Morgunblaðið - 03.01.1996, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 41
AÐSENDAR GREINAR
Eru kennileiti kirkj -
unnar á blindgötum?
FLESTIR eru sammála um fá-
dæma einurð og elju Jóhannesar
Páls páfa II, æðsta embættismanns
kaþólsku kirkjunnar. Á valdaferli
sínum hefur páfinn í Róm verið
óþreytandi við að breiða út boðskap
kaþólsku kirkjunnar um heim allan.
Þeir 'sem til þekkja fullyrða jafn-
framt, að Jóhannes Páll páfi II hafi
á bak við tjöldin átt dijúgan þátt í
hruni kommúnismans í Áustri. Hvað
sem því líður er víst, að núverandi
páfi lætur vandamál heimskringlunn-
ar ekki framhjá sér fara og grípur
flest tækifæri til að boða frið og
kærleika í heiminum. Bækur páfa
seljast í milljónum eintaka og ekki
verður ofsagt, að hann sé einn vin-
sælasti páfi sögunnar.
En þótt páfinn í Róm eigi sér
marga fylgismenn á hann líka harða
andstæðinga. Kaþólska kirkjan hefur
til að mynda verið sökuð um aftur-
haldssemi og einstrengingshátt og
sumum þjóðfélagshópum þykir jafn-
vel að sér vegið í grundvallarmann-
réttindum.
Sjálfur hefur páfí hvarvetna látið
frá sér fara, að hlutverk kirkjunnar
sé ekki að afla sér vinsælda heldur
að halda vörð um hin siðferðilegu
gildi sem hún hefur byggt á frá upp-
hafi
Þessi siðferðilega afstaða páfa og
kaþólsku kirkjunnar kemúr einna
skýrast fram í afstöðu hennar til
fóstureyðinga og samkynhneigðra.
Þannig hefur páfi til að mynda mót-
mælt allri viðleitni mannsins til að
hrófla við náttúrulegri sköpun Guðs,
með hvers kyns getnaðarvömum,
sérstaklega fóstureyðingum. Enda
sé markmið Guðs með einingu
tveggja einstaklinga ekki að njótast
í sæluvímu nautnarinnar heldur fyrst
og fremst að lifa í auðmýkt og anda
Guðs og styrkja viðgang og vöxt
næstu kynslóða. Þá hefur kaþólska
kirkjan og páfí ekki viljað samþykkja
samkynhneigð og útilokað með öllu
sambúð eða hjónavígslu samkyn-
hneigðra og þátttöku þeirra í uppeldi
barna.
Af þessum ástæðum hefur ka-
þólska kirkjan mætt harðri and-
spymu bæði kvenna og karla um
allan heim sem gera sífellt meiri
kröfur um frelsi og hamingju sér til
handa.
Hvað sem allri þessari andstöðu
líður, hefur kaþólska kirkjan hins
vegar ekki séð ástæðu til að falla frá
hugmyndum sínum og þeim siðferði-
legu kennileitum sem hún starfar
eftir. Enda má segja að sá veruleiki
sem við blasir gefi henni ekki ærna
ástæðu til þess. Á sama tíma og
raddir um frelsi og umburðarlyndi
gerast háværari ætla ofbeldi og klám
húsum að tröllríða, neysla eiturlyfja
eykst hröðum skrefum, tíðni hjóna-
skilnaða fer vaxandi og útbreiðsla
eyðni vekur hvarvetna skelfingu. {
stuttu máli hefur hið aukna frjáls-
ræði nútímamannsins ekki skilað sér
í meiri nálægð og hamingju þegar á
heildina er litið, heldur þvert á móti,
skapað nýja gjá, ekki einvörðungu
manna á meðal, heldur og einnig í
einstaklingnum sjálfum, gjá sem
harla erfítt er að brúa.
Og því miður liggja lausnimar
ekki á lausu. Sem fyrr hefur ka-
þólska kirkjan með páfa í farar-
broddi fundið svör við öllum þessum
vandamálum í biblíunni og haldið
Hafa hin siðferðilegu
klassísku kennileiti
kirkjunnar ratað í
blindgötur nútímans,
spyr Benedikt Lafleur,
og veltir fyrir sér, hvort
hún þarfnist nýrrar
aðferðafræði.
þeim vel á lofti. En almenningur
lætur ekki sannfærast og spurning-
arnar verða fleiri og flóknari.
Að vísu hefur Jóhannes Páll páfi
stigið skrefi lengra í átt til nútímans
en fyrirrennarar sínir í Vatikaninu
með ótölulegum ræðum sínum og
ritum.
Dæmi um þetta má t.d. finna í
nýlegri bók hans: II progetto di Dio
Decalogo per il terzo millennio sem
mætti einfaldlega þýða Tíu kennileiti
fyrir árið tvö þúsund. En þar fer
páfi víða orðum um mikilvægi ástar-
innar og takmarkalausan kærleika
Guðs, fyrirgefningu hans, samúð og
skiining. Jafnvel í umræðunni um
fóstureyðingar, sem hann fordæmir
skilyrðislaust, er páfí afar vinsamleg-
ur í garð kvenna. Fjallar hann ítar-
lega um hið göfuga og merkilega
hlutverk þeirra í bókinni, lætur í ljósi
samúð sína gagnvart þeim konum
sem undir slíkar aðgerðir ganga og
kallar á þjóðfélagið í heild til ábyrgð-
ar fyrir að hjálpa ekki verðandi
mæðrum meira við uppeldi og
umönnun barna sinna.
í umræðunni um samkynhneigð
er páfinn hins vegar myrkari í máli.
Þannig lýsir páfi samkynhneigð sem
„óeðli“ er stríði gegn náttúrulegri
þróun mannsins og útilokar viður-
kenningu kaþólsku kirkjunnar á
kröfum hennar um borgaraleg rétt-
indi til jafns við aðra. Hér virðist hið
skínandi og takmarkalausa kærleiks-
boð skyndilega þurft að víkja fyrir
siðferðilega harðri afstöðu kirkjunn-
ar. Hefur kærleikurinn sem Kristur
boðaði í upphafi snúist eftir allt sam-
an í andstæðu sína? Eða er páfinn í
Róm kannski yfir samkynhneigð haf-
inn? Verður hann ekki að viðurkenna
öll sköpunarverk Guðs og elska þau
jafnt til að geta hjálpað þeim að lifa
í ást og hamingju í sannarlegri Guðs
trú? Og þarf páfínn ekki að taka til-
lit til rannsókna vísindamanna sem
sanna, svo ekki verður um villst, að
samkynhneigð stafi í sumum tilvik-
um af óvenjulegri röðun litninganna
í frumsköpun lífs og geti því verið
meðfæddur eiginleiki? Og jafnvel
þótt þá standi eftir sem áður, í ein-
hveijum tilvikum, útskýringar sál-
fræðinga um tilfinningalega röskun
í æsku, réttlæta þá slík vandamál
enn frekara tilfínningatjón þeirra
sem hér um ræðir? Eru þetta svör
kirkjunnar, sem ber að boða kær-
leiksboðorð Krists; að við skulum
elska náungann eins og sjálfa okkur
og að við eigum ekki að dæma aðra
því þá dæmum við okkur sjálf um
leið? Nei, ef boðskapur kirkjunnar
hefur ekki náð betur eyrum nútíma-
manna þá getur hún sumpart sjálfri
sér um kennt. Og ef heldur fram sem
horfir verður sú lexía sem hún hefur
fram að færa komandi kynslóðum
harla fátækleg.
Til að snúa vöm sinni í sókn þarfn-
ast kirkjan líkt og nútímamaðurinn
nýrra kennileita í hugmyndafræði
sinni. Kristur þótti byltingarkenndur
á sínum tíma og réðst harkalega
gegn spillingu kirkjunnar og úreltum
kennisetningum. Þáfinn í Róm mætti
einnig vera áræðnari ef hann vill
forða kaþólsku kirkjunni frá frekari
stöðnun. Eina rökrétta svar kirkjunn-
ar gagnvart böli heimsins er sem
fyrr: Meiri ást. Aðeins út frá því ljósi
getur hún raunverulega komist til
móts við þarfir einstaklingsins og
möguleika hans á því að lifa í sannar-
legri hamingju Guðs. Kirkjan þarf
ekki síður en aðrir þjóðfélagshópar
að læra og þroskast í átt til fullkomn-
unar Guðs. Hún þarf að læra að vinna
með fólki fordómalaust og með opn-
ara hugarfari í stað þess að heyja
stöðugt hatramma baráttu gegn sið-
leysi nútímans. Hún mætti til að
mynda taka upp viðræður og sam-
starf með þeim konum sem í gegnum
fóstureyðingar hafa gegnið og stuðla
þannig með þeim að varanlegum sigri
hins dýrmæta og heilaga lífs, án
þess að hafna hugmyndafræði sinni.
Þá ætti kirkjan að sjá sóma sinn
í að bjóða samkynhneigðum í eitt
skipti fýrir öll, í sátt inn í musteri
kærleikans með öllum þeim réttind-
um sem þar er að fínna og allir. borg-
arar þarfnast til að lifa í varanlegri
ást, trú og tilgangi.
Ný sáttarhönd kirkjunnar í anda
hins takmarkalausa og skilyrðislausa
kærleika Krists er eina varanlega
bótin við tilfinningatjóni nútímans
og um leið sú gátt sem trúin þarf
að opna til að geta andað eðlilega á
ný. Því miður hefur slík sáttarhönd
ekki alltaf verið jafn áþreifanleg í
störfum kaþólsku kirkjunnar eða
Jóhannesar Páls páfa II. Reyndar
hefur Jóhannes Páll páfi II á stund-
um komið fjölmiðlum sem almenn-
ingi skemmtilega á óvart með mann-
úðarlegri og frumlegri breytni sinni.
í því ljósi er páfínn í Róm á sinn
sérstaka hátt óneitanlega mikilsverð-
ur boðberi kærleikans í nútímanum,
enda þótt víðsýni og sveigjanleiki
mættu vera hvarkvæmari störfum
kirkjunnar. Er ekki kominn tími til
að snúa rækilegar á andskotann með
ofurafli hans, kærleikanum sem allt
elskar? Ég þykist viss um að Kristur
hefði ekki hikað nú sem fyrr.
Höfundur er rithöfundur og býr
í París.
..V'v'"V''V"
Utsala -
50% afsl. alltaf í vesturkjallaranum.
Mikið af: Bútasaumsefnum frá 296,-, jólaefnum frá 365,-
fataefnum frá 150,- gardínuefnum o.fl.
VIRKA
Vffwvt op“1Tit'■
- Mörkin 3 við Suðurlandsbraut. Og laugard
Sími 568-7477 kl. 10-14.'
LISTASMIDJA BARNA & UNGLINGA
Krakkamirí
Kramliúsinu!
Skemmtileg,
fjörug,
fræðandi og
menningarleg
námskeið
fyrirbömá
aldrinum
4-6,7-10
10-12,
13-15 ára.
Leiklist • Myndlist
Tónlist-D^is
S í M I
551 5103
L I r H Hl l1 1||
• Langar þig aö auka þo! og styrk?
• Lanpr jjig að koma þér í góða þjálfun tll að pta gengið á fjoil?
Við þjálfum í fersku lofti í Öskjuhlíðinni og endum hvern kraftgöngutíma inni
í Perlunni. Þar gerum við æfingar og teygjur sem við gefum góðan tíma.
Boðið er upp á rólega tíma fyrir þá sem ekki hafa verið með okkur áður.
Leiðbeinandi er Árný Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur og íþróttaþjálfari.
Skráning og upplýsingar í síma 554-3499 fimmtudaginn 4. janúar og
föstudaginn 5. janúar kl. 9-12. Þjálfunin ferfram þrisvar í viku, mánudag,
miðvikudag og laugardag. Þeir sem hafa verið áður mæti kl. 11.00
laugardaginn 6. janúar í andyri Perlunnar.
Á vegum starfseminnar er einnig boðið upp á líkamsþjálfun í íþróttasal
Verslunarskólans við Ofanleiti á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18.00
fyrir byrjendur, kl. 19.00 fyrir lengra komna.
Gleðilegt ár!
FIMLEIKAR
m Áhaldafimleikar fyrir alla aldurshópa.
Trompfimleikar fyrir pilta og stúlkur.
[?f Krflahópur fyrir 4-5 ára.
gf Æfingatímar fyrir foreldra.
2f Tímar fyrir börn 2-3ja ára með foreldrum.
2f Morguntímar.
[?f Fimleika- og íþróttafólk með mikla reynslu.
[?f Stöðupróf fyrir nýja nemendur verða
laugardaginn 6. janúar kl. 13-15.
[?f Innritun er hafin í Ármanns-
heimilinuv/Sigtún og í
símum 561-8470 og 561-8140 virka
daga kl. 14-20.
A
FIMLEIKADEILD ARMANNS