Morgunblaðið - 03.01.1996, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 31
ÁRAMÓT
kröfu til okkar að við sýnum í verki
þá sjálfsvirðingu, sem er forsenda
þess að við berum réttmæta virðingu
fyrir öðrum mönnum og sköpum þar
með fordæmi þeim yngri, svo að
þeir skilji að ekki er sá sterkastur
sem reiðir vatnstilltan hnefa til
höggs, heldur hinn sem kemur fram
við aðra menn með þeim sóma sem
hann vill að honum sjálfum sé sýnd-
ur.
Þessu viðfangsefni má fylgja um
mörg svið: hvarvetna er gerð sú
krafa að við sýnum yfirvegun og
einbeitni og veljum um kosti en
látum ekki skeika að sköpuðu.
Þannig er til að mynda um sam-
skipti okkar við aðrar þjóðir, önnur
menningarsamfélög. Stundum
heyrist svo talað eins og þjóðir séu
tíambundin fyrirbæri í sögunni,
pólitískur tilbúningur, samkomulag
um misskilning. Þjóðræknin og
þjóðernishyggjan er þá kölluð ein-
angrunarafl sem spilli sambúð
þjóða. Vissulega getur þjóðrækni
snúist í þjóðrembu, komið fram í
fordómum í garð annarra. En það
skiptir meiru að hún getur orðið,
ekki síst fámennri þjóð, lífgefandi
afl sem veitir henni sjálfstraust og
eykur sjálfsvirðingu hennar, kveður
niður vanmetakennd þeirra sem
halda að þeir séu fáir og smáir. Sú
alþjóðahyggja er góð sem bregst
vel við hjálparbeiðni úr öðrum
heimshlutum, einnig sú sem er fús
til að hverfa frá ítrustu sérhags-
munum í þágu betri friðar og sam-
býlis þjóða. En sú alþjóðahyggja
er slæm sem fyrirlítur fijóa sérstöðu
þjóðanna, þann margbreytileika
sem gefur mannlífinu bæði líf og
lit og sköpunarkraft.
Þegar við íslendingar horfðum
yfir lýðveldissöguna á árinu 1994
gátum við fagnað afmæli við að
rifja upp marga sigra í lífsbaráttu
okkar sem rætur eiga í tiltrú á eig-
in mátt sem fylgdi óskertu sjálf-.
stæði íslensku þjóðarinnar. Við er-
um nú að uppskera svo margfald-
lega það sem til var sáð. Við höfum
eignast kynslóðir af fólki sem er
vel að sér í verklegum efnum og
margvíslegum fræðum. Sú kunn-
átta og þekking birtist okkur á
hverju nýju ári í drjúgum framför-
um á sviðum vísinda, menntunar
og framleiðslu. Allt sem vel er gert
glæðir sjálfsöryggi okkar og sjálfs-
virðingu. Og augljóst má öllum
vera, að flest það sem unnist hefur
er tengt því að við höfum eflt og
bætt mannauð okkar. Þess vegna
hljótum við að vita, að það er megin-
atriði, að halda áfram af einbeitni
og örlæti að rækta þekkinguna,
veita skólum okkar og æðri mennta-
stofnunum sem bestan byr, efla
málrækt og þann dýra sjóð sem
íslensk tunga er, og sýna sóma
þeim minningum sem gera okkur
að þjóð. Með öllu þessu styrkjum
við vilja okkar til að vera menn
með mönnum í stórum og flóknum
heimi, til að eiga eigin sérstæða
rödd sem ekki kveður á um mann-
fjölda heldur innri styrk.
Góðir íslendingar.
Ég minntist á í upphafi máls
míns að þetta er í síðasta sinn að
ég deili með ykkur hugsunum mín-
um og hugmyndum á þessum vett-
vangi. Ég hef við_ ótal tækifæri
fundið til þess, að íslendingar láta
sér alit um embætti Forseta ís-
lands. Það er um leið ljóst, að það
er ekki sjálfgefið hvernig forseta-
embætti skuli sinnt og verður ekki.
Þar veldur hver á heldur, eins og
sjálfsagt er.
Ég kveð ykkur, kæru landar,
með bestu þökkum fyrir liðin ár,
með góðum vonum og trú á far-
sæla framtíð íslenskrar þjóðar. Guð
blessi ísland og íslenska þjóð.
Gleðilegt nýtt ár.
Rosenthal ^' t,iíue'ul giðf
Glæsilegar gjafavörur
Matar- og kaffistell
í sérflokki
Verð VÍð Clllrn hæfi Laugavegi 52, sími 562 4244.
8 vikna {itubwmi kuuww (ki(!
Œeti £lsa S 'uiwtb auléttii
.................>tdíáu
ag.defwt(
ueuid í f'etía fxwni.
Ellen tók þátt í fitubrennslunámskeiði í
byrjun ársins '95.
Hún vildi koma sér í gott form eftir
barnsburð.
Ellen missti 8 kg á 8-vikna
fitubrennslunámskeiðinu og hefur
síðan misst 10 kg til viðbótar og
haldið þeim árangri.
H-uihia fituámuisíu-
námsfieið:
• Þjálfun 3-5x (viku
• Fræðslu- og kynningarfundur
• Fitumælingar og vigtun
• Matardagbók
• Uppskriftabæklingur að
fitulitlu fæði
• Mappa m. fróðleik og
upplýsingum
• Mjög mikiö aðhald
• Vinningar dregnir út
í hverri viku
• Frítt 3ja mán. kort fyrir
þær 5 samviskusömustu!
Kvöldhópar
Daghópur
Morgunhópur
Framhaldshópur
-fyrir allar þær sem hafa verið
áður á námskeiðunum okkar.
Nýtt fræðsluefni. Mikið aðhald.
Barnagæsla
ÁGÚSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 533-3355
FÍTUBREnnSLUnAmSKEIÐ
HEFjAST 8. jAHUAR.
ITlORGUn-,
DAG", OG
KVOLDHOPAR.
TAKm ARKAÐU R
F|OLDI.
FltV
BRjnnsLö
SKJ^AnÍnG ER^HAFÍn
í SÍm A 588 1616
manöÐö
tÍLBOÐ
í LÍK^mSRffKÍ
AÐEinS KJ^. 9.950
Innifalið í tilboði:
K
OPIÐ NUS
sunnuDöcinn
7* jAn
nY timötAFLA oc
FÍtuBRjnnsLunÁmsKjÍÐ
hefjast mónuDACinn s. jan.
leikfimi
pallar
pallar-bongó
vaxtarmótun
fitubrennsla
kripalujóga
tækjasalur
nuddpottur
vatnsgufa
Handklæði, sjampó
og hárnæring
fylgir frítt
við hverja komu.
ARMULA 30-SIMI 588 1616