Morgunblaðið - 03.01.1996, Page 29
VJS-/ GISOH VIJAH
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 29
Um leið og við óskum landsmönnum gleðilegs árs viljum við minna á nokkur atriði sem máli
skipta á árinu 1996. Sumt er þar óbreytt frá síðasta ári en annað hefur tekið nokkrum breytingum
Skatthlutfall
Skatthlutfall staðgreiðslu breytist lítillega frá og með 1. janúar 1996 og verður 41,94%.
Persónuafsláttur breytist hins vegar ekki frá því sem hann var síðustu sex mánuði ársins 1995 og verður áfram 24.544 kr. á mánuði
Sama gildir um sjómannaafsláttinn sem verður áfram 689 kr. á dag.
Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1981 eða síðar, verður áfram 6% í staðgreiðslu. Fjárhæð launatekna barna sem halda má utan
staðgreiðslu er einnig óbreytt frá síðasta ári eða 77.940 kr.
Fjárhæðir húsnæðissparnaðarreikninga sem gilda vegna innborgana á árinu 1996 eru þessar:
Lágmarksfjárhæð verður 11.714 kr. pr. ársfjórðung og 46.856 kr. pr. ár.
Hámarksfjárhæð verður 117.140 kr. pr. ársfjórðung og 468.560 kr. pr. ár.
Þá verður sú breyting að tryggingagjald breytist frá og með 1. janúar og verður nú 6,93% og sérstakur flokkur 3,63%,
Lífeyrissjóðsiðgjald í staðgreiðslu 1996
Sú breyting verður einnig að vegna launatímabilsins 1. janúartil 30. júní 1996 skal halda utan staðgreiðslu 75% af lífeyrissjóðsiðgjaldi (þ.e.
framlagi launþegans), þó ekki hærri fjárhæð en 3% af launum. Frá 1. júlí má halda utan staðgreiðslu öllu framlagi launþegans en þó ekki hærri
fjárhæð en 4% af launum.
Frá og með 1. janúar er ekki lengur heimilt að halda utan staðgreiðslu 15% af greiðslum úr lífeyrissjóðum til lifeyrisþega sem eru
70 ára eða eldri.
Verðbreytingarstuðull
Ríkisskattstjóri hefur reiknað verðbreytingarstuðul fyrir árið 1995 og er hann 1,0321 miðað við 1,0000 árið 1994.
Vísitala jöfnunarhlutabréfa
Hér má sjá vísitölu almennrar verðhækkunar í sambandi
við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1996 og er þá
miðað við að vísitala 1. janúar 1979 sé 100.
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við
vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir
stofnun hlutafélags eða innborgunar hlutafjár eftir þann
tíma, en hins vegar skal miða við vísitöiu 1. janúar þess
árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin.
Huga þarf í tíma að ýmsum gögnum sem skila þarf nú í upphafi árs og fyrr en varir er komið að endanlegum skilafresti
Hér má sjá skilafrest ýmissa gagna vegna greiðslna o.fl. á árinu 1995:
III. Til og meá 15. maí 1996:
Gögn frá lífeyrissjóðum þar sem sundurliðuð er greiðsla iðgjalda sjóðsfélaga
lil og meö zl. januar lyyb:
Launamiðar ásamt almennu launaframtali. Á
launamiðum komi m.a. fram greiðslurtil
verktaka fyrir efni og vinnu.
Hlutafjármiðar ásamt samtalningsblaði.
Stofnsjóðsmiðar ásamt samtalningsblaði.
Bifreiðahlunnindamiðar ásamt
samtalningsblaði. v
Greiðslumiðar vegna lífeyrisgreiðslna,
tryggingabóta o.þ.h.
IV. TIl og meá síðasta skiladegi skattlramtala 1996:
1- Greiðslumiðar fyrir hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum
og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölul. C-liðar 7. gr. laganna.
2. Gögn frá eignarleigufyrirtækjum þar sem fram koma upplýsingar varðandi
samninga sem eignarleigufyrirtæki, sbr. II. kafla laga nr. 19/1989, hafa gert og í gildi
voru á árinu 1995 vegna fjármögnunarleigu eða kaupleigu á fólksbifreiðum fyrir
færri en 9 manns. M.a. skulu koma fram nöfn leigutaka og kennitala,
skráningarnúmer bifreiðar, leigutímabil ásamt því verði sem
eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir bifreiðina.
Til og með 20. febrúar 1996:
Afurða- og innstæðumiðar
ásamt samtalningsblaði.
Sjávarafurðamiðar ásamt
samtalningsblaði.
Æskilegt er, en þó í samráði við skattstjóra, að upplýsingum
á launamiðum sé skilað á tölvutæku formi.
RÍKISSKATTSTJÓRI
1. janúar 1980 vísitala 156 1. janúar 1988 vísitala 2.192
1. janúar 1981 vísitala 247 1. janúar 1989 vísitala 2.629
1. janúar 1982 vísitala 351 1. janúar 1990 vísitala 3.277
1. janúar 1983 vísitala 557 1. janúar 1991 vísitala 3.586
1. janúar 1984 vísitala 953 1. janúar 1992 vísitala 3.835
1. janúar 1985 vísitala 1.109 1. janúar 1993 vísitala 3.894
1. janúar 1986 vísitala 1.527 1. janúar 1994 vísitala 4.106
1. janúar 1987 vísitala 1.761 1. janúar 1995 vísitala 4.130
1. janúar 1996 vísitala 4.245
Geymið auglýsinguna