Morgunblaðið - 26.11.1995, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 26.11.1995, Blaðsíða 44
4 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Nytt tölublað á næsta blaðsölustað María Sigurðardóttir skyggniIýsingamiði11 í víðtali. Kombúkha-sveppurinn. Nýir tímar, vandað tímarit um það sem skiptir máli. Áskriftarsími: 581-3595. Áskriftartilboð: Bókin um áruna eftir Edgar Cayce. IDAG AKUREYRARBÆR ATVINNUMALANEFND AKUREYRAR Styrkveitingar Atvinnumálanefnd Akureyrar mun tvisvar á ári veita styrki til einstaklinga og fyrirtækja á Akureyri sem vinna að atvinnuskapandi verkefnum. Styrkirtil ein- stakra verkefna geta numið allt að 50% af áætluðum kostfiaði við framkvæmd hvers verkefnis. Hámarks styrkupphæð er kr. 400.000. Styrkirnir eru fyrst og fremst ætlaðir smærri rekstrar- aðilum. Aðilar, sem vilja koma til greina til styrk- veitingar, verða aðfullnægja skilyrðum atvinnumála- nefndar um nýsköpunargildi verkefnisins, auk þess að leggja fram skýr gögn um viðskiptahugmynd, vöruþróun, markaðssetningu, rekstraáætlun og fjár- mögnun. Umsóknareyðublöð liggja fyrir á skrifstofu atvinnu- málanefndar, Strandgötu 29, sími 462 1701. Umsóknarfrestur er til 20. desember 1995. Ábendingaró mjólkurumbiidum, nr. 34 uf60. Fólk og fjalir! Smiðir þekkja þann vanda að láta fjalir falla vel saman. Sumar virðast hvergi eiga heima en aðrar geta fallið hvar sem er. Þegar talað er um að einhver sé ekki við eina fjölina felldur er átt við að sá geti brugðið sér í ýmis líki, fallið að mörgu. Slíkur maður er oft talinn viðsjárverður, jafnvel óheiðarlegur eða fjöllyndur í ástum. Tungan er skemmtilega tvíræð. MJÓLKUHSAMSALAN BRIPS Umsjón Guðm. I’ á 11 Arnarson SUMIR fengu tíu slagi í þremur gröndum, flestir þó aðeins níu, en einn sagn- hafí tapaði spilinu. Sá gleypti hraðabeituna og lét hafa af sér heiðarlega svín- ingu, sem gekk. Þetta var í stórmóti Bridsfélagsins Munins í Sandgerði fyrr í mánuðinum. Illllll Suður gefur, enginn rhI hættu. Norður ♦ Á932 V 97 ♦ DG ♦ ÁD843 Vestur ♦ KG1085 V 1086 ♦ 9842 ♦ 6 Austur +D6 IIIIH VKG5 ÓKG75 ♦G1075 Suður ♦ 74 ▼ ÁD432 ♦ Á63 ♦ K92 Vestur Norður Austur Suður - - - 1 hjarta Pass 2 lauf Pass 2 grönd Pass Pass 3 grönd Pass Pass Útspil: Spaðakóngur?! í vöminni voru Rúnar Ein- arsson og Bjöm Þorláksson, en Ingi Agnarsson var sagn- hafí. Rúnar var heppinn með frumlegt útspilið, því eftir sögnum að dæma var engan veginn útilokað að suður ætti DXX í spaða og makker ásinn. En hann komst upp með glæpinn. Ingi dúkkaði spaðakónginn og aftur næsta spaða, sem Bjöm átti á drottninguna. Þessir tveir fyrstu slagir höfðu tekið nokkum tíma og Bjöm var tilbúinn í huganum með hjartagosann þegar að hon- um kom. Inga þótti þetta ótrúleg snerpa og ákvað að staðsetja hjartakónginn í vestur - stakk upp ásnum. Ekki er öll nótt úti enn, þ.e.a.s. ef sagnhafí skiptir um skoðun varðandi hjarta- kónginn. En Ingi var sann- færður um að vestur ætti kónginn. Hann spilaði þrem- ur efstu í laufi og Qórða lauf- inu. Bjöm átti þann slag á gosann, tók hjartakóng og spilaði meira hjarta, og fékk síðan fimmta slag vamarinn- ar á tígulkóng í lokin. Með morgunkaffinu Ást er TM Refl. U.S. P«t. Off. — aH righta resorved (c) 1995 Los Angeies Tlmes 8yndk*te VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Athugasemd við sj ónvarpsstöðvar KRISTÍN Þorsteinsdóttir hringdi og vildi koma með þá fyrirspurn til sjónvarpsstöðva hvort ekki væri hægt að breyta afruglurum á þann veg að hægt sé að horfa á fleiri en eina stöð á heim- ilinu. Afruglarinn hjá Stöð 2 og Sýn virkar nefnilega þannig að ekki er hægt að horfa á mis- munandi þætti á heim- ilinu þrátt fyrir að fleiri sjónvarpstæki séu til staðar. Kristín hringdi upp á Stöð 2 og var tjáð að það þyrfti að borga fleiri afnotagjöld til þess að hægt væri að horfa á mismunandi efni. Þetta er bagaiegt þar sem unglingamir á heimilinu vilja t.d. horfa á annað efni en hún. Er ekki til einhver nýrri tækni sem gerir fólki kleift að hafa aðeins eitt áskriftargjaid en geta þó horft á mis- munandi stöðvar fyrst verið er að bjóða upp á margar stöðvar í einum pakka, Stöð 2, Sýn og Fjölvarpið? Eins fínnst Kristínu undarlegt að engin af þessum nýju sjónvarpsstöðvum skuli bjóða upp á kvikmyndir á morgnana, því sumir em heima á þeim tíma og eðlilegt væri að dreifa þessu meira yfír daginn heldur en að allar stöðv- amar keppist um að hafa kvikmyndir á sama tíma, á kvöldin. Eldra fólk og þeir sem af einhverjum ástæðum þurfa að vera heimavið myndu eflaust þiggja þessa þjónustu með þökkum. Athyglisverð grein MARGRÉT hringdi og vildi vekja eftirtekt ies- enda á mjög svo ágætri grein eftir Hrafn Sæ- mundsson í Morgunblað- inu fimmtudaginn 23. nóvember. Greinin heitir Skrýmslið og er sannar- lega eftirtektarverð grein og orð í tíma töluð. ÁÐUR en við höldum lengra, ungi maður, er rétt að þú vitir að ég var orðin sjúkling- ur áður en þú varst orðinn svo mikið sem blik í áugum foreldra þinna. íslenskufrœðsla á mjólkurumbúðum er samstarfsverkefhi Mjólkursamsölunnar, ístenskrar málnefndar og Málrœktarsjóðs. - ÞETTA er reikningur frá herrafataverslun- HÉLT læknirinn að þetta væri blóðeitrun? Þú hefur líklega bitið þig í tunguna. SKAK Umsjðn Margeir Pctursson SVARTUR leikur og vinnur Staðan kom upp á Metro mótinu, Skákþingi íslands, sem lýkur í dag. Rúnar Sig- urpálsson (2.285) hafði hvítt, en Helgi Áss Grétars- son (2.440), stórmeistari, var með svart og átti leik. Hvítur hefur fórnað skipta- mun og á hættuleg færi á kóngsvæng. Síðast lék hann 28. b2-b3. Það duga nú engin vettlingatök fyrir svart: 28. - Hxa2!! 29. Hxa2 - cxb3 30. Hb2 - Rd6 31. e4?(Vonlaus leikur í tímahraki, en hvíta staðan var töpuð. Besta tilraunin var 31. g4, en eftir 31. - Rc4 32. Hxb3 - Hxb3 33. Rf5 - a5! 34. h7 - Hb8 36. h8=D - Hxh8 37. Bxh8 — a4 verður svarta a peðið ekki stöðvað. 31. — dxe4 32. d5 — a5 33. g4 - a4 34. g5 - fxg5 35. Bd4 - Kg8 36. Rg6 - a3 37. Rf8 - Kxf8 38. h7 - Rf7 og hvítur gafst upp. Ellefta og síðasta um- ferð íslandsmótsins fer fram í dag í fundarsal Þýsk- íslenska, Lynghálsi 10, og hefst taflið kl. 17. Stór- meistaramir Jóhann Hjart- arson og Hannes Hlífar Stefánsson tefla innbyrðis. Víkverji skrifar... VÍKVERJI er eindregið hlynntur þeim ströngu skilyrðum, sem starfshópur heilbrigðisnefndar Reykjavíkur leggur til að áfram verði sett fyrir því að menn fái að halda hund í Reykjavík. Víkveiji sér ekkert á móti því að afmörkuð séu svæði, þar sem hundar megi ganga lausir og önnur, þar sem hundar eru alfarið bannaðir. Hundabannið er auðvitað fyrst og fremst hrein- lætisatriði. Því miður er ekki hægt að treysta öllum hundaeigendum til að sjá til þess að þrífa eftir hunda sína á götum eða í almenningsgörð- um. Hver getur hugsað sér að stíga eða setjast í hundaskít á gotu eða grasbletti? xxx SLÆM reynsla Víkverja af hundi nágrannans ræður kannski einhvetju um afstöðu hans til hundahalds í borginni. Granninn leyfir hundi sínum að gera stykki sín hvar sem er í nágrenninu, þar á meðal í garð Víkveija og á gang- stéttina fyrir framan húsið. Það er ekki bezta byrjun á deginum, sem skrifari getur hugsað sér, að stíga í úrgang frá hundi, sem virðist á stærð við folald, þegar gengið er út í bílinn að morgni dags! Víkveija finnst ekki nema sjálfsagt að sekta fólk fyrir að sleppa hundum sínum lausum með þessum hætti. xxx ALLT tal um að viðhorfið til hundáeigenda sé eins og „til litaðra í Suðurríkjum bandaríkjanna á síðari hluta nítjándu aldar“, eins og einhver af fundarmönnum á opnum fundi heilbrigðisnefndarinn- ar síðastliðinn fímmtudag orðaði það, finnst Víkveija út í hött. Það er ekki verið að setja reglur um að hundaeigendur megi bara vera á ákveðnum svæðum og öðrum ekki — þeir mega vera víðast hvar í borginni svo fremi að þeir séu ekki í samfylgd hundanna sinna. XXX TALANDI um viðhorf á seinni hluta 19. aldar má hins vegar rifja upp hvemig ástandið í Reykja- vík var á þeim tíma. Þá voru kúa- hjarðir reknar um götur bæjarins og hestar gengu lausir. í lögreg- lusamþykkt frá 1890 var fyrst bannað að hafa fjóshauga á al- mannafæri — nema í steinlímdum þróm — og lausaganga hrossa var bönnuð. Fjölmargir borgarar héldu kýr og hross í kofum að húsabaki. I Sögu Reykjavíkur eftir Guðjón Friðriksson er vitnað í skrif úr Fjall- konunni í nóvember fyrir réttum hundrað árum: „Sóðaskapurinn á götunum keyrir oft fram úr öllu hófi, þær eru aldrei sópaðar á sumr- in, og treðst því ofan í þær hrossa- tað og kúamykja og mikið af heyi. Við aðalgötur bæjarins eru opnar forir og mykjuhaugar (t.d. við Lat- ínuskólann) sem ódauninn leggur af langar leiðir. F'allegasta svæðið í miðjum bænum (Austurvöllur) hefir bæjarstjórnin leigt út og hefur verið borinn á það foraráburður á vorin svo að ódauninn leggur um allan miðbæinn, einkum þó í Alþing- ishúsið og kirkjuna." Er nema von að Reykvíkingar vilji halda götunum hreinum?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.