Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B/C/D
7. TBL. 84. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR10. JANÚAR1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tsjetsjenar taka þúsundir gísla úr röðum óbreyttra borgara
Moskvusljórnin reynir
að ná friðsamleeri lausn
Moskvu. Reuter.
Reuter
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, þungbrýnn á fundi með nokkr-
um ráðamönnum í Kreml í gær. T.v. við forsetann er Víktor
Tsjernomýrdín forsætisráðherra.
SKÝRT var frá götubardögum í
gær milli rússnesks herliðs og liðs-
manna Tsjetsjena sem tekið hafa
2.000 til 3.000 óbreytta borgara í
gíslingu í grannhéraðinu Dagestan.
Krefjast uppreisnarmenn þess að
Rússar kveðji her sinn í Tsjetsjníju
heim, ella verði gíslarnir líflátnir.
Stjómvöld í Moskvu sendu fulltrúa
sína til viðræðna við gíslatakana
en þær höfðu ekki borið árangur
er síðast fréttist. Bardagar lágu þó
niðri er kvölda tók.
Atburðurinn varð í borginni Kíslj-
ar í Dagestan. Rússneska sjónvarp-
ið sýndi uppreisnarmenn með grím-
ur og lambhúshettur gæta óttasleg-
inna fanga sinna er grátbændu
menn um að tryggja að málið end-
aði friðsamlega. Sumt af fólkinu
var tengt við næringarslöngur.
Tsjetsjenarnir sögðust engu hafa
að tapa og þeir myndu beijast til
síðasta blóðdropa. Tveir gíslar
munu hafa verið skotnir í gær og
var þá samningaviðræðum slitið um
hríð.
Rússneskir fjölmiðlar sögðu að
þúsundir hermanna hefðu verið
sendar til Kísljar í gær og varnar-
málasérfræðingur sagðist búast við
að reynt yrði að taka sjúkrahúslóð
þar sem uppreisnarmenn hafast við
ásamt gíslunum. Einnig mætti bú-
ast við að reynt yrði að ganga milli
bols og höfuðs á öllum hópum upp-
reisnarmanna í Tsjetsjníju.
Forsetakosningar verða í júní í
Rússlandi og ólíklegt er að valdhaf-
ar í Kreml láti uppreisnarmenn
auðmýkja sig á ný eins og reyndin
varð þegar Tsjetsjenar tóku gísla
í borginni Búdennovsk sl. sumar.
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
gagnrýndi harðlega andvaraleysi
hersins, sagði að borist hefðu marg-
ar viðvaranir um liðsflutninga
Tsjetsjena til Kísljar. Sagði Jeltsín
að málið væri „enn eitt áfallið" í
þessum efnum. Búist er við því að
háttsettir menn í varnar- og örygg-
ismálum verði reknir, jafnvel rætt
um Pavel Gratsjov varnarmálaráð-
herra í því sambandi.
„Úlfarnir eru komnir"
„Úlfarnir eru komnir til ykkar,“
hafði /íar-Tass-fréttastofan eftir
leiðtoga gíslatakanna, Salman
Radújev, þegar fyrst var skýrt frá
atburðunum. „Dragið hermenn
ykkar á brott frá Tsjetsjníju ella
verða óbreyttir borgarar skotnir."
í hópi gíslanna eru sjúklingar
og starfslið sjúkrahússins og einnig
var fólk sótt í íbúðarblokkir í
grennd við sjúkrahúsið. Sjúkrahús-
lóðin er í miðri borginni og fæðing-
ardeildin í húsi sem er áfast við
sjúkrahúsið.
Talsmaður innanríkisráðuneytis
Dagestan sagði skæruliðana hafa
ráðist á herflugvöll í grennd við
borgina og grandað tveim þyrlum.
Óljóst var um mannfall í átökunum
en talið að allt að 11 manns, þar
af nokkrir óbreyttir borgarar, hefðu
þegar fallið auk sex úr liði Tsjetsj-
ena.
■ Jeltsín ræðstharkalega/17
Clinton
fyrir rétt
Washington. Thc Daily Tclegraph.
ÞRÍR dómarar komu í gær í veg fyr-
ir að Bill Clinton Bandaríkjaforseti
beitti forsetavaldi sínu til að komast
hjá málsókn í einkamáli. Ung kona,
hefur sakað forsetann um grófa kyn-
ferðislega áreitni árið 1991.
Lögmenn Clintons hafa krafist
þess að málinu verði vísað frá þar
sem málsóknin komi í veg fyrir að
forsetinn geti sinnt skyldustörfum
sínum. Réttur í St. Louis, úrskurðaði
hins vegar að forsetanum skyldi ekki
hlíft við málsókn í einkamáli.
Komi ekki til lögfræðilegs krafta-
verks, verður Clinton því fyrsti for-
setinn sem verður að svara til saka
fyrir rétti ákæru um hjúskaparbrot.
Sprenging
í Sarajevo
Sarajevo. Reuterv
EINN maður lét lífið og að minnsta
kosti fimm manns særðust þegar
sprengju var varpað á sporvagn í
Sarajevo í gær.
Til skotbardaga kom á milli þeirra
sem vörpuðu sprengjunni, skammt
frá borginni, og franskra friðar-
gæsluliða.
Sprengjunni var varpað frá svæði
sem er undir stjóm Bosníu-Serba og
lenti á sporvagninum á hinni svoköll-
uðu „Leyniskyttutröð“.
■ Friðarsamkomulag/18
Njósnaforingi
skipaður utanrík-
isráðherra
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rúss-
landsforseti skipaði í
gær yfirmann rúss-
nesku leyniþjón-
ustunnar erlendis,
Jevgeníj Prímakov,
utanríkisráðherra
landsins. Prímakov er
sérfræðingur í mál-
efnum Mið-Austur-
landa og var m.a. sér-
stakur fulltrúi Sovét-
manna þegar þeir
reyndu að koma í veg
fyrir að Flóastríðið
brytist út með því að
eiga viðræður við
Saddam Hussein.
Míkhaíl Gorbatsjov,
síðasti leiðtogi Sovétríkjanna, réð
Prímakov yfirmann starfsemi
leyniþjónustunnar erlendis er fyrri
leyniþjónusta, KGB, var leyst upp
árið 1991. Prímakov, sem er 66
ára, gekk í sovéska kommúnista-
flokkinn árið 1959. Hann átti um
tíma sæti i miðstjórn flokksins og
sat án atkvæðisréttar í stjórnmála-
ráði Sovétríkjanna í stjórnartíð
Gorbatsjovs.
Prímakov talar arabísku en hann
var blaðamaður Pravda og frétta-
ritari þess í Mið-Aust-
urlöndum á sjöunda
áratugnum.
Óháðir sérfræðing-
ar sögðu í gær að tæp-
ast yrðu miklar breyt-
ingar á utanríkis-
stefnu Rússlands með
tilkomu Prímakovs. Þó
sé víst að einhveijar
breytingar verði vegna
gagnrýni þingsins á
stefnuna en Kozyrev
var sakaður um að
vera of hallur undir
Vesturlönd. Einn sér-
fræðinganna sagði
skipun Prímakovs
skilaboð til Vestur-
landa um að Rússar kunni að snúa
sér í vaxandi mæli í austur. Prím-
akov hafi hvað eftir annað gagn-
rýnt Vesturlönd og eigi rætur sínar
í gamla stjórnkerfinu.
Jeltsín skipaði einnig í gær að-
stoðarforsætisráðherra í stað
Sergej Shakraj, sem sagði af sér
sl. föstudag. Nýi ráðherrann heitir
Vladimír Kinelev og er lítt þekktur
en hefur m.a. verið formaður
menntamálanefndar ríkisins.
Jevgeníj
Prímakov
Reuter
GIULIO Andreotti ræðir við lögmann sinn í gær en þá hófust að nýju vitnaleiðslur í máli hans.
Andreotti andspænis uppljóstrara
o /I ■ i (i ILinLii' ™ “■
Padua. Reuter.
EITT helsta vitnið í réttarhöldun-
um yfir Giulio Andreotti, fyrrver-
andiforsætisráðherra Ítalíu,
kvaðst í gær hafa getað afhjúpað
meint tengsl hans við mafíuna
fyrir rúmum áratug en ekki gert
það af ótta við að vitnisburður
hans yrði dreginn í efa.
Vitnið, Tommaso Buscetta,
fyrrverandi mafíuforingi sem hóf
samvinnu við lögregluna árið
1984, stóð í fyrsta sinn augliti til
auglitis við Andreotti í réttarsal
í fangelsi fyrir hættulega glæpa-
menn í Padua á Norður-Italíu.
Akveðið var að yfirheyra Buscetta
í fangelsinu vegna ótta við að sikil-
eyska mafían reyndi að ráða hann
af dögum.
„Ég hefði getað nefnt Andre-
otti um Ieið og ég hóf samvinn-
una,“ sagði Buscetta, sem er 57
ára. „En hann var svo voldugur
að gert hefði verið grín að mér
og annar vitnisburður minn dreg-
inn í efa.“
Andreotti neitar ásökunum um
að hafa gegnt hlutverki pólitísks
verndara mafíunnar í Róm og
sagði fréttamönnum að ekkert
nýtt hefði komið fram í vitnis-
burðinum.
Buscetta hefur verið kallaður
„Foringi tveggja heima“ innan
mafíunnar og vitnisburður hans
leiddi til þess að 338 liðsmenn
licnnar, þeirra á meðal Salvatore
Riina, fengu stranga fangelsis-
dóma árið 1987.