Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Norðurland eystra fyrsta umdæmið til að leggja niður búsetu fatlaðra á vistheimili Síðustu íbúar Sólborgar fl>ija á sambýli í dag SÍÐUSTU íbúarnir á vistheimilinu Sólborg flytja á sambýli í dag, miðvikudag, og, er Norðurland eystra þar með fyrsta umdæm- ið þar sem búseta fatlaðra á vistheimili er aflögð, en allir íbúar heimilisins hafa nú flutt út á sambýli eða í íbúðir. Bjarni Kristjánsson forstöðumaður Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Norð- urlandi eystra segir um merkan áfanga að ræða. „Við teljum að þarna sé verið að gefa fólki tækifæri til að lifa við mun eðli- legri aðstæður úti í samfélaginu. Reynsla okkar er sú að það hefur jákvæð áhrif á fólkið, það fær aðra sjálfsmynd og verður betur sjálfbjarga,“ sagði Bjarni. Hann vís- aði einnig til þess réttar sem kveðið er á um í lögum þar sem segir að fatlaðir skulu búa við skilyrði sem eru sem líkust því sem hinn almenni borgari kýs sér til handa. „Við erum að reyna að framfylgja þessum ákvæðum laganna auk þess að mæta óskum fólksins sjálfs." Bjarni sagði að hvergi annars staðar væri verið að vinna markvisst að því að leggja niður búsetu fatlaðra inni á stofnun- um nema á Kópavogshælinu. „Við höfum haft á að skipa fólki sem hefur áhuga á að vinna að þessu markmiði. Stefnumótun stjórnvalda er ekki öflugri en svo að það er háð viðhorfum starfsmanna á hveijum stað og tíma hvaða leiðir eru farnar.“ Dagdeild verður enn um sinn starfrækt á Sólborg, en framkvæmdir við byggingu hæfingarstöðvar sem leysa mun haiía af hólmi eru þegar hafnar og sagði Bjarni að áætlað væri að þeim lyki 1. nóvember næstkomandi. 15 sambýli Á Norðurlandi eystra era nú 15 sam- býli, 13 á Akureyri og 2 á Húsavík. Á þess- um sambýlum er 71 íbúi en auk þess þjón- ustar svæðisskrifstofan einstaklinga í 8 íbúðum sem eru 13 talsins, þannig að alls er um að ræða 84 einstaklinga í 22 sambýl- um eða íbúðum. Morgunblaðið/Kristján ÁRNl Halldórsson, Andri Harðarson, Ómar A. Bjarnason og Jón Þ. Arason flylja síðastir í dag. Með þeim eru Petrea Krisljánsdóttir og Guðrún Trampe. STARFSFÖLK Sólborgar, Kristján Grant sendibílstjóri, Sólveig Alfreðsdóttir, Þorbjörg Guðmundsdóttir og Halla Birgisdóttir önnum kafin við flutninga. Morgunblaðið/Kristján Vel sóttir Sinfóníutónleikar ANDI rómantíska tímabilsins sveif yfir vötnum á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norður- lands sem haldnir voru í Akur- eyrarkirkju á sunnudag en þeir voru vel sóttir. Þrjú verk voru á efnisskránni, 9. sinfónía Dvor- aks „Úr nýja heiminum", selló- konsert Schumanns og Elegia - Harmljóð eftir Szymon Kuran. Einleikari í konsertinum var Gunnar Kvaran, en Guðmundur Óli Gunnarsson stjórnaði hljóm- sveitinni. Árleg jólatalning fugla á Akureyri Óvenjufáir fuglar sá- ust eftir frostakaflann ÓVENJUFÁIR fuglar sáust í ár- legri jólatalningu fugla á Akureyri en hún fór fram sunnudaginn 7. janúar í 44. sinn. Akureyringar töldu fugla á svæði frá Skjaldarvík og suður fyrir Akureyrarflugvöll auk þess sem nýju svæði á ofan- verðri brekkunni var bætt við. Alls sáust 2.017 fuglar og segir Jón Magnússon, umsjónarmaður talningarinnar, það með allra minnsta móti, en algengt sé að um 4.000 til 6.000 fuglar séu taldir árlega. Nefndi hann að æðarfulgar hafa aldrei verið eins fáliðaðir og nú frá því hann hóf fuglatalningar fyrir um 10 árum. Hið sama mætti segja um svartbak og hettumáf, en hann hefur ekki vantað í taln- ingu síðustu ára. Iðulega hafi verið um 200-400 fuglar, en sáust ekki nú. Tegundirnar sem sáust voru 20 auk ógreindra máfa sem er svipað og á síðustu árum. Óvenjumargir hrafnar Jón telur eðlilegt að fuglar séu fáir inni í Eyjafirði eftir frosthörk- urnar undanfarna daga. Líklegt sé að ýmsir fuglar hafi fært sig nær úthafinu þar sem sjór er trúlega hlýrri eða eitthvað suður á bóginn. Nefndi Jón að nú, annað árið í röð, hafi duggendur haldið sig út undir Krossanesi yfir vetrarmánuð- ina. Einnig kom fram við talninguna að óvenju mikið er af hröfnum á Akureyri um þessar mundir. Jón segir krumma leita nær mönnunum þegar kalt er eins og verið hafi um jólin, þegar lítið sé um að vera í náttúrunni er auðveldara að næla sér í bita sem falla af borðum manna. Tölurnar segja ekki til um stofnstærð Alls voru taldar 550 stokkendur, 19 hávellur, 546 æðarfuglar, 5 gul- endur, 1 toppönd, 2 dílaskarfar, 1 fálki, 83 silfurmáfar, 27 svartbak- ar, 9 hvítmáfar, 58 bjartmáfar, 3 ritur, 1 teista, 105 hrafnar, 11 skógarþrestir, 27 auðnutittlingar, 339 snjótittlingar, 211 ógreindir máfar, 3 dúfur, 3 duggendur og 13 grágæsir, þar af 10 hvítar. Töl- umar segja, að sögn Jóns, ekkert um stofnstærð fuglanna. Deilt um eftirlit á Flæmingjagrimni Snorri Snorrason bíður frekari skýr- inga frá ráðherra SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA hef- ur boðað að hann ætli að skrifa eða hafa samband við okkur og við bíð- um auðvitað eftir því,“ segir Snorri Snorrason, sem gerir út Dalborgina á Elæmingjagrunni. Hann segir að þangað til verði eftirlitsmönnum Fiskistofu ekki hleypt um borð. „Málið snýst um framtíðina og hvað hún felur í sér,“ segir hann. „Það er forvitnilegt að forstöðu- manni veiðieftirlitsins og sjávarút- vegsráðherra ber ekki saman um það hvort Fiskistofa eða útgerðirnar eigi að bera kostnað af fæði eftirlits- mannanna. Kanadamenn áttu að borga Þorsteinn fer háðulegum orðum um það að þetta sé ekki mikill kost.n- aður. Hann væri kannski reiðubúinn að taka að sér að sjá einum manni fyrir fæði og húsnæði á ársgrund- velli og borga honum svo 10 þúsund krónur á dag innan skamms fyrir að gera ekki neitt. Mér sýnist liggja aiveg beint við að við verðum látnir borga kostnað við þetta eftirlit í framtíðinni.“ Snorri segir að það sé misskilning- ur að íslendingar þurfi að fara að þessari alþjóðasamþykkt: „Þetta var samþykkt á þeirri forsendu að Kanada ætlaði að borga kostnaðinn. Sú forsenda brast og þá hlýtur sam- komulagið að vera út í bláinn." Samningar til af mannavöldum Hann bætir því við að alþjóðlegir samningar verði ekki til af náttúru- hamförum heldur séu þeir af manna- völdum. „Það er sjávarútvegsráðu- neytið sem gerir þessa samninga og það hlýtur að vera hægt að ætlast til að þeir viti hvað þeir skrifa und- ir,“ segir hann. „Þorsteinn hefur sagt að það séu ekki Fiskistofa og Sjávarútvegs- ráðuneytið sem gefi út þessa reglu- gerð. Það er þá skrýtið ef ráðuneyt- ið hefur ekkert með þá reglugerð að gera sem það sendir út.“ Hlutavelta lUUIgUIIUWUIU/ IVI lðtja.11 VINKONURNAR Ásrún Ýr Rúnarsdóttir og Hildur Hauks- dóttir efndu til hlutaveltu fyrir skömmu og söfnuðu tæplega 8.000 krónum sem þær afhentu Hjálparstofnun kirkjunnar í söfnunina Brauð handa hungruðum heimi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.