Morgunblaðið - 03.01.1996, Síða 29

Morgunblaðið - 03.01.1996, Síða 29
VJS-/ GISOH VIJAH MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 29 Um leið og við óskum landsmönnum gleðilegs árs viljum við minna á nokkur atriði sem máli skipta á árinu 1996. Sumt er þar óbreytt frá síðasta ári en annað hefur tekið nokkrum breytingum Skatthlutfall Skatthlutfall staðgreiðslu breytist lítillega frá og með 1. janúar 1996 og verður 41,94%. Persónuafsláttur breytist hins vegar ekki frá því sem hann var síðustu sex mánuði ársins 1995 og verður áfram 24.544 kr. á mánuði Sama gildir um sjómannaafsláttinn sem verður áfram 689 kr. á dag. Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1981 eða síðar, verður áfram 6% í staðgreiðslu. Fjárhæð launatekna barna sem halda má utan staðgreiðslu er einnig óbreytt frá síðasta ári eða 77.940 kr. Fjárhæðir húsnæðissparnaðarreikninga sem gilda vegna innborgana á árinu 1996 eru þessar: Lágmarksfjárhæð verður 11.714 kr. pr. ársfjórðung og 46.856 kr. pr. ár. Hámarksfjárhæð verður 117.140 kr. pr. ársfjórðung og 468.560 kr. pr. ár. Þá verður sú breyting að tryggingagjald breytist frá og með 1. janúar og verður nú 6,93% og sérstakur flokkur 3,63%, Lífeyrissjóðsiðgjald í staðgreiðslu 1996 Sú breyting verður einnig að vegna launatímabilsins 1. janúartil 30. júní 1996 skal halda utan staðgreiðslu 75% af lífeyrissjóðsiðgjaldi (þ.e. framlagi launþegans), þó ekki hærri fjárhæð en 3% af launum. Frá 1. júlí má halda utan staðgreiðslu öllu framlagi launþegans en þó ekki hærri fjárhæð en 4% af launum. Frá og með 1. janúar er ekki lengur heimilt að halda utan staðgreiðslu 15% af greiðslum úr lífeyrissjóðum til lifeyrisþega sem eru 70 ára eða eldri. Verðbreytingarstuðull Ríkisskattstjóri hefur reiknað verðbreytingarstuðul fyrir árið 1995 og er hann 1,0321 miðað við 1,0000 árið 1994. Vísitala jöfnunarhlutabréfa Hér má sjá vísitölu almennrar verðhækkunar í sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1996 og er þá miðað við að vísitala 1. janúar 1979 sé 100. Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða innborgunar hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar skal miða við vísitöiu 1. janúar þess árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin. Huga þarf í tíma að ýmsum gögnum sem skila þarf nú í upphafi árs og fyrr en varir er komið að endanlegum skilafresti Hér má sjá skilafrest ýmissa gagna vegna greiðslna o.fl. á árinu 1995: III. Til og meá 15. maí 1996: Gögn frá lífeyrissjóðum þar sem sundurliðuð er greiðsla iðgjalda sjóðsfélaga lil og meö zl. januar lyyb: Launamiðar ásamt almennu launaframtali. Á launamiðum komi m.a. fram greiðslurtil verktaka fyrir efni og vinnu. Hlutafjármiðar ásamt samtalningsblaði. Stofnsjóðsmiðar ásamt samtalningsblaði. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt samtalningsblaði. v Greiðslumiðar vegna lífeyrisgreiðslna, tryggingabóta o.þ.h. IV. TIl og meá síðasta skiladegi skattlramtala 1996: 1- Greiðslumiðar fyrir hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölul. C-liðar 7. gr. laganna. 2. Gögn frá eignarleigufyrirtækjum þar sem fram koma upplýsingar varðandi samninga sem eignarleigufyrirtæki, sbr. II. kafla laga nr. 19/1989, hafa gert og í gildi voru á árinu 1995 vegna fjármögnunarleigu eða kaupleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 manns. M.a. skulu koma fram nöfn leigutaka og kennitala, skráningarnúmer bifreiðar, leigutímabil ásamt því verði sem eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir bifreiðina. Til og með 20. febrúar 1996: Afurða- og innstæðumiðar ásamt samtalningsblaði. Sjávarafurðamiðar ásamt samtalningsblaði. Æskilegt er, en þó í samráði við skattstjóra, að upplýsingum á launamiðum sé skilað á tölvutæku formi. RÍKISSKATTSTJÓRI 1. janúar 1980 vísitala 156 1. janúar 1988 vísitala 2.192 1. janúar 1981 vísitala 247 1. janúar 1989 vísitala 2.629 1. janúar 1982 vísitala 351 1. janúar 1990 vísitala 3.277 1. janúar 1983 vísitala 557 1. janúar 1991 vísitala 3.586 1. janúar 1984 vísitala 953 1. janúar 1992 vísitala 3.835 1. janúar 1985 vísitala 1.109 1. janúar 1993 vísitala 3.894 1. janúar 1986 vísitala 1.527 1. janúar 1994 vísitala 4.106 1. janúar 1987 vísitala 1.761 1. janúar 1995 vísitala 4.130 1. janúar 1996 vísitala 4.245 Geymið auglýsinguna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.