Morgunblaðið - 03.01.1996, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 47
DÓMAR fyrir fíkniefna- og kyn-
ferðisafbrot hafa verið mikið til
umfjöllunar undanfarið. Öllum má
vera ljóst að réttmæt og skilvirk
dómsmeðferð er einn af hornstein-
um lýðræðisins ásamt fram-
kvæmda- og löggjafarvaldinu.
Störf dómara eru éðli sínu sam-
kvæmt mjög vandmeðfarin og
umdeild enda hafa þau afgerandi
áhrif á líf og tilveru allra þeirra
sem með beinum eða óbeinum
hætti tengjast afbrotamálum.
Okkur reynist alltaf auðveldara
að skilgreina hina áþreifanlegu
efnisþætti afbrota en eðli þeirra
og tilgang. Flest afbrot, sem unnin
eru með skipulögðum hætti og að
yfirlögðu ráði, eiga sér djúpar ræt-
ur í afbrigðilegum lífsháttum og
skoðunum afbrotamanna. Skortur
á siðferðisstyrk, sjálfsaga, verð-
mætamati, órökrænar ályktanir,
andfélagslegar og neikvæðar lífs-
skoðanir og bágborin kjör eru al-
mennustu orsakir afbrota. Það er
þó ekki ætlun mín með þessari
grein að reyna að skilgreina hið
flókna samspil orsaka- og eðlis-
þátta afbrotafræðinnar heldur af-
marka ákveðna þætti refsimála.
Eins og kunnugt er eiga refsing-
ar að grundvallast á hversu alvar-
legum afleiðingum brotið veldur
einstaklingum og alm. hagsmun-
um. Samkvæmt hegningarlögum
varða mannsmorð og kynferðisaf-
brot allt að 16 ára fangelsi og fíkni-
efnabrot allt að 10 árum. Hér á
landi hafa menn aðeins hlotið há-
marksrefsingu fyrir morð að yfír-
lögðu ráði, en dómar í fíkniefna-
og kynferðisafbrotamálum virðast
afar vægir sé miðað við hámarks-
refsingar í þeim mála-
flokkum. í umræðum
manna á milli velta
þeir fyrir sér hvaða
forsendur dómarar
leggja til grundvallar
í dómum sínum.
Hvernig meta t.d.
dómarar refsingar
sakborninga, sem
lögformleg sönnun er
fyrir að hafa flutt inn,
dreift og selt þær teg-
undir ávana- og fíkni-
efna sem læknis-
fræðilega er sannað
að séu ávanabind-
andi, banvæn og
valda óbætanlegum
sálar- og líkamsskaða? Afleiðingar
neyslunnar valda síðan eins og
þekkt er hvers konar alvarlegum
afbrotum s.s. þjófnuðum, ránum,
morðum og oftast óskráðum hör-
mungum heimila og gífurlegum
kostnaði heilbrigðiskerfisins.
Þó svo að sölumenn og innflytj-
endur fíkniefna séu ekki sakfelldir
fyrir afleiðingar neyslunnar þá eru
þeir vísvitandi valdir að ógæfu og
hörmungum neytenda. Því má
heldur ekki gleyma að þessir eitur-
byrlarar hafa staðgóða þekkingu á
áhrifum og afleiðingum neyslunn-
ar og geta því ekki borið við van-
þekkingu. Þeirra markmið eru
augljós, því fleiri neytendur sem
verða háðir efnunum, því “stærri
verður markaðurinn og ágóðinn
meiri. Uti í hinum stóra heimi eru
þessir menn kallaðir fjöldamorð-
ingjar, enda hættulegustu glæpa-
menn samtíðarinnar, hundruð þús-
unda láta lífið árlega eða verða
sjúkir af þeirra völdum.
Þá er brýn nauðsyn
á að endurskoða máls-
meðferð og dóma fyrir
kynferðisafbrot, sem
virðast vera afar mis-
vísandi og ómarkvissir.
Hafa dómarar þá sér-
þekkingu sem þarf til
að skilgreina á rökræn-
an hátt afleiðingar
kynferðisafbrota? Börn
og ungmenni verða
ævilangt þolendur
slíkra afbrota, sársauki
hugans, sorgin og ótt-
inn er sú þjáning sem
verst er að afbera og
lækna. Þegar afleiðing-
ar svona verknaða eru metnar til
refsinga eiga dómarar fýrst og síð-
ast að reyna að meta hið óbætan-
lega sálræna tjón þolandans, enda
er hámarksrefsing slíkra afbrota
metin til jafns í árafjölda við morð
að yfirlögðu ráði. Þarna er líkam-
legur dauði og andleg áþján lögð
að jöfnu í refsilegu tilliti.
Það væri sannarlega fróðlegt
rannsóknarefni að reyna að finna
ástæður fyrir hinum vægu dómum
fyrir kynferðisafbrot, m.a. hvort
mögulegt sé að karldómarar leggi
annað refsi- og siðferðismat á
verknaðinn en kvendómarar gera,
hvort erlendar fyrirmyndir hæsta-
réttardómara, m.a. frá hinum
Norðurlöndunum, eigi þar hlut að
máli eða hvort þeir ríghaldi í gam-
algrónar réttarfarslegar fyrir-
myndir sem mótaðar voru fyrr á
öldinni við gjörólíka þjóðfélags-
hætti. Þó svo að réttlætinu verði
aldrei fullnægt með dómum einum
Vægir dómar fyrir fíkni-
efna- og kynferðisaf-
brot vekja almenna
reiði, segir Kristján
Pétursson, og stríða
gegn siðferðiskennd al-
mennings.
saman þá mega dómsniðurstöður
aldrei skerða eða fjötra gildissvið
laganna.
Sú breytilega þjóðfélagsmynd
sem við okkur blasir varðandi tíðni
og tegundir afbrota ætti að hvetja
dómsyfirvöld til að endurskoða
reglulega a.m.k. þann hluta hegn-
ingarlaga, sem varðar hvað mest
hagsmuni almennings á hveijum
tíma. Þá er einnig löngu tímabært
að endur- og sérmennta dómara.
Hinir vægu dómar fyrir fíkni-
efna- og kynferðisafbrot hafa vak-
ið almenna reiði og sársauka með-
al þjóðarinnar. Ekkert skaðar
meira dómsvaldið í þjóðfélaginu en
þegar dómniðurstöður stríða gegn
réttlætis- og siðferðiskennd al-
mennings. Verum þess ávallt
minnug að megintilgangur laga er
að koma í veg fyrir hvers konar
afbrot og tryggja réttláta refsingu.
Því er oft haldið fram að afplánun
bæti engan mann, því séu þungir
dómar ákveðin tímaskekkja. Ekki
er hægt að einhæfa afplánun dóma
með þessum hætti, því að sálsjúka
hættulega afbrotamenn verður að
einangra á lokuðum stofnunum.
Þá er siðferðis- og gildismat
margra afbrotamanna svo sjúkt
og afskræmt og ranghugmyndir
ímyndaðrar tilveru, að þeir eiga
enga samleið með venjulegu fólki.
Við íslendingar verðum sem lýð-
ræðis- og menningarþjóð að endur-
skoða afstöðu okkar til fangelsis-
mála. Fangelsi eiga að vera deilda-
skiptar meðferðarstofnanir, þar
sem fangarnir eiga rétt á læknis-
og sálfræðilegri meðferð, menntun
og störfum við sitt hæfi.
Þá verður að koma í veg fyrir
neyslu ávana- og fíkniefna innan
fangelsa. Beinn samgangur ætt-
ingja og vina við fanga eins og
nú tíðkast hér veldur þessu og er
viðkomandi stjórnvöldum til mikill-
ar vansæmdar. Það er afar dapur-
leg staðreynd að margir fangar
skuli að afplánun lokinni vera jafn-
vel ennþá háðari fíkniefnaneyslu
en áður en afplánunin hófst. Dóms-
og heilbrigðisyfírvöld verða að taka
á þessum málum, þau eru ekkert
„einkamál" fangelsisyfirvalda eða
viðkomandi refsifanga, þau varða
líka hagsmuni fjölskyldna, ætt-
ingja og vina.
Höfundur er fyrrverandi deildar-
stjóri.
Meðferð dómsmála
Kristján
Pétursson
GÓÐAR FRÉTTIR
FYRIR
1983 ÁRGANGINN
Vaxtalína Búnaðarbankans veitir fróbæra fjármólaþjónustu
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Gangið í Vaxtalinuna og þið eruð komin á góða braut í fjármálum.
Nú er rétta tækifærið fyrir þá sem eru fæddir árið 1983 að
gerast félagar í Vaxtalínu Búnaðarbankans. Vaxtalínan er
ijármálaþjónusta fyrir alla unglinga á aldrinum 13 til 18 ára.
Við skráningu geta félagar stofnað Vaxtalínureikning og
fengið Vaxtalínukort.
Við inngöngu í Vaxtalínuna stendur félögum til boða:
ítarleg skipulagsbók og dagbók ásamt ýmsum fróðleik.
Með kortinu er hægt að taka út peninga í bönkum og spari-
sjóðum hérlendis og í hraðbönkum hér heima og erlendis.
Hægt er að fylgjast með stöðu bankareiknings.
Veitir afslátt af vöru og þjónustu á matsölustöðum, mynd-
bandaleigum, í sportvöruverslunum, hljómplötuverslunum,
tískuverslunum o.fl.
Ókeypis fjármálanámskeið og fjármálahandbók.
30% afsláttur af áskrift að Interneti hjá Miðheimum*.
ÞJONUSTA
INGA
Skipulagsbók
Vaxtalínukort
Færslubók
Afsláttarkort
Námskeið og handbók
Internet
'Háö samþykki foreldris/forráðamanns.
YDDA F1 00.5/SlA