Morgunblaðið - 03.01.1996, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 59
FRÉTTIR
Úr dagbók lögreglunnar
Áramótin með
rólegra móti
30. desember
til 2. janúar
ÁRAMÓTIN voru rólegri en
mörg undanfarin ár. Bókanir á
tímabilinu voru 415 en voru 432
árið áður og 545 árið 1993. Mun
minna var um kvartanir vegna
ónæðis fólks með flug- eða skot-
elda.
Kveikt var í 21 brennu í um-
dæminu á gamlárskvöld. Veður
var ákjósanlegt og því safnaðist
margt fólk að brennunum, bæði
ungir og aldnir. Ánægjulegt var
að sjá hversu áberandi lítil ölvun
var á meðal fólks. Á síðasta ári
vakti lögreglan að gefnu tilefni
athygli á þeirri hættu, sem fylgdi
því þegar fólk væri að kveikja á
flugeldum innan um hópa fólks,
vegna þess að þeir vildu stundum
taka aðra stefnu en þeim var
ætlað. Ástæða er til að hvetja
fólk enn einu sinni til að taka
ekki flugelda með sér að
brennunum, en láta þess í stað
aðra með þar til gerðan búnað
annast þau mál ef ástæða þykir
til.
Bókunum og vistunum
fækkar
Á síðasta ári var óvenjumikið
um rúðubrot um áramótahelgina.
í ár var ekki meira um þau en
um venjulega helgi. I dagbók
ársins eru færðar 49.393 bókan-
ir. Á árinu 1994 voru þær 53.106
og 57.263 árið 1993. Fara þarf
aftur til ársins 1988 til að fá
sambærilega tölu en bókanir voru
flestar árið 1991 eða 61.412 tals-
ins. Á síðustu árum hefur fækkað
jafnt og þétt í hópi þeirra sem
vista hefur þurft í fangageymsl-
um lögreglunnar. Um áramótin
þurfti að vista þar 34 einstakl-
inga en þeir voru 46 árið áður.
Allt árið í fyrra voru þeir 3.616
en 3.329 árið 1995. Konur voru
312 talsins og karlar 3.017. Árið
1994 voru konurnar 301 þannig
að þeim hefur heldur verið að
fjölga þrátt fyrir heildarfækkun
vistana.
í samantekt dagbókarinnar
má sjá 12 tilkynningar vegna lík-
amsmeiðinga, 19 innbrot, 6
þjófnaði, 22 eignaspjöll (þ.á m.
11 rúðubrot), 49 afskipti af ölv-
uðu fólki á almannafæri, 37
vegna hávaða og ónæðis utan
dyra og innan og 13 voru kærðir
fyrir of hraðan akstur. Sá sem
ók hraðast mældist á 155 km
hraða innan bæjar en hann var
að flýta sér austur fyrir fjall.
Þrettán ökumenn, sem stöðvaðir
voru í akstri, eru grunaðir um
að hafa verið undir áhrifum
áfengis en það er svipaður fjöldi
,og undanfarin ár. Tilkynnt um-
ferðaróhöpp voru 33 talsins þrátt
fyrir ágætisfærð og veður. Átján
minniháttar brunar eru skráðir á
tímabilinu, eða 'þrisvar sinnum
fleiri en áður.
Innbrot og þjófnaðir
Aðfaranótt gamlársdags var
tilkynnt um að brotist hefði verið
inn í bifreið við Rauðarárstíg og
úr henni stolið geislaspilara og
geisladiskum. Undir morgun var
maður handtekinn með fíkniefni,
hass og LSD. Hann var færður
í fangageymslu. Á gamlársdags-
morgun var verðmætum hljóm-
tækjum stolið úr bifreið við Lang-
holtsveg. Þá var einnig geislaspil-
ara og hátölurum stolið úr bíl við
Hverafold. Farið var inn um
svalahurð íbúðar við Austurberg
og þaðan stolið hljómflutnings-
tækjum og hátölurum. Aðfara-
nótt nýársdags var brotist inn í
bíl við Kvistaland og úr honum
stolið talstöð. Aðfaranótt þriðju-
dags var brotist inn í bíl við Mið-
tún og úr honum stolið geislaspil-
ara^ og magnara.
Á gamlársdagsmorgun var til-
kynnt um eld í húsi við Vatns-
stíg. Þar hafði kviknað í sófa.
Sex aðilar voru fluttir á slysa-
deild vegna gruns um reykeitrun.
Þrátt fyrir mikinn reyk hlutust
ekki miklar skemmdir af. Síðdeg-
is var tilkynnt um eld í blaðagámi
við Arnarbakka. Um kvöldið
náðu íbúar að slökkva eld er
kviknað hafði í ruslageymslu
húss við Ljósheima. Þá var
slökkviliðið kallað að húsi við
Háaleitisbraut þar sem eldur
hafði komist í kertaskreytingu í
mannlausri íbúð. Eldurinn hafði
slokknað af sjálfu sér. Um kvöld-
ið kom 'aftur upp eldur í rusla-
geymslunni við Ljósheima en að
þessu sinni hafði eldurinn brætt
gat á kaldavatnsleiðslu svo hann
slökkti sig sjálfur. Eftir miðnætti
á gamlársdag slökktu nágrannar
eld á svölum nábúa sinna í húsi
við Grandaveg eftir að eldur hafði
komist þar í pappakassa. Um
svipað leyti hljóp neisti frá innan-
hússsprengju í bómull undir jóla-
tré í húsi við Akurholt. Skemmd-
ir hlutust af völdum reyks og
slökkviefna. Þá kom upp eldur í
ruslageymslu húss við Stóra-
gerði. Einhverjar reykskemmdir
hlutust af. Kveikt var í blaðagámi
við Hvannarima og um nóttina
var einnig kveikt í ruslatunnum
við Frostafold og við Háaleitis-
braut. Á nýársnótt komst eldur
í gólfteppi íbúðar við Háaleitis-
braut og kveikt var í ruslatunnum
húsa við Neðstaleiti og Geitland.
Missti fingur í
umferðaróhappi
Snemma á nýársdagsmorgun
varð umferðaróhapp á Arnar-
bakka. Ungur piltur var fluttur
á slysadeild. Pilturinn missti litla
fingur og meiddist á kné. Síðar
um morguninn var bifreið ekið á
umferðarljós við gatnamót Breið-
holtsbrautar og Stangar. Við það
brotnaði framhjólið undan bif-
reiðinni.
Maður var fluttur á slysadeild
eftir slagsmál í veitingahúsi við
Lækjargötu aðfaranótt nýárs-
dags. Annar kærði árás á sig á
veitingastað við Hverfisgötu. Þá
var maður handtekinn eftir slags-
mál í Austurstræti. Annar fór á
slysadeild. Undir morgun þurfti
að flytja menn á slysadeild eftir
slagsmál, einn úr húsi við Eddu-
fell og annan frá Austurstræti.
Þrátt fyrir þessi tilvik voru ára-
mótin með friðsamara móti.
Um klukkan 7.30 á nýársdags-
morgun komu lögreglumenn að
opnum vínveitingastað við Klapp-
arstíg. Staðurinn var í fullum
gangi, um 100 manns inni og
barinn opinn. Fyrr um nóttina
höfðu lögreglumenn þurft að
reka á eftir lokun fimm vínveit-
ingastaða í miðborginni eftir að
starfseminni átti að vera hætt
kl. 4. Sumir þeirra staða hafa
þegar fengið áminningu vegna
brota á vínveitingalöggjöfinni og
mun því væntanlega verða gripið
til annarra aðgerða gagnvart
þeim á næstunni.
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
ELDUR kom upp í kjallaraíbúð við Lækjarás aðfaranótt laugardags, sennilega út frá kerta-
skreytingu. Húsráðandi náði að slökkva eldinn en bað um aðstoð slökkviliðs við að
reykræsta. Maðurinn, kona hans og barn komust hjálparlaust út úr íbúðinni
en voru flutt á slysadeild vegna gruns um reykeitrun.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður og afa,
HINRIKS ALBERTSSONAR,
Ölduslóð 17,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
lyfjadeildar St. Jósefsspítala í Hafnar-
firði.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vináttu við fráfall og útför konunnar
minnar góðu,
SIGRÚNAR
MAGNÚSDÓTTUR.
Fyrir hönd aðstandenda,
KÍN
-leikur að lœra!
Vinningstölur 30. des. 1995
1*2*6*7* 13 «22*27
Vinningstölur 2. jan. 1996
1 • 5 • 18 ®22 «* 23 • 24 • 28
Margrét Hinriksdóttir, Sigurjón Ingi Haraldsson,
Halldóra Hinriksdóttir, Sigurður Emil Ævarsson,
Guðrún, Ágústa, Einar Örn,
Hinrik Þór, Bryndfs Kolbrún,
Margrét Freyja og Hafdís Arna.
Sigurður Halldórsson.
Eldri úrslit á sfmsvara 568 1511
VINNINGSTÖLUR
LAUGARDAGINN
30.12.1995
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginkonu minnar, móð-
ur okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GUÐRÚNAR JÓNASDÓTTUR,
Hólavallagötu 13.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hvíta-
bandsins fyrir frábæra hjúkrun og
umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Tryggvi Pétursson,
Sigriður E. Tryggvadóttir,
Óiafía K. Tryggvadóttir, Kristinn Álfgeirsson,
Ásta Tryggvadóttir, Erlingur Hallsson,
Guðrún S. Tryggvadóttir, Árni Þórðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
'
í sambandi vib neytendur
frá morgni til kvölds!
- kjarni málsins!
BIRT MEÐ FYRIRVARAUM PRENTVILLUR