Morgunblaðið - 26.11.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.11.1995, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 19/11 -25/11 ►DAVÍÐ Oddsson for- sætisráðherra hleypti Stoð 3 formlega af stokk- unum á föstudagskvöldið með aðstoð Úlfars Stein- dórssonar sjónvarps- stjóra. Tæknibúnaður stöðvarinnar er einn sá fullkomnasti sem völ er á. ►ÍSIENSKIR tvíburar sem fæddust tveimur mánuðum fyrir timann voru sóttir í sjúkraflugi til Grænlands í vikunni þar sem grunur lék aað annar þeirra væri kominn með sýkingu. Var hann í önd- unarvél á leiðinni til ís- lands og fyrst eftir kom- una á vökudeild Landsp- ítalans, en báðum tvíbur- unum heilsast nú vel. ► BORGARRÁÐ hefur samþykkt að selja Tómasi A. Tómassyni Pósthús- stræti 9 fyrir 54 milljónir króna. Við undirritun kaupsamnings greiðast 2 milljónir króna og í tíu mánuði greiðist milijón á mánuði. Eftirstöðvar greiðast á 12 tíl 15 árum. ►SAMKVÆMT útreikn- ingum Seðlabanka íslands drógust tekjur af ferða- þjónustu saman um 1% á háannatímannm \ júlí- september miðað við sama tíma í fyrra. Þróunin hef- ur snúist við frá fyrra helmingi ársins þegar gjaldejristekjur í grein- inni jukust um 25% en tekj uaukningin fyrstu niu mánuðina nemur 14%. ►ÓVÆNT úrslit urðu í 16-liða úrslitum bikar- keppninnar í körfuknatt- vík, KR sigraði Keflavík, Valur sló Skallagrím út og Skagamenn lögðu ÍR- inga. Önnur úrsiit urðu þau að Þór vann lið Snæ- fells, Selfoss lagði Leikni og Breiðablik vann b-lið NjarðvOcur. Flugnmferðarþjón- ustan úr landi? SLITNAÐ hefur upp úr viðræðum samninganefndar ríkisins við flugum- ferðarstjóra, sem að sögn samninga- nefndar ríkisins hafa frammi 55% bein- ar launakrðfur og aðrar kröfur sem nema 27%. Halldór Blöndal samgöngu- ráðherra hefur lýst því yfir að hann tæki uppsagnir flugumferðarstjóra til greina og störfín yrðu auglýst innan- lands og erlendis eftir helgina. Ekki er talið útilokað að flugumferðarþjón- usta flytjist úr landi til annarra aðila fáist ekki flugumferðarstjórar til starfa. ASÍ vill þjú þúsund króna hækkun ALÞÝÐU SAMBAND íslands vill að félagsmönnum ASÍ verði bættur upp sá mismunur sem sé á samningum landssambanda ASÍ og samningum sem ríkið hefur gert við opinbera starfsmenn. Er það mat ASÍ að laun félagsmanna þess þurfi að hækka um u.þ.b. 3.000 krónur á mánuði til þess að þeir fái jafnmikið út úr sínum samn- ingum og aðrir sem sömdu síðar. Hallinn í botnfisk- vinnslu 3 milljarðar BOTNFISKVINNSLAN er nú rekin með 7,5% halla sem á heilu ári þýðir tæplega þriggja milljarða króna halla. Hallinn í frystingunni er um 2,5 millj- arðar en í söltuninni 450 mflljónir. Helsta ástæða versnandi afkomu í greininni er hækkandi hráefnisverð, m.a. vegna úrskurðar úrskurðanefiidar um fiskverð og sjómannaverkfallsins sl. vor. Björk söngkona ársins BJÖRK Guðmundsdóttir var kosin söngkona ársins 1995 í Evrópukeppni MTV, stærstu tónlistarsjónvarpsstöðv- ar heims, og tók Björk við verðlaunun- um á tónlistarhátíð i París. Björk hefur tekið sér frí frá tónleikahaldi fram yfir áramót en þá fer hún í hljómleikaferð um Bretlandseyjar og eftir hana fer hún í tveggja mánaða tónleikaferð um Austurlönd flær. Friður saminn í Bosníu FORSETAR Serbíu, Króatíu og Bos- níu, þeir Slobodan Milosevic, Franjo Tudjman og Alija Izetbegovic, náðu á þriðjudag samkomulagi um frið í stríðinu í Bosníu sem staðið hefur slðan vorið 1992 og kostað um 250.000 mannsiíf. Á samningafund- um sem farið hafa fram fyrir tilstuðl- an Bandaríkjamanna í Dayton í Ohio gætti Serbíuforseti hagsmuna Bos- níu-Serba. Refsiaðgerðum gegn Serbíu var aflétt á miðvikudag. Bosnía verður sambandsríki en í tveim hlutum, annars vegar ríki músl- ima og Króata, hins vegar ríki Serba. Sarajevo verður áfram óskipt og stjómarsetur. Um 60.000 manna herlið frá allt að 25 ríkjum mun verða sent til Bosníu á næstu mánuðum til að gæta þar fríðar, þar af verða um 4.500 frá Norðurlöndunum. Bill Clin- ton Bandaríkjaforseti hefur heitið að senda 20.000 manna lið. Tveir helstu leiðtogar Bosníu- Serba, Radovan Karadzic og Ratko Mladic, hafa báðir verið ákærðir fyr- ir stríðsglæpi en í samningunum er tekið fram að stríðsglæpamenn fái ekki að taka þátt í stjómmálum vænt- anlegs sambandsríkis Bosníu. Fyrstu viðbrögð leiðtoga Bosníu-Serba við samningunum voru neikvæð, þeir sökuðu Milosevic um svik en á fimmtudag tókst Serbíuforseta að telja þeim hughvarf. Hann hét því að reynt yrði að semja á ný um þau mál sem Bosníu-Serbar lýstu óánægju með. ► ALEKS ANDERKwasni- ewski sigraði Lech Walesa í forsetakosningunum í Póllandi um síðustu helgi, fékk 51,7% en Walesa 48,3%. Kwasniewski boðar lýðræði og markaðshag- kerfi og viD aðild að Atl- antshafsbandalaginu og Eyrlpuflnfa—dha, Hann var um hríð ráðberra á stjómarárum kommúnista og er leiðtogi flokks sem reistur var á rústum kommúnistaflokksins. Wa- lesa var í forystu þeirra er hnekktu einræði kommúnista. Hann hefur sakað menn Kwasniewsk- is uffl kosningasvik. ►DÍANA prinsessaaf Wales ræddi opinskátt um hjónabandsvandamál sín, andlega erfiðleika, fram- tíð Karls prins og meintar tilraunir andstæðinga sinna til að ýta sér af opin- berum vettvangi í sjón- varpsviðtali á mánudags- kvöld. ►HARÐURjarðskjálfti varð í Miðausturlöndum á miðvikudag, a.m.k. sex manns biðu bana og víða greip mikil skelfing um sig. ►BRESKIbankamaður- inn Nick Leeson, sem tal- inn er hafa komið Bar- ingsbanka á hausinn, var sendur til Singapore á fimmtudag frá Þýska- landi. FRÉTTIR Sendir Stöðvar 3 er á Húsi verslunarinnar Sendir eruppi kuggasvæði útsendinga Fjölvarpsins eru að miklu eyti þausömu Fj arskiptaeftirlitið vildi ekki sljóma af hörku MIKIL samkeppni er hafin í sjón- varpssendingum á örbygjusviði með tilkomu hinnar nýju Stöðvar 3 á sjón- varpsmarkaðnum. Þórarinn Ágústs- son tæknistjóri Stöðvar 3 segir að ýmis tæknileg vandkvæði hafi komið upp, sem sé afleiðing þess hvemig úthlutun á rásum hafi verið háttað. Hannes Jóhannsson tæknistjóri ís- lenska útvarpsfélagsins tekur undir þetta og segir að komast hefði mátt hjá þessu með því að hafa sendana á sama stað. Fjarskiptaeftirlitið tók þá afstöðu, segir Guðmundur Ólafs- son, forstöðumaður þess, að stýra tæknihlið þessara mála ekki með harðri hendi. Þórarinn Agústsson, tæknistjóri stöðvar 3, segir að þessi staða sé afleiðing af því hvemig úthlutun á tíðnisviði fyrir sjónvarpsútsendingar hafi verið stjómað. Á VHF-tíðnisvið- inu sé takmörkuð rásaskipting og ýmsir ókostir fylgi UHF-tíðnisviðinu. Órbylgjusviðið hafi verið í notkun í Bandarílqunum í nokkur ár. Því fylgi óneitanlega ákveðin vandamál vegna þess að loftnetin taki við þessari háu tíðni og breyti henni í móttækilegt sjónvarpsmerici á VHF, UHF eða svokölluðu s-bandi. J>ar sem sendar eru fyrir, hvort sem þeir em á VHF eða UHF, kemur fram ákveðin trufl- un. Mér sýnist að yfirvöld hafi ekki hugsað þessa útbreiðslu alveg tfl enda. Fjarskiptaeftiriit ríkisins út- hlutar tíðni til þeirra aðila sem reka sjónvarpsstöðvamar, þegar þær eru f loftinu, en um leið og farið er að dreifa merkinu innanhúss, er afstað- an sú að þeim komi málið ekki við,“ segir hann. Mikið er um skuggasvæði í ör- bylgjuútsendingum stöðvanna. Sendir Stöðvar 3 er í Húsi verslunar- innar í Kringiunni en sendir Fjöi- varpsins í húsi Pósts og síma I Öskju- hlíð. Þegar Stöð 2 var að hefja starf- semi var ráðgert að sendir hennar yrði I Húsi verslunarinnar. Guð- mundur Ólafsson, forstöðumaður Fjarskiptaeftirlitsins, segir að eftir- litið hafi þá gert þær kröfur að sent yrði út frá stað þar sem aðilar sem síðar hæfu sjónvarpsrekstur gætu einnig sent út frá. „Þetta var hugsað út frá hags- munum neytandans. Við vildum forðast að hann þyrfti að kaupa tvö loftnet sem beindust hvort í sína áttina, ætlaði hann að ná útsending- um beggja stöðva,“ sagði Guðmund- ur og bætti því við að á þessum tíma hefði ekki verið vitað að stöðvamar nýju gæfu loftnetin til áskrifenda. „Stöð 3 kaus að fara í Hús versl- unarinnar og var ég þá minntur á mínar fyrri yfirlýsingar. Það skiptir miklu máli að þessir tveir staðir em nálægt hvor öðrum og ég skaut á að fyrir 95% af notendum á Reykja- víkursvæðinu nægði að hafa aðeins eitt loftnet. Það dygði að láta loftnet- ið stefna á milli sendanna og þá væri sendistyrkurinn nægur frá báð- um,“ sagði Guðmundur. Sameiginlegur staður hefði sparað milljónir „Það kom okkur mjög á óvart að Fjarskiptaeftirlitið skyldi leyfa upp- setningu á sendi Stöðvar 3 í Húsi verslunarinnar. Við vorum búnir að renna hým auga til þessa staðar en Fj arskiptaeftirlitið lagði mikla áherslu á að sendirinn yrði þar sem ailir gætu sæst á að vera, líka þeir sem síðar hæfu sjónvarpsrekstur um örbylgju. Fyrir þrýsting frá eftirlit- inu völdum við því okkar stað í Öskjuhlíð," sagði Hannes. Hannes sagði að með því að hafa útsendingar stöðvanna frá sama stað hefði verið hægt að notast við eitt sendiloftnet í stað tveggja nú. Með sama hætti hefði Fjarskiptaeftirlitið átt að beita sér fyrir því að stöðvam- ar tvær sameinuðust um uppsetn- ingu á endurvörpum til að eyða skuggasvæðum sem hefði verið betra frá sjónarhóli notenda og spar- að stöðvunum milljónir króna. Fjarskiptaeftirlitið gaf Fjölvarp- inu ogStöð 3 heimild til sjónvarpsút- sendinga á örbylgju og lét markaðn- um eftir að velja sér móttökuloftnet sem tíðnibreytti annaðhvort á UHF-- eða s-band. Hannes kvaðst ávallt hafa verið mótfallinn því að nota UHF-tíðnina því margt væri í loftinu á þeirri tíðni og nefndi hann sérstak- lega sjónvarpsstöðina Omega sem er með stóran sendi á UHF-tíðni. Hannes segir þennan sendi trafla UHF-tíðnibreytingo víðast hvar. Þórarinn segir að áður en hann tók við núverandi starfi hafi honum skilist að það lægi skýrt fyrir að þeim aðila sem færi fyrstur í loftið yrði gert skylt að byggja upp að- stöðu sem aðrir gætu nýtt sér. „Ég kann ekki skýringu á því af hveiju þessu var ekki framfylgt. Við rekum1 stöðina í dag með lágmarksmann- skap og leitum leiða til þess að reka sjónvarpsstöðina á sem einfaldastan og ódýrastan hátt og reynum að koma í veg fyrir aukakostnað sem hlýst af því að flytja merki frá einum stað til annars, en sú þjónusta er raunverulega á hendi Pósts og síma og er dýr. Þess vegna var brugðið á það ráð að senda út frá Húsi versl- unarinnar, sem var mjög farsæl lausn að mínu mati. Við erum þar með góða dreifingu," segir hann. Litlir sendar út um allan bæ „Núna er verið að vinna um allan bæ í þessu máli af meira kappi en forsjá. Við fáum margar hringingar þar sem heilu íjölbýlishúsakerfin eru komin I rúst,“ segir Hannes. „Sé örbylgjuloftnet með UHF- tíðnibreytingu sett upp þar sem venjulegt loftnet er fyrir getur það gerst að það fari að geisla út í venju- lega loftnetið. Þar með er kominn lítill sendir á UHF-tíðnisviði. Ég hef sent Fjarskiptaeftiriitinu bréf þess efnis að það sé að verða til fjöldinn allur af litlum sendum um allan bæ sem senda út á UHF-tíðni og valda truflunum," sagði Hannes. Guðmundur segir að Fjarskipta- eftirlitið taki ábendingum af þessu tagi mjög alvariega og þetta mál verði skoðað. „Okkar grundvallaraf- staða er sú að við aðhöfumst ekkert ef húseigandi lætur gera eitthvað í sínu húsi sem traflar aðra íbúa í sama húsi. Fari það hins vegar að vaida truflun í næsta húsi heyrir málið undir Fjarskiptaeftirlitið," sagði Guðmundur. Hannes líkir ástandinu við knatt- spymuleik sem dómari flautar á en gengur síðan af leikvelli og segir leikmönnunum að ljúka leiknum. „Ég er tæknimaður og mér finnst jákvætt að samkeppni ríki í sjón- varpsmálum en það er engum til gagns, og allra síst notendum, að tæknimálunum sé klúðrað. Þarna hefur Fjarskiptaeftirlitið algjörlega brugðist skyldum sínum," sagði Hannes. Guðmundur kveðst vera sammála Hannesi í því að það sé tæknilegt klúður að hafa örbylgjusendana á tveimur stöðum. „Ég var hins vegar mjög hikandi sem embættismaður að ætla mér að stýra með harðri hendi hins opinbera hvemig menn ætluðu sér í slaginn," sagði Guð- mundur. Þórarinn segir að ákveðin vandamál hafi komið upp í íjölbýlis- húsum og raðhúsum þar sem magn- arakerfi húsa séu viðkvæm og ekki byggð fyrir þessa tíðni. „En það þarf að stilla Ioftnetskerfi fyölbýLis- húsa. Hinu má ekki gleyma að ör- bylgjkn hefur mun fleiri kosti en galla við dreifínguna og möguleika á að senda út margar rásir," segir Þórarinn. Guðmundur segir að aðili sem setti upp loftnet á hús fyrir aðra hvora stöðina gætti þess að i sjálfsögðu vel að merki þeirrar stöðvar sem hann ynni verkið fyrir væri í lagi en hugaði lítt að því að merki frá báðum stöðvunum væri í lagi. „Hefðu sendamir verið á sama j stað hefði ekki verið hægt að laga aðstæður til móttöku frá annarn stöðinni án þess að laga aðstæður til móttöku frá hinni. Ef hlutverk hins opinbera væri að hafa vit fyrir _ mönnum hefði þetta ekki orðið neitt vandamál, en nú era menn í mikilli samkeppni og það býður vandamáli af þessu tagi heim,“ sagði Guðmund- ur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.