Morgunblaðið - 29.12.1995, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
r
»
VIÐSKIPTI
Hlutabréfaviðskipti með mesta móti í gær
Stóraukin ásókn
í hlutabréfasjóði
Lítið framboð á hlutabréfum í
fyrirtækjum veldur áhyggjum
HLUTABRÉFAVIÐSKIPTI á
Verðbréfaþingi voru með líflegra
móti í gær. Alls voru skráð 108
viðskipti með hlutabréf á Verð-
bréfaþingi og Opna tilboðsmark-
aðnum í gær og nam söluverðmæti
þeirra rúmri 81 milljón króna. Hins
vegar var mun meiri ásókn í hluta-
bréf í hlutabréfasjóðunum og klukk-
an fimm í gær höfðu selst bréf í
þessum sjóðum fyrir um 206 millj-
ónir króna samkvæmt samantekt
Verðbréfaþings, en það voru þó
ekki endanlegar tölur því verðbréfa-
fyrirtækin voru opin fram eftir
kvöldi í gær. Þetta samsvarar u.þ.b.
þriðjungi af heildarsölu hlutabréfa
í sjóðunum það sem af er desember.
Halldór Friðrik Þorsteinsson, hjá
Kaupþingi, segir hins vegar að lítið
framboð á hlutbréfum í einstökum
félögum um þessar mundir sé
áhyggjuefni vegna þeirra óheppi-
legu áhrifa sem það kunni að hafa
á verðmyndun bréfanna.
Hlutabréfaviðskiptin hafa gjarn-
an tekið kipp um þetta leiti árs, en
salan í ár virðist vera enn meiri en
á liðnum árum. Þó virðist ásókn ein-
staklinga í hlutabréf einstakra fyrir-
tækja hafa dregist nokkuð saman á
sama tíma og sala á hlutabréfum í
hinum ýmsu hlutabréfasjóðum hefur
aukist verulega. Halldór segir að hjá
Kaupþingi sé t.d. gert ráð fyrir rúm-
lega 100% aukningu I sölu á hluta-
bréfum í hlutabréfasjóði fyrirtækis-
ins, Auðlind, á þessu ári. Hann seg-
ir að álagið hafi aldrei verið meira
á þessum árstíma.
Ásgeir Þórðarson, forstöðumaður
verðbréfamiðlunar VÍB, segir að
hlutabréfaviðskipti þar hafi verið
gríðarlega mikil í gær. „Álagið hef-
ur verið mjög mikið en við erum
alltaf betur og betur búin undir
þessa skorpu í lok árs.“ Ásgeir seg-
ir að ásóknin í hlutabréf í Hluta-
bréfasjóðnum hf., hlutabréfasjóði
VÍB, hafi verið mjög mikil eða sem
nemur u.þ.b. 75% af öllum viðskipt-
um hjá fyrirtækinu. Heildarsala á
þessum hlutabréfum hafi aukist um
50% á milli ára og ekki sé óalgengt
að sjá fólk nýta sér möguleikann á
því að nýta sér möguleikann á því
að nýta hlutabréfakaup á þessu ári
til skattaafsláttar á því næsta með
því að kaupa tvöfaldan skammt nú.
Lítið framboð af hlutabréfum
Af einstökum fyrirtækjum var
mest ásókn í hlutabréf í Eimskip,
Flugleiðum og Islandsbanka. Gengi
þessara bréfa hélst nokkð stöðugt,
nema hvað gengi hlutabréfa í Flug-
leiðum lækkaði nokkuð undir iok
dags, fór úr 2,35 í 2,27. Gengi
hlutabréfa í Marel hækkaði hins
vegar nokkuð, fór úr 5,30 í 5,50
og hefur gengi bréfanna nú hækkað
um 10% á fáeinum dögum. Halldór
Friðrik segir hins vegar framboð á
hlutabréfum í mörgum fyrirtækjum
vera mjög lítið um þessar mundir
og það sé áhyggjuefni þár sem það
geti leitt til óeðlilegra hækkana á
gengi bréfanna. Hann segir að það
væri því æskilegt að framboðið,
væri meira.
HÖFUÐSTÖÐVAR Haraldar Böðvarssonar á Akranesi
Búr ehf. yfir
tekur rekst-
urlnka
- >
HIÐ nýja innkaupafyrirtæki kaup-
félaganna, Olíufélagsins hf. og Nóa-
túnsverslananna, Búr ehf., hefur yf-
irtekið rekstur Innkaupasambands
kaupfélaga (Inka). Þar með hafa
langflest kaupfélög landsins gengið
til liðs við Búr og munu eftirleiðis
sameinast um innkaup á nýlenduvör-
um.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hafa a.m.k. tvö verslun-
arfyrirtæki í einkaeigu á höfuðborg-
arsvæðinu sýnt áhuga á samstarfi
við Búr og standa yfir viðræður um
aðild þeirra. Þá hyggjast forráða-
menn Búrs ehf. ræða við stórkaup-
menn eftir áramót.
Stefnt er að því að Búr heiji rekst-
ur strax í byijun janúar og mun fé-
lagið annast innkaup fyrir fyrirtæki
sem velta árlega um 11 milljörðum
króna á matvörumarkaði. Eins og
fram hefur komið gera forráðamenn
Búrs ráð fyrir að fá ekki lakari kjör
hjá framleiðendum og heildsölum en
Baugur, innkaupafyrirtæki Hag-
kaups og Bónus, hefur notið.
>
í
I
i
í
I
Hlutafjárútboði Haraldar Böðvarssonar hf. lokið
j
!
|
Óll bréfin seldust tíl
forkaupsréttarhafa
I
1
I
HLUTABREFAUTBOÐI Haraldar
Böðvarssonar hf. (HB) á Akranesi
sem hófst þann 5. desember sl. er
nú formlega lokið og seldust öll
bréfín til forkaupsréttarhafa. Engin
Innlausnarverð vaxtamiða
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Hinn 10. janúar 1996 er 22. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í 1. fl. B 1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 22 verður frá og með 10. janúar n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 5.000 kr. skírteini = kr. 564,20
tt tt 10.000 kr. skírteini = kr. 1.128,40
tt tt 100.000 kr. skírteini = kr. 11.284,00
Hinn 10. janúar 1996 er 20. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í 1. fl. B 1986.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 20 verður frá og með 10. janúar n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 5.044,00
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. júlí 1995 til 10. janúar 1996 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á Iánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Inníausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 10. janúar 1996.
Reykjavík, 29. desember 1995
SEÐLABANKIISLANDS
bréf verða_ því í boði á almennum
markaði. Útboðið var að nafnvirði
50 milljónir króna og voru bréfin
seld á genginu 2,4 þannig að heild-
arsöluverð nam 120 milljónum
króna. Kaupþing hf. hafði umsjón
með útboðinu.
Fram kemur í frétt frá HB og
Kaupþingi að þetta sé í annað sinn
á einu ári sem efnt hafi verið til
hlutafjárútboðs hjá fyrirtækinu.
Félagið seldi hlutabréf að nafnvirði
80 milljónir í nóvember í fyrra á
genginu 1,63. Hafa bæði útboðin
gengið að óskum. Að mati Kaup-
þingis virðist jarðvegur fyrir hlut-
afjárútboð fyrirtækja almennt góð-
ur um þessar mundir og má telja
líklegt að fjöldi fyrirtækja muni
sækja sér áhættufjármagn þangað
á næstu misserum. Framboð af
hlutabréfum fyrirtækja á hluta-
bréfamarkaði hefur minnkað und-
anfarna mánuði á sama tíma og
eftirspurn hefur aukist og gerir það
skilyrði til hlutafjárútboða enn betri
en ella.
Áætlanir HB gera ráð fyrir 100
milljóna hagnaði á þessu ári og um
60 milljóna hagnaði á því næsta.
Eftir hlutafjáraukninguna verður
ljárhagsstaða félagsins mun betri
en áður. Þannig er áætlað að
veltufjárhlutfall verði um 1,7 og
eiginfjárhlutfall 30% í árslok.
Fyrirtækið er langstærsti at-
vinnurekandi á Vesturlandi og
greiðir hátt í 800 milljónir í laun á
ári, en meðalfjöldi starfsmanna er
tæplega 400. Gerður er út einn
frystitogari, tveir ísfisktogarar og
tvö loðnuskip ásamt því sem fyrir-
tækið rekur frystihús, fiskimjöls-
verksmiðju o.fl.
I
6
■
Hluthafahópurinn
breikkaði
Hluthafar gátu framselt for-
kaupsrétt sinn í útboðinu og urðu
töluverðar breytingar í hluthafa-
hópnum. Að sögn Halldórs Friðriks
Þorsteinssonar hjá Kaupþingi hefur
hluthafahópurinn bæði breikkað og
styrkst, en nokkrir stofnanafjár-
festar juku hlut sinn nokkuð. „Við
erum mjög ánægð með undirtektir
hluthafa og ég held að þeir hafi
gert góð kaup í útboðinu," sagði
hann.“
Auk HB hafa Grandi, Síldar-
vinnslan og SR-mjöl boðið út nýtt
hlutafé á þessu ári.
í.
I;
30 milljóna hagn-
aður hjá Sæplasti
c
c
SÆPLAST hf. á Dalvík skilaði alls
um 30 milljóna króna hagnaði
fyrstu níu mánuði ársins og jafn-
gildir það um 10,5% af heildarveltu
fyrirtækisins. Nam veltan alls um
290 milljónum átímabilinu ogjókst
um 10% frá sama tíma árið 1994.
Ekki liggja fyrir samanburðar-
hæfar tölur fyrir afkomuna fyrstu
níu mánuði ársins í fyrra, en allt
það ár nam hagnaðurinn 10 milljón-
um. í lok september voru heildar-
eignir Sæplasts hf. bókfærðar á
tæplega 394 milljónir og námu
skuldir samtals 109 milljónum. Eig-
ið fé var því 285 milljónir og eiginfj-
árþlutfall 72%.
Fram kemur í fréttabréfi fyrir-
tækisins að afkoman fyrstu niu
mánuðina sé mjög nálægt þeim
markmiðum sem sett voru í upp-
hafi ársins. Verkefnastaðan sé mjög
góð um þessar mundir og ríkir
bjartsýni um reksturinn á næsta ári.
Sæplast gerði sinn stærsta út-
flutningssamning í lok nóvember
við franskt fyrirtæki. Þar er um að
ræða sölu á 1.800 fiskikerum og
verða fyrstu kerin send út um ára-
mótin en gert ráð fyrir að afhend-
ingu ljúki fyrir lok febrúarmánaðar.
Á fyrstu níu mánuðunum var um
60% af fiskikeraframleiðslu fyrir-
tækisins seld til útlanda.
c
I
I