Morgunblaðið - 03.01.1996, Qupperneq 52
52 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Mafiurinn minn, faðir okkar, tengdafað-
ir og afi,
SIGURBJÖRN ÞÓRÐARSON,
Ölduslóð 28,
Hafnarfirði,
lóst á nýársnótt.
Heiðveig Hálfdánardóttir,
Sigríður G. Sigurbjörnsdóttir, Gunnlaugur M. Sigmundsson,
Herdís J. Sigurbjörnsdóttir,
Helga S. Sigurbjörnsdóttir, Karl Ólafsson
og barnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
GRÉTA ÓLAFSDÓTTIR
kennari,
Ægisgötu 21,
Akureyri,
lést að morgni 30. desember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mið-
vikudaginn 10. janúar kl. 13.30.
Sigurgeir Vagnsson,
Trausti Sigurgeirsson, Ari Sigurgeirsson.
t
RÓSA NÍELSDÓTTIR,
Freyjugötu 34,
Reykjavík,
lést 29. desember.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
föstudagnh 5. janúar kl. 13.30.
Níels Hafstein, Magnhildur Sigurðardóttir,
Haraldur Níelsson,
Hafdís Hanna Sigurðardóttir, Ragnar Jóhannesson,
börn og barnabörn.
t
Ástkaer móðir okkar,
BJARNEY HOLM SIGURGARÐSDÓTTIR,
lést að vistheimilinu Kumbravogi 29. des-
ember.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
mánudaginn 8. janúar kl. 13.30
Sigrún Tryggvadóttir,
Magnús Órn Tryggvason,
Lára Tryggvadóttir,
Hrafnkell Tryggvason.
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
DAGMAR JENSDÓTTIR,
Hrafnistu við Kleppsveg,
Reykjavík,
áðurtil heimilis á Siglufirði,
lést á sjúkradeild Hrafnistu 17. desember sl.
Jarðarförin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Bestu þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Hrafnistu og til þeirra,
sem sýnt hafa samúð og hlýhug.
Gísli Elíasson,
Jens Gíslason,
Kristfn Eggertsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
SIGRÚN ÞORBJÖRG
GfSLADÓTTIR,
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness afi
morgni gamlársdags.
Útför fer fram frá Akraneskirkju föstu-
daginn 5. janúar kl. 14.00.
Ásta Alfreðsdóttir, Bjarni Þór Bjarnason,
Hafdis Alfreðsdóttir, Valbjörn Jón Jónsson
og barnabörn.
+ Kristján Ágúst
Jónasson fædd-
ist 21. april 1927 í
Lýsudal í Staðar-
sveit. Hann lést við
vinnu sína 21. des-
ember sl. Foreldrar
hans voru Ásgerður
Ágústa Ágústsdótt-
ir, f. 31.8. 1901, d.
3.10. 1986, og Jónas
Guðmundsson, f.
31.8. 1897, d. 27.6.
1964. Ásgerður og
Jónas eignuðust
átta börn og var
Kristján elstur
þeirra. Kristján átti einn eldri
hálfbróður sammæðra sem ólst
einnig upp með þeim. Kristján
ólst upp í Lýsudal þar til hann
stofnaði heimili sjálfur.
Systkinin eru: Sigríður Elín,
f. 10.4. 1929, d. 11.11. 1992,
Valgerður Fanney, f. 5.10.
1932, d. 26.12. 1938, Guðrún
Sigurborg, f. 3.5. 1936, dreng-
ur, fæddur andvana í desember
1938, Guðmundur Haffjörð, f.
3.10. 1940, Gunnar Fannberg,
f. 25. 6. 1942, Inga Fanney, f.
27.3. 1946 og Haraldur Breið-
fjörð Þorsteinsson, f. 29.6.
1923, d. 5.2. 1988.
Kristján var í sambúð með
Sigurbjörgu Pétursdóttur, f.
4.9. 1932. Þau bjuggu í Grund-
arfirði, en slitu samvistir. Sig-
urbjörg var dóttir Sigríðar Sig-
urðardóttur og Péturs Elin-
björns Kristjánssonar sjómanns
á Hellissandi. Sigurbjörg og
Kristján eignuðust þijár dætur.
Þær eru 1) Elínbjörg, f. 30.4.
1952, maki Bjarni Guðnason,
synir Elínbjargar, Jóhann Ág-
úst Hansen, f. 10.4. 1969, maki
JÓLIN voru að nálgast þegar slm-
inn hringdi. í símanum var frænka
mín, hún var döpur, aldrei slíku
vant. Hann pabbi er dáinn, hann
varð bráðkvaddur vestur á Snæ-
fellsnesi þar sem hann var að vinna
við hestaflutninga. Mig setti hljóða.
Alltaf er maður óviðbúinn svona
fréttum, þó vissum við að Kristján
Margrét Vilborg
Tryggvadóttir, og
sonur þeirra er
Hans Alexander
Hansen, f. 8.3.
1993; Snorri Örn
Sigmundsson, f.
3.5. 1974, d.28.3.
1977. 2) Ásgerður
Ágústa, f. 2.12.
1956, maki Jóhann-
es Jónsson, sonur
þeirra er Elvar
Már, f. 20.4. 1990.
Börn Ásgerðar, Ge-
org Þór Ágústsson,
f. 8.4. 1980, og Sig-
ríður Elísabet Ágústsdóttir, f.
7.12. 1983. 3) Jóna Fanney, f.
20.3. 1965, maki Þorsteinn Ól-
afsson, dóttir þeirra er Sig-
urbjörg Tekla, f. 2.9. 1993.
Krísiján starfaði hjá Þórði
Pálssyni sérleyfishafa í Grund-
arfirði í mörg ár. Þeir voru
félagar og sveitungar úr Stað-
arsveit. Einnig var hann með
vörubíl sem hann var með í
vegavinnu á sumrín og keyrði
fisk úr bátunum á vetrarvertíð-
um í Grundarfirði. Síðar flytur
Kristján til Reykjavíkur og
starfaði þar hjá ýmsum sérleyf-
ishöfum. Var með eigið bíla-
verkstæði í mörg ár en síðustu
ár vann hann við hestaflutn-
inga. Þar sameinaði hann
áhugamál sitt vinnunni en hann
átti marga góða hesta sem hafa
unnið til verðlauna. Kristján
var síðar í sambúð með Ingi-
björgu Guðmundsdóttur en þau
slitu samvistir.
Útför Kristjáns verður gerð
frá Lágafellskirkju í Mos-
fellsbæ í dag og hefst athöfnin
kl. 14.
var búinn að vera lengi veikur.
Kristján bróðir fæddist í Lýsudal
í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Hann
var sonur Ásgerðar Ágústsdóttur
og Jónasar Guðmundssonar bónda
og ólst hann þar upp ásamt okkur
systkinum. Kristján vann við ýmis
störf sem til féllu eins og algengt
var með unga menn í þá daga.
Árið 1952 hóf Kristján sambúð
með Sigurbjörgu í Grundarfirði og
eignuðust þau þrár dætur, Elín-
björgu, Ásgerði Ágústu og Jónu
Fanneyju, sem allar eru gæddar
miklum mannkostum og búsettar á
Reykj avíkursvæðinu.
Kristján starfaði hjá Þórði Páls-
syni sérleyfishafa I Grundarfirði
sem.rútubílstjóri og leysti það vel
af hendi 117 ár enda mjög hjálpleg-
ur við farþega sína. Á seinni árum
vann Kristján hjá ýmsum sérleyfis-
höfum auk þess að starfa við hesta-
flutninga í mörg ár.
Kaflaskipti urðu í lífi Kristjáns
og Sigurbjargar er þau slitu sam-
vistir. Kristján flutti til Reykjavíkur
en böndin voru sterk til æskustöðv-
anna þar sem Kristján naut þess
að dvelja í Lýsudal í frístundum
sínum ásamt bræðrum okkar. Hann
var veiðivörður vatnasvæðis Lýsu
þegar tími gafst til frá hestaflutn-
ingum. Kristján var mikil hesta-
maður og átti marga góða hesta
og duglegur að sækja hestamanna-
mót þar sem hann var hrókur alls
fagnaðar í góðum vinahópi.
Minningamar hrannast upp og
efst í huga mínum er þakklæti frá
þeim árum sem ég og fjölskylda
mín vorum þess aðnjótandi að kynn-
ast honum betur á heimili okkar I
nokkur ár. Það voru góðar stundir
því hann var alltaf svo kátur, ljúfur
og glettinn í viðmóti. Þau voru ófá
skiptin sem hann lék sér við stelp-
umar mínar með því að taka þær á
háhest eða gullstól. Þær minnast
Kristjáns frænda með hlýju og þökk.
Ég bið góðan Guð að taka hann
í faðm sér og líkna honum. Elsku
Elínbjörg, Ásgerður og Jóna Fann-
ey, ég votta ykkur mína dýpstu
samúð og bið góðan Guð að styrkja
ykkur á sorgarstund.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskiinaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn tátna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Þín systir
Guðrún Sigurborg.
KRISTJAN
JÓNASSON
+ Ingibjörg Jóns-
dóttir fæddist á
Þórgautsstöðum í
Hvítársíðu 20. maí
1906. Hún lést á
Hrafnistu í Hafnar-
fírði 26. desember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Herdís Krístin Hall-
dórsdóttir og Jón
Böðvarsson og áttu
þau þijár dætur auk
Ingibjargar, Þór-
dísi, Ragnhildi og
Jóhönnu sem allar
eru látnar. Ingi-
björg starfaði við þjónuststörf.
Fór úr foreldrahúsum að Svarf-
hóli í Borgarfirði 16 áratil hjón-
anna Ragnhildar og Jóns
Björnssonar kaupmanns. Hún
ÞEGAR ég kveð Ingibjörgu
tengdamóður mína er mér þakk-
læti efst í huga. Samvistir okkar
hafa nú staðið yfir í 27 ár og á
þær bar aldrei skugga. Að vísu
var Ingibjörg seintekin þegar ég
krækti í einkason hennar og auga-
stein og var þar að auki með ung-
an son. Sævar hafði dvalist á heim-
ili foreldra sinna fram að þrítugu,
þannig að viðbrigðin urðu mikil.
Frá fyrstu tíð leið okkur Þráni
syni mínum vel á heimili tengda-
foreldra minna. Þar ríkti reglu-
var þar samfellt í
14 ár uns hún gerð-
ist þerna á Suður-
landinu og Laxfossi.
Hún giftist Jóni
Hirti Jóhannssyni
vélsljóra 16.12.1938
og sá um heimili
þeirra síðan. Þau
eignuðust tvö börn,
Sævar Óm, f.
6.6.1938 og Mar-
gréti, f. 15.10.1941.
Frá fyrra hjóna-
bandi átti Jón dótt-
urína Þuríði, f.
14.12.1931. Jón
Hjörtur lést 13. okt. 1994.
Útför Ingibjargar fer fram í
dag, miðvikudaginn 3. janúar
kl. 13:30 frá Fríkirkjunni í
Hafnarfírði.
festa og snyrtimennska og þótt
þau hjónin væru ólík, voru þau
samvalin, hann hrókur alls fagn-
aðar en hún kjölfestan í lífi fjöl-
skyldunnar, einstök móðir barna
sinna og ömmubarna, einnig Þur-
íðar sem ólst upp hjá móðurömmu
sinni. Jón var langdvölum á sjó,
en hún sá um allt innanstokks af
þeirri prýði sem einkenndi fyrir-
myndarhúsmóður.
En þótt kynni okkar færu hægt
af stað, treystust þau með hveiju
árinu og mótuðust af gagnkvæmri
virðingu. Ég mat það mikils við
Ingibjörgu, að hún var sérlega
vönduð til orðs og æðis og hall-
mælti aldrei neinum. Hún auðsýndi
vinum og ættingjum mikla ræktar-
semi og var traust eins og klettur
þegar þeir þurftu einhvers með.
Slíkir mannkostir eru fágætir.
Þegar okkur Sævari fæddist
Bergþór sonur okkar, sem hún
kallaði ævinlega „drenginn",
styrktust böndin milli okkar enn
frekar og hún sýndi honum ein-
staka þolinmæði í uppvextinum.
Mér er minnisstætt hvernig hún
lék sér við hann löngum stundum
og lá með honum yfir tafli korn-
ungum, því að hún hafði verið lið-
tæk í skák á yngri árum. Þeim
hjónum varð langra samvista auð-
ið en svo fór að Ingibjörg missti
heilsuna og því þurftu þau að flytj-
ast frá fallegu heimili sínu, Lau-
fangi 10, á Hrafnistu í Hafnarfirði
og þar dvöldust þau síðustu árin.
Jón Hjörtur annaðist konu sína
af mikilli alúð meðan hans naut
við en svo fór að hann kvaddi
heiminn á undan henni og varð
öllum harmdauði. Ingibjörg naut
góðrar aðhlynningar og hjarta-
hlýju starfsfólks á Hrafnistu í
sjúkdómsstríði sínu og skulu því
vera færðar einlægar þakkir fjöl-
skyldunnar.
Orðagjálfur var Ingibjörgu
tengdamóður minni aldrei að skapi
og því er ekki vert að kveðja hana
með fagurgala, en betri tengda-
móðir er vandfundin. Ég kveð
hana með hjartans þökk fyrir
ómetanlegar samvistir.
Heiðveig Guðmundsdóttir.
INGIBJÖRG
JÓNSDÓTTIR
I
«
<
(
i
i
<
<
<
<
<
i
i
i
i
i