Morgunblaðið - 26.11.1995, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.11.1995, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MUNAÐARLEYSINGJAHEIMILIÐ Little Lights á Indlandi og allir í skólabúningum fyrir tilstilli stuðningsforeldra. SKUGGI eins trésins er látinn duga þegar kemur að skrifstofuað- stöðu skólasljórans í Úganda. Byggt yfir 500 götubörn á Indlandi ABC hjálparstarf á íslandi stendur nú í stór- ræðum við byggingu heimila og skóla fyrir götuböm á Indlandi. Til að standa straum af kostnaði, em vonir bundnar við jákvæðar undirtektir landsmanna gagnvart fjáröflun- ^ arleiðum samtakanna. Jóhanna Ingvars- dóttir kynnti sér starfsemi ABC. AÐ GEFA bömum, sem búa við eymd, menntun, von og framtíð er ein meginhugsjón ABC hjálpar- starfsins á íslandi. í þeim anda hafa samtök þessi starfað frá stofnun árið 1988. Samtökin standa um þessar mundir í stórræðum, sem eru fjármögnun og bygging skólahús- næðis og heimilis fyrir 500 götubörn á Indlandi, en að sögn Guðrúnar Margrétar Pálsdóttur, fram- kvæmdastjóra ABC hjálparstarfsins, er þörfín fyrir slíkt starf nær óend- anleg mjög víða í heiminum. Sam- fcökin reka nú tvö heimili á Indlandi fyrir munaðarlaus og yfirgefin börn og stefnt er að frekari uppbyggingu. Ástand indverskra götubama er_ mjög dapurlegt og barnaþrælkun er þar algeng, að sögn Guðrúnar. Margir foreldrar deyja frá ungum bömum vegna örbirgðar og sjúk- dóma og börnin enda þá oftast á götunni þar sem þau beijast fyrir lífi sínu með betli og öðm tilheyr- andi. ABC hjálparstarfið fékk beiðni um aðstoð í upphafi árs 1994 frá kristnum Indveija, sem frekar af vilja en mætti, þar sem föst stuðn- ingsframlög vom engin, stofnaði heimili fyrir munaðarlaus böm þann 30. maí 1992. Hann gat ekki lengur horft upp á börn líða hungur og sjúk- dóma á götum úti án þess að nokk- ur sýndi þeim umhyggju eða sinnti þeim. Allt var unnið í sjálfboðavinnu og treysta þurfti á örlæti þeirra, sem vissu af starfinu þama í kring til LÍTILL drengur á Filippseyjum opnar afmælisgjöf frá íslandi. að geta keypt það nauðsynlegasta, fæði, klæði, og lyf handa börnunum. „Við byijuðum strax á því að borga með 25 bömum í tvo mánuði til að létta undir með þeim og smám sam- an fóru að koma inn íslenskir stuðn- ingsaðilar, sem tóku að sér ákveðin börn úr hópnum.“ 1.450 kr. á barn Heimilið, sem heitir Little Lights Orphanage, er í Gannavaram rétt við borgina Vijayawada í Andra Pradesh fylki á austurströnd Ind- lands. Við stofnun heimilisins voru tekin inn 40 börn og voru þau orðin 73 þegar neyðarkall barst til ís- lands. Nú búa á heimilinu rúmlega 300 börn, en um miðjan júlí sl. flutti heimilið í stærra húsnæði, sem einn- ig er orðið of lítið, og em bygginga- framkvæmdir hafnar við annað hús þar. Annað heimili fyrir götubörn var síðan opnað í byijun september sl. í Madras þar sem um 50 nauð- stödd börn hafa fengið inni. Það er einnig rekið af kristnum Indveija. Öll börnin, sem dvelja á þessum heimilum, em styrkt frá íslandi í gegnum ABC hjálparstarf, en ákveðnir stuðningsaðilar sjá um hvert og eitt barn. Kostnaður á mánuði við eitt barn nemur 1.450 krónum. Fyrir þessa upphæð fá börnin húsaskjól, umönnun, læknis- hjálp, fatnað og fullt fæði, almenna menntun og verklega þjálfun í ein- hverri iðn svo þau standi sem best að vígi þegar þau fara af heimilinu. Þeir, sem gerast stuðningsaðilar, fá að fylgjast með sínum börnum og geta verið í bréfasambandi við þau. ABC hjálparstarf hefur nú fest kaup á fjórum hekturum lands í Gannavaram, þar sem áætlað er að byggja heimili og skóla fyrir um 500 börn. Að sögn Guðrúnar kostar land- ið þijár og hálfa milljón kr. og kostn- aður við heimilið, sem nú er í bygg- ingu, er áætlaður upp á 1,7 milljón kr. Til að fjármagna byggingu heim- ila og skóla fyrir götubörn á Ind- landi hafa verið gefin út jólakort og dagatöl og segir Guðrún að ef allt upplagið myndi seljast ' fyrir jól, myndi andvirðið nægja fyrir land- kaupunum og byggingunni. Sjálfboðavinna Allt starf ABC er unnið í sjálf- boðavinnu og koma þar margir að. Skrifstofa samtakanna er opin frá 9-17 alla virka daga og þegar mikið er að gera, er stundum unnið á kvöldin og jafnvel fram á nætur. Sjálf segist Guðrún Margrét hafa farið í hnattferð ein síns liðs fyrir um tíu árum og þá fengið að kynn- ast eymdinni víða. Það var svo árið 1988 að Guðrún og sex aðrir kristnir einstaklingar ákváðu að stofna ABC hjálparstarf, sem eru íslensk, samkirkjuleg hjálp- arsamtök. Markmið þess er að veita bágstöddu fólki í þriðja heiminum, börnum jafnt sem fullorðnum, hjálp, sem kemur að varanlegu gagni. Með aðstoð samstarfsaðila erlendis og stuðningsaðila á íslandi, er starfið þegar farið að skila mjög góðum árangri og verður það sífellt um- fangsmeira, að sögn Guðrúnar. Öll framlög renna óskert til hjálpar bág- stöddum í löndum þar sem fátækt og hörmungar ríkja, en samtökin hafa aðallega starfað í Úganda, Ind- landi, Kambódíu, Filippseyjum, Bangladesh og Laos. í þessum lönd- um eru samtals um 1.700 börn á framfæri íslenskra stuðningsaðila í gegnum ABC. „Sjálf sé ég ekki eftir einni ein- ustu mínútu í þetta sjálfboðaliða- starf mitt þau sjö ár sem ég hef gefið í þetta,“ segir Guðrún Mar- grét, en fyrir utan það að vinna í sjálfboðavinnu daginn út og inn, leggja þau hjónin til skrifstofuhús- næði undir starfsemina leigulaust og njóta góðrar aðstoðar ýmissa fyrirtækja við að reka starfið. Vil gefa bömum von um betra líf „í DAG væri ég örugglega á götum Kalkútta ef ég hefði ekki verið svo hepp- inn að eignast á unga aldri stuðningsfor- eldra sem kostuðu mína skólagöngu allt fram á fullorðinsár,“ segir Róbert Solomon, sem nú er 32 ára gamall Ind- veiji, lærður bókari og búsettur í Houst- on í Texas. Hann fluttist til Bandaríkj- anna árið 1983 og er nú kvæntur„yndis- legri bandarískri konu“, eins og hann orðar það, sem er prófessor við lækna- skóla í Houston. Róbert var sex ára að aldri þegar hann fyrst var styrktur til náms af kan- adískri konu, sem ákvað að gerast stuðn- ingsforeldri barns á Indlandi í gegnum bandarísku hjálparsamtökin Mission of Mercy. Róbert er fæddur og uppalinn í Kalkútta á Indlandi og segir fjölskyldu sína hafa verið mjög fátæka. „Við vorum sjö í fjölskyldunni, mamma, pabbi og fimm börn og bjuggum í um það bil tíu fermetra húsnæði." „Pabbi minn var mjög örvæntingar- Lullur maður, allt þangað til hann kynnt- ist kristinni trú þegar ég var sex ára. Hann leitaði að Guði alls staðar. Hann var um tíma hindúatrúar, þá búddisti og einnig múhameðstrúar, en hann fann ekki svör í neinum þessara trúarbragða svo að hann ákvað að tilbiðja Satan til að fá frið. Það gekk heldur ekki eftir. Hann var líka mikið í drykkju á þessum árum og kom alltaf heim með tvær hend- ur tómar. Hann drakk fyrir þá litlu pen- inga, sem honum áskotnuðust, og vasar hans voru alltaf tómir þegar mamma leitaði þar að peningum,“ segir Róbert. „Einn daginn þegar pabbi minn var á gangi heim á leið, heyrði hann fallega tónlist óma út úr einu húsinu. Hann fór inn, settist niður og hlustaði á fagnaðar- erindið um Jesús. Hann ákvað að breyta til í lífi sínu og gaf hjarta sitt á vald Jesús Kristi. Faðir minn breyttist upp frá þessu. Hann fól líf sitt í hendur Guði. Hann hætti drykkju, fékk vinnu sem hann hélt og hóf að starfa innan kirkjunnar. Fjölskyldan fór reglulega til kirkju og þar með var fjölskyldunni borgið. Upp frá því fékk ég mína mennt- un og öll mín systkini, sem eru fjögur að tölu.“ Róbert segist vera í góðu sambandi Morgunblaðið/Árni Sæberg RÓBERT Solomon fæddist og ólst upp við fátækt á Indlandi, en fékk menntun með aðstoð kanadískra stuðningsforeldra. við systkini sín og foreldra, sem enn búa í Kalkútta. „Ég á þessu hjálparstarfi að þakka það sem ég er í dag og hef ákveð- ið að helga líf mitt þessu starfi. í þeim tilgangi er ég nú á Islandi. Ég ferðast um heiminn og afla stuðningsforeldra fyrir önnur börn, sem eiga um sárt að binda. Ég var í vinnu þjá olíufyrirtæki í Houston allt þar til í byrjun október að ég ákvað að hætta þar til að geta helgað mig þessu starfi, sem gerði svo mikið fyrir mig. Ég vil gefa öðrum börn- um von um betra líf.“ Róbert heimsækir bæði skóla og kirkjur auk þess sem hann heldur heldur fjölda tónleika enda góður söngvari. Og hann spyr: „Ef hindúismi er trúarinnar virði, hvers vegna eru svo mörg börn á Indlandi án vonar og deyj- andi?“ Indland allt er einn þriðji af lands- svæði Bandaríkjanna. Fólksfjöldi Banda- ríkjanna er aftur á móti um 260 milljón- ir á meðan að íbúar Indlands teþast í dag vera 901 milljón manns og því er spáð að um aldamótin muni íbúafjöldinn verða yfir milljarð manns. í Kalkútta, sem er ein fátækasta borg Indlands, búa nú um átján miHjónir manna. Lands- svæðið er á stærð við flugvöllinn í Dall- as eða um níu mílur á lengd og sex míl- ur á breidd. 80% íbúa Kalkútta búa í fátækrahverfum. „Til að lýsa ástandinu má nefna að um þúsund íbúar eru um hvern vatnskrana og 500 manns um hvert klósett. Fátæktin er þvilík að dæmi eru um að foreldrar selji börn sín fyrir upphæð sem nemur 50 íslenskum krón- um,“ segir Róbert að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.