Morgunblaðið - 03.01.1996, Page 72
V í K
G
L#TT#
alltaf á
Miðvikudögum
MORGUNBLADW, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Sextíu
þúsund í
r- folatoll
FOLATOLLURINN undir stóðhest-
inn Orra frá Þúfu, sem er að líkind-
um eftirsóttasti stóðhestur landsins,
hefur verið ákveðinn 60 þúsund
krónur. Hryssueigandi greiðir 30
þúsund krónur fyrirfram og er són-
arskoðun innifalin í þeirri greiðslu.
Reynist hryssan með fyli greiðast
þá 30 þúsund krónur til viðbótar.
Mun þetta hæsta verð sem sett
hefur verið upp fyrir folatoll á al-
mennum markaði. Um er að ræða
10 pláss hjá hestinum sem verða
boðin á þessu verði. Hluthafar ráð-
stafa öðrum plássum hjá hestinum
en samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa verið greiddar 120
þúsund krónur fyrir toll hjá hestin-
um.
Nýlega var einn hlutur í Orra
seldur á hálfa milljón en alls er um
sextíu hluti að ræða.
----» ♦ ♦--
Dyrasími
tengdur
neyðarlínu
DYRASÍMI í fjölbýlishúsi í Kópa-
vogi reyndist í gær vera tengdur
við Neyðarlínuna þannig að þeg-
ar hringt var í íbúð 112 í húsinu
svaraði Slökkvistöðin í Reykjavík
sem annast svörun fyrir Neyðar-
línuna. Að sögn Þórðar Bogason-
ar varðsljóra hjá slökkviliðinu
kom það tvisvar sinnum fyrir í
gær að hringt var úr dyrasiman-
um í Neyðarlínuna, og sagði hann
að í dag yrði leitað skýringa hjá
Pósti og síma á því hvernig á
' þessu gæti staðið.
Umræddur dyrasími er í and-
dyri fjölbýlishússins og til að ná
sambandi við íbúa hússins er
hringt úr símtækinu í viðkom-
andi íbúðarnúmer. Agúst Geirs-
son símstöðvarstjóri sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að símstöð
væri í viðkomandi húsi, og senni-
legasta skýringin á því að sam-
band hefði fengist við Neyðarlín-
una þegar hringt var úr dyrasím-
anum væri sú að símtækið hefði
af einhverjum orsökum verið
beintengt við bæjarlínu.
Vörutalning í verslunum
FJOLDI verslana var lokaður í gær, fyrsta virka dag ársins, vegna vörutalningar. Starfsfólk verslananna hafði í nógu
að snúast þótt engir væru viðskiptavinirnir.
Kjaranefnd úrskurðar um laun presta og 70 embættismanna
Prestar o g embættismenn
fá 8 til 9,5% launahækkun
KJARANEFND hefur úrskurðað prestum 9,5%
launahækkun að meðaltali. Sömuleiðis hefur
nefndin úrskurðað rúmlega 70 embættismönnum
á vegum ríkisins rúmlega 8% hækkun. Hækkun-
in gildir fá 1. desember sl. Guðrún Zoéga, for-
maður kjaranefndar, sagði að nefndin hefði tek-
ið mið af úrskurði Kjaradóms og samningum
við opinbera starfsmenn. Með úrskurðinum væri
verið að einfalda launakerfið sem þessir ríkis-
starfsmenn starfa eftir og þess vegna væri
hækkunin mismikil.
Samkvæmt lögum úrskurðar Kjaradómur um
laun alþingismanna, ráðherra og æðstu embætt-
ismanna þjóðarinnar. Kjaranefnd úrskurðar hins
vegar um laun tæplega 140 presta og rúmlega
100 embættismanna og forstöðumanna stofnana
og fýrirtækja á vegum ríkisins. Úrskurður kjara-
nefndar, sem féll skömmu fyrir áramót, nær til
presta og um 70 embættismanna. Nefndin á
eftir að úrskurða um laun um 30 embættis-
manna, þar á meðal sýslumanna, ráðuneytis-
stjóra, sendiherra og fáeinna ríkisforstjóra. Guð-
rún sagði að stefnt væri að því að úrskurða um
laun þeirra fljótlega í þessum mánuði.
Launakerfið einfaldað
Hækkunin til presta er á bilinu 6-11%, en
meðalhækkunin er 9,5%. Embættismennirnir fá
hins vegar rúmlega 8% hækkun. Þar á meðal
eru skattstjórar, yfirskattanefnd, saksóknarar
og forstöðumenn stofnana og fyrirtækja á vegum
ríkisins.
„Með þessum úrskurði er haldið áfram að ein-
falda launakerfið. Launaflokkum er fækkað frá
því sem var og þess vegna fá ekki allir sömu
hækkun," sagði Guðrún.
Guðrún sagði að breytingarnar fælust m.a. í
því að dregið væri úr aukagreiðslum. í sumum
tilfellum hefði kjaranefnd ákveðið föst mánaðar-
laun til manna, en með þeim hætti væri dregið
úr yfirvinnu þeirra.
„í þessum úrskurði tók kjaranefnd annars
vegar mið af hækkunum Kjaradóms og hins
vegar af kjarasamningum ríkisins við sitt starfs-
fólk,“ sagði Guðrún.
alvvvT^
Nói-Síríus kaupir sælgætisgerðina Opal
Skapa tuttugu ný
störf á Akureyri
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna
keypti nú um áramótin rekstur sæl-
gætisverksmiðjunnar Opals hf. og
endurseldi síðan til Nóa-Síríusar hf.
Samningurinn var gerður með því
skilyrði að Nói-Síríus flytti í kjölfarið
hluta af sinni starfsemi til Akureyrar
og skapaði þannig 20 ný störf.
Nói-Síríus mun taka á leigu hús-
næði í gamla Linduhúsinu á Akur-
eyri, þar sem skrifstofur SH í bænum
eru til húsa. Ekki liggur þó endan-
lega fyrir hvaða hluti rekstrarins
verður fluttur norður og mun það
ráðast á næstu vikum.
Öllum 30 starfsmönnum Opals
verður sagt upp störfum frá og með
1. febrúar, en reiknað er með að ein-
hverjir þeirra verði endurráðnir hjá
Nóa-Síríusi.
Með tilkomu sælgætisframleiðsl-
unnar á Akureyri hefur SH tekist
að skapa þar 70 ný störf og þarf
aðeins 10 störf til viðbótar til að
uppfylla þau fyrirheit sem fyrirtækið
gaf Akureyrarbæ á sl. ári. Fyrirhug-
að er að þau störf sem eftir er að
útvega verði á vegum Umbúðamið-
stöðvarinnar í umbúðaframleiðslu
eða skyldri framleiðslu.
■ Ópal til Akureyrar/14