Morgunblaðið - 26.11.1995, Blaðsíða 52
£2 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
KORFUKNATTLEIKUR
Jón Kr. Gíslason leikur 500. leik sinn með Keflvíkingum í kvöld gegn Tindastóli
Farið ad síga
á seinni hlutann
jÓN Kr. Gfslason, þjálfari og
leikmaður körfuknattleiksliðs
Keflavíkur og nýráðinn lands-
liðsþjálfari, leikur í kvöld 500.
leik sinn með meistaraflokki
félagsins. Keflavík mætir
Tindastóli í úrvalsdeildinni
eins og reyndar þegar Jón lék
fyrsta meistaraflokksleik
sinn, 27. október 1979, þá 17
ára gamall. Hann er þriðji
leikmaðurinn af Suðurnesjum
sem nær 500 leikja markinu.
Hinir eru Njarðvíkingarnir
ísak Tómasson og Gunnar
Þorvarðarson.
Jón sagði við Morgunblaðið að
þetta væri orðinn langur tími
og það væri farið að síga á seinni
hlutann hjá sér sem
leikmaður. „Það má
segja að það sé
komin önnur kyn-
slóð í körfuboltann
núna frá því ég byijaði. Sem dæmi
um það var Kári Marísson leik-
maður og þjálfari Tindastóls 1979
en nú leikur sonur hans, Arnar,
með liðinu. Það hefur mikið breyst
á þessum sautján árum. Það er
mun meiri breidd í boltanum núna
og liðin eru mun betri. Þegar ég
byijaði með meistaraflokki labbaði
ég nánast beint inn í meistara-
flokkinn eftir ijórar fimm æfingar.
Það tekur nýliða núna um eitt til
tvö ár að komast í byijunarliðin
hjá úrvalsdeildarliðunum," sagði
Jón.
Hann sagði að það yrðu örugg-
Eftir
VaiB.
Jónatansson
lega margir sem næðu 500. leikja
markinu á næstu árum því nú
væru mun fleiri leikir á hveiju
keppnistímabili en áður. í fyrra
voru leikmenn Grindvíkinga og
Njarðvíkinga að leika 82 leiki á
tímabilinu. „Eg er nú reyndar á
því að það sé allt of mikið álag
og það kom berlega í ljós í ár-
angri landsliðsins í Evrópukeppn-
inni og á Smáþjóðaleikunum sl.
sumar. Það þarf að skoða þessi
mál betur með tilliti til landsliðs-
ins.“
Jón, sem er 33 ára, hefur í
mörgu að snúast. Hann starfar
sem íþróttakennari í Keflavík, er
þjálfari og leikmaður Keflvíkinga
og nýlega var hann ráðinn lands-
liðsþjálfari KKÍ. Hann hefur gert
6.431 stig í þessum 499 leikjum
með meistarafiokki, sem er 12,9
stig að meðaltali í leik. Hann á
að baki 158 landsleiki og síðustu
árin var hann fyrirliði landsliðsins.
„Það er stutt í það að ég hætti
að leika og er fullkomlega sáttur
við það. Það er farið að síga á
seinni hlutann og það e_r komin
langþreyta í fæturna. Ég spila
reyndar mun minna nú en áður,
er smátt og smátt að draga mig
út úr þessu og gef yngri leikmönn-
um tækifæri á spreyta sig.“
Morgunblaðið/Kristinn
Þjálfarinn og leikmaðurinn
JÓN Kr. Gíslason hefur verið þjálfari og leikmaður
Keflvíkinga í fimm ár og hefur liðlð þrívegis orðið
melstari og tvívegis bikarmelstari undir hans stjórn.
Reuter
SHARONE Wright, leikmaður Philadelphiu, reynir hér að kom-
ast framhjá Otis Thorpe og Theo Ratliff hjá Detroit í lelk llð-
anna í fyrrinótt. Detroit hafði betur og sigraði 101:78.
Chicago held
ur sínu striki
MICHAEL Jordan hefur verið í
miklu stuði sem af er keppni í
NBA-deildinni og það var engin
undantekning þar á í fyrrinótt
er Chicago Bulls sigraði Utah
Jazz 90:85 á útivelli. Jordan
gerði 15 af 34 stigum sínum f
fjórða leikhluta og var maður-
inn á bak við sigur Bulls eins
og svo oft áður. Chicago hefur
nú unnið tíu ieiki og tapað að-
eins einum og hefur aldrei byrj-
að deildarkeppnina eins glæsi-
lega.
i
Jordan sagði að Chicago hefði
þurft að hafa mikið fyrir sigrin-
um í Utah. Hittni hans var þó
ekki upp á það allra besta utan
af velli því hann setti aðeins 9
skot af 21 niður, en vítahittnin var
skárri því 14 af 17 skotum fóru í
körfuna. Scottie Pippen gerði 22
stig og tók 8 fráköst og Luc Lon-
gley var með tíu stig og tíu frá-
köst. John Stockton var stigahæst-
ur í liði Utah með 23 stig og Karl
Malone kom næstur með 19 stig.
Jalen Rose gerði fimm af sjö
stigum sínum fyrir Denver gegn
Dallas í framlengingu og Mahmo-
ud Abdul-Rauf setti persónulegt
stigamet er hann gerði 39 stig í
112:109 sigri Denver á útivelli.
Jason Kidd hjá Dallas gerði fjögur
stig á síðustu 12 sekúndunum í
venjulegum leiktíma og tryggði
framlenginguna. Jamal Mashburn
gerði 37 stig fyrir Dallas, sem tap-
aði fimmta leiknum í röð.
Hersey Hawkins gerði 27 stig
og Shawn Kemp 25 og tók 17 frá-
köst fyrir Seattle sem sigraði San
Antonio 112:100. Sean Elliott var
stigahæstur í liði Spurs með 33
stig.
Golden State vann fyrsta leik
sinn af síðustu sex er liðið mætti
Boston. Ron Seikaly gerði 23 stig
og tók 10 fráköst og Tim
Hardaway kom næstur með 18
stig í 101:94 sigri í Boston. Þetta
var aðeins þriðji sigur Golden State
í Boston í 18 leikjum. Rick Fox
var stigahæstur í liði heimamanna
með 21 stig.
Glen Rice og Larry Johnson
gerðu 20 stig hvor fyrir Charlotte
sem vann loks sigur, 116:104 á
Vancouver, eftir fimm tapleiki í
röð. Benoit Benjamin var með 18
stig fyrir nýliðana, sem hafa tapað
tíu leikjum í röð — unnu aðeins
opnunarleikinn.
Nick Anderson gerði 34 stig
fyrir Orlando sem vann Minnesota
109:98 á útivelli. Penny Hardaway
kom næstur með 22, en átti auk
þess 12 stoðsendingar og tók sjö
fráköst. Orlando hefur nú unnið
tíu leiki, eins og Chicago, en hefur
tapað tveimur. Þetta var hins veg-
ar sjötti tapleikurinn í röð hjá
Minnesota.
NBA-úrsiit
Leikir aðfaranótt iaugardags:
Charlotte - V aneouver...........116:104
Ðetroit - Philadelphia............101:78
Indiana - Cleveland...............93:100
Washington - Miami................110:94
Boston - Golden State............94:101
Minnesota - Orlando...............98:109
Utah - Chicago.....................85:90
Dallas - Denver..................109:112
■Eftir framlengingu.
Portland - New Jersey..............99:87
Seattle - San Antonio............112:100
LA Lakers - Sacramento.............98:99
Staðan
(sigrar, töp og árangur í prósentum)
AUSTURDEILD
Atlantshafsriðill:
Orlando 10 2 83,3
New York 9 2 81,8
Miami 9 3 66,7
Washington 5 5 50,0
Boston 4 6 40,0
New Jersey 4 7 36,4
Philadelphia 2 8 20,0
Miðriðill:
Chicago 10 1 90,9
Atlanta 6 5 54,5
5 5 50 0
Detroit 4 6 4o’o
Toronto 4 8 33,3
Charlotte 3 8 33,3
Milwaukee 3 6 33,3
Cleveland 3 8 27,3
VESTURDEILD
Miðvesturriðill:
Houston 10 1 90,0
Utah 10 3 76,9
6 4 60,0
Dallas 5 6 45^5
Denver 3 8 27,3
Vancouver 2 10 16,7
1 9 10,0
Kyrrahafsriðill:
Sacramento 8 4 66,7
Seattle 8 5 61,5
LA Clippers 7 5 58,5
IA Lakers 6 6 50,0
Portland 6 6 50,0
Phoenix 5 5 50,0
Golden State 4 8 33,3