Morgunblaðið - 25.11.1995, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 21
'fPɻSTUTT
Málefnum
N-Irlands
þokað
TALSMAÐUR Johns Majors
forsætisráðherra Bretlands
sagði í gær, að tilraunir til að
koma á varanlegum friði á
Norður-írlandi hefðu þokast í
rétta átt í gær á hálfrar stund-
ar símafundi Majors og írska
starfsbróðurs hans, Johns
Brutons. Varð það fjórði síma-
fundur þeirra um N-írland í
vikunni.
Klofningur í
FIS vaxandi
VAXANDI klofningur er í röð-
um íslömsku frelsishreyfingar-
innar í Alsír (FIS) varðandi
hugsanlegar viðræður við for-
seta landsins, Liamine Zerou-
al. Anouar Haddam, leiðtogi
þingmannasamtaka FIS sak-
aði í gær annan FlS-leiðtoga,
Rabah Kebir, um svik við als-
irsku þjóðina með því að viður-
kenna kjör Zerouals. „Þessi
misgjörð verður aldrei fyrir-
gefin,“ sagði í jrfirlýsingu
Haddams.
Veisla hjá
Pinochet
AUGUSTO Pinochet fyrrver-
andi leiðtogi herstjórnarinnar
í Chile verður áttræður í dag,
laugardag, og hefur hann boð-
ið 1.800 vinum sínum til mik-
illar hátíðarveisiu. Vinstri
sinnar hyggjast minna á blóð-
uga 17 ára valdatíð með mót-
mælum á götum úti í höfuð-
borginni Santiago.
Leeson birt
ákæra
BRESKI bankamaðurinn Nick
Leeson var leiddur fyrir dóm-
ara í Singapore í gær og birt
ákæra í 11 liðum vegna gjald-
þrots Barings-banka. Var
hann sakaður um skjalafals
og villandi upplýsingar vegna
viðskipta með svokallaðar af-
leiður en 1,4 milljarða dollara
tap, jafnvirði 92 milljarða
króna, á þeim varð til þess að
bankinn varð gjaldþrota.
Gonzalez bíð-
ur hnekki
STJÓRN Felipe Gonzalez beið
hnekki í gær er Alfredo Pastor
ráðuneytisstjóri í efnahags-
málaráðuneytinu í Madríd
sagði af sér vegna ágreinings
við Pedro Solbes efnahagsráð-
herra um stefnuna í ríkisfjár-
málum. Pastor er 51 árs virtur
hagfræðingur og tók við emb-
ætti eftir kosningasigur sósíal-
ista í júní 1993.
Taka Baska í
Frakklandi
FRANSKA lögreglan handtók
sex menn, þar af fimm
spænska Baska, í áhlaupi í
norðvesturhluta Frakklands, í
gær. Aðgerðin var liður í til-
raunum frönsku Iögreglunnar
til að rjúfa samband Baska í
Bretaníu við skæruliða að-
skilnaðarsamtaka Baska á
Spáni.
ERLENT
Sænskum læknum tekst að
græða saman slitnar taugar
Vænlegur árangnr gegn lömun af
völdum slitinna tauga
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SÆNSKIR læknar hafa náð góð-
um árangri í að tengja taugar sem
slitnað hafa frá mænunni. Hingað
til hefur ekki verið hægt að ráða
bót á slíkum slitum, sem leiða þá
til lömunar þeirra líkamshluta,
sem taugarnar stjóma. í breska
læknatímaritinu The Lancet birt-
ist nýlega grein eftir sænska
lækna um aðgerð á ungum manni,
þar sem slitnar taugar voru límd-
ar á sinn stað. Þremur árum eftir
slysið getur hann hreyft hendina,
sem ella hefði lamast.
Það em læknar á Karólínsku
stofnuninni og Karólínska sjúkra-
húsinu í Stokkhólmi, sem hafa
náð árangri í að tengja slitnar
taugar að sögn Svenska Dagblad-
et. Áverkinn hlýst oft í mótor-
hjólaslysum, þar sem ökumaður
kastast til og það tognar illilega
á höfði og öxlum. Við átakið geta
taugarnar slitnað frá mænunni
og taugafrumumar drepist. Þegar
vöðvunum berast ekki lengur
hreyfiboð lamast þeir og visna
síðan smátt og smátt. Hingað til
hefur verið álitið að ekki væri
hægt að grípa inn í þetta ferli.
Afleiðingarnar eru oftast lömun
pg fómarlömbin oftast ungt fólk.
í Svíþjóð verða 40-60 mótorhjóla-
menn fyrir áverkum af þessu tagi
árlega.
Sænsku læknarnir hafa hins
vegar sýnt fram á að sumar
hreyfifrumurnar í mænunni lifa
af, geta vaxið inn á skaðaða svæð-
ið og tengst slitnum taugaendum
utan mænunnar vegna áður
óþekktra endurnýjunarhæfileika.
Aðgerð þarf að gera innan
mánaðar frá slysinu og batinn fer
eftir hve margar taugar hafa
slitnað. Bestur árangur hefur
náðst með hreyfitaugar, en aðrar
taugar taka síður við sér enn sem
komið er.
Hingað til hafa verið gerðar
aðgerðir-á sex mönnum vegna
slitinna tauga, þar sem taugarnar
hafa verið límdar á sinn stað með
því að sérstöku lími er sprautað
inn í mænuna. Batinn er hægur.
Greinin í The Lancet fjallar um
bata ungs manns, sem varð fyrir
mótorhjólaslysi fyrir þremur árum
og getur nú hreyft höndina, sem
væri ella lömuð.
Enn sem komið er hefur aðferð-
inni aðeins verið beitt á taugaslit
eftir mótorhjólaslys. Algengasta
ástæða lömunar eftir hrygg-
áverka er hins vegar að mænan
fari í sundur. Þá slitna taugarnar
fyrir neðan brotið úr sambandi
við heilann og sá hluti líkamans,
sem stjórnast af þeim lamast. Á
Karólínska sjúkrahúsinu er einnig
unnið að rannsóknum á að tengja
mænuna saman aftur og koma
þannig í veg fyrir lömunina, sem
verður við mænubrotið. Reynt
hefur verið að lækna brotið með
því að tengja taugar úr heilbrigðu
mænunni niður í mænuna fyrir
neðan brotið. Á háskólasjúkra-
húsinu í Lundi hefur verið reynt
að sprauta taugafrumum úr fóst-
urlátsfóstrum í mænuna fyrir neð-
an brotið til að fá brotnu endana
til að vaxa saman. En ferlið er
flókið og læknarnir álíta sig ekki
enn skilja það nægilega vel, en
báðar aðferðirnar þykja vísa í
rétta átt.
Ljosastjarna
lómabúnt
Jólabjalla
m/ártölum
Jólahús m/kerti
Jólalengjur
(margir litir)
**■ Jólasnjókúla
verð frá Qi
Jólaveinn,
hæð10 cm
laugardag og sunnudag