Morgunblaðið - 03.01.1996, Qupperneq 53
( MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 53
MINNINGAR
GUÐBJORG
HÁKONARDÓTTIR
+ Guðbjörg Há-
konardóttir, eða
Stella eins og hún
var alltaf kölluð,
fæddist á Rauð-
kollsstöðum á Snæ-
fellsnesi 11. júní
1925. Hún lést á
dvalarheimilinu í
Sjálfsbjargarhúsinu
22. desember síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Elísa-
bet Jónsdóttir, f.
1885, d. 1963, og
Hákon, bóndi á
Rauðkollsstöðum, f.
1884, d. 1971. Stella var yngst
fjögurra systkina. Hún átti þijá
bræður, Jóhann, f. 1919, d.
1980, Kristján, f. 1921, d. 5.
desember síðastliðinn, og
Valtý, f. 1923, sem er einn lif-
andi systkinanna.
Stella var tvígift. Fyrri eigin-
maður hennar var Pálmi Gunn-
arsson, en þau skildu. Seinni
maður Stellu er Sigurður Sig-
urðsson. Stella
eignaðist aldrei
börn. Stella vann
við skepnur og
sveitastörf í sveit-
inni, þar til hún fór
í húsmæðraskólann
á Laugarvatni. Síð-
ar þegar foreldrar
hennar brugðu búi
flutti Stella til
Reykjavíkur með
þeim. Stella vann
við margs konar
störf meðan heilsan
leyfði, var ráðskona
á Ljósafossi, þerna,
lengst af á Gullfossi, vann við
saumaskap og við skrifstofu-
störf hjá Sveini Egilssyni. Fyrir
u.þ.b. 30 árum síðan kenndi
Stella sér sjúkdómsins MS og
má segja að síðustu 20 árin
hafi hún dvalið meira og minna
í Sjálfsbjargarhúsinu.
Utför Stellu fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
ÞAÐ hrannast upp minningarnar
þegar ég hugsa til baka um Stellu,
þegar við vorum að keppa saman
á skíðum, unnum saman á sauma-
stofunni hennar Rebekku, þegar við
vorum saman í Kaupmannahöfn á
sníðaskóla, þegar við bjuggum sam-
an heima hjá foreldrum þínum þeg-
ar ég var í húsnæðisvandræðum,
þegar við settum upp litla sauma-
stofu saman, o.s.frv. Ég held að
það hafi fáir átt jafn góða vinkonu
og ég.
Ef ég ætti að lýsa Stellu minni
í fáum orðum þá var hún alltaf
kátust af öllúm, greiðvikin með af-
brigðum, höfðingi í sér, heilsteypt
og besta manneskja sem ég hef
kynnst. Sem dæmi um höfðings-
skap hennar er að hún kom alltaf
færandi hendi til dætra minna þeg-
ar hún kom af sjónum. Árið 1958,
þegar næstelsta dóttir mín fæddist
voru maðurinn minn, Víðir Finn-
bogason, og Stella bæði stödd í
Kaupmannahöfn, hún þerna á Gull-
fossi og hann stýrimaður á Reykja-
fossi. Var ekki að spyrja að höfð-
ingsskap Stellu þegar hún fékk
fréttirnar, þá mætti hún með körfu
af stærstu gerð og færði manni
mínum, og barnið var að sjálfsögðu
skírt Stella.
Eftir að Stella vinkona veiktist
fannst mér oft erfitt að horfa upp
á það hvað hún þurfti að þjást, en
lengi hélt hún „húmornum" og gat
hlegið að gömlum atvikum. Eitt
sinn þegar ég kom til Stellu upp í
Hátún með elsta barnabarnið mitt
með mér spurði hann: „Af hveiju
getur hún ekki gengið?" Þá svaraði
Stella: „Ég er veik, ég er með M.S.
en ekki Emm ess ís.“ Svona var
Stella. *
Loksins fékk hún Stella mín
hvíldina. Ég veit að núna líður henni
vel. Takk fyrir allt. Hvíli hún í friði.
Þín vinkona,
Karen.
Mig langar í örfáum orðum að
kveðja hana nöfnu mína. Mér eru
minnisstæðar allar heimsóknirnar
til Stellu sem voru svo skemmtileg-
ar af því að hún átti svo margt
fallegt. Ég man eftir því að hún
passaði mig stundum, og þá gauk-
aði hún alltaf að mér ýmsu góð-
gæti sem ekki var á borðum heima
á hverjum degi. Heima hjá Stellu
var maður alltaf eins og prinsessa.
En ævin hennar Stellu var ekki
alltaf auðveld. Síðastliðin 25 ár
hefur Stella verið sjúklingur, meira
og minna rúmliggjandi, hvíldina
hefur hún loksins fengið.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Stella Víðisdóttir.
Að eilífðar ljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér,
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Benediktsson.)
Föðursystir okkar, Guðbjörg Há-
konardóttir, er látin, sjötíu ára að
aldri. Hún andaðist í Sjálfsbjargar-
húsinu, Hátúni 12, þar sem hún bjó
við góða aðhlynningu á annan ára-
tug. Stella frænka, eins og hún allt-
af var kölluð, var eina dóttir og
yngst fjögurra barna ömmu okkar
og afa.
Björtustu minningar okkar um
Stellu eru úr æsku okkar, þá var
hún ógift og starfaði sem þerna á
m.s. Gulifossi. Með henni starfaði
sem þerna önnur frænka okkar úr
móðurætt, Guðrún Stefánsdóttir.
Þá bjó fjölskylda okkar í Kaup-
mannahöfn og var Stella tíður gest-
ur hjá okkur. Eitt sinn sigldum við
elstu systurnar, þá fjögurra og sex
ára gamlar, með frænkum okkar
heim frá íslandi og minnumst við
þeirrar ferðar með ánægju, vegna
alls sem þær gerðu fyrir okkur til
að gera ferðina sem skemmtileg-
asta.
Stella var mikil heimskona. Hún
átti íbúð á 12. hæð í háhýsi við
Austurbrún, sem var skýjakljúfur í
okkar augum. Heimili hennar var
prýtt fallegum frönskum og dönsk-
um húsgögnum og hún átti sinn
eigin bíl af Volkswagen-gerð. Hún
var alltaf glæsileg, í fínum kjólum
með uppsett hár og með dýrindis
ilmvatn. Stella var sjálfstæð kona,
sem réð sínu lífi að öllu leyti sjálf.
Hún var alltaf kát og skemmtileg
og mjög félagslynd. Hún var fjölhæf
og henni var margt til lista lagt.
Oft saumaði hún á frænkur sínar
fallega kjóla, sem vöktu athygli, en
þá iðn hafði hún lært í Kaupmanna-
höfn á yngri árum sínum. Fyrir um
það bil þrjátíu árum greindist Stella
með Ms-sjúkdóminn sem smám
saman dró hana úr því fjölbreytta
og glaðværa lífi sem hún hafði átt
fram að því. Hún var alltaf bjartsýn
á að læknavísindunum tækist að
finna lyf við sjúkdómnum og að hún
myndi öðlast fyrri þrótt aftur. Þrátt
fýrir veikindin hélt Stella glaðværð
sinni allt fram á hin síðustu ár, en
þá var mjög farið að draga af henni.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn
og allt er orðið rótt.
Nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(Valdimar Briem.)
Fyrir hönd okkar systranna íjög-
urra kveðjum við nú Stellu frænku
með þökk í huga.
Elísabet og Kristín
Valtýsdætur.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
BERTA SNÆDAL,
Hvassaleiti 69,
lést í Landspítalanum á nýársdag.
Gunnlaugur Snædal,
Jón Snædal, Guðrún Karlsdóttir,
Kristján Snædal, Sólrún Vilbergsdóttir,
Gunnlaugur G. Snædal, Soffía Káradóttir
og barnabörn.
t
Elskuleg systir okkar,
RAGNHEIÐUR KARLSDÓTTIR,
Þórsgötu 19,
sem andaðist í Landakotsspítala 21. desember, verður jarðsungin
frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 4. janúar kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðbjörg Karlsdóttir,
Þorsteinn Karlsson.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta-
skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word-
perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu.
Senda má greinar til blaðsins á netfang
þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs-
ingar þar um má lesa á heimasíðum.
t
Okkar elskuleg
BJÖRG S. JÓHANNESDÓTTIR
frá Móbergi,
fyrrv. handavinnukennari
á Löngumýri,
verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtu-
daginn 4. janúar kl. 13.30.
Valgerður Einarsdóttir
og systkini hinnar látnu.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og systir,
SVANHILDUR GUÐBJÖRG
SIGURÐARDÓTTIR,
Stffluseli 6,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans að
morgni 31. desember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helga Hákonardóttir,
Hildur Hákonardóttir,
Magnús Hákonarson.
1
+
Útför móður okkar og stjúpmóður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
INGIBJARGAR JÓNSDÓTTUR,
er lést á Hrafnistu Hafnarfirði 26. desember, fer fram frá Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði f dag, miðvikudaginn 3. janúar, kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlegast bent á Hjarta-
vernd.
Sævar Örn Jónsson, Heiðveig Guðmundsdóttir,
Margrét Jónsdóttir, Óskar Harry Jónsson,
Þuríður Jónsdóttir, Gísli Guðjónsson,
og ömmubörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORVALDUR JÓNSSON
frá Fáskrúðsfirði,
Rauðalæk 20,
andaðist 31. desember.
Minningarathöfn verður í Laugarnes-
kirkju fimmtudaginn 4. janúar kl. 15.00.
Útför fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju
laugardaginn 6. janúar kl. 14.00.
Oddný A. Jónsdóttir,
Jóhanna Á. Þorvaldsdóttir, Vilmundur Víðir Sigurðsson,
Guðný B. Þorvaldsdóttir, Sigurður Þorgeirsson,
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Ómar Ásgeirsson,
Kristján Þorvaldsson, Helga Jóna Óðinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Bróðir okkar,
ÁRSÆLL ELÍASSON,
dvalarheimilinu Höfða,
áður Jaðarsbraut 19,
sem lést 26. desember, verður jarð-
sunginn frá Akraneskirkju í dag, mið-
vikudaginn 3. desember, kl. 14.
Blóm og kransar afbeðnir, en þeim, sem
vildu minnast hans, er beint á dvalar-
heimilið Höfða.
Systkinin.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi',
BRAGI FINNSSON
frá Ytri-Gunnólfsá,
Ólafsfirði,
til heimilis á Austurbraut 4,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 5. janúar
kl. 14.00.
Sigríður H. Óskarsdóttir,
Ólaffa Bragadóttir, Arngrfmur Guðmundsson,
Freyr Bragason,
Óskar Bragason
og barnabörn.
Sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, stjúpfaðir og bróðir,
PÉTUR GEIRSSON,
Hverfisgötu 92,
verður jarðsunginn frá Garðakirkju
fimmtudaginn 4. janúar kl. 15.00.
Ásiaug Guðmundsdóttir,
Anna María Pétursdóttir, Þorlákur Kjartansson,
Ástríður Thorarensen, Stefán Thorarensen,
Ragnhildur Geirsdóttir,
barnabörn, stjúpbörn og aðrir aðstandendur.