan aðrar matvöruverslanir kaupfélags- ins hafa verið að tapa. Þetta kom fram í máli Magnúsar Gauta Gautasonar kaupfélagsstjóra á aðalfundi Akureyrardeildar KEA. Velta verslana kaupféiagsins á Akureyri nam rúmum 2,2 milljörðum króna á fyrstu 8 mánuðum ársins sem er 2,4% samdráttur miðað við sama tíma í fyrra. Verslanir félags- aði I öllum látunum í veðrinu á dög- unum. Togarinn Mánaberg ÓF lá við bryggju í Ólafsfirði í vikunni en þeg- ar Veðurstofan spáði versnandi veðri á Norðurlandi var togarinn færður til Dalvíkur. „Það er allur veturinn framundan og stærsta flóð á öldinni er um jólin og því eru menn hræddir. Flóðin í ár eru mun hærri en í meðalári eða sem munar allt að 30 cm og geri norðaustan rök með lágum loftþrýst- ingi verður hér margfalt meira flóð en venjulega," segir Óiafur. hvort ekki væri skynsamlegt að huga að sölu á hlutabréfum bæjarins í Útgerðarfélagi Akureyringa. Það væri spurning hvort hlutabréfaeign bæjarins stæði í vegi fyrir eðlilegum viðskiptum með hlutabréf í fyrirtæk- inu. „Það er ekki úr vegi að skoða það næst hvort við eigum að selja okkar hlut í fyrirtækinu," sagði Sig- urður. ins utan Akureyrar veltu rúmum 500 milljónum króna, þannig að heildar- velta í versluninni er um 2,7 milijarð- ar á þessu tímabili. Verslun hefur dregist mjög saman í nágrannabyggðum Akureyrarbæj- ar, þannig minnkaði veltan í Svarf- dælabúð á Dalvík um rúm 9% á fyrstu 8 mánuðum ársins miðað við sama tíma á liðnu ári og í versl- uninni í Hrísey um 16%. Þar er fyrst og fremst um minnkandi olíusölu að ræða eftir að Súlnafellið, skip KEA, var selt í ársbyrjun. Ólafsfírðingar eiga stóran fiski- skipaflota, 5 stóra togara, 2 stóra báta og fjölmarga minni báta. „Það verða allar hafnir í Eyjafirði fullar af heimaskipum um jólin og því verða okkar skip sjálfsagt að vera hér.“ Vantar mikið af grjóti í Norðurgarðinn Ólafur segir að til þess að aðstæð- ur í höfninni verði í lagi þurfí að setja mikið af gijóti í Norðurgarðinn og það hafí reyndar staðið til í langan tíma. „Ástandið hefur farið versnandi STRAUMRÁS við Furuvelli 3 á Akureyri hélt upp á 10 ára afmæli nýlega og bauð af því tilefni viðskiptavinum sínum upp á kaffi og meðlæti. Fyrirtækið var stofnað í nóv- ember árið 1985 af þeim hjón- um Evu Ingólfsdóttur og Guð- mundi Jóhannssyni ásamt Vali Finnssyni. Síðustu árin hafa Eva og Guðmundur rekið fyr- irtækið. Straumrás er alhliða þjónustufyrirtæki einkum við og það hefur alltaf átt að gera eitt- hvað í málinu en aldrei verið gert neitt í því sambandi. Eg hef heyrt að það sé búið að fá einhveija pen- inga í þetta verk nú og vonandi fer eitthvað að gerast. Það eru engin smáverðmæti í þessum flota okkar Ólafsfirðinga og því er nauðsynlegt að eitthvað fari að gerast,“ sagði Ólafur. Að undanfömu hefur verið unnið við garðinn við ósinn við Vesturhöfn og telur Ólafur að sú hætta sem var þar sé liðin hjá. sjávarútveg, en þar er að finna vökvabúnað af margvíslegu tagi, háþrýstislöngur ogtengi og legur. A liðnu ári fékk fyrir- tækið umboð fyrir Arctic Cat vélsleða. í fyrstu var Straumrás til húsa við Furuvelli 1 en flutti sig um set þegar húsið númer 3 var keypt fyrir tveimur árum. Fjórir starfsmenn vinna lyá fyrirtækinu. AKUREYRARKIRKJA: Sunnu- dagaskóli Akureyrarkirkju verður á morgun, sunnudag, kl. 11.00. Kirkju- bílar aka, allir velkomnir. Hátíðar- guðsþjónusta kl. 14.00. Herra Pétur Sigurgeirsson biskup vígir orgel kirkj- unnar, sem hefur verið endurbyggt að miklu leyti. Fundur í æskulýðsfé- lagi kl. 17.00 og um kvöldið kl. 20.30 verða orgeltónleikar í kirkjunni, org- anistinn Björn Steinar Sólbergsson leikur á hið volduga orgel. Biblíulest- ur á mánudagskvöld kl. 20.30 í safn- aðarhehnilinu. GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur og bænastund í kirkjunni kl. 13.00 í dag. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00 á morgun. Barnakór kirkjunnar syngur. Fundur æskulýðsfélagsins kl. 18.00 sama dag. HJÁLPRÆÐISHERINN: Kvöld- vaka í kvöld kl. 20.30, sunnudaga- skóli á morgun kl. 13.30 og samsæti fyrir hjálparflokks- og heimilissam- bandskonur kl. 15.30 og almenn sam- koma kl. 17.00. HVÍT ASUNNUKIRKJ AN: Vakn- ingasamkoma í umsjá ungs fólks í kvöld kl. 20.30, vakningasamkoma í umsjá biblíuskólanemenda kl. 15.30, biblíulestur kl. 20.30 á miðvikudag og bænasamkoma 1. des. kl. 20.30. KFUM og KFUK, Sunnuhlíð: Mið- nætursamkoma fyrir ungt fólk á öll- um aldri í kvöld kl. 20.30. Mikil og fjölbreytt tónlist, hljómsveitin Nars- issa flytur lög af nýútkomnum geisla- disk, frábært dramaatriði og góðir vitnisburðir frá ungu fólki. Almenn samkoma á morgun kl. 20.30, ræðu- maður Bjarni Guðleifsson. KAÞÓLSKA KIRKJAN, Eyrar- landsvegi 26: Messa kl. 18.00 í dag, laugardag, og kl. 11.00 á morgun, sunnudag. ------»■■■» »--- Háskólinn Fyrsti styrkur úr fram- kvæmdasjóði FRAMKVÆMDASJÓÐUR Háskól- ans á Akureyri verður kynntur á fundi sem hefst kl. 15 í stofu 24 í húsi skólans við Þingvallastræti 23. Einnig verður tilkynnt um fyrstu styrkveitingu úr sjóðnum á fundinum. Dr. Þorsteinn Gunnarsson háskóla- rektor setur fundinn og Haraldur Bessason formaður stjórnar sjóðsins skýrir frá tildrögum stofnunar hans og stefnumörkun. einnig taka til máls Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík, sem sæti á í stjórn sjóðsins, og fulltrúi þeirra sem brautskráðst hafa frá háskólanum. Fundurinn er öllum opin. Eignasala Akureyrarbæjar Skoðað hvort selja eigi hlut í ÚA Morgunblaðið/Kristján Straumrás 10 ára Matvöruverslanir KEA Aukning í Nettó
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.