Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ríkið sýknað af kröfu yfirlögregluþj óns HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði á mánudag ríkissjóð af bótakröfum Gunnars Guðmunds- sonar, fyrrum yfirlögregluþjóns á Siglufirði, sem taldi að dómsmála- ráðherra hefði vikið sér úr starfi með ólögmætum og saknæmum hætti og krafðist 12 millóna króna bóta. Gunnar var leystur frá störfum í maí 1993 þegar fram fór rann- sókn á innflutningi og tollaf- greisðlu á vegum embættis sýslu- mannsins á Siglufirði. Honum var síðan veitt fullnaðarlausn frá störf- um 12. október sama ár. Hinn 4. febrúar 1994 var höfðað sakamál á hendur Gunnari og þáverandi sýslumanni vegna ýmissa atriða sem lutu að innflutningi og tollaf- greiðslu og meðferð og eyðingu áfengis sem hald lagt hafði verið á vegum embættisins. Gunnar var sýknaður í Hæsta- rétti í nóvember 1994 af öllum kröf- um í sakamáli sem höfðað var gegn honum og fyrrum sýslumanni á staðnum en sýslumaður var sak- felldur í málinu. Áður hafði Gunnar einnig verið sýknaður í héraðsdómi. Bótakröfur hans byggðust á því að í bréfi því, þar sem dómsmála- ráðherra vék honum frá störfum, hafi verið tilgreindar þær brottvikn- ingarástæður að Gunnar hafí í tvö tilgreind skipti gerst sekur um refsi- vert athæfi í starfi. Ríkissaksóknari ákærði hann vegna þeirra atriða sem tíunduð voru í bréfi ráðuneytis- ins en hvorki héraðsdómur né Hæstiréttur féllust á að sekt Gunn- ars væri sönnuð og sýknuðu hann af öllum kröfum. Vegna sýknunar væru forsendur brottvikningarinnar fallnar um sig sjálfar. í niðurstöðum Héraðsdóms Reykjavíkur, sem Steingrímur Gautur Kristjánsson, Allan Vagn Magnússon og Arngrímur ísberg kváðu upp í gær, er farið yfir þær sakargiftir sem krafist var refsing- ar fyrir í sakamálinu og komist að því að þar hafi Gunnar í ýmsum atriðum brotið gegn starfsskyldum sínum þótt ekki hafi verið um refsi- verð brot að ræða. Þegar þess sé gætt verði fallist á það með ríkinu, sem krafðist sýknu í málinu, að atferli hans hafi verið ósamrýmanlegt því ábyrgðarstarfi sem Gunnar gegndi. Því hafi verið rétt sam- kvæmt lögum um réttindi og skyld- ur starfsmanna ríkisins að víkja honum úr starfi og ekki hafi verið skylt að leita vægilegri úrræða, á borð við áminningu. Þegar Gunnari hafi verið vikið frá hafði farið fram rannsókn á meintum ávirðingum hans. Öllum yfirheyrslum hafi verið lokið og ein- ungis aflað bréflegra upplýsinga frá yfítyöldum eftir frávikninguna. Álíta verði að mál hans hafi þá verið orðið nægilega upplýst og því verði bótaréttur ekki byggður á því að ákvörðun um fullnaðar- lausn frá störfum hafi verið ótíma- bær eins og fram var haldið af hálfu yfirlögregluþjónsins, sem taldi að slík ákvörðun hefði átt að bíða dómsniðurstöðu. Þá segir að lausn Gunnars hafi verið rökstudd með því að hann hefði gerst sekur um refsiverða háttsemi sem hann hafi síðan ver- ið sýknaður af en samkvæmt meginniðurstöðum dómsins hefði nægt að vísa til starfsmannalaga um ástæður fyrir ákvörðuninni. Því var talið að Gunnar Guð- mundsson hafi ekki sýnt fram á að hann hefði orðið fyrir tjóni sem ríkisjsóður beri ábyrgð á. Því var ríkið sýknað af kröfum hans en hvorum aðila var þó gert að bera eigin kostnað af rekstri málsins enda segir dómurinn að eftir dómsniðurstöðu í sakamálinu hafi Gunnar haft nokkra ástæðu til að láta reyna á bótarétt sinn fyrir dómi. Bændum greiddar 18 millj- ónir úr stofnsjóði MSB Minningar- bók um Mitterrand ÞEIR sem vilja tjá samúð sína vegna andláts Francois Mit- terrands, fyrrverandi Frakk- landsforseta, geta ritað nöfn sín í minningarbók, sem liggja mun frammi í franska sendi- ráðinu á Túngötu 22 í Reykja- vík, dagana 10., 11. og 12. janúar, frá kl. 9.30 til 12.30 fyrir hádegi og frá kl. 14.30 til 17.00 eftir hádegi. STOFNSJÓÐUR í Mjólkursamlagi Borgfirðinga, sem hætti mjólkur- vinnslu um áramótin, hefur undan- fama daga verið greiddur út til bænda sem lögðu inn mjólk hjá sam- laginu. Samtals er stofnsjóðurinn rúmar 18 milljónir króna og fá 150-160 aðilar greiðslur úr honum. Bændur í héraðinu leggja nú inn mjólk sína hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík, en innvigtun mjólkurinn- ar fer fram hjá Engjaási ehf. sem tók til starfa í Borgamesi um ára- mótin. Það fyrirtæki er til helminga í eigu Kaupfélags Borgfirðinga ann- ars vegar og Osta- og smjörsölunn- ar, Mjólkursamsölunnar og Mjólkur- bús Flóamanna hins vegar. Að sögn Þóris Páls Guðjónssonar kaupfélagsstjóra hefur allt starfsfólk sem starfaði hjá Mjólkursamlaginu verið ráðið til starfa hjá Engjaási, eða um 30 manns. Þar er nú vín- biöndun fyrir Icy vodka og Catco hf., pizzugerð og þjónusta í sam- bandi við innvigtun mjólkur og sala mjólkurafurða til verslana. Evrópumálin Megrim ekki fórna hinni félagslegu stefnu Evrópu Freddy Willcockx BELGAR eru meðal þeirra þjóða, sem mesta áherslu hafa lagt á að Evrópu- samruninn verði sem allra víðtækastur á sem flestum sviðum. Sósíal- istinn Freddy Willockx er fyrrum ráðherra í belgísku ríkisstjóminni og nú einn helsti baráttu- maðurinn fyrir því á Evr- ópuþinginu að Evrópu- sambandið þróist í sam- bandsríki. Willockx segir að í ljósi þess að efasemda gæti um ágæti pólitísks sam- runa aðildaríkjanna sé æskilegt að færa hægt í frekari fjölgun þeirra. „Evrópusambandið var myndað til að forða okk- ur frá þriðju heimsstyijöldinni. í upphafi studdust menn við efnahagssamvinnu til að ná því markmiði. Nú er svo komið að þegar menn gerast aðilar að Evrópu þá ganga þeir inn í póli- tískt samband. Ég er mikill fylg- ismaður hefðbundinna norrænna gilda. Á Norðurlöndum eru hins vegar jafnvel jafnaðarmenn með efasemdir um pólitíska samrun- ann. Við munum eflaust ekki ná okkar fram fyrr en Major [for- sætisráðherra Bretlands] fer frá völdum. Það er því mín skoðun og margra annarra að best sé að bíða. „Það verður hins vegar að viðurkennast að þegar kemur að félagslegum málefnum og umhverfisvernd standa Norður- löndin framarlega. Við verðum því að aðstoða þau við að vinna bug á þessum efasemdum og skilja að pólitískar hefðir þeirra eru frábrugðnar okkar. Þetta er þróun sem verður hægt og síg- andi,“ segir Willockx. Hann segir, aðspurður um við- horf sín til peningalegs samruna ESB-ríkjanna, að þegar frelsi sé aukið á fjármagnsmörkuðum verði jafnframt að koma á lág- marks samræmingu í skattamál- um. Ella hafi aðildarríkin ekki kost á að framfylgja stefnu sinni í félagslegum málefnum. „Sem sósíalisti get ég ekki fallist á að þróuðustu félagslegu kerfin verði ekki samkeppnishæf. Við þurfum að koma á einhverri samræmingu í félagslegum mál- um. Ef skref verða ekki stigin í þá átt á ríkjaráðstefnunni erum við í miklum vanda.“ Willockx segir ríkjaráðstefn- una, sem hefst síðar á þessu ári, ekki vera markmið í sjálfu sér. Mikilvægara markmið sé að breyta gildis- matinu og herða leik- reglur markaðarins. „Ég er þeirrar skoðunar að þegar við eigum í viðræðum um viðskipta- mál við til dæmis Asíu, að við eigum þá samhliða að semja um félagsleg málefni. Bandaríkin eru einnig vissulega háþróað ríki en vanþróað félagslega. Ég batt miklar vonir við Clinton en hef orðið fyrir vonbrigðum. Þá þurf- um við aukinn sveigjanleika. Minna skrifræði og einfaldara kerfí. Það má hins vegar ekki bitna á hinu félagslega öryggi." En er ekki Ijóst að það myndi bitna á þróunarríkjunum ef Evr- ► Freddy Willcockx fæddist 2. september 1947 í Sint- Niklaas í Belgíu. Hann er fé- lagi í belgíska sósíalista- flokknum og fyrrverandi ráð- herra í fjármálaráðuneytinu og ráðherra fjarskipta- og líf- eyrismála. Undanfarin ár hefur hann setið á Evrópu- þinginu og er varaformaður fjárlaganefndar þingsins. ópuríki ætluðu að setja félags- legar aðgerðir sem skiiyrði fyrír milliríkja viðskiptum 7 „Þegar félagsleg staða fólks •er í molum veldur það spennu er getur leitt til átaka. Við getum að mínu mati náð árangri ti! lengri tíma litið með því að setja félagslegu málin á oddin. Við verðum að þrýsta á innan GATT.“ Aðspurður um hvað hann telji mikilvægast að komi út úr ríkja- ráðstefnunni segir Willcockx að hann vilji nefna fjögur atriði. . í fyrsta lagi verði að einfalda samskiptin milli ráðherraráðs, framkvæmdastjórnar og Evr- ópuþingsins þannig að mikilvæg pólitísk mál verði ekki útundan. I öðru lagi verði Bretar að taka þátt í hinum félagslega kafla Maastricht. Það sé ekki hægt að veita undanþágu til frambúð- ar. í þriðja lagi verði að taka upp meirihlutaákvarðanir, en ekki samhljóða ákvarðanir, í auknum mæli þegar skattamál eru til umræðu í ráðherraráðinu. í fjórða lagi verður að auka sam- starfið á sviði utanríkismála, og dóms- og lögreglu- mála. „Hvað sjálft Evr- ópuþingið varðar þá er nauðsynlegt að ein- falda starfsaðferðir þess. Sömuleiðis verður að auka áhrif þingsins, ekki síst á land- búnaðarmál. Mikilvægasta verk- efnið er að þingið geti haft auk- in áhrif á fjárútlát þess mála- flokks. Þá verður einnig að koma á skýrum reglum um stöðu fram- kvæmdastjórnarinnar gagnvart þinginu þannig að Evrópuþingið geti beitt framkvæmdastjómina svipuðu aðhaldi og þing veitir ríkisstjórnum. Það eru ekki ein- ungis Bretar sem eru andvígir slíkri þróun. Frakkar, Hollend- ingar og jafnvel Þjóðveijar hafa sínar efasemdir." Auka verður áhrif Evrópu- þingsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.