Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR íslenski markaðurinn - frjóangi í grýttum jarðvegi íslenski markaðurinn Heildarsala hljómplatna á íslandi árið 1994 var 492.390 eintök og heildsöluverðmæti 437.672.000 krónur. Af þeim sökum lætur nærri að heildarvelta í smásölu án virðis- auka sé um 640 milljónir króna. Tvennt vekur sérstaka athygli þeg: ar þessar töiur eru skoðaðar. I fyrsta lagi var engin verðmæta- auknig milli áranna ’93 og ’94 á sama tíma og hún var t.d. um 20% að meðaltali á hinum Norðurlöndun- um. í öðru lagi var neysla skv. höfðatölu talsvert lægri hér á landi en á Norðurlöndunum, eða 1,8 ein- tök á mann samanborið við 3 eintök hjá öðrum Norðurlandabúum. Út- reikningur byggður á höfðatölu hef- ur þó lengi vel dugað til að sýna yfirburði Islendinga í neyslu varn- ings. Það er Ijóst að jafnvel þó að ein- hver aukning verði á sölu hljóm- platna hér á Iandi, t.d. þannig að neyslan verði í samræmi við hin Norðurlöndin, breytir það samt ekki þeirri staðreynd að ísland er og verð- ur „dvergmarkaður". Smæðin kem- ur átakanlega glöggt fram með sam- anburði á sölu við „Debut“, fyrstu plötu Bjarkar Guðmundsdóttur, sem selst hefur í um 3 milljónum eintaka í heiminum eða sem nemur sexfaldri árlegri heildarveltu íslenska hljóm- plötumarkaðarins. Útgefendur geta náð þokkalegri framlegð með sölu erlendra hljóm- platna, en íslensk hljómplötuútgáfa getur ekki skilað neinni framlegð nema takist að afla markaða á er- lendum vettvangi fyrir íslenska tón- Tónlistaríðnaðurínn, segir Steinar Berg Isleifsson í annarrí grein sinni, skapar _> 750-1000 ársverk þegar allt er talið. list. Til að útskýra þessa fullyrðingu má taka einfalt dæmi. Heildarsala íslenskra hljómplatna árið 1994 var u.þ.b 210.000 eintök, en þar af er áætluð sala áðurútgef- ins efnis og safnplatna (að mestu með erlendu efni) 70.000 eintök, sala nýrra útgáfna er því á ári hveiju u.þ.b. 140.000 eintök: Heildarútgáfa nýrra hljómplatna er rekin með rúmlega 50 milljóna króna árlegum halla og þá er ekki tekið tillit til þóknunar útgefanda og flytjenda sem báðir eiga sinn hlut undir því að útgáfan nái að skila framlegð. Meirihluti þessa halla er borinn af einstaklingum sem standa að útgáfu eigin efnis. Þrátt fyrir að útkoma á sölu ís- lenskra hljómplatna skili ekki betri útkomu en raun ber vitni, verður að hafa það í huga að tónlistariðnað- urinn byggist á mörgum fleiri þátt- um en sölu nýrra íslenskra hljóm- platna. Þeir þættir standa undir þeim halla sem er á íslensku útgáfunni. Það er einnig vert að gefa því gaum að tónlistariðnaðurinn skapar beint og óbeint milli 750 til 1000 ársverk þegar allt er talið til, þ.e. starfsmenn við útgáfu- fyrirækin, starfsmenn í hljómplötuverslunum, höfundar, hljóðfæra- leikarar, söngvarar, upptökumenn og aðrir tæknimenn, hönnuðir og ýmsir aðrir. Þannig er tónlistariðnaðurinn nú þegar mikilvæg at- vinnugrein þó honum hafi ekki verið markað- ur sérstakur bás í at- vinnulífi þjóðarinnar. Ef það tækist að stækka íslenska hljóm- plötumarkaðinn með því að selja erlendis fyrir sömu verðmæti og nú eru að skila sér á heimamark- aðinum, eða um 440 milljónir, myndu um 25-30% þeirra verð- mæta, eða 110-130 milljónir kr., skila sér í útflutningstekjur árlega. Þegar tekið er tillit til umfangs heimsmarkaðarins er þetta ákaf- lega hóflegt markmið. Náist þetta markmið skapast jafnframt aðrir möguleikar en á sviði hljómplötu- sölu, eins og síðar verður komið að. Einnig yrði varanlegum stoðum skotið undir útflutning á íslenskri tónlist, en slíkt er forsenda þess að margfeldisáhrifa myndi gæta á hið upphaflega markmið. Eins og dæm- ið með Björk sýnir er það alls ekki fjariægur möguleiki. Til þess að byijunarskref verði tekin í þessa átt verða íslenskir út- gáfuaðilar -og íslensk stjórnvöld að kynna sér möguleika hvor annars til þess að geta verið samstíga í markmiðssetningu og aðgerðum fyr- ir íslenskan tónlistar- iðnað. Opinber stuðningur Mikilvægasti þáttur í því að hvetja evrópsk útgáfufyrirtæki til markaðssóknar í sam- vinnu við evrópska flytjendur og höfunda á sínum heimamarkaði er sú staðreynd að veru- lega aukin tækifæri bjóðast nú á útflutn- ingsmöguleikum til markaðssvæða sem eru í reynd að þróast í að verða hluti eigin heima- markaðar. Opinberir aðilar hafa einnig áttað sig á þess- ari staðreynd víðast hvar og hafa því markað skýra stefnu hvað varðar stuðning við útgáfu tónlistar með það að markmiði að skapa útflutn- ingstekjur og stuðla þannig að því að tónlist geti leitt af sér öfluga atvinnugrein. Forsenda þess er að þau fyrirtæki sem í greininni starfa njóti sambærilegra skilyrða og önnur fyrirtæki sem starfa að útflutnings- málum. Þetta hefur í reynd þýtt talsverða breytingu á viðhorfi þar sem við- skiptaleg gildi hafa fengið aukið vægi og hætt er að líta á tónlist eingöngu sem hluta af menningu þjóðar heldur einnig sem samkeppn- isiðnað. Afleiðingin hefur orðið sú að veruleg breyting hefur orðið í þeim mennta- og menningarráðu- neytum sem víðast hafa farið með þennan málafíokk og hann sums staðar færst að hluta til inn í at- Steinar Berg Isleifsson vinnumálaráðuneyti eins og t.d. iðn- aðar- eða viðskiptaráðuneyti hinna ýmsu Ianda. Nýverið hefur verið gerð skýrsla um opinberan stuðning stjórnvalda á Norðurlöndum við tónlist og tón- listariðnaðinn þar. Ekki tókst að fá sambærilega sundurliðun á fjár- stuðningi íslenskra stjórnvalda við tónlist og fékkst frá hinum Norður- löndunum. Heildartala sú sem ís- lensk stjórnvöld gefa upp inniheldur Ijárveitingar til tónlistarskóla og því ekki sambærileg við hin Norðurlönd- in vegna þess að þar eru framlög til tónlistarskóla ekki flokkuð á sama hátt. Samkvæmt þessari úttekt um op- inberan stuðning við tónlist leggja sænsk stjórnvöld þarlendum útgef- endum tónlistar til tæplega 100 millj- ónir íslenskra króna til útgáfu og kynningar sænskrar tónlistar, jafn- framt því að leggja um 20 milljónir til upplýsingamiðlunar á sænskri tón- list. Skýringin er sú augljósa stað- reynd að útflutningur tónlistar skilar sænska ríkiskassanum margfaldri upphæð framlagsins, eða hátt í millj- arði íslenskra króna umfram það sem annars hefði verið. Þá kemur fram það mat að, listin er fram- leiðsla i óeiginlegri merkingu, því fátt er til að festa hönd á. Afurðir hennar eru þeim mun verðmætari vegna mikillar framleiðni á hveiju stigi „framleiðslunnar" frá sjálfri listsköpuninni þar sem höfundarrétt- urinn verður til og þar til „varan“ kemst í hendur, eyru og augu „neyt- andans“, þess er meðtekur. Það er hinsvegar fyrirliggjandi að stuðningur íslenskra stjórnvalda til að styrkja samkeppnishæfni eða út- flutningsmöguleika tónlistariðnað- arins hefur verið því sem næst eng- inn. Helstu heimildir: Skýrsla Intemational Federati- on of Phonographic Industry, World Sales ’94. Skýrsla Sambands hljómplötuframleiðenda, ís- lenskur hljómplötumarkaður 1994. „Tvö dæmi til umhugsunar“. Grein eftir Jónas H. Höfundur er framkvæmdasljóri Spors hf. Tónlistin er engin ambátt kirkjunnar ÞESSI grein andmælir lítilsvirð- ingu tónlistinnar sem listgrein í pistl- unum „Tónlistin eða trúin?“ eftir Þorgrím DaníelsSon og „Bréf til síra Flóka Kristinssonar" eftir Guðmund •Ola Olafsson, er birtust í Morgun- blaðinu. Grundvallaratriði Séra Þorgrímur ræðir grundvall- aratriði og er það mjög virðingar- vert. Og auðvelt er að fallast á þá skoðun hans að hlutverk kirkjunnar sé það að flytja guðsþjónustur. Þor- grímur segir að listirnar séu vel- komnar í „helgidóminn" með einu skilyrði: „Listirnar verða að átta sig á því hver húsbóndinn er.“ Síðar segir hann að verið geti að tónlistar- menn komi fram í kirkjunum „frem- ur á tónlistarlegum forsendum held- ur en trúarlegum". Ennfremur: „Tónlistin getur sest í hásæti í sinni h’öll. En í kirkjunni verður hún (eins og aðrar listir og menn) aldrei meira en þjónn . .. Hann (þ.e. tónlistar- maður er ekki vill þjóna „herra kirkj- unnar“ innsk. SÞG) á ekki heima sem starfsmaður kirkjunnar ef hann getur ekki sætt sig við að láta list sína þjóna trúnni... Utan kirkju hafa þeir rétt til að gera það sem þeim gott þyk- ir.“ Þorgrímur telur sig eflaust ekki gera lítið úr tónlistinni, en virðist þó ekki gera sér neina grein fyrir því grund- vallaratriði um hana sem nú verður útlistað. Sjálfstæð listgrein Tónlist sem menn- ingarsköpun er sjálf- stætt fyrirbrigði og lýt- ur eigin innri lögmál- um. Heimur hennar er afar óhlutbundinn og sjálfum sér nógur líkt og stærðfræðin. Mál hennar er byggt upp af tónum, hljómum, hljóðfalli og öðrum eigind- um, sem eru sérkennandi fyrir hana. Með ýmiss konar listbrögðum skír- skotar hún fyrst og síðast til fegurð- arkenndar okkar í víðtækum skiln- ingi. Hún heyrir því undir fagur- fræði en ekki trúfræði eða aðra hugmyndalega umþenkingu manna til að gera sér grein fyrir veröld- inni. Þau hughrif sem tónlistin vekur með hlustendum, hvort sem tónverk- in tengjast textum um guð eða erótíska ást eða styðjast ekki við neins konar texta, hvíla á því - og því einu - hvernig tónskáldin skipa niður efniviði sín- um eftir innri lögmálum listarinnar og hvernig flytjendur túlka eftir öllum kúnstarinnar reglum þau músiklegu fyrirbrigði sem tón- skáldið setur fram. Það er algert grundvallarat- riði að skilja þetta. Þeg- ar við hrífumst af „há- leitri trúartónlist" veld- ur því þess vegna ekki persónulegur trúarhiti tónskáldsins heldur listræn snilld þess. Annars myndum við ekki hrífast neitt. Svip- aður „háleitleiki" er auðfundinn i hvers kyns veraldlegri músik, svo sem 9. sinfóníu Beethovens og óper- unni Parsifal eftir Wagner. Alveg óhjákvæmilega leiðir röklega af þessu að tónlistarmaður getur aldrei verið annað en listamaður fyrst og fremst, hvar sem hann flytur list sína, jafnt í guðsþjónustu sem við önnur tækifæri. Og sannleikurinn er sá að engin eðlismunur er á trúar- legri tónlist og veraldlegri og skarp- ur greinarmunur á þessu tvennu er skiptir litlu máli í músikfræðum og tónlistarsögu. Fjöldi þekktra sál- malaga eru í rauninni götusöngvar sem síðar fengu trúarlega texta. Og mörg „trúarleg" verk Bachs voru fyrst samin við veraldlega texta en síðan aðlöguð trúarorðum. Frægasta dæmið er Jólaóratórían. En mest sláandi er ef til vill kantatan nr. 34 sem samin var fyrir brúðkaup. Þar er einhver fegursta aría Bachs. Síðar breytti textahöfundur upphaflegu IÐNAÐARHURÐIR - BILSKURSHURÐIR ÞAK- OG VEGGSTÁL ISYAl-BORGA í-l/F HÖFÐABAKKA 9-112 REYKJAVÍK - SÍMI: 587 8750 - FAX: 587 8751 Sigurður Þór Guðjónsson Tónlistin getur, að mati Signrðar Þórs Guðjónssonar, aukið áhrifamátt trúar- legrar tilbeiðslu með fegurð sinni.“ skjalli aríunnar um brúðgumann í lofgerð um Jesú. Tónlistin breytti ekki um eðli þegar textanum var snúið. Hinn blíði og allt að því eró- tíski undirtónn hennar er óbreyttur! Hvers eðlis er þá sú „tilbeiðsla" er vaknar í bijósti hlustandans þegar arían er sungin við hinn trúarlega texta? Og er þetta trúarleg músik? Svari hver fyrir sig. Að segja að Bach hafi samið alla tónlist sína guði til dýrðar er hins vegar klisja sem hefur enga raunhæfa músik- merkingu. Kúgun eða samvinna? Séra Guðmuiidur Óli talar niður til tónlistarinnar í öðru hveiju orði; telur vafasamt að lögvernda beri starf organista nema þeir beygi sig skilyrðislaust undir það sem hann kallar „kirkjuaga", og vill ekki gera kirkjuna að „menningarhöll“. En auðvitað á hún að vera bæði trúar- stofnun og menningarhöll eins ög hún hefur ávallt verið. Ég hef setið guðsþjónustu í Tómasarkirkjunni í Leipzig þar sem flutt var kantata dagsins eftir Bach. Og í hinni kaþ- ólsku Vínarborg hef ég heyrt heilu messurnar eftir Haydn, Mozart og Schubert í venjulegum guðsþjón- ustum. Sú var tíðin að tónlistarmenn voru réttlausir þrælar kirkju eða veráld- legra höfðingja. En list þeirra var þó oftast fijáls. Og hún hefur fyrir löngu öðlast frían og virtan sess sem einn af hornsteinum heimsmenning- arinnar. Og hún getur aldrei þjónað öðru en sjálfri sér. Að gera kröfu til þess að tónlistarmenn verði eitt- hvað annað en listamenn, verði eins konar trúboðar, þótt þeir flytji tón- list við helgiathafnir kirkjunnar, er afleitur misskilningur á eðli listar- innar, hvað sem líður persónulegri trú einstakra tónlistarmanna. En vegna þess að tónlistin getur vakið upp hvers kyns hughrif tengist hún auðveldlega flestum fyrirbrigðum mannlífsins. Hún getur því aukið áhrifamátt trúarlegrar tilbeiðslu með fegurð sinni, en aldrei orðið ambátt eða þjónusta kirkjunnar. Prestarnir verða að bera virðingu fyrir listinni á hennar eigin forsend- um. Annars geta þeir ekki vænst þess að virðing sé borin fyrir trú þeirra sjálfra. Svo einfalt er þetta. Hins vegar sýnist sem ýmsir prestar vilji ekki í helgihaldi sínu eiga bróð- urlega samvinnu við tónlistina og bera fyrir henni nærgætna virðingu. Að segja bara si svona fágunarlaust við tónlistarmenn að þeir verði að hlýða kirkjuaga og virða „húsbónd- ann“, en kallast „uppreisnarmenn", „málaliðar" og jafnvel vanheilagir ef út af því bregður, er átjándu ald- ar tímaskekkja í mannlegum sam- skiptum og mun einungis vekja upp andúð músikanta í garð kirkjunnar. Meimingarleysi Mig grunar að þessi viðhorf til tónlistarinnar eigi þó sterkan hljóm- grunn innan þjóðkirkjunnar. Verald- legar músikstofnanir eins og Pólý- fónkórinn hafa aðallega kynnt okkur meistaraverk trúarlegrar tónlistar. Ingólfur Guðbrandsson Iét nýlega þó ósk uppi í Morgunblaðinu að kirkjukórar flyttu fleiri af hinum dýrlegu kantötum Bachs. Eins og nú er málum komið verður líklega bið á því. Frá sjónarmiði menningar- innar má reyndar vel vera að þeirri sjálfsögðu listkröfu, að við fáum að heyra þá stórbrotnu tónlist sem sam- in er við trúarlega texta, sé best fullnægt með því að hún verði hér eftir eingöngu flutt sem konsertmús- ik af veraldlegum tónlistarstofnun- um, en kirkjan komi þar hvergi nærri. En mikið andskoti yrði það snautleg menningarhneisa fyrir þjóðkirkjuna eftir þúsund ára starf. Höfundur er tónlisUirunnandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.