Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 MINIMIIMGAR MORGUNBLAÐIÐ JÓSTEINN FINNBOGASON + Jósteinn Finn- bogason var fæddur í Jörva á Húsavík 3. október 1909. Hann lést á Sjúkrahúsi Húsa- víkur 17. nóvember síðastiiðinn. For- eldrar hans voru Finnbogi Þorsteins- son frá Prestsholti og Hjálmfríður Jó- hannesdóttir frá Laugaseli í Reykjadal. Hann var eina barn þeirra. Hinn 18. desember 1931 gift- ist Jósteinn eftirlifandi eigin- konu sinni, Þóreyju Sigmunds- ÞAÐ MUN hafa verið vorið 1935, þegar ég var 8 ára gamall, að fað- ir minn, Bjarni Asmundsson, sagði við mig að loknum skóla að nú væri ég orðinn nógu gamall til þess að beita og stokka línu á komandi sumri, við trillubátinn Óðin, sem hann hafði eignast hlut í, ásamt fjórum öðrum mönnum. Einhvern veginn höfðu þessir menn komist yfir það að eignast þennan bát, þrátt fyrir fátækt og krepputíma, sem gengið höfðu yfir. Þeir höfðu keypt hann árið áður og fengu húsnæði hjá Kaupfélagi Þingey- inga, bæði beitningaskúr og hús- næði þar sem þeir gátu saltað fisk- inn sinn sjálfír. Þama voru á ferð- inni talsverð umsvif, ekki síst vegna þess að fiskinn sólþurrkuðu þeir á stakkstæðum, og við það skapaðist vinna fyrir fjölskyldumar sem hlut áttu að máli. í beitningarskúrnum beittu og stokkuðu 4-6 manneskj- ur, 3 voru á sjónum á Óðni og 2-3 dóttur frá Grímsey. Þau eignuðust fimm börn og eru fjögur þeirra á lífi. Þau eru, í . aldursröð: Guðný, f. 9.2. 1932, maki Þorgrímur Siguijónsson; Hreiðar, f. 28.3. 1933, kvæntur Þóru Erlendsdóttur; Hafliði, f. 19.3.1941, kvæntur Laufeyju Jónsdóttur; og Haf- dís, f. 16.6. 1942, maki Sigurður Þór- arinsson. Utför Jósteins fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.00. við fisksöltunina. Sama fólkið að viðbættum unglingunum og krökkunum í kringum kompaníið fékk svo vinnu við að breiða og taka saman fiskinn á stakkstæðun- um. Það var þetta sumar, sem ég kynntist fyrst Jósteini Finnboga- syni, sem var einn eigenda og for- maður á Óðni, og urðu þau kynni sem þá hófust að ævilangri vináttu. Aldursmunurinn skipti þar aldrei neinu máli. Og nú er Jósteinn lát- inn, 86 ára gamall, og fer útför hans fram í dag frá Húsavíkur- kirkju. Að góðum og gildum íslenskum sið, langar mig til þess að kveðja hann með nokkrum orðum á síðum Morgunblaðsins. Jósteinn var af fátæku fólki kom- inn, alinn upp í Snælandi, þar sem fjórar fjölskyldur höfðu sama eld- húsið, en það fannst fólki ekki til- tökumál í þá daga. Sem unglingur, t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegr- ar eiginkonu minnar, móður, tengda- móður, ömmu-, langömmu- og langa- langömmu, JÓRUNNAR VALDIMARSDÓTTUR, Egilsbraut 9, Þorlákshöfn. x Páll Þóröarson, Sœvar Sigursteinsson, Svanhildur S. Sigurðardóttir, Jóna G. Sigursteinsdóttir, Guðmundur H. Magnússon, Sigursteina M. Jónsdóttir, Guðmundur Kr. Erlendsson, Erla Jónsdóttir, Haukur G. Jónsson, Valdimar Örn Jónsson, Unnur Pálsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og langalangömmubarn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát mannsins míns, föður okkar, sonar, bróður, tengdasonar, mágs og svila, KRISTINS JÓNSSONAR, Ólafstúni 9, Flateyri. Jafnframt þökkum við Flateyringum, björgunarsveitamönnum, RKÍ og öðrum þeim, er veittu stuðning eftir snjóflóðið á Flateyri. Sigfríður Védís Ásbjörnsdóttir, Jón Gunnar Kristinsson, Svavar Knútur Kristinsson, VilmundurTorfi Kristinsson, Svava Torfadóttir, Bjarni Jónsson, Sveinn Jónsson, Guðrún Jónsdóttir, Erna Jónsdóttir, Anna Jónsdóttir, Vilborg Sveinsdóttir, María Sigmundsdóttir, Jón Stefánsson, Þóra Víkingsdóttir, Vibe Anderberg, öyvind Krogstadmo, Francis J. Mason, Garðar Guðnason, Gianpiero Venditto og fjölskyldur. Handrit afmæiis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, véirituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er aeskilcgt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er mðttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld i úrvinnslu. Scnda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimaslðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallinubil og hæfilega linulengd — eða 3600-4000 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skirnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. fram að fermingu, er hann smali í Kvígindisdal, sem var býli á Selja- dal, suður af Reykjadalnum. En búskapur átti ekki að verða framtíðarstarf Jósteins. Eftir að hafa hafnað lengra námi, sem hann var hvattur til að fara í, þegar hann hafði lokið „lýðskólanámi" hjá Bene- dikt Bjömssyni þar sem hann hafði staðið sig með ágætum, tók hann sig til 1922 og fór til Siglufjarðar þar sem hann settist að hjá foður- systur sinni og réð sig á sjó á bát sem Skafti á Nöf átti og var formað- ur á. Þarna réð hann sig sem hálf- drætting, enda aðeins 13 ára gam- all. Á Siglufirði dvaldi Jósteinn í átta ár og hafði þá verið á síld nokk- ur sumur á skipum Óla Tynes og hjá fleiri útgerðarmönnum. Einnig vann hann við síldarsöltun. Hann þóttist því allmikill heims- maður, þegar hann kom aftur heim til Húsavíkur 1930 og í þann mund réðust önnur örlög hans. Sigmundur Óli Hjálmarsson frá Grímsey átti lítinn vélbát, og á hann ræðst Jósteinn. Sigmundur átti fal- lega gjafvaxta dóttur, Þóreyju að nafni, og í desember 1931 ganga þau Jósteinn í hjónaband. í Kirkjubæ hófu þau búskap sinn, en húsið var gamla kirkjan sem stóð norð-austast í þorpinu, en hafði verið flutt á rekatijám og því komið fyrir austan við hús Kaupfélags Þingeyinga, og þar bjuggu þau í 36 ár, eignuðust bömin sín fimm, ólu þau þar upp, en eitt þeirra misstu þau. Afkomendur Þóreyjar og Jóstéins em nú næstum 60 talsins og hið mesta myndarfólk. Eins og áður segir verður Jó- steinn meðeigandi í útgerð vélbáts- ins Óðins 1934. Og þar beitti ég línu og stokkaði frá 1935-40, en hélt þá að tími væri kominn til stærri átaka og réð mig í vegavinnu og síðar í síldarverksmiðjuna á Raufar- höfn, en elsti bróðir minn, Helgi, hóf sjómennsku sína hjá Jósteini á Óðni. Hann réðst síðan fljótlega á stærri báta og fór að fara á vertíð- ir suður til Sandgerðis komungur. Þá féllst Jósteinn á að taka mig til sín á Óðin, og skyldi nú fullreynt hvort hægt væri að gera úr mér sjómann. En svo fór að ég entist aðeins eitt sumar sem sjómaður, en lærði mikið af Jósteini. Hann fiskaði vel á óðni svo aðrir hliðstæðir for- menn höfðu ekki við honum, og kom fyrir að við tvísóttum, sem kallað var, en þá bar báturinn ekki aflann, svo fara varð aftur og draga það sem eftir var línunnar. Þessi sam- vinnuútgerð félaganna gekk vel í 12 ár, en þá seldu þeir og gengu til annarra starfa. Stríðið geisaði þetta sumar sem ég var á sjónum, og eitt sinn var strandferðaskipið Súðin dregin til hafnar hér á Húsavík, sundurskotin eftir flugvélaárás. Nokkrir menn höfðu fallið. Óhuggulegar árásir höfðu verið gerðar á fiskibáta kring- um landið, og komu sumir ekki aft- ur að landi. Eg minnist þess atburð- ar, þegar ég hef orðið hræddastur á ævi minni, en það var í róðri með Jósteini á Öðni. Við höfðum lagt línuna norð-austur af Flatey, og á baujuvaktinni tók að bræla og var kominn leiðinda veltingur, þegar við hófum að draga línuna og dimmt var yfir. Allt gekk vel í byijun og ég man eftir því að síldarskipið Keflvíkingur fór fram hjá okkur með snurpubátana í lang-togi, og hélt í áttina til Flateyjar. Eg og ungur félagi minn vorum önnum kafnir við störf okkar, þegar Jó- steinn kallar til okkar, rólegur í fasi: „Sjáið þið hana þessa, strák- ar!“ Mér verður litið upp og þá er yfír okkur ægilegt flugvélarferlíki, að mér fannst, með þýsku merkjun- um neðan á vængjunum. Hún fór ótrúlega hægt, og sá ég mennina í flugstjómarklefanum. Jósteinn virt- ist halda ró sinni, en okkur strákun- um féllust hendur. Hvenær kæmi skotgusan? En flugvélin hélt á brott í stefnu á eftir Keflvíkingi. Við reyndum að hefja störf að nýju, en skömmu síðar kemur hún aftur úr annarri átt. Óttinn greip mig miklu meira en fyrr, en formaðurinn stóð við stýrishúsið og virtist rólegur. En aftur hélt flugvélin á brott, ég sá mennina í gluggunum, en ekkert skeði. í þetta sinn fór allt vel. En Jósteinn sá hvemig okkur leið og sagði rólega: „Skerið á línuna, við föram í land.“ Jósteinn fór suður á vertíð 26 sinnum um dagana. Þar af var hann í Sandgerði 15 vertíðir og þá oftast á mb. Oðni, sem Gerðabræður áttu og gerðu út. Hann var vélstjóri á þessum bát, og veturinn 1944, að- faranótt 12. febrúar, biður hann skipstjórann á bátnum um leyfí til þess að skreppa til Keflavíkur í er- indagjörðum fyrir sjálfan sig. Það leit alls ekki út fyrir sjóveður um nóttina, svo leyfið var auðfengið. Hann fór síðan sinna ferða. Þegar komið var til baka seint um kvöldið, sér hann hins vegar að allir bátar eru farnir á sjó. Annar maður fór í hans stað. Þegar leið á nóttina JÓN HÚNFJÖRÐ JÓNASSON + Jón Húnfjörð Jónasson fæddist 21. janúar 1914 á Sauðadalsá, V-Hún. Hann lést í Reykjavík 3. nóvember síðast- liðinn og fór útförin fram 10. nóvember. AÐ MORGNI föstudagsins 3. nóv- ember sl. lést á Landspitalanum góður vinur minn Jón Húnfjörð Jón- asson eftir stutta en harða baráttu. Það var svo um hádegisbilið þennan sama dag að Helga konan hans hringdi i mig til Færeyja og tjáði mér þessi válegu tíðindi. Kynni okkar Jóns ná ekki langt aftúr, en ég kynntist honum í jan- úarmánuði 1987 er ég keypti af honum gamla tankbifreið af gerð- inni GMC árgerð 1951. í gegnum þessi viðskipti mynduðust náin vina- bönd milli okkar Jóns þar sem við urðum þess áskynja að þótt mikill aldursmunur væri á okkur eða tæp- lega hálf öld, áttum við sömu áhuga- málin, þ.e.a.s. bfla, ferðalög og úti- veru. Jón var hafsjór af fróðleik og oft sat ég og hlustaði hugfanginn á hann segja skemmtilegar og hríf- andi frásagnir af svaðilförum fyrri tíma í Húnavatnssýslunni, ferðir með lækna og hjúkrunarfólk í óveðr- um og ófærð, ferðir yfir Holtavörðu- heiði í blindbyljum og skafrenningi og svona mætti lengi telja. Við Jón vorum báðir aðdáendur og eigendur fombíla, og mér er minnisstætt þegar Jón lánaði mér trakkinn H-70 sem er af gerðinni GMC árgerð 1942 í Þórsmörk sum- arið 1987. Áður en lagt var í hann varð ég að fara í reynsluferð með Jóni og skrappum við uppí Kjós, í þessari reynsluferð fékk ég svo að keyra trakkinn fyrsta sinni og að ég skyldi kunna að tví-kúpla fannst Jóni æði merkilegt. í ágústmánuði 1988 fóram við Jón saman í lang- ferð, en þá fóram við á H-70 norður á Ólafsfjörð með gamlan Buick á pallinum sem ég á. Við lögðum af stað árla morguns og okkur sóttist ferðin vel, Jón tjáði mér að þegar við værum komnir yfír Holtavörðu- heiði ætti ég að taka við, en það dróst á langinn enda var ég að hluta á frásagnir af fyrri tíðar atburðum, heyra um kennileiti og staðhætti í Húnavatnssýslu o.s.frv. Þegar við voram komnir á Blönduós innti ég Jón eftir því hvort hann væri ekki þreyttur og hvort ég ætti ekki að taka við svolitla stund. Jón sagði þá að hann væri gamall og lúinn eins og trakkurinn, en hann liðkað- ist allur upp við að keyra, því fór sem fór, Jón keyrði alla leiðina til Ólafsfjarðar í samtals 11 tíma þá tæplega 74 ára gamall og til baka daginn eftir. Jón var nefnilega bfl- stjóri af guðsnáð. Það var svo árið 1992, að Jón fól mér að flytja þenn- an trukk H-70 áfram óskemmdan inn í framtíðina. gerði ofsaveður og fórast nokkrir bátar með manni og mús, og þar á meðal mb. Óðinn. Jósteinn hefur stundum lýst tilfínningum sínum, daginn sem hann stóð einn á bryggj- unni, báturinn, sem hann var á, horfinn, og allir félagar hans týndir. 1952 kaupir hann síðan litla trillu, sem hann skýrir Hafdísi í höfuðið á dóttur sinni, og þá hefst sá kafli lífs hans, sem gerir hann að einum frægasta trillukarli á íslandi. Sjó- mannsferill hans stendur í 68 ár, þar af er hann með Hafdísi í 38 sumur og rær héðan frá Húsavík. Árið 1958 byijar hann að nýju sam- vinnu við föður minn, Bjama Ás- mundsson, sem þá er aftur byijaður saltfiskverkun, og verður Jósteinn tryggasti viðskiptavinur hans, þar til hann leggur starfsemi sína niður 1978. Jósteinn Finnbogason leggur svo Hafdísi sinni í naust í hinsta sinn árið 1990, þá orðinn 81 árs gamall. Honum var margt til lista lagt, og hafa rithöfundar skrifað ævi- ágrip hans þar sem greint er frá ýmsu í fari hans. Þar ber hæst að nefna músíkgáfumar, en þær hafði hann í ríkum mæli. Harmonikkuleik stundaði hann frá unglingsáram og náði mikilli leikni á það hljóðfæri og átti marga góða vini í hópi þeirra, sem á það leika. Jósteinn var heiðraður af þeirri stétt manna sem hann mat mest, sjómönnunum hér á Húsavík, en þeir veittu honum öldnum æðsta heiðursmerki, sem sjómönnum hlotnast hér. Tvisvar sinnum á tylli- dögum í lífí hans söfnuðu Húsvík- ingar saman í sjóð og gáfu honum dýrindis harmonikkur, sem honum var ókleift að kaupa sjálfum. Nú síðustu árin hefur þessi aldni öðlingur haft hægt um sig. Fætum- ir biluðu og vegalengdimar sem hann komst frá heimili sínu, til þess að heimsækja vini sína, styttust. Að lokum gekk hann spölinn að heiman út í búð kaupfélagsins, þar sem hann settist við kaffiborðið og sagðist taka hér á móti fólki. Glettn- in var söm og jöfn, hann hafði alla daga eitthvað til málanna að leggja og stálminni hans um menn og málefni kom mönnum á óvart. Það var einmitt á þessum stað sem hann hneig niður, við hliðina á vini sínum Þórarni Vigfússyni, jafn- aldra og fermingarbróður, og átti ekki afturkomu auðið frá sjúkrahús- inu. Við Grafarbakkabræður og fjöl- skyldur okkar eigum honum sér- Það var gott að koma heim til Jóns og Helgu í Fannafoldina, þau vora höfðingleg heim að sækja. Oft kíkti ég inn að kvöldi dags, tók þá gjarnan í spil við þau hjónin, og var þá oftast spilaður manni. Að koma í skúrinn hjá Jóni var sérstök upplif- un, þar undi Jón sér best hin síðari ár. Aðdáunarvert var að fylgjast með því hversu afkastamikill Jón var þó aldraður væri. Hann keypti gamla Chevrolet bíla í Sölunefndinni og víðar og kom þeim fyrir í kring um skúrinn og síðan fóru þeir í yfír- halningu. Hver Chevroletinn á eftir öðram rúllaði út úr skúrnum næst- um eins og af færibandi í Detroit, helstu bílaframleiðendaborg Banda- ríkjanna. Elstu dætram þeirra Jóns og Helgu, Bára og Marsý, kynntist ég lítillega í gegnum heimsóknir mínar í Grafarvoginn, og þar sem vinskap- ur okkar Jóns var um margt sér- stakur, þó aðallega vegna aldurs- munarins, höfðu þær systur oft að orði að þama væri kominn týndi sonurinn. Ég tel það mikið lámað hafa feng- ið að kynnast og umgangast þennan mæta mann sem nú hefur gengið æviveginn á enda. Kímnigáfa hans og frásagnargleði var einstök, en hann var skapmaður og fastur fyr- ir. Hjá okkur hinum sem eftir eram, sitja minningar um litríkan persónu- leika sem lét engan ósnortinn sem honura kynntist. Helgu, dætram og fjölskyldum þeirra sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Far þú í friði, kæri vinur. Björn Ingi Knútsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.